Morgunblaðið - 04.10.1995, Side 9

Morgunblaðið - 04.10.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 9 FRETTIR Foreldrum bent á að virða reglur um útivist barna og unglinga BORGARSTJORINN í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur sent foreldrum barna og unglinga undir átján ára aldri bréf þar sem minnt er á skýrar reglur um útivist- artíma bama og ungmenna. Ingi- björg Sólrún kveðst telja ástandið í miðbæ Reykjavíkur á kvöldin og um helgar mikið áhyggjuefni og nauðsynlegt sé að borgaryfirvöld og foreldrar taki höndum saman og sporni gegn því. Margar hættur „Sá fjöldi sem leitar niður í miðbæ á nóttunni um helgar skipt- ir iðulega þúsundum og áberandi er hve stór hópur er undir lög- aldri, þ.e. börn og unglingar sem lögum samkvæmt mega ekki vera á almannafæri á kvöldin og á nótt- unni,“ segir Ingibjörg Sólrún og hvetur til samstarfs allra foreldra um að koma í veg fyrir útivist barna og unglinga um kvöld og helgar. „Talsvert ber á ölvun og ofbeldi og þrátt fyrir að unglingar séu Miðbærinn áhyggjuefni ekki sá hópur sem líklegastur er til þess að beita ofbeldi, geta þeir, eins og dæmin sanna, auðveldlega orðið fórnarlömb ofbeldis. Hætt- urnar eru margar og ef takast á að snúa þessari óheillaþróun við, þurfa allir að leggjast á eitt. For- eldrar gegna lykilhlutverki, ekki síst hvað varðar útivist barna, þótt fleira þurfi að koma til.“ Borgarstjóri bendir í bréfí sínu á þjónustu þá sem Reykjavíkurborg hefur byggt upp fyrir börn og ungl- inga og tiltæk úrræði vegna þeirra ungmenna sem lenda í vanda, eink- um starfsemi athvarfs í miðbænum fyrir unglinga sem teknir eru fyrir ölvun, ólæti eða brot á útivistar- tíma. Þangað verða foreldrar að sækja börn sín, séu þau á ferli utan leyfílegs útivistartíma. Heim fyrir klukkan 20 og 22 Samkvæmt lögum mega börn yngri en 12 ára ekki vera á al- mannafæri eftir klukkan 20, frá 1. september til 1. maí, nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldr- inum 13-16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22 á sama tíma, nema í fylgd fullorðinna eða um sé að ræða krókalausa heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Börnum yngri en 16 ára er óheimill aðgangur og dvöl á dans- leikjum öðrum en sérstökum ungl- inga- eða fjölskylduskemmtunum sem haldnir eru af skólum, æsku- lýðsfélögum eða öðrum þeim sem hafa til þess sérstök leyfí. Unglingum innan 18 ára aldurs er óheimill aðgangur og dvöl á stöð- um sem hafa leyfí til áfengisveit- inga, nema í fylgd með foreldri, öðrum forsjáraðila eða maka. Börn- um innan 14 ára er ekki heimill aðgangur að knattborðum, spila- kössum eða leiktækjum nema í fylgd með forráðamönnum. Vantar þig upplýsingai um krabbai sin? Nýttu þér aulíTfa þjó tu KrabbameiuSfi S KRABBAMifNS Sráðgjöfin Vorum að fá sendingu af fallegum barnafatnaði "VEjKÍBD Création Stummer Njálsgötu 86, sími 552 0978 Póstsendingarþjónusta. Hrafn- hildur til Ist- anbul HRAFNHILDUR Hafsteins- dóttir, Fegurðardrottning ís- lands, heldur til Istanbul í Tyrklandi föstudaginn 6. október til að keppa um titil- inn Miss Europe 1995. Keppnin fer fram mánu- daginn 23. október og er henni sjónvarpað beint víða um Evrópu. Stúlkur frá 36 löndum taka þátt keppninni en það eru auk Islands; Albanía, Austurríki, Belgía, Hvíta Rússland,, Búlgaría, Tékkland, Dan- mörk, England, Eistland, Finnland, Frakkland, Þýska- land, Grikkland, Holland, Ungvezjaland, írland, ísrael, Ítalía, Lettland, Litháen, Lúx- emborg, Malta, Noregur, Pól- land, Portúgal, Rúmenía, Rússland, Skotland, Slóvakia, Spánn,_ Svíþjóð, Sviss, Tyrk- land, Ukraína og Wales. r Nœstu sýningar. 1,11,21. ,og28. okt. Dansaðíbremursölum Matseðill Forréttur: Freyðivúistónuð læiasúpa m/rjómatopp. Aðalréttur: Glóðarsteiktur lambavöðvi dijon m/púrtvínssósu, kryddsteiktum jarðeplum, gljáðu grænmeti og fersku salati. Eftirréttur: Heslihnetuís m/súkkulaðisósu og ávöxtum. Verð kr. 4.600 Hljómsveitin Karma í Aðalsal Ásbvrgi: Magnús og Jóhann og Pétur Hjaltested leika íyrir dansi. Norðursalur. Diskótek DJ Gummi þeytir skífuni í Norðursal. Sértilboð á hótelgistingu, sítni 568 8999■ Ath. Enginn aðganesevrir á dansleik. A\\m Grand Cherokee Laredo, árg. '93 og '94 Ford Explorer JLX, 6 cyl, sjálfskiptur árg. '91 - ekinn 96 þús. km Ríkisvíxlar! Fjármálastjórar - sjóðir - stofnanir - fyrirtæki • Ríkisvíxlar hafa fjölmarga kosti við fjárstýringu. • Ríkisvíxlar eru örugg skammtímaverðbréf með tryggri ávöxtun. Þau eru skráð á Verðbréfaþingi íslands sem tryggir greið viðskipti við kaup og sölu. • Ríkisvíxlar eru tæki til að skapa þann hreyfanleika sem þú þarfnast. Útboð fer fram t' dag kl. 14:00. í boði eru 3ja, 6 og 12 mánaða víxlar. Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa um tilboð á vexti á ríkisvíxlum. Sími 562 6040. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfísgötu) sími 562 6040, fax 562 6068. Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.