Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995 35
FRÉTTIR
AÐSTANDENDUR MS-samtakanna voru hæstánægðir með að-
sókn gesta sem kynntu sér starfsemi samtakanna.
MS-dagurinn í fyrsta skipti
A þriðja hundrað gestir
I
I
I
Bókanir
vegna um-
mæla forsæt-
j isráðherra
BORGARFULLTRÚAR R-listans í
borgarráði samþykktu á fundi borg-
arráðs í gær bókun þar sem lýst
er furðu á ummælum forsætisráð-
herra í fjölmiðlum um málefni
Strætisvagna Reykjavíkur og veitu-
stofnana borgarinnar.
„Borgarráð telur óviðeigandi að
forsætisráðherra blandi sér í mál-
efni einstakra sveitarfélaga með
' þeim hætti sem hann gerði.
I Það vekur sérstaka athygli að
| forsætisráðherra fer ekki rétt með
þegar hann heldur því fram að
gjaldskrárhækkanir hafi orðið hjá
veitufyrirtækjum. það er alrangt.
Þá er rétt að benda forsætisráð-
herra á, að fargjöld SVR eru þau
langlægstu á höfuðborgarsvæð-
inu,“ segir í bókun meirihlutans.
Ummælin mjög eðlileg
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins samþykktu aðra bókun
I vegna sama máls þar sem segir:
„Það er staðreynd að 11-100%
hækkun fargjalda Strætisvagna
Reykjavíkur hefur áhrif á verðlags-
forsendur kjarasamninga.
Ummæli forsætisráðherra eru því
mjög eðlileg með tilliti til þessara
hækkana R-listans og annarra
hækkana sem til umræðu hafa ver-
ið.“
Kvikmyndahá-
tíð í tilefni af
aldarafmæli
í ÁR er haldið upp á aldarafmæli
kvikmyndasýninga í heiminum og
af því tilefni hefur áhugahópur um
kvikmyndir ásamt Kvikmyndasafni
Islands skipuiagt kvikmyndahátíð
þar sem sýndar verða margar sígild-
ar kvikmyndir frá ýmsum löndum.
Hátíðin hefst hinn 28. september.
Á kvikmyndahátíðinni verður boð-
ið upp á myndirnar „Hyldýpið",
„Litla engilinn", „Götu sorgarinnar",
heimildarmyndirnar „Asta Nielsen“
eftir Astu sjálfa, og „Asta og Charl-
otte“ eftir Heinz Trenczak og Paul
Hofman í tilefni af sýningu myndar-
innar S1 (1913). Hún er ein af elstu
myndum Astu og er gerð undir
merkjum föðurlandsástar og þýskrar
þjóðernishyggju. Eins og margar
myndir frá tímum fyrri heimstyijald-
arinnar lýsir S1 ótta almennings við
hervæðingu og njósnir og skömmu
eftir frumsýningu myndarinnar í
Berlin var hún tekin til sýninga í
herbúðum Þjóðverja. Myndin var
nærri gleymd þar til hún fannst
nýverið í Moskvu og var gerð upp.
Á þessari hátíð gefst kvikmyndaunn-
endum sjaldfengið tækifæri til að
sjá þessa þöglu, norrænu kvik-
myndagyðju sem á sínum tíma hlaut
alheimsfrægð.
FYRSTI MS-dagurinn var haldinn
á laugardag og heimsótti fjöl-
menni hús samtakanna við Sléttu-
veg, eða á þriðja hundrað manns.
Elín Þorkelsdóttir gjaldkeri MS-
félags Islands segir áhuga gesta
hafa verið mikinn og aðstandend-
ur samtakanna séu hæstánægðir
með aðsóknina.
Húsið var opið almenningi, Bubbi
Morthens lék og söng fyrir gesti
og boðið var upp á léttar veiting-
ar. Fólki var boðið að ganga um
húsið að vild og gáfu MS-sjúkling-
ar, aðstandendur þeirra og
styrktaraðilar upplýsingar um
starfsemina.
„Fólk var almennt hrifið af
húsinu og aðstæðum ölium. Við
erum hæstánægð með aðsókn og
áhuga gesta, en tilgangur MS-
dagsins er að velqa athygli á s>.arf-
seminni og því málefni sem um
ræðir. MS-félag íslands var stofn-
að 20. september árið 1968 og við
ákváðum að kynna starfsemi okk-
ar sem næst afmælisdegi félags-
ins, og gerum fastlega ráð fyrir
að svo verði áfram framvegis,"
segir Elín.
Fundur um
konur í
valdastöðum
í TILEFNI framboðs Margrétar Frí-
mannsdóttur til formanns í Alþýðu-
bandalaginu gengst Stellurnar,
hreyfmg alþýðubandalagskvenna og
annarra róttækra jafnaðarkvenna
fyrir opnum fundi í kvöld, miðviku-
dagskvöldið 27. september, á Korn-
hlöðuloftinu við Bankastræti. Fund-
urinn hefst kl. 20.30 og er öllum
opinn.
