Morgunblaðið - 27.09.1995, Qupperneq 25
24 MIÐVIKUD 4GUR 27. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995 25
pitri0íiwWaliil>
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
STJÓRNARFORMAÐUR: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AUKIÐ FRELSI
í LYFSÖLU
MIKILVÆG breyting verður í lyfsölumálum og frjálsri
verzlun eftir rúman mánuð. Þá munu tveir ungir
lyfjafræðingar opna nýja tegund af lyfjabúð í Reykjavík,
þar sem nýjungar í þjónustu við viðskiptavini verða hafð-
ar að leiðarljósi. Höfuðbreytingin er sú, að lyijafræðing-
arnir geta nú sjálfir tekið ákvörðun um stofnun lyfjabúð-
ar, en þurfa ekki að sæta úthlutun á leyfi frá ríkisvald-
inu. Þann 1. nóvember falla úr gildi forneskjuleg laga-
ákvæði um skömmtun ríkisvaldsins á lyfsöluleyfum og
þar með pólitísk úthlutun á einkasöluaðstöðu.
Lyfjafræðingarnir tveir, sem auglýst hafa eftir starfs-
fólki fyrir nýtt apótek, Lyfju hf., segja nýja fyrirtækið
verða staðsett í miðbæ Reykjavíkur og reksturinn verði
með öðru sniði en tíðkast hefur í apótekum hér á landi.
Fyrirkomulag miðar að því, að viðskiptavinir hafi greið-
ari aðgang að lyfjafræðingi en nú er. Mun meira verður
af sjálfsafgreiðsluvörum með líkum hætti og tíðkast í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Að sögn þeirra félaga hafa
þeir á prjónunum ýmsar fyrirætlanir um nýjungar í þjón-
ustu. Þeir búast við því, að fleiri ný apótek verði stofnuð
á höfuðborgarsvæðinu með auknu fijálsræði, en engin
breyting verði á landsbyggðinni.
Nýju lyfjalögin, sem tóku gildi 1. júlí á sl. ári, nema
ákvæðið um opnun nýrra lyfjabúða, gera ráð fyrir því,
að þær uppfylli skilyrði, sem Lyfjaeftirlit ríkisins setur
um búnað, menntun og hæfni starfsfólks. Eðlilegt verður
að telja, vegna eðlis lyfsölu, að hún sæti opinberu eftir-
liti, en það má ekki verða hemill á frjálsræði og bætta
lyfsölu. Samkeppni er jafnsjálfsögð á þessu sviði sem
öðrum og á að leiða til lægra lyfjaverðs og bættrar þjón-
ustu. Sjálfsagt er t.d., að stórmarkaðirnir geti annazt
lyfsölu, ef þeir hafa lyfjafræðing í þjónustu sinni og
uppfylla önnur eðlileg skilyrði Lyfjaeftirlitsins.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, hefur lýst
því yfir, að hún vilji enn fresta gildistöku þess lagaákvæð-
is, sem veitir frelsi til reksturs lyfjabúða. Alþingi getur
ekki komið í bakið á þeim, sem byggt hafa fjárfestingar
á gildandi lögum og ákvæðum þeirra með því að breyta
öllum forsendum á síðustu stundu. Það er einfaldlega
siðleysi. Það verður að teljast óhugsandi að stuðnings-
menn frjálsra viðskipta á Alþingi taki þátt í slíkum leik.
HEIMSOKN FINN-
LANDSFORSETA
MARTTI Ahtisaari, forseti Finnlands, sem kom í opin-
bera heimsókn til íslands í gær, er aufúsugestur
eins og jafnan á við um norrænan þjóðhöfðingja. Tengsl-
in á milli Norðurlandaþjóðanna eru áfram jafnsterk og
áður þótt norrænt samstarf kunni að taka breytingum.
Og þótt langt sé á milli austasta og vestasta ríkisins á
Norðurlöndum eru böndin, sem tengja ísland og Finn-
land, sterk.
