Morgunblaðið - 04.10.1995, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 33
BRÉF TIL BLAÐSINS
Undarleg
tík þessi
pólitík
Frá Hrafnhildi Guðmundsdóttur:
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
kemur frískur og fínn úr fríi, þar sem
glæsibifreið bíður hans og annarra
ráðherra auk dágóðrar launahækk-
unar plús skattfríðindi og skilur ekk-
ert í óróa fólks með lág laun út af
þessari „leiðréttingu" Kjaradóms
þeim til handa og segir það ekki
koma til greina að breyta því „menn
deila jú ekki við dómara“. ráðherrar,
þingmenn og aðrir embættismenn
bera mikla ábyrgð og eiga þetta skil-
ið.
Þeir gefa sjúklingum, öldruðum,
öryrkjum og almennum borgurum
smá „pústra" annað slagið, en skilur
fólkið virkilega ekki að það er gert
í þess þágu, sé til lengri tíma litið?
En Davíð forsætisráðherra bendir
þessu órólega fólki með þungri
áherslu á borgarstjóm sem ■ ræðst
með svo óheyrilega ósvífnum hætti
á lífskjör borgarbúa með því að
hækka fargjöld SVR, þar er skað-
valdurinn, ekki laun hans, þing-
manna eða flottheit embættismanna,
þeir verða jú að komast með sæmi-
legri reisn í eins og eina „Bermúda-
skál“ í harðviðarinnréttaðan vínkjall-
ara Bessastaða, án þess að fólkið sé
að kvarta.
HRAFNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Markarflöt 37, Garðabæ.
Reynslusaga
Frá Eygló Þorsteinsdóttur:
SONUR minn og vinkona hans voru
svo óheppin að kaupa sér farmiða
með Emerald Air til London fyrir
stuttu. Tilgangur ferðarinnar var
aðallega að fara á hina þekktu tón-
listarhátíð sem haldin er í Reading
árlega. Ferðin átti að hefjast föstu-
daginn 25. ágúst sl. kl. 13.55, þ.e.
sama dag og tónleikarnir byija.
Reiknuðu þau með að geta komist
á svæðið um kvöldmatarleytið og
njóta þess sem boðið yrði uppá það
kvöldið. Þegar leið að brottför kom
í ljós að allt var í óvissu um komu
vélarinnar og ekki síður um brott-
för hennar aftur héðan af landi.
Undirrituð hafði þá samband við
skrifstofu Arctic Air um kl. 17.00
og benti þeim á að þessi mikla
seinkun gæti valdið því að þau yrðu
alfarið af fyrsta kvöldi tónleikanna
og einig strandaglópar í London
seint um nótt án nokkurs víss gisti-
staðar. Fyrir svörum varð starfs-
maður sem kynnti sig sem Stefán.
Ekki vildi hann neitt gera í þessum
málum, en nefndi þó að starfsmað-
ur þeirra yrði í vélinni og hann
mundi reyna eitthvað. Að öðru leyti
var hann eins og biluð grammafóns-
plata sem endurtók alltaf sömu
tugguna, að þetta væri allt sam-
gönguráðuneytinu að kenna. Þeir
hefðu sett þeim stólinn fyrir dyrnar
algerlega að ástæðulausu. Loks
rann þó hin langþráða brottför upp,
en þá var kl. orðin rúmlega 19.00
um kvöldið. Við innritunarborðið
var fjöldi fólks sem var að fara með
þessari vél, en ekki til London held-
ur Belfast. Þar kom sem sé í ljós
að fyrst yrðu frændur vorir írar
heimsóttir. En ekki var nú allur
sannleikurinn kominn upp á yfir-
borðið, því á leiðinni út var það til-
kynnt að ekki yrði lent í London
heldur Manchester. Þetta hafði eng-
inn haft á orði við þau fyrir brott-
för. Þegar svo loks var lent á enskri
grund tók við tveggja tíma bið eft-
ir rútu sem flytja átti farþegana
„síðasta spottann."
Loðin svör
Fyrir þá sem ekki eru kunnugir
á þessum slóðum má geta þess að
það tekur um þijá tíma lágmark
að aka frá Manchester til London.
