Morgunblaðið - 19.09.1995, Síða 21

Morgunblaðið - 19.09.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995 21 SlMl SSl 445S Yohji Yamamoto, Dolce & Eabbana, Saki, Icaberg, Benetton, Filtenberg ag Ileiri Páfi kominn til Kenýa í 11. Afríkuferðinni, múslimar ætla að sniðganga páfaheimsóknina Israel og PLO nálg- ast sam- komulag ÍSRAELAR og Frelsissamtök Palestínu (PLO) þokast nú í átt að samkomulagi um að auka sjálfstjórn Palestínu- manna á Vesturbakkanum. Hins vegar er efast um að samkomulag náist í tæka tíð til að hægt verði að undirrita það í Washington á fimmtu- dag eins og ætlað var. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, gaf í skyn að það væri ísraela að tryggja brautargengi sam- komulags. Bandaríkjamenn kváðust í gær gera sér grein fyrir þeim vandamálum, sem blöstu við samningsaðiljum, og litlu skipti þótt undirritun frestað- ist. Vandi þýskra jafnaðar- manna NEYÐARÁSTAND ríkir nú meðal þýskra jafnaðarmanna vegna deilna Rudolfs Sharp- ings, formanns flokksins, og Gerhards Schröders, forsætis- ráðherra Neðra-Saxlands. Flokksmenn eru farnir að beina sjónum sínum að Heide Simonis, forsætisráðherra Slésvíkur/Holtsetalands, og velta fyrir sér hvort betra væri að kona leiddi flokkinn gegn Helmut Kohl kanslara. Samkvæmt könnun, sem sjónvarpsstöðin ZDF birti um helgina njóta jafnaðarmenn nú aðeins fylgis 34% kjósenda og hafa kristilegir demó- kratar níu prósentustiga for- skot á þá. Staða flokksins hefur ekki batnað við það að tveir hátt- settir flokksmenn sögðu af sér um helgina. Tískujöfrar fyrir rétt JÖFRAR ítalsks tískuheims verða dregnir fyrir rétt í þess- ari viku fyrir spillingu. Þeirra á meðal eru Giorgio Armani, Gianfranco Ferre og Krizia og er þeim gefið að sök ásamt fimmtán öðrum að hafa borið fé á skattheimtumenn svo að farið yrði silkihönskum um framtöl þeirra. Spurt er hvort réttarhöldin muni bitna á vor- og sumartísku næsta árs, sem kynnt verður eftir tvær vikur. Hryðjuverk í Þýskalandi VINSTRISINNUÐ hryðju- verkasamtök, sem kveðast beijast gegn heimsvalda- stefnu, lýstu í gær ábyrgð sinni á sprengjutilræði, er gert var á sunnudag við Paul Breuer, þingmann kristilegra demókrata. Breuer var ekki heima þegar sprengjan sprakk og engan sakaði. Sam- tökin eru afsprengi Rauðu herdeildarinnar (RAF), sem stóð fyrir hryðjuverkaöldu á sjöunda áratugnum og í upp- hafi þess áttunda. Kosningaf ör eða bókarkynning? „Bjargvættur Bandaríkjanna“ sendir skeyti á báða bóga MARGUMTALAÐ ferðalag Colins Powells, fyrr- um yfirmanns bandaríska herráðsins, til kynning- ar nýrrar bókar sinnar, „My American Journey", hófst um helgina með yfirlýsingum um að hann hefði engan áhuga á að verða varaforseti Banda- ríkjanna og Bill Clinton forseti hefði í valdatíð sinni veikt alþjóðlega stöðu Bandaríkjanna. Pow- ell hefur verið nefndur „bjargvættur Bandaríkj- anna“ og vangaveltur um það hvort hann gefi kost á sér í forsetakosningunum á næsta ári eru nú í algleymingi þótt hann segist ekki munu greina frá fyrirætlunum sínum fyrr en í nóvember. Powell kom á laugardag fram í bókabúð í McLean í Virginíu og biðu hans fjörutíu sjónvarps- myndavélar og röð þeirra, sem vildu láta hann árita bókina náði einum kílómetra. Powell er mjög áberandi í fjölmiðlum um þessar mundir og um helgina birtist fjöldi viðtala við hann. Poweil hefur getið sér orð fyrir að vera íhald í fjármálum, en fijálslyndur í velferðarmálum og honum er meira niðri fyrir þegar síðarnefnd málefni ber á góma. í samtali við dagblaðið Washington Post gagn- rýndi Powell stjórnmálamenn, sem vilja skera niður aðstoð til fátæklinga og einstæðra mæðra. „Ég er hissa og dálítið áhyggjufullur yfir því hvernig þessi mál eru sett fram og notuð til póli- tísks ávinnings," sagði Powell og bætti við að það væru ekki aðeins fátæklingar, sem væru á jötu velferðarríkisins og fengju sérmeðferð. Starf- semi þrýstihópa, sem tryggðu stjórnmálamönnum digra kosningasjóði, hefði sama markmið: Fá að njóta forréttinda og fyrirgreiðslu. Tvístígandi repúblikanar Ummæli af þessu tagi, auk yfirlýsinga Powells um að hann muni ekki beita sér gegn fóstureyð- ingum og veita auknu eftirliti með byssueign stuðning, hafa vakið efasemdir um að hershöfð- inginn eigi heima í Repúblikanaflokknum. Powell talaði þó um helgina um „hugmynda- fræðilegt andlát