Eins og Ahtisaari forseti og Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, bentu bæði á í ræðum sínum við hátíðar-
kvöldverð í gærkvöldi, er margt líkt með Finnum og ís-
lendingum, þótt þjóðirnar séu af ólíkum meiði. Margar
samsvaranir eru þannig í sjálfstæðisbaráttu þjóðanna og
stjórnmálasögu, og ýmis einkenni íslenzkrar þjóðarsálar
eiga samhljóm með því, sem gerist með Finnum.
Martti Ahtisari segir í viðtali, sem birtist í Morgunblað-
inu í gær, að norrænt samstarf sé ekki sízt mikilvægt
nú, þegar ísland og Noregur hafi ákveðið að vera utan
Evrópusambandsins. Og í ræðu sinni í gærkvöldi benti
hann á að ekki væri lengur litið á Norðurlönd sem útjað-
ar Evrópu. Sjálfkrafa væri tekið mark á Norðurlöndum
við mótun þeirrar Evrópu, sem koma skal.
Finnar hafa tekið virkan þátt í stefnumótun innan
Evrópusambandsins og þegar gert sig gildandi í ýmsum
málum, þótt þeir séu nýgengnir í sambandið. Tengsl'ís-
lands við Finnland í gegnum Norðurlandasamstarfið eru
því mikilvægt tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanir,
sem snerta íslenzka hagsmuni.
Endurskoðun búvörusamnings
H?-
' i •
' •• i**
ímv: r
■V
' ''■&&&&[
Búvörusamnings-
viðræður í sjálfheldu
VIÐRÆÐUR um gerð nýs
búvörusamnings milli rík-
isvaldsins og bænda eru i
sjálfheldu og óvíst hvort
þær leiða til samkomulags. Ágrein-
ingur innan bændastéttarinnar er
mikill og athugasemdir aðila vinnu-
markaðarins við fyrirliggjandi samn-
ingsdrög hafa að því er virðist dreg-
ið úr líkum á að samningar náist.
Fulltrúar vinnumarkaðarins vilja að
framleiðsla á kindakjöti verði færð
niður í 6.000 tonn á verðlagsárinu
1996-97, en framleiðslan er um
9.000 tonn í dag.
Viðræður um gerð nýs búvöru-
samnings hafa staðið yfir með hléum
í allt sumar og haust. Fyrstu drög
að samkomulagi voru kynnt á aðal-
fundi Landssamtaka sauðfjárbænda
í lok ágúst. Þar voru drögin harðlega
gagnrýnd, en engu að síður sam-
þykkt með nokkrum breytingum.
Viðræður héldu síðan áfram í haust.
í síðustu viku var staðan í viðræðun-
um kynnt fyrir aðilum vinnumarkað-
arins og sl. mánudag komu þeir með
formlegar athugasemdir við samn-
ingsdrögin.
ASÍ krafðist þess að komast
að viðræðuborðinu
Ástæðan fyrir því að aðilar vinnu-
markaðarins koma að þessu máli er
sú að fulltrúar vinnumarkaðarins
áttu mikinn þátt í að móta þann
búvörusamning sem nú er
í gildi í gegnum starf sitt
í Sjömannanefnd. Sam-
kvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var aðilum
vinnumarkaðarins lofað í
vor að þeir myndu fá að ”—
fylgjast með gangi viðræðna. Þeim
var hins vegar haldið utan við við-
ræðurnar í allt sumar. Ástæðan mun
m.a. vera sú að fulltrúar bænda vildu
gera samning án þess að aðilar
vinnumarkaðarins hefðu þar bein
áhrif. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins munu forystumenn
bænda hafa komist að þeirri niður-
stöðu að búvörusamningar yrðu ekki
gerðir án atbeina aðila vinnumarkað-
arins eftir að Benedikt Davíðsson,
forseti ASÍ, krafðist þess að ASI
fengi að koma að málinu. Benedikt
mun hafa spurt forystumenn bænda
hvort þeir ætluðu sér að halda þann-
ig á málum að efnt yrði til stríðs við
ASÍ.