Áður en rútan lagði af stað spurðu
þau þennan starfsmann Arctic Air
hvort hún hefði getað gert eitthvað
í því að útvega þeim gistingu í
London. Hennar svör voru bæði
loðin og léleg. Nei, hún hafði eigin-
lega gleymt því, en þau hlytu að
redda sér. Þar að auki væri ekkert
mál að fínna gistingu í London á
þessum árstíma. Það má vel vera
að þessi starfsmaður hafi verið að
fara í sína fyrstu utanlandsferð en
almennt er það talið frekar erfitt
að finna gistingu á þessum árs-
tíma. Með þessi orð hennar að veg-
arnesti fóru þau af stað til London,
en af einhveijum ástæðum sá þessi
starfsmaður sér ekki fært að slást
í hópinn í þessari spennandi rútu-
ferð. Þegar loks var komið til Lond-
on 8-9 tímum á eftir áætlun, hófst
heilmikil leit að gististað. Eftir að
hafa farið á 10-15 staði í nágrenn-
inu fundu þau heimagistingu sem
mundi á almennu íslensku máli
kallast hálfgerð rottuhola. 25 pund
hurfu þar fyrir lítið. Ekki varð þeim
sérstaklega svefnsamt á þessum
stað og eflaust ekki foreldrum
þeirra heldur ef þeir hefðu vitað
af þeim á þessu ráfi um stórborgina
um miðja nótt.
Þegar ferðalangarnir komu heim
aftur, reyndar líka í seinkun, var
aftur talað við Arctic Air. Þar á bæ
var enn boðið upp á sömu tugguna,
að þetta væri allt samgönguráðu-
neytinu að kenna. Ekki vildu þeir
bjóða þeim neitt sem heitið gætu
bætur fyrir að hafa þurft að gista
í London og tapa af hluta tónleik-
anna. í Morgunblaðinu 29. ágúst
er haft eftir Gísla Lárussyni, for-
svarsmanni Arctic Air, að þeir seu
að reyna að skera á öll tengsl við
Emerald Air. Arctic Air sé eingöngu
að tryggja að farþegar Emerald
verði ekki strandaglópar víðsvegar
um Evrópu. Þeir beri þó enga
ábyrgð á þessum farþegum.
Tengsl
Ég spyr því? Til hvers var Arctic
Air að taka að sér að flytja þetta
fólk og fá ekkert nema vandræði
út úr því? Ef engin eru tengslin,
hvers vegna byijuðu þeir þá ekki
með hreint borð og létu Emerald
róa? Þeir sætu þá ekki uppi með
fjöldann allan af kvörtunum og
hundóánægða farþega sem eru ein-
hver versta auglýsing sem hægt er
að hugsa sér. Er ekki hér bara á
ferðinni gamla góða íslenska „trix-
ið“ að skipta um nafn og kennitölu
þegar halla fer undan fæti og vand-
ræðin hrannast upp? Ég vona bara
að samgönguráðuneytið fari vel
ofan í saumana hjá þessum nýju
rekstraraðilum, því það er með ólík-
indum hve margir ævintýramenn
hafa komist langt í íslensku við-
skiptalífi. Alla, sem hyggja á að
ieggja land undir fót, hvet ég til
að ferðast með traustum og vel
reknum fyrirtækjum sem hafa
áunnið sér góðan orðstír. Því þar
sannast hið fornkveðna að gott orð-
spor er gulls ígildi.
EYGLÓ ÞORSTEINSDÓTTIR,
Faxabraut 51, Keflavík.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
LAUNAKERFI
Frá kr. 14.940.
0 KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 - Sími 568 8055
RAÐA UGL YSINGAR
Aðalfundur H.K.R.R.
verður haldinn í íþróttamistöðinni í Laugar-
dal þriðjudaginn 10. október kl. 19.00.
Stjórnin.
Hluthafafundur
Hraðfrystistöð Þórshafnar hf., boðar til hlut-
hafafundar í kaffistofu frystihússins, Eyrar-
vegi 16, Þórshöfn, þriðjudaginn 17. október
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Breytingar á samþykktum féiagsins til
samræmis við breytt ákvæði hlutafélaga-
laga nr. 2-1995.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Félagsmálaráðuneytið
Staða og þróun
starfsmenntunar í Evrópu
Starfsmenntaráð félagsmálaráðuneytisins
heldur opinn fund fimmtudaginn 5. október
nk. um stöðu og þróun starfsmenntunar í
Evrópu. Fundurinn verður haldinn í Borgar-
túni 6, 4. hæð, kl. 13.00-16.00.
