Morgunblaðið - 04.10.1995, Page 34

Morgunblaðið - 04.10.1995, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Þökk sé öllum þeim, sem sýndu mér vináttu á 85 ára afmœli mínu þann 23. september sl. Gjafir, kveðjur og þátttaka í afmœlisfagnaöi yljuðu um hjartarœtur og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Bestu kveÖjur til ykkar allra. Þórður Oddsson, læknir. Innilegar þakkir sendi ég þeim, sem vottuÖu mér vináttu meö heimsóknum, skeytum og gjöfum á áttatíu ára afmœli mínu þann 25. ágúst sl. Krístín Þorsteinsdóttir frá Firði, Víðihlíð, Grindavík. AUSTURLENSK TEPPI ÚTSALA ALLT AÐ 50% AFSLÁTTUR .EMÍRtl VIRKA DAGA 13-18 JL-húsinu. LAUGARDAGA 10—16 I' ^ GANK PLANK BAND FIMMTUDAG KL 17:00- 18:00 í NÓATÚNSBÚÐINNI ROFABÆ SCANDIC HÓTEL LOFTLEIÐUM UM KVÖLDIÐ H00H00 BSSH scandTc loruntiR C ^ " A. .. . L Æ " t A -"."-"'Ji. ^ f p.*r * ^ i' 1 '1. A m TÖIVUSKÓII FYRIR 8-14 ÁRA Fróðlegur og skemmtilegur I DAG SKÁK Umsjón Margeir Pétursson SVARTUR leikur og vinnur Staðan kom upp í fímmtu einvígisskák fremstu skák- manna Hollands sem nú stendur yfir. Jeroen Piket (2.625) vanneð hvítt, en Jan Timman (2.590) var með svart og átti leik. Hvítur lék síðast 35. h3-h4!? í erfíðri stöðu. En í staðinn fyrir að leika og vinna lék Timman og tapaði: 35. - Be3?? 36. Hxe3 - dxe3 37. Hxd7 - Dc6 38. Hd3 - gxh4 39. Hxe3 og með manni yfír vann Pi: ket í nokkrum leikjum. I staðinn gat Timman haldið vinningsstöðu með því að taka peðið á h4: 35. - gxh4! því 36. Rxf4 er svarað með 36. — Dcl+ 37. Dbl - Dxf4. Þrátt fyrir þetta klaufalega tap hefur Timman örugga forystu í einvíginu þegar tefldar hafa verið sjö skákir af tíu. Staðan er 4'/2—2‘/2 honum í vil. Um helgina:Deildakeppni Skáksambands íslands hefst á föstudagskvöld í Skákmið- stöðinni, Faxafeni 12. Búast má við geysilega spennandi keppni því tveir stórmeistar- ar, Jóhann og Hannes Hlíf- ar, eru famir frá íslands- meisturam Taflfélags Reykjavíkur. Með morgunkaffinu Ast er... eins og blóm sem þarf að vökva HANN vinnur við að selja fuglafóður. TM Reg. U.S. Pat- Otf. — aH riflhta rsservod (c) 1995 Los Angelos Timos Syndteate HOGNIHREKKVÍSI „'Hanri' kann best ui& fg > aaimannahverfu/Wi VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Ása, ég elska hann GUÐBJÖRG Kristjáns- dóttir hringdi og vildi koma á framfæri þökk- um fyrir sögu Bjargar Elínar Finnsdóttur, Asa ég elska hann, sem birt- ist í síðustu Lesbók Morgunblaðsins. Sagan er hnyttin og vel skrifuð og gott innlegg höfundar í alla þá umfjöllun sem ofbeldi karla gegn kon- um hefur hlotið að und- anfömu í fjölmiðlum. Tapað/fundið Úr tapaðist SILFURHÚÐAÐ úr með ferkantaðri skífu tapað- ist á leiðinni frá Hof- svallagötu og niður í Grjótaþorp sl. sunnudag. Úrið er ekki verðmætt en hefur mikið tilfinn- ingalegt gildi fyrir eig- andann. Finnandi vin- samlega hringi í síma 562-7825. Fundarlaun. Gleraugu töpuðust GLERAUGU í dökkri umgjörð og drapplituðu hulstri töpuðust, líklega við Suðurlandsbraut 32, einhvers staðar í Breið- holti eða við Kaupstað í Mjódd, sl. mánudag. Annað glerið í gleraug- unum er tvískipt. Finn- andi vinsamlega hringi í síma 557-4698. Húslyklar fundust í Hafnarfirði HÚSLYKLAR fundust á Hraunbrún í Hafnarfirði sl. föstudag. Lyklarnir eru á blárri kippu sem á stendur „New York“. Eigandi hafi