Mikill ágreiningur er um gerð nýs búvöru-
samnings við sauðfjárbændur og telja ýmsir
óvíst að samningar muni takast. Egill Olafs-
son ræddi við nokkra sauðfjárbændur um
samningana, en mjög skiptar skoðanir eru
meðal bænda um hvaða leið sé best út úr
þeirri kreppu sem sauðfjárbúskapur er í.
Forseti ASI
spurði hvort
bændur vildu
stríð við ASÍ
Samningar í uppnámi
í miðri sláturtíð
Þeir bændur sem Morgunblaðið
ræddi við í gær eru margir hveijir
mjög ósáttir við afskipti aðila vinnu-
markaðarins af samningaviðræðun-
um. Þeir segja að þessi afskipti séu
fallin til að tefja málið og flækja
viðræðurnar. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins eru samningamenn
bænda heldur ekki sammála hvernig
eigi að svara kröfum fulltrúa vinnu-
markaðarins. Bændur benda á að
þeir fái ekki að koma að kjaraviðræð-
urn ASÍ og VSI og því eigi vinnu-
markaðurinn ekkert að fá að koma
að samningum bænda við ríkið.
Samningsaðilar stefndu að því að
ljúka viðræðum í ágúst þannig að
bændur hefðu nægan tíma
til að taka ákvarðanir um
ásetning í haust. Viðræður
hafa tafist og nú telja
bjartsýnustu menn að við-
ræðum muni í fyrsta lagi
““” ljúka í annarri viku októ-
ber. Allir viðurkenna að þetta er allt-
of seint því að sláturtíð stendur sem
hæst og bændur eru þessa dagana
að taka ákvörðun um hvað þeir setja
mörg lömb í sláturhús og hvað þeir
setja mikið á næsta vetur.
Gísli Karlsson, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs, sagði við Morgun-
blaðið fyrir skömmu að talsverður
áhugi væri hjá hópi bænda á að
hætta framleiðslu eða draga veru-
lega saman sauðfjárbúskap. Þessir
bændur bíða nú eftir svörum um það
umhverfi sem atvinnugreinin kemur
til með að búa við næsta árið.
Ein af ástæðunum fyrir því hvað
yiðræðurnar hafa tafist mikið er sú
að mikil óeining er meðal bænda um
hvert skuli stefna. Bæði eru forystu-
menn bænda ekki fyllilega samstiga
og eins eru mjög skiptar skoðanir
meðal almennra bænda. Samninga-
nefnd bænda er undir miklum þrýst-
ingi. Þannig hafa samningamenn
þeirra verið reknir til baka með sum-
ar þær tillögur sem þeir hafa viðrað
á bændafundum sem efnt hefur ver-
ið til. Samningamennirnir voru t.d.
harðlega gagnrýndir á bændafundi
sem búnaðarþingsfulltrúar af Vest-
urlandi, Vestfjörðum og vestanverðu
Norðurlandi héldu í Staðarskála um
miðjan þennan mánuð.
Þessi andófshópur krafðist þess
að búnaðarþing yrði kallað saman
og hefur stjórn BÍ fallist á það.
Margir þingfulltrúar krefjast þess
að búnaðarþing fái að fjalla um
samninginn áður en hann -----------
er frágenginn þannig að
því gefist færi á að hafa
áhrif á endanlega mynd
hans. Gangi þetta eftir
þykir ljóst að sláturtíð
verður að mestu lokið áður
en samningar verða í höfn, en talað
er um að búnaðarþing komi saman
11. október.
Fyrirliggjandi drög að búvöru-
samningi gera ráð fyrir að kvóta-
kerfi í landbúnaði verði afnumið og
verðlagning sauðfjárafurða verði
gefin fijáls í áföngum. Gert er ráð
fyrir að beingreiðslur til bænda verði
áfram greiddar í sömu hlutföllum
og í dag og að þær verði tengdar
framleiðslunni. Drögin gera ráð fyr-
ir að framleiðendum verði boðnar
greiðslur ef þeir hætta framleiðslu.