Gestur fundarins verður Per Jensen, deildar-
stjóri starfsmenntadeildar dönsku Vinnu-
málastofnunarinnar og verkefnisstjóri nor-
ræns samstarfsverkefnis um starfsmenntun
í atvinnulífinu.
Ágúst H. Ingþórsson, verkefnisstjóri Sam-
menntar, kynnir Leonardó-áætlun Evrópu-
sambandsins.
Túlkað verður á milli íslensku og dönsku.
Féiagsmáiaráðuneytið,
29. september 1995.
Leiklistarstúdíó
Eddu Björgvins og Gísla Rúnars
Örfá sæti laus á helgarnámskeið 14. og
15. október.
Upplýsingar í símum 588 2545 og 551 9060.
Leiklistarnámskeið
fyrir börn
Ellefu vikna leiklistarnámskeið fyrir börn hefj-
ast laugardaginn 7. október nk. í gömlu
bæjarútgerðinni, Vesturgötu 11, Hafnarfirði.
6, 7 og 8 ára börn á laugardögum frá kl.
10-11, 9 og 10 ára börn á laugardögum frá
kl. 11.30-12.30 og 11 og 12 ára börn á laug-
ardögum frá kl. 13-14. Verð 6.900 kr.
Systkinaafsláttur.
Innritun hafin í símum 555-0553 og 555-0304.
Fiskveiðistjórnun og
hugmyndir Gary Becker
Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavik,
heldur opinn fund
um stjórn fiskveiða
I Valhöll, Háaleitis-
braut 1, í dag, mið-
vikudaginn 4. októ-
ber, kl. 20.30.
Gestir fundarins
verða þeir Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, dósent í félagsvísindadeild Háskóla íslands
og Markús Möller, hagfræðingur í Seölabanka islands. Umræðuefni
fundarins verða m.a. skrif Gary Beckers, Nóbelsverðlaunahafa í
hagfræði, um fiskveiðistjórnun í Business Week, reynsla islendinga
af aflemarkskerfinu og hugmyndir um veiöileyfagjald sem renni í nkis-
sjóð. Allir velkomnir.
Félag sjálfstæðimanna
íHáaleitishverfi
AÖalfundur félagsins verður haldinn í Valhöll þriðjudaginn 10. októ-
ber kl. 18.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu
29, miðvikudaginn 11. október nk. kl. 20.00.
Stjómin.
Sma ougiýsingor
krossinn
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 9 = 177104872 = 0.9
Hörgshlíð 12
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
□ GLITNIR 5995100419 I
Fjhst. Atkv.
□ HELGAFELL 5996100419 VI
2 FRL.
I.O.O.F. 7 = 17710048'/a =
Hvftasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 í tengslum við dreifingu
Bókar Lífsins.
Ræðumaður John Warren.
Allir hjartanlega velkomnir.
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum. Girma Arf-
asó frá Eþíópíu verður ræðu-
maöur. Allir velkomnir.
Dúndrandi kveðjusamkoma fyrir
Burnie Sanders í kvöld kl. 20.30.
Ath.: Við erum f nýju húsnæði
í Hlíðasmára 5-7, Kópavogi.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Næstu helgarferðir:
1. 7.-8. okt. Þórsmörk - haust-
litir. Brottför laugardag kl. 8.00.
Nú er besti tíminn til aö skoða
haustlitina. Góð gisting í Skag-
fjörðsskála. Gönguferðir við allra
hæfi. Þátttakendum gefst kostur
á að tína birkifræ, en ferðin er
í samvinnu við Landgræðsluna
og Skógrækt ríkisins. Af því til-
efni býður F.í. grillmáltíð á
laugardagskvöldinu. Fjölskyld-
utilboð.
2. 6.-8. okt. Laugar - Jökulgil
og Hrafntinnusker (fullt tungl).
Brottför kl. 20. Farið ef færð
leyfir.
Ferðafélag islands.