Morgunblaðið - 27.09.1995, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
, ÍÉGBZ 5VO /1
^ { Q
K O
£?({■■■ • (*ni'l Ö
Grettir
Ljóska
Törnmi M.L
Ferdinand
Smáfólk
Ég hef alltaf furðað mig á því
hvers vegna þú ákvaðst að verða
hundur ... Það er góð spurning.
Ég man að ég las
niður listann ...
Allt annað var frátekið ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavik • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Grófgnn til
missis mennsku
Frá Davíð Erlingssyni:
MIÐVIKUDAGINN 6. september
1995 klukkan að ganga 10 að morgni
lagði ég leið mína inn á hárklipping-
arstofu í þeirri höfuðborg sem heitir
í Mjódd. A meðan ung stúlka starf-
aði að höfðinu á mér fór ég að taka
eftir því sem heyrðist úr útvarpsvið-
tæki sem hún hafði í sambandi
álengdar. Þetta virtist vera spilun
hljómlistar með tali á milli. Karlmað-
ur einhver, fremur ungur, var þarna
að látast vera ekki vitund fyndinn,
heldur settlegur og alvarlega talandi
um þá feiknlegu sprengingu sem
borizt hefði úr suðurhöfum og hrist
aila heimsbyggðina og heimsmenn-
inguna, þegar stórmerkur fatameist-
ari eða fleiri fóru þangað til þess að
baða sig í skírgrænum sjó og kynna
þaðan veröldinni nýtt snið baðklæða,
æskilega smárra, handa íturdrósum.
Fyrirbærinu fann síðan einn frábær
snillingur það ráð að nefna það eftir
úthafseyjunum þessum: Bikini. -
Ekkert af þessari ræðu man ég orð-
rétt, veit ég vel, en hún var um þessa
„sprengingu", vitandi það og leikandi
á það (án þess að nefna það) að frétt-
in um aðra sprengingu nýorðna í
suðurhöfum á öðrum svipuðum eyj-
um var nýkomin inn í vitund áheyr-
enda útvarps þennan morgun: kjarn-
orkusprenging Frakka neðan sjávar-
botns í gíg Mururoa-eyjarinnar. Og
svo spilaði maðurinn raul stelpu um
„teeny weeny/ yello polka-dot bikini"
... flíkina og, að ég ætla, kitlandi
unaðsemd hálfnektarinnar fyrir sið-
menntaðan vesturlandabúa; en ég
man ekki textann.
Ekki bar á tilfínningu fyrir því,
að fólki mætti hér þykja helzti ólíku
saman jafnað, eða að um of skelfi-
lega og alvariega hluti væri að fást
til þess að hafa mætti þá að leik í
tilfinningalausu gaspri, fara með
hvað sem er yfir hvem sem er og
láta sem ekkert sé, vita ekki af því
að svona skynleysi gæti komið illa
við þá sem ekki eru orðnir að búfé
sem reka mætti ti! slátrunar án þess
að því fyndist sá rekstur eiginlega
koma sér við.
Eða eru þessi orð mín aðeins forn-
eskjutaut manns sem ekki skildi hve
þetta var fyndið og snjallt? Það geri
lesandi þessara orða upp við sjálfan
sig. En að mínu viti var hér um að
ræða stórkarlaiegt dæmi þeirrar
grófgunar í almennri skynjun sem
virðist vera að gerbreyta öllu mann-
lífi. Í fjölmiðlunum og þeim heimi
sem tekur mótun sinni af þeim áger-
ist uppblástur þess greinarmunar í
merkingum sem æ virðist hafa verið
meginatriði menningarinnar.
Það greindarleysi eða greindar-
munarleysi, sem þannig verður, er í
verunni andlegt straumleysi, af því
að ekki er lengur spenna milli plús
og mínus á rafhlöðu hugarins. Þegár
svo er komið, verður maðurinn til-
finningalaus, og vitanlega á endan-
um bæði menningarlaus og mállaus,
hættur að vera til sem manneskja
með heimkynni í mannheimi sem ein-
kennist af „siðmenningu".
Af hveiju gæti slíkt stafað? Ein
veruleg ástæða, samfara allri ann-
arri grófgun sem á gengur, ér vitan-
lega ofáreitingin á allri annarri
grófgun sem á gengur, er vitanlega
ofáreitingin á nútímanum, sem neyð-
ir hann í varnarstöðu, til að útiloka
frá sér eins mikið og hann getur, og
það getur leitt hann áleiðis til þess
búfénaðarlífs greindarmunarleysis-
ins, sem er í raun og veru lífleysi
hans sem manns, dauði.
DAVÍÐ ERLINGSSON,
Eyjabakka 1, Reykjavík.
Bréf til borgarstjóra
LISTDANS á skautum.
Frá Erlu
Jóhannsdóttur:
KÆRA Ingibjörg
Sólrún borgarstjóri.
Ég er ein úr hópi
þeirra íjölmörgu
barna og unglinga
sem æfi listdans á
skautum á skauta-
svellinu í Laugard-
al. Hópurinn hefur
stækkað ört á und-
anfömum árum.
Þegar ég byrjaði
hafði frést, öllum til
mikillar ánægju, að borgaryfirvöld
ætluðu að fara að byggja yfir svell-
ið. Þetta var fyrir þremur árum. Sl.
vetur heyrðum við enn á ný að til
stæði að byggja yfir svellið á þessu
ári. Við vorum mjög glaðar því æf-
ingar falla oft niður vegna veðurs.
Ekkert bólar á þakinu okkar, og
allir að verða frekar vondaufir. Þess
í stað heymm við í fréttum að það
eigi að byggja 50 m langa innisund-
laug á vegum borgarinnar. Svo er
líka búið að stækka Laugardalshöl-
lina fyrir 100 milljónir króna. Ég
er viss um að þak kostar ekki nærri
svona mikið og örugglega minna
en ný innisundlaug. Mér fínnst
óréttlátt að skautaíþróttinni skuli
alltaf ýtt til hliðar. Ef aðstaðan
væri betri er ég viss um að Islend-
ingar eignast bráðlega góða skauta-
dansara.
Meðfylgjandi mynd sýnir stelpur
á skautasýningu sl. vetur í jökul-
kulda. Einnig héldum við vorsýningu
sem misheppnaðist vegna veðurs.
Kæri borgarstjóri. Ég vona að
þú viljir gera eitthvað í málinu fyrr
en seinna, því við eram þreyttar á
biðinni.
ERLA JÓHANNSDÓTTIR,
12 ára, Teigagerði 14, Rvík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.