Þá gera þau ráð fyrir að framleið-
endur taki sameiginlega ábyrgð á
kjöti sem flutt verði úr landi. Áfram
er gert ráð fyrir að 50% af frarrij-
Osamstaða
meðal bænda
tefur samn-
ingaviðræður
leiðsluverði verði greidd með bein-
greiðslum, að ull verði niðurgreidd
og að ríkissjóður taki þátt í geymslu-
kostnaði.
Ótti við breytingar
Afstaða bænda til samningsdrag-
anna er mismunandi. Sumir telja að
of langt sé gengið í að breyta núver-
andi samningi og aðrir telja að ekki
sé nægilega langt gengið.
Morgunblaðið ræddi við fjóra
bændur um búvörusamningsdrögin,
en skoðanir þeirra gefa vísbendingu
um þau mismunandi viðhorf sem
bændur hafa til þessara mála.
Birkir Friðbertsson, bóndi í Birki-
hlíð í ísafjarðarsýslu og fulltrúi á
Búnaðarþingi, er í hópi þeirra bænda
sem vilja halda í meginatriði núver-
andi samnings. Hann sagðist ekki
sjá að það væru neinar forsendur
fyrir því að slaka á framleiðslustýr-
ingu og að gefa verðlagningu fijálsa.
Þær forsendur myndu ekki skapast
fyrr en meira jafnvægi hefði skapast
á kjötmarkaði og tilraunir til að selja
kjöt til útlanda hefðu skilað viðun-
andi árangri.
„Ég tel að það sé mjög hættulegt
á þessum tíma að gefa verðlag ftjálst
meðan kjötmarkaðurinn er svona
vanþróaður eins og hann er. Slátur-
leyfishafar bítast innbyrgðis og fijáls
verðlagning myndi leiða til þess að
það yrði ekkert ákveðið skilaverð til
bænda heldur fengjum við
bara einhvern afgang sem
væri eftir þegar þeir hefðu
losnað við kjötið með nið-
urboðum eða með öðrum
hætti. Við sjáum engan
—....... grundvöll fyrir því að halda
þessu framleiðslumagni ef við getum
ekki fengið framleiðsluverð fyrir það.
Þá erum við bara að viðhalda og
auka þá fátækt sem er í sveitum,"
sagði Birkir.
Kallar á pólitíska ákvörðun
Gunnar Sæmundsson, bóndi í
Hrútatungu og búnaðarþingsfull-
trúi, vill ekki afnema kvótakerfið,
en telur að bændur eigi ekki annan
kost en að gefa verðlagningu kjöts-
ins frjálsa. Hann leggur þó áherslu
á að það gerist í áföngum. Gunnar
sagði að ef að ætti að fara með fram-
leiðsluna niður í 6.000 tonn, eins
og aðilar vinnumarkaðarins vilja,
væri það ekkert annað en aftaka á
bændum. Afleiðingarnar yrðu
skelfilegar í sveitum og bæjum sem
byggja á þjónustu við landbúnaðinn.
„Ef að menn standa frammi fyrir
slíkum afarkostum þá tel ég betra
að það sé pólitísk ákvörðun og al-
þingismenn taki hana. Margir þing-
menn gáfu sveitafólki mjög miklar
væntingar í kosningabaráttunni í vor
og stjórnmálaflokkar hafa gefið út í
sínum stefnuskrám afdráttarlausar
yfirlýsingar um að þeir ætli sér að
endurreisa þessa atvinnugrein. Nú
er komið að því að þeir standi við
það,“ sagði Gunnar.
Sumir vilja aukið frelsi
í framleiðslu
Hópur bænda, sem margir hveijir
eru kjósendur Sjálfstæðisflokksins,
telur hins hins vegar að menn séu á
villigötu í þeim viðræðum sem staðið
hafa yfir í sumar. Þeir vilja breyta
beingreiðslunum í byggðastyrki og
greiða þá í fimm ár óháð því hvað
bændurnir framleiði mikið. Jafn-
framt verði kvótakerfi afnumið og
verðlagning gefin fijáls.
