Morgunblaðið - 04.10.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 15
FRÉTTIR: EVRÓPA
Dregið úr leynd
í störfum ráð-
herraráðsins
Lúxemborg. Reuter.
RÁÐHERRARÁÐ Evrópusam-
bandsins samþykkti á fundi sínum
á mánudag að draga úr leynd í
störfum sínum og gera opinberar
yfírlýsingar aðildarríkja um túlkun
á nýrri löggjöf ESB. Þessar yfírlýs-
ingar hafa til þessa verið leynilegar
og hefur það fyrirkomulag sætt
gagnrýni, ekki sízt af hálfu nor-
rænu ESB-ríkjanna. Jafnframt hafa
EFTA-ríkin bent á að yfirlýsingarn-
ar veittu ESB-ríkjum í raun undan-
þágur frá nýrri löggjöf, en EFTA-
ríkin yrðu að fýlgja henni út í yztu
æsar er hún verði hluti af EES-
samningnum.
Utanríkisráðherrar ESB-ríkja
ákváðu á fundinum að allar yfirlýs-
ingar, sem aðildarríki gæfu um það
hvernig þau túlkuðu nýja löggjöf,
yrðu héðan í frá opinberar, nema
óskað væri eftir atkvæðagreiðslu
um að einstakar yfírlýsingar yrðu
leynilegar. Einfaldan meirihluta
þarf þá til að fella tillögu um slíkt.
Áður var þetta á hinn veginn; allar
yfírlýsingar voru leynilegar nema
farið væri fram á atkvæðagreiðslu
um annað og meirihlutinn vildi að
þær yrðu opinberar.
Meiri breytingar á
ríkjaráðstefnunni
Danmörk og Svíþjóð hafa barizt
fyrir opnari starfsháttum ráðherr-
aráðsins. Lena Hjelm-Wallén, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, sagði eftir
ráðherraráðsfundinn að slíkar hug-
myndir hefðu byr innan ESB um
þessar mundir. Þó væri ekki nóg
að gert. En ekki mætti þrýsta of
fast á breytingar, því að þá væri
hætta á að ekkert breyttist. Hjelm-
Wallén sagði að halda yrði þessu
starfí áfram á ríkjaráðstefnu ESB,
sem hefst á næsta ári.
Reuter
NIELS Helveg Petersen, utanríkisráðherra Dana, er í hópi
þeirra sem hafa hvatt til opnari og lýðræðislegri starfshátta
ESB. Hér ræðir hann við aðstoðarutanríkisráðherra Þýzka-
lands, Werner Hoyer, fyrir fund ráðherraráðs ESB í Lúxemborg.
Slæmar
samgöngur
til Helsinki
UTANRÍKISRÁÐHERRA Finn-
Iands, Tarja Halonen, og Evrópu-
málaráðherrann Ole Norrback
urðu að fara af fundi ráðherrar-
áðs ESB í Lúxemborg á mánudag
áður en komið var að helztu
hugðarefnum Finna á dag-
skránni; samskiptum við Rúss-
land og opnari starfsháttum ráð-
herraráðsins.
Ástæðan var sú að flugsam-
göngur milli Lúxemborgar og
Helsinki eru stopular og urðu
ráðherrarnir raunar að taka
flugvél til Sviss, þaðan sem þau
náðu flugi til Helsinki.
Finnskur stjórnarerindreki
sagði að ríkisstjórn Finnlands
ætti engar flugvélar og yrðu
æðstu embættismenn því að ferð-
ast með áætlunarflugi, sem setti
stundum strik í reikninginn hjá
austasta aðildarríki ESB.
Vonbrigði vegna
kjamavopnatilrauna
Lúxemlmry. Reuter.
UTANRIKISRÁÐHERRAR Evrópu-
sambandsins gagnrýna kjarnorku-
sprengingu Frakka á Suður-Kyrra-
hafi harðlega. Framkvæmdastjóm
sambandsins telur að Frakkar hafí
hugsanlega brotið Euratom-samn-
inginn með þvi að sprengja aðra
kjamorkusprengju á Mururoa á
mánudag.
„Við höfum orðið fyrir afar mikl-
um vonbrigðum, en við munum ekki
grípa til neinna aðgerða, heldur út-
skýra afstöðu okkar með orðum,“
sagði Lena Hjelm-Wallén, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar. „Við höfðum
vonað að viðbrögðin um heim allan
myndu stöðva tilraunimar, en það
er ekki raunin."
Danski utanríkisráðherrann, Niels
Helveg-Petersen, lét einnig í ljós sár
vonbrigði og sama gerði Jacques
Poos, utanríkisráðherra Lúxemborg-
ar. Poos sagði að ESB gæti þó lítið
gert í málinu nema að láta skoðanir
sínar í ljós við Frakka.
Framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins lýsti því yfír að gjörð
Frakka væri enn verri fyrir það að
framkvæmdastjómin hefði sérstak-
lega farið fram á það við frönsk
stjómvöld að veita henni upplýs-
ingar, sem gætu skýrt hvort tilraun-
irnar vörðuðu við 34. grein sáttmál-
ans um Kjamorkusamvinnustofnun
Evrópu, Euratom, sem er hluti af
Evrópusambandinu.
Brot á sáttmála
Euratom?
Greinin kveður á um að aðildarríki
geti þurft að leita heimildar fram-
kvæmdastjórnarinnar fyrir kjarnork-
utilraunum vegna heilbrigðis- og ör-
yggissjónarmiða. Framkvæmda-
stjómin hyggst tilkynna í dag hvort
hún telji Frakka verða að leita sam-
þykkis. Ákvörðunin verður meðal
annars byggð á framburði kjarnorku-
sérfræðinga ESB, sem komu frá
Mururoa um síðustu helgi.
LANCÖME
Glæsilegur kaupaukil
EFFACIL 30 ML
- augnhreinsivökvi.
ROUGE ABSOLU
- rakagefandi varalitur.
INTENCILS
- augnhárafitur.
BIENFAIT TOTAL 10 ML
- vítamínfyllt dagkrem.
Þessi kaupauki fæst eingöngu í neðantöldum verslunum frá miðvikudegi til laugardags.
Kaupaukinn fylgir þegar keyptir eru tveir hlutir frá LANCÖME ,þar af 50 ml krukka af einhverju
eftirtalinna krema: Primordiale, Rénergie, Nutriforce, Niosome + eða Hydrative.
Andorra Nana Amaró
Strandgötu 32. Hafnarfirði. sfmi 555 2615. Hólagarði. Reykjavfk. sfmi 557 1644. Hafnarstræti 99-101, Akureyri. sfmi 462 1730.
NordSol 1995
Tónlistarkeppni Norðurlanda
Christina Guðrún María Hcnri Katrine
Bjprkpe Finnbogadóttir Sigfridsson Buvarp
Danmörku íslandi Finnlandi Noregi
Markus
Lcoson
Svíþjóð
Sinfóníutónleikar í Háskólabíói
Fimmtudaginn 5. október kl. 20:00
Laugardaginn 7. október kl. 14:00
Stjórnandi
Osmo Vánska
Konsertþœttir og aríur eftir
Brahms • Verdi • Mozart • Puecini • Gounod
Prokofjev • Rakhmanínov • Milhaud
Miðasala frá mánudegi 2. október í anddyri Hótel Sögu
Miðapantanir í síma 552 9924 • Símsvari um kvöld og helgar