samband í síma 555-4272. Hlutavelta ÞESSIR duglegu drengir héldu nýlega hlutaveltu og færðu Rauða krossi íslands ágóðann sem varð kr. 3.936. Þeir heita Hjálmar Guðmundsson og Þór Guðmundsson. ÞESSIR duglegu krakkar héldu nýlega hlutaveltu til styrktar átakinu „Börnin heim“ og varð ágóðinn 4.715 krónur. Þau heita Kristrún Rós Rúnarsdóttir og Krist- inn Steinar Kristinsson. Kennslan miðar að því að veita almenna tölvuþekkingu og koma nemendum af stað við að nýta tölvuna sér til gagns og gamans við ritgerðarsmíð og ýmis konar verkefnagerð í skólanum. Farið er í eftirtalin atriði: Fingrasetning og vélritunaræfingar Windows og stýrikerfi tölvunnar Ritvinnslu Teikningu Almenna tölvufræði Töflureikni Tölvuleiki Internet Verð: 24 klst. á 11.900 kr. Innritun er hafin í síma 561 6699 ■ Víkveiji skrifar... VÍ eru nánast engin takmörk sett magninu af pappírsrusli sem dag hvern streymir í póstkassa Víkverja. Auglýsingabæklingar, kynningarbæklingar, sýnishorn, prufur og hvaðeina. Það var reynd- ar fyrir margt löngu sem Víkveiji tók sér tak og ákvað að hætta að ergja sig yfir pappírsflóðinu og hóf beinar sendingar í ruslafötuna, án þess svo mikið sem líta á hvað var nú verið að kynna hveiju sinni. Það veit ekki á gott þegar menn bila í ásetningi sínum, eins og henti Vík- veija í leiðindaveðrinu nú um helg- ina, því þá rak Víkveiji augun í lít- inn litprentaðan miða frá einum pizzustaðnum hér í bæ, sem að sjálfsögðu var með „Sparitilboð“ í þremur útgáfum. xxx ATT best að segja hélt Vík- veiji að tilboð A væri honum og fjölskyldu hans nokkuð hag- stætt, því boðið var upp á stóra pizzu (með tveimur áleggstegund- um), 2 lítra af kók og stóran skammt af brauðstöngum fyrir 1.499 krónur og var heimsending innifalin í verðinu. Þetta tilboð taldi Víkveiji að myndi duga fjögurra manna fjölskyldu og settist því við símann skömmu síðar til þess að panta. Þegar til kom þá var það eins með tilboð pizzuztaðarins og svo mörg önnur tilboð sem okkur neytendum berast inn um bréfalúg- urnar okkar, að láðst hafði að láta „smáa letrið“ fylgja með. Tvær áleggstegundir í þessu tilviki þýddu ekki tvær áleggstegundir að eigin vali, heldur ein tegund af kjötáleggi og ein af grænmeti. Ef viðskiptavinurinn var svo sérlund- aður, að vilja tvær kjötáleggsteg- undir, eða eina kjötáleggstegund og og til dæmis gráðost, þá þýddi það að verðið hækkaði um 125 krónur og þannig voru 1.499 krón- ur skyndilega orðnar að 1.624 krónum. AFGREIÐSLUSTÚLKAN var . hin lip.rasta í símann, þótt Víkveiji tjáði sig ekki par ánægðan með það, að tilboðið væri alls ekki í reynd eins og það væri kynnt á auglýsingamiða fyrirtækisins. Hún sagði reyndar að ef ætti að tíunda hvert smáatriði í tilboði sem þessu, þá dygði ekki að prenta og dreifa smámiðum sem þessum, heldur þyrfti sjálfsagt heilt A-4 blað. Þeir þurfa varla að hafa áhyggjur pizzu- framleiðendurnir og eigendur pizzu- staðanna af markaðssetningu, á meðan símaafgreiðslustúlkurnar þeirra veija ómerkilegar markaðs- setningartilraunir þeirra með þess- um hætti. Hitt er svo aftur víst, að Víkveiji er staðráðnari en nokkru sinni fyrr, að fenginni þessari reynslu, að senda óumbeðnar aug- lýsinga„bókmenntir“, sem inn um lúgu hans berast, ólesnar á vit end- urvinnslunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.