Kjartan Ólafsson, búnaðarþings-
fulltrúi af Suðurlandi, er einn af tals-
mönnum þessarar leiðar. „Það er
alveg sama hvaða leið menn fara;
allar leiða þær til þess að framleið-
endum fækkar. Spurningin snýst
bara um hvernig það gerist. Við vilj-
um að þetta gerist þannig að búið
verði til kerfi sem veiti mönnum visst
fijálsræði til ákvarðanatöku. Við vilj-
um ekki fá yfir okkur kerfi sem hef-
ur úthlutað framleiðslurétti til ákveð-
inna bænda. Við viljum að þetta leiti
hagkvæmustu leiðanna. Það gerir
það best með því að láta markaðinn
ráða og vera ekki að mismuna einum
eða neinum," sagði Kjartan.
Gunnar Sæmundsson sagðist efast
um að þessar hugmyndir stæðust
samkeppnislög. Hann nefndi sem
dæmi að ef bóndi hætti sauðfjárfram-
leiðslu og sneri sér að ferðaþjónustu
myndi hann lenda í samkeppni við
nágranna sinn sem hefði byggt upp
sína ferðaþjónustu án þess að njóta
styrkja úr ríkissjóði. Hann sagði að
svona kerfi myndi hrynja mjög fljót-
lega.
Einar Gíslason, bóndi á Syðra-
Skörðugili, styður hugmyndina um
byggðastyrki. Hann sagði að hug-
myndir búvörusamninganefndar
gengju út á að kaupa menn út úr
greininni og borga þeim þannig fyrir
að snúa sér að annarri vinnu. Fylgis-
menn slíkrar stefnu gætu ekki gagn-
rýnt byggðastyrkina á þeirri for-
sendu að þeir væru í andstöðu við
samkeppnislög. Einar sagði að
byggðastyrkir flokkuðust undir það
sem GÁTT-samningurinn kallaði
grænar greiðslur. Þetta væri viður-
kennd leið sem margar þjóðir hefðu
farið.
Einar viðurkenndi að þessi leið
myndi leiða til verðlækkunar á kinda-
kjöti, a.m.k. tímabundinnar. Hann
benti á að þeir sem óttuðust slíka
verðlækkun væru ekki bara sauðíjár-
bændur. Framleiðendur í öðrum kjöt-
greinum væru einnig andvígir því
að kindakjöt lækkaði í verði því það
myndi leiða til lækkuna á svínakjöti
og nautakjöti. Hann sagði að svína-
bændur og kúabændur væru að að
hluta til að hugsa um eigin hag þeg-
ar þeir legðust gegn breytingum á
framleiðslu- og verðstýringu í sauðfj-
árrækt.
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtakanna, sagði við Morgunblaðið
fyrir helgi að svo kynni að fara að
samningar um endurskoðun búvöru-
samningsins tækjust ekki eða að
samningarnir yrðu felldir. Fari svo
er það mikið skipbrot fyrir stjórn
Bændasamtakanna og landbúnaðar-
ráðherra sem hafa setið yfir þessum
samningum síðan í vor. Núgildandi
samningi, sem rennur út haustið
1998, verður ekki breytt nema að
nýr samningur verði gerður. Land-
búnaðarráðherra er því ekki í aðstöðu
til að höggva á hnútinn, nema þá
með þeim hætti að gera samning við
bændur sem þeir sætta sig við. Staða
sauðfjárbænda mun hins vegar
versna með óbreyttum samningi því
að þá verða framleiðsluheimildir
þeirra skertar um 17%. Það er aftur
á móti ljóst að mistakist búvöru-
samninganefnd að ná samkomulagi
verður þetta mál tekið upp á Alþingi
með einum eða öðrum hætti.
Kasparov horfir þunglega á áskorandann í níundu skákinni, sem
Anand vann. Það hefur væntanlega verið léttari brúnin á heims-
meistaranum í gærkvöldi, en þá hefndi hann ófaranna.