Yfirskrift fundarins er: Skiptir
það máli að konur komist til valda
í stjórnmálakerfmu? Á dagskrá eru
stutt erindi bæði fræðikvenna og
starfandi stjórnmálakvenna af
vinstri væng stjórnmálanna, en hún
er þessi: Jóhanna Sigurðardóttir,
formaður Þjóðvaka, flytur erindi sem
hún nefnir Konur í forystu. Þorgerð-
ur Einarsdóttir, félagsfræðingur,
veltir fyrir sér spurningunni hvort
nokkur ástæða sé fyrir konur að
hlýta leikreglum stjórnmálanna. Sig-
rún Jónsdóttir kvennalistakona spyr
Völd til hvers? og Árelía Guðmunds-
dóttir, ungur stjórnmálafræðingur
með vinnumarkaðsfræði sem sér-
grein, fjallar um tengslanet sem sér-
staka aðferð kvenna bæði í stjórn-
málum og atvinnulífinu. Loks talar
Margrét Frímannsdóttir, alþingis-
maður og frambjóðandi, og heitir
hennar erindi: Hvers virði er form-
annsembættið? Fundarstjóri er
Bryndís Hlöðversdóttir, alþingis-
maður.
Umboðsmaður
barna heimsæk-
ir Suðurland
UMBOÐSMAÐUR barna heim-
sækir vesturhluta fræðsiuum-
dæmis Suðurlands dagana 28. og
29. september nk.
Farið verður í ellefu skóla á
svæðinu, embættið verður kynnt
fyrir börnunum og umboðsmaður
mun fjaha um hlutverk sitt sem
talsmaður barna og réttindamála
barna almennt. Jafnframt verður
afhentur kynningarbæklingur um
embættið, sem er einkum ætlaður
börnum.
Þá mun umboðsmaður barna eiga
kynningarfundi með sveitarstjórn-
armönnum á Stokkseyri, Eyrar-
bakka, Flúðum, Selfossi, í Hvera-
gerði, Þorlákshöfn, Skeiðahreppi,
Hraungerðishreppi, Gaulverjabæj-
arhreppi, Gnúpveijahreppi og Vill-
ingaholtshreppi. Sams konar ferð
var farin í fræðsluumdæmi Vest-
fjarða í maí sl.
Gengið strönd
Skerjafjarðar
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
eina af sínum gönguleiðum miðviku-
dagskvöldið 27. september.
Farið verður frá ankerinu í Hafn-
arhúsportinu kl. 20 og gengið með
Tjörninni, um Hljómskálagarðinn,
Háskólasvæðið og suður í Skeija-
fjörð. Síðan gengið með ströndinni
að Lyngbergi og áfram að Tjaidhóli
í Fossvogsbotni. Val er um að ganga
styttri leið um Vatnsmýrina og
Öskjuhlíðina að Lyngbergi. Báðum
hópunum verður ekið til baka að
Hafnarhúsinu. Á leiðinni verður litið
á stígaframkvæmdir í Fossvogi inn-
anverðum.
Kirkjustarf
aldraðra
í Grensáskirkju
OPIÐ hús fyrir eldri borgara og vini
þeirra verður í Grensáskirkju alla
fimmtudaga kl. 14-16 og hefst
starfið á morgun, fimmtudaginn 28.
september.
Boðið verður upp á Biblíulestur
og bænastund, einnig aðra trúar-
og kirkjulega fræðslu. Þá verða veit-
ingar og samverustund á eftir svo
og sálgæsla og persónulegar bænir
fyrir þá sem óska.
Fimmtudaginn 7. desember verð-
ur jólagleði og hefst hún kl. 12 með
helgistund, síðan er máltíð og dag-
skrá. Slíkar stundir verða einnig á
þorra, föstu og á degi aldraðra á
uppstigningardag. Þá er ætlunin að
fara í kynnisferðir og heimsækja
m.a. Kópavogskirkju, Vídalínskirkju
og kirkju Guðbrands biskups.
ALMENNINGI var boðið að kynna sér aðstöðu MS-félags ís-
lands, meðal annars tómstundastarf og líkamsþjálfun.
t VALDÍS VALDIMARSDÓTTIR,
Eyjabakka 3,
Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 25. sept. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin.
t
Við þökkum öllum þeim, sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
ÞORSTEINS BRYNJÓLFSSONAR,
Hagamel 48,
Reykjavík.
Þuríður Þorsteinsdóttir,
Lára Sigurlaug Þorsteinsdóttir,
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Bryndís Þorsteinsdóttir,
Brynjólfur Már Þorsteinsson,
Dagbjört Þorsteinsdóttir,
Guðmundur Helgi Þorsteinsson, Birna Einarsdóttir,
Geir Þorsteinsson,
Rúna Björg Þorsteinsdóttir, Elías Reynisson,
Sigrún Þorsteinsdóttir, Tumi Hafþór Helgason,
barnabörn og barnabarnabarn.
Guðmundur Kr. Þórðarson,
Grétar Kristjánsson,
Ólafur Sigurmundsson,
Ragnar Jón Skúlason,
Ragnheiður Garðarsdóttir,
Mogens Löve Markússon,
Borgarráð
■
:
...og á föstudögum
Fyrsti þátturinn hefst G.október