demókrata", sem hann gæti ekki hugsað sér að fara í framboð fyrir, og sagði að meira líf væri í Repúblikanaflokknum. Allur heimur getur lært af S-Afríku Jóhannesarborg, Nairobi. Reuter. JÓHANNES Páll páfi II fór frá Jóhannesarborg til Nairobi í Kenýa í gær og sagði við brottför- ina, að það, sem áunnist hefði í Suður-Afríku eftir að aðskilnað- arstefnunni var hætt, gæti orðið fordæmi öllum heimi. Nelson Mandela, forseti Suður- Afríku, tók á móti páfa þegar hann kom til landsins frá Kamer- ún á laugardag og á sunnudag söng páfi messu undir berum himni að viðstöddum 100.000 mönnum. Olli aðsóknin að vísu vonbrigðum því að búist hafði verið við 400.000 manns. í kveðju- ræðu sinni í gærmorgun sagði hann, að saga landsins á siðustu misserum sýndi, að sigurinn fælist í friði þar sem unnið væri að því að setja niður deilur í anda fyrir- gefningar og bræðralags. Nokkrum klukkustundum áður en páfi var væntanlegur til Na- irobi í Kenýa tilkynntu múslimar í landinu, að þeir ætluðu ekki að taka á móti honum vegna þess, að þeir teldu, að á Afríska kirkju- þinginu yrði mótuð sú stefna að kristna alla álfuna fyrir árið 2000. Séra Stephen Okello, sem skipu- lagt hefur heimsókn páfa, sagði, að múslimar nefndu einnig ár- hundraða gamla atburði sem ástæðu, þ.e.a.s. ósigur múslima á Spáni fyrir kristnum herjum. Svartur forseti? Reuter NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, fagnaði páfa við kom- una til Jóhannesarborgar á laugardag. í gær fór páfi til Nairobi í Kenía þar sem 11. Afríkuferðinni lýkur. GLEP, AltGRAHUS 0SKARS Fjölmiðlafár ríkir í kringum Colin Powell Newt Gingrich, forseti fulltrúadeildar Bandaríkja- þings, kvaðst ekki sannfærður um að fólk væri að snúast á sveif með Powell, en frambjóðandi á borð við hann myndi fá stuðning fjölda hægri manna. Margir hafa velt því fyrir sér hvort Bandaríkja- menn _séu reiðubúnir til að kjósa sér svartan for- seta. í viðtali, sem birtist í þýska tímaritinu Der Spiegel í gær, sagði Powell að tímarnir hefðu breyst í Bandaríkjunum frá því að tengdafaðir hans sat með skotvopn í fanginu til þess að geta varið fjölskyldu sína fyrir árásum hvítra kynþátta- hatara. Reuter COLIN Powell, sem kallaður hefur verið vinsælasta forsetaefnið sem * ekki er í framboði, ræðir við blaðamenn í McLean í Virgínu. Powell hyggst ekki taka af skarið um það hvort hann fari í framboð fyrr en eftir rækilegt samráð við fjölskyldu sina. Forsetaefni repúblikana kváðust um helgina vilja hafa Powell í flokknum, en lýstu yfir efa- semdum um afstöðu hans til ýmissa málaflokka. „Ég er viss um að hann á eftir að selja mikið af bókum,“ sagði Bob Dole, sem nú er talinn sigur- stranglegastur repúblikana, og bætti við að hann væri ekki viss um að flokkurinn vildi breyta stefnuskrá sinni til að verða við óskum Powells. Hann kvaðst þó myndu vilja hafa hann í stjórn sinni. Phil Gramm, sem sagður er harðlínuframbjóð- andi, sagði að Powell ætti heima í flokknum og „Enn er að finna kynþáttavandamál, fátækra- svæði og óréttlæti, sem við þurfum að fjar- lægja,“ sagði Powell við Der Spiegel. „Hins veg- ar gæti nú fyrsta sinni verið hægt að taka alvar- lega forsetaframboð manns, sem ekki er hvítur, og hann gæti jafnvel unnið kosningarnar." Powell sagði í samtali við tímaritið The New Yorker að Bandaríkjamenn ættu að taka af öll tvímæli um það að „þeir hyggist ekki taka þátt í þessu stríði [í Bosníu]“ og því myndi ekki ljúka fyrr en stríðsaðilar hefðu fengið nóg af að beij- ast hvorir við aðra. „í þtjú ár höfum við sent misvísandi skilaboð þannig að nú eru skilaboðin marklaus og því hefur staða okkar veikst . . . í augum heims- ins,“ sagði Powell við The New Yorker. „Orðspor okkar í heiminum er nú mjög slæmt." Powell nýtur mests fylgis kjósenda um þessar mundir, ef marka má skoðanakönnun,sem tímarit- ið Time og sjónvarpsfréttastöðin CNN birtu á föstudag. Samkvæmt henni myndi Powell hafa betur gegn Clinton ef hann byði sig fram fyrir repúblikana og sigra bæði Clinton og Bob Dole, sem nú er talinn sigurstranglegasti repúblikan- inn, færi hann í óháð framboð. Powell var hins vegar í þriðja sæti í skoðana- könnun, sem tímaritið Newsweek birti á laugar- dag. Þar kváðust 35% mundu styðja Clinton, 29% Dole og 27% Powell. Jean Paul Gaultier

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.