Morgunblaðið - 04.10.1995, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TYL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Tommi og Jenni
I CAN SEE THE LI6HT5 OF THE 5CH00L 5US C0MIN6THR0U6H THE F06^ IT 5 LIKE A HU6E M0N5TER PEV0URIN6 EVERYTH1N6IN IT5PATH..
w
a -j-j—
Ég sé ljósið á skólabílnum Hann er eins og risastórt Hvert ertu að fara?
koma í gegnum þokuna. skrímsli sem gleypir allt
sem á vegi þess verður ...
<WALKIN6
T0 SCH00L
Ég ætla gang-
andi í skólann.
Málstaður
og launakjör
Frá G. Jökli Gíslasyni:
ÞAÐ ERU stærstu forréttindi okkar
í lýðræðisríki að við höfum frelsi til
að kjósa þá sem yfir okkur ráða. I
grundvallaratriðum er þetta þar sem
við höfum mest
áhrif á stjórnskipun
okkar. Þó er þetta
þeim annmörkum
háð að úrval þeirra
sem við fáum að
velja úr er takmark-
að og oft spuming
um að velja hið
Skásta frekar en
það besta. Stjórn-
málamenn standa
fyrir ólíka málstaði
og yfirleitt er það boðskapur stjórn-
arandstöðunnar sem á sér greiðasta
samsvörun meðal almennings á
hvetjum tíma. Þó er það eitt sem
stjómmálamenn virðast alltaf geta
verið sammála um og það er að þeir
verðskuldi launahækkun. Því er ekki
mótmælt að þeir eigi ekki skilið
hærri laun heldur er það spuming
hversvegna þeir eigi þau skilið frekar
en aðrir. Fyrir því era engin viðhlít-
andi rök fyrir aðra en stjómmála-
menn að trúa, að minnsta kosti ekki
fyrir almenning að skilja. Erfíðast
er þó að samþykkja afstöðu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur í þessu
máli en laun hennar hækka í sam-
ræmi við forsætisráðherra. Það er
eitt að gera eitthvað sem er í and-
stöðu við hlutskipti og skoðanir ai-
mennings heldur en að taka þátt í
því og samt starfa undir þeim for-
merkjum að vera fulltrúi félags-
hyggju. Er það ekki einmitt hlutverk
slíks leiðtoga að sýna skörangshátt,
afsala sér launahækkun og skapa
með því fordæmi til eftirbreytni? Það
virðist ekki vera, heldur ákveður
borgastjóri að bíða eftir aðgerðum
formanns eina stjórnarandstöðu-
flokks í borgarstjórn. Því var áður
fleygt í gamni að þeir borgastjórar
Sjálfstæðisflokksins sem tóku við af
Davíð Oddssyni væra háðir ákvörð-
unum hans áður en þeir gerðu upp
hug sinn og svo virðist enn vera þó
svo að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki
lengur við völd. Að bíða svo eftir
ákvörðun annars og þá sérstaklega
þeim sem leiðir stjórnmálastefnu
andstæða þeirri sem maður er full-
trúi fyrir er ákveðinn tvískinnungur
og þó það sé margt sem sé gagnrýn-
isvert i launahækkunum alþingis-
manna þá er fátt fyrirlitlegra en fals.
Það er enginn skörangsháttur í því.
Fyrir síðustu kosningar lofaði R-list-
inn því að auka ekki skattbyrði.
Holræsagjöld og strætisvagnafar-
gjöld era ekki skattar í þrengstu
merkingu þess orðs en eru auknar
álögur. Það og þessi ákvörðun borg-
arstjóra, að bíða eftir ákvörðun for-
manns Sjálfstæðisflokksins um það
hvort þiggja beri launahækkun langt
umfram það sem almenningur fær,
setur spurningarmerki við félags-
hyggjuanda þessa flokks.
Það mikilvægasta sem stjórnmála-
menn eiga að hafa til að bera er að
vera sjálfír sér samkvæmir, það er
ekki nóg að halda fram skoðun eða
vera fulltrúi stefnu í orði ef það er
ekki í samræmi við hegðun í verki.
í síðustu borgarstjórnarkosningum
nýtti ég atkvæðisrétt minn og kaus
R-listann, í næstu kosningum er ég
aftur fijáls til að kjósa það sem ég vil.
G.JÖKULLGÍSLASON,
Heiðarseli 6, Reykjavík.
Fréttir frá Átaki -
félagi þroskaheftra
og fatlaðra
Frá ínu Valsdóttur:
VIÐ stofnuðum félagið Átak fyrir
tveimur áram og þá þann 20. sept-
ember 1993. Við eram búin að kynna
borgastjórann fyrir félaginu. Helstu
baráttumál hjá
Átaki eru launamál
á vernduðum vinnu-
stöðum og við eram
búin að halda tvo
félagsfundi. Var
annar þeirra um at-
vinnumál, þá komu
tveir verkalýðsfor-
ingjar á fund hjá
Átaki og voru frá
Iðju og Sókn. Fókið
á þessum vemduðu vinnustöðum er
ekki í neinum verkalýðsfélögum.
Hugsið ykkur að þau sem vinna á
þessum stöðum fá engin eftirlaun
þegar þau verða 67 ára. Ekki mynd-
uð þið vilja láta bjóða ykkur uppá
slíkt, og ekki mynduð þig viija þau
laun sem þau hafa í dag og era búin
að vera með upp undir 10-15 ár.
Ekki mynduð þið láta bjóða ykkur
þessi laun, þið þama úti í þjóðfélag-
inu. Hvemig væri að fara að breyta
þessu? Við fóram til Álandseyja í
júní síðastliðinn á N.F.P.U. þing.
Ráðstefnan var um málefni fatlaðra.
Og þarna úti í Álandseyjum var
maður að nafni Henning Furulund
sem er frá Noregi. Hann er hörku
ræðumaður og hann verður hér á
íslandi 6.-8. október, þá verður
landsþing hjá Landssambandi
Þroskahjálpar á Hótel Sögu, starf í
umræðuhópum verður á laugardeg-
inum 7. október kl. 9-12 í Skálanum.
Þar verður Henning Furalund með
ræðu. Umræðuhópar eru litlir hópar
innan Þroskahjálpar og það helsta
sem við ræðum eru mest trúnaðar-
mál. Við verðum með aðalfund mið-
vikudaginn 4. október ki. 20-22 í
gamla Geysishúsinu eða í Hinu hús-
inu í Aðalstræti 2 eins og það heitir
í dag.
Allir velkomnir.
ÍNA VALSDÓTTIR.
ína Valsdóttir
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.