Kasparov
jafnaði
strax
EINN sigurinn rak annan eftir átta jafntefli
í heimsmeistaraeinvíffl Anands og Kasparovs.
Eftir glæsilegan sigur Anands í níundu skák-
inni sneri Kasparov taflinu við og sigraði ör-
ugglega í tíundu skákinni, sem tefld var í
gærkvöldi. Margeir Pétursson fór í saumana
á taflmennsku kappanna.
jk NAND féll í heimatilbúið af-
brigði Kasparovs í tíundu
skákinni í gærkvöldi og
*^^náði sér aldrei á strik.
Heimsmeistarinn bauð tvívegis upp
á hróksfórn og þótt Anand notaði
70 mínútur fann hann ekki viðun-
andi framhald. Kasparov hafði að-
eins eytt fimm mínútum af 70 mín-
útna umhugsunartíma sínum þegar
það lá fyrir að hann kæmist út í
unnið endatafl með peði meira.
Það var eins og Kasparov væri
að tefla fjöltefii, hann sat frammi í
bakherbergi á meðan Anand sat með
sveittan skallann við borðið og gat
aldrei staðið upp. Hann kom svo fram
og lék leikjum sínum án umhugsun-
ar. Það var ekki fyrr en skákin var
unnin að hann gaf sér tíma til að
finna öruggustu leiðina.
Kasparov var greinilega að reyna
að gera ósigur Anands eins auðmýkj-
andi og hægt var. Indverjinn tefldi
lengi áfram í gjörtapaðri stöðu, lík-
lega vegna þess að hegðun Ka-
sparovs hefur farið í taugarnar á
honum. Staðan er því 5-5 þegar ein-
vígið er hálfnað. Frí er í dag.
10. einvígisskákin:
Hvítt: Kasparov
Svart: Anand
Spánski leikurinn, opna afbrigðið
1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 -
a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Rxe4 6.
d4 - b5 7. Bb3 - d5 8. dxe5 -
Be6 9. Rbd2 - Rc5 10. c3 - d4
11. Rg5!? — dxc3 12. Rxe6 — fxe6
13. bxc3 - Dd3 14. Bc2!?
í sjöttu skákinni lék Kasparov 14.
Rf3 og fylgdi þar fordæmi Karpovs
gegn Korchnoi I HM 1978
14. - Dxc3 15. Rb3! - Rxb3 16.
Bxb3 - Rd4
Það var mjög varhugavert að
þiggja hróksfórnina strax: 16. —
Dxal 17. Dh5+! — g6 18. Df3 vinn-
ur manninn til baka. Ekki gengur þá
18. — Rd8 19. Df6! En nú býður
heimsmeistarinn aftur uppá hróks-
fóm:
17. Dg4! — Dxal 18. Bxe6 Hér
hafði Kasparov aðeins notað þrjár
mínútur, en Anand 70.
18. - Hd8 19. Bh6!
Máske hefur Anand yfirsést þetta.
19. - Dc3 20. Bxg7 - Dd3 21.
Bxh8 - Dg6?
Leikið að bragði, en tapar baráttu-
lítið. Besta tilraunin virðist 21. —
Re2+ 22. Khl - Rg3+ 23. hxg3 -
Dxfl+ 24. Kh2 - Dd3! þótt hvítur
hafi auðvitað góðar bætur fyrir
skiptamun.
22. Bf6! - Be7 23. Bxe7 - Dxg4
24. Bxg4 — Kxe7 25. Hcl — c6
26. f4 - a5 27. Kf2 - a4 28. Ke3
- b4 29. Bdl - a3 30. g4 - Hd5
31. Hc4 - c5 32. Ke4 - Hd8 33.
Hxc5 - Re6 34. Hd5 - Hc8 35.
f5 - Hc4+ 36. Ke3 - Rc5 37. g5
- Hcl 38. Hd6 - b3 39. f6+ -
Kf8 40. Bh5 - Rb7 41. Ha6 og nú
loksins gafst Anand upp. Kasparov
notaði aðeins klukkutíma í skákina.
