Morgunblaðið - 29.09.1995, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1995 27
LISTIR
Litli Dundee
KVIKMYNPIR
Iláskólabíó
INDÍÁNI í STÓRBORG-
INNI (UN INDIEN DANS
LA VILLE) ★ ★ '/i
Leikstjóri Hurve Palud. handrit Lou-
is Becker. Tónlist Manu Katcher og
Geoffrey Dryema. Aðalleikendur
Thierry Lhermitte, Ludwig Briand,
Patrick Timsit, Miou Miou. Frönsk.
IMLF 1995.
SÚ MYND sem notið hefur hvað
mestra vinsælda í Frakklandi í ár
er þessi geðþekka barna- og fjöl-
skyldumynd. Frönsk að uppruna
en af áströlskum stofni;7nd;an/ í
stórborginni er tilbrigði við hina
feikivinsælu mynd Pauls Hogan,
Krókódíla Dundee. Verðbréfasali
í París (Thierry Lhermitte) fregnar
að hann eigi ungan táningspilt
(Ludwig Briand) sem býr meðal
frumbyggja Venesúela. Thierry
býður honum að kynnast stórborg-
arlífinu þar sem hann svo sprang-
ar stríðsmálaður um stræti og torg
með boga sinn og örvamæli reidda
um öxl og tarantúlu uppá vasann.
Frumskógasveinninn lendir í
margvíslegu ævintýrum á malbik-
inu enda er pabbi hans lengst af
upptekinn við að pranga sojabaun-
um inná rússneska mafíósa en
konuefnið hans (Miou Miou) for-
fallið í Nýaldarvísindum. Stráksi
skelfir nágrannana, kemur lífs-
reyndum Parísarbúum úr jafnvægi
með uppátækjum sínum, kemur
föður sínum úr argaþrasi við-
skiptalífsins niður á jörðina og
verður ástfanginn.
Þetta lítur ekkert alltof vel út
lengi framan af. Höfundunum
tekst ekki að nýta sér þessar
fyndnu kringumstæður á eftir-
minnilegan hátt heldur eru þær
afgreiddar heldur ódýrt. Til allrar
blessunar sækir Indíáninn smám
saman í sig veðrið og eftir að til-
finningasamband kemst á milli
feðganna verður hún hlý og nota-
leg fjölskylduskemmtun. Hlið-
arsaga um rússneska erkibófa er
groddaleg og smellur ekki sem
skyldi inní heildarmyndina þó
nauðsynleg sé framvindunni. Ást-
arævintýri unglinganna er því sak-
lausara og sætara.
Ludwig Briand, ungi leikarinn
sem fer með titilhlutverkið, skiiar
því eins vel og við er að búast af
nýgræðingi í leiklistinni og Thierry
Lhermitte er hárréttur í föðurhlut-
verkinu. Fyrir þeirra tilstilli fyrst
og fremst hófur Indíáninn náð
þeim umtalsverðu vinsældum sem
raun ber vitni.
Sæbjörn Valdimarsson
Kynning á verk-
um Jóhannesar
úr Kötlum
BÓKMENNTAKYNNING verður
í Risinu, Hverfisgötu 105, 3. októ-
ber kl. 15. Leikfélagið Snúður og
Snælda kynnir
verk Jóhannesar
úr Kötlum. Gils
Guðmundsson rit-
höfundur rekur
feril skáldsins og
lesið verður úr
kvæðum skáldsins
og brugðið upp
myndum úr lífi
úr Kötlum þeSS.
Jtlí
Ótrúlegum árangri
Mjög áhrifamikið fítubrennslutæki
Þjálfar:
Læri, aftan
og framan
Rassvöðva
Brjóstvöðva
Bakvöðva
Axlir
Handleggi
Tölvumælir
með klukku,
teljara og
kaloríu-
brennslu
Breitt og 1
gott sæti
Einfalt í notkun
og hentar
öllum aldurshópu
12 þrekstig
VERSLANIR
SKEIFUNNI19 - S. 568-1717 - LAUGAVEGI51 - S. 551-7717
Ótrúlegt verð kr.