Glæsilegur sigurs Anands
Eftir átta jafntefli vann áskorandinn
Anand glæsilegan sigur í níundu
skákinni við heimsmeistara atvinnu-
mannasambandsins, Gary Kasparov.
Indvetjinn byggði upp sterka stöðu
snemma og fómaði skiptamun í 27.
leik sem tryggði honum vinnings-
stöðu.
Níunda einvígisskákin:
Hvítt: Anand
Svart: Kasparov
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - a6
6. Be2 - e6 7. 0-0 - Be7 8. a4 -
Rc6 9. Be3 - 0-0 10. f4 - Dc7
II. Khl - He8 12. Bf3
Fyrr í einvíginu lék Anand 12.
Bd3. Hann fetar nú í fótspor
Karpovs. í einvígi sínu við Karpov
1985 kaus Kasparov að leika hér 12.
- Hb8, m.a. í hinni frægu 24 skák
sem tryggði honum heimsmeistara-
titilinn. Síðan þá hefur hann breytt
um leikaðferð.
12. - Bd7 13. Rb3 - Ra5 14. Rxa5
- Dxa5 15. Dd3 - Had8 16. Hfdl
Hollenski stórmeistarinn Van der
Wiel lék 16. Dd2 í skák sinni við
Kasparov í Amsterdam 1988, en eft-
ir 16. - Hc8 17. e5?! - dxe5 18.
fxe5 - Dxe5 19. Bxb7 - Hed8 20.
Bf4 - Da5 mátti svartur vel við una
og vann um síðir.
16. - Bc6 17. b4!
Það er óvenjulegt í þessu afbrigði
að tefla upp á rými á drottningar-
vængnum. Venjulega er reynt að
blása til kóngssóknar.
17. - Dc7 18. b5 - Bd7 19. Habl!
Fyrsti nýi leikurinn. í skák tveggja
hollenskra alþjóðlegra meistara, Cu- ^
ijpers og de Boer, lék hvítur 19.
Re2?! og eftir 19. - Hc8 20. bxa6 -
bxa6 21. Dxa6 Ha8 fékk svartur
góða stöðu. Nú hefði svartur átt að
bíða átekta og leika 19. - Hc8 20.
Hb3 - axb5 21. axb5 — Hed8.
19. - axb5?! 20. Rxb5 Bxb5 21.
Dxb5 - Ha8
Auðvitað ekki 21. - Dxc2?? 22.
Hdcl - Da2 23. Hal og drottningin
fellur. Nú kemur til greina fyrir hvít
að leika 22. e5, en Anand velur ann-
an leik sem knýr -svart til að hindra
framrásina e4-e5 í eitt skipti fýrir öll.
22. c4 - e5 23. Bb6 - Dc8 24.
fxe5 - dxe5 25. a5 - Bf8 26. h3
- De6
Anand stendur vel að vígi með
biskupaparið og yfirburði í rými. Það
er þó erfítt að fínna snöggan blett
á svörtu stöðunni. Hann finnur nú
stórglæsilega skiptamunsfórn, sem
Kasparov þiggur, enda erfitt að
benda á virkan leik fyrir svart.
27. Hd5!! - Rxd5 28. exd5 - Dg6
29. c5 - e4 30. Be2 - He5 31.
Dd7! - Hg5 32. Hgl - e3?
Flýtir fyrir úrslitunum.
33. d6 - Hg3 34. Dxb7 - De6
0
6
5
a b c d • I g h
Síðasta von Kasparovs er sú að
Anand leiki 35. Dxa8?? og leyfi 35. -
- Hxh3 sem mátar.
35. Kh2 og Kasparov játaði sig sigr-
aðan, því eftir 35. - De5 getur An-
and sér að meinalausu leikið 36.
Dxa8.
Annað kvöld geta skákáhugamenn
fylgst með 12. skákinni um leið og
hún teflist, á skemmtikvöldi hjá Skák-
sambandi íslands, Faxafeni 12.