Morgunblaðið - 04.10.1995, Page 44
LðTTtt
alltaf á
MiövikudögTim
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 II00, SlMBRÉF 669 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 4. OKTÓBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Þjóðhagsáætiun
Einka-
neysla
vex
EINKANEYSLA almennings
hefur aukist umtalsvert á þessu
ári vegna aukins kaupmáttar.
Tölur um heildarveltu skv. virð-
isaukaskattskýrslum gefa ótv-
írætt til kynna aukna eftirspurn
eftir neysluvörum.
Fyrstu sjö mánuði ársins
jókst innflutningur á neysluvör-
um um 6,2% miðað við sama
tíma í fyrra og áberandi aukn-
ing hefur orðið í innflutningi á
bílum.
Þetta kemur fram í nýrri
þjóðhagsáætlun sem gerir ráð
fyrir að einkaneyslan á árinu
aukist um 4,5% en sparnaður
heimilanna standi í stað.
Skuldir heimilanna
áætlaðar 306 milljarðar
Skv. upplýsingum Seðla-
banka Islands námu skuldir
heimilanna við lánakerfið 292,5
milljörðum kr. í lok síðasta árs
og höfðu vaxið um 11% af ráð-
stöfunartekjum. Skv. bráða-
birgðatölum námu skuldir
heimilanna á miðju þessu ári
306 milljörðum og er vöxturinn
4,5%.
■ Spáð er 2% hagvexti/6
Sykurbíll valt
STÓR flutningabíll í eigu Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga valt í Óræfa-
sveit um klukkan 13 í gær þegar
vindhviða kom á hann.
~ Bíllinn dró gámavagn fullan af
sykri. Hann var að aka upp brekku
skammt vestan við Fagurhólsmýri
þegar óhappið varð.
Um klukkan 23 í gærkvöldi var
bifreiðinni komið á réttan kjöl og virt-
ist hún mikið skemmd. Engin meiðsl
urðu á mönnum í þessu óhappi.
Margvíslegar breytingar á almannatryggingum samkvæmt fjárlagafrumvarpi
Sjálfvirkri uppfærslu bóta
o g trygginga verður hætt
Skattleysismörk verða 60.040 krónur
MARGVÍSLEGAR breytingar verða
á bótum almannatrygginga og
sjúkratryggingum, samkvæmt fjár-
lagafrumvarpinu sem lagt var fram
á Alþingi í gær. Ein veigamesta
breytingin er sú, að upphæðir trygg-
inga og bóta hækka ekki lengur sjálf-
krafa í takt við vísitölu, heldur mun
Alþingi ákveða hækkun þeirra.
Áformað er að hamlað verði gegn
sjálfvirkri hækkun lífeyris- og
sjúkratrygginga og að framlög til
þeirra verði tveimur milljörðum
króna lægri en hefði orðið að óbreytt-
um lögum.
Skattabrejdingar eru einkum þær
að til að vega upp á móti tekjutapi
vegna skattfrelsis lífeyrisiðgjalda er
tryggingagjald á fyrirtæki hækkað
um 0,5% annars vegar og hins vegar
verður upphæð persónuafsláttar,
bama- og vaxtabóta fryst. Skattleys-
ismörk hækka engu að síður í 60.040
krónur vegna skattfrelsis lífeyris-
greiðslnanna. Fyrri ákvörðun um að
15% ellilífeyris verði undanþegin
skattskyldu verður endurskoðuð og
undanþágan afnumin á tveimur árum,
en spamaðinum varið til að hækka
grunnfjárhæðir lífeyristrygginga.
Bætur og tryggingar hækka
ekki sjálfkrafa
Áformað er að flármagnstekjur
skerði tekjutengdar lífeyrisbætur.
Eingreiðslur í bótakerfinu verða af-
numdar en bæturnar hækkaðar þess
í stað. Greiðslu mæðra- og feðra-
launa með einu barni verður hætt
og greiðslur til annars og þriðja barns
lækkaðar um 1.080 krónur á mán-
uði. Þá verður ekkjulífeyrir felldur
niður en konur, sem njóta hans nú
þegar, fá greiðslur áfram. í staðinn
verða heimildir til lengingar dánar-
bóta rýmkaðar.
Tekið verður upp gjald fyrir inn-
lögn á sjúkrahús, sem verður nokk-
urra þúsunda króna eingreiðsla, óháð
fjölda eða lengd innlagna á ári
hveiju. Gjaldið á að mæta kostnaði
við þjónustu, sem t.d. sjúklingar á
göngudeildum greiða. Afsláttur elli-
lífeyrisþega af heilbrigðisþjónustu og
lyfjum verður miðaður við 70 ár í
stað 67. Þá verður hætt að greiða
fyrir sjónpróf og endurtengingar
vegna fyrri ófrjósemisaðgerða. Tekj-
ur af glasafrjóvgunum verða auknar.
10% fjármagnstekjuskattur
Fjármagnstekjuskattur verður
tekinn upp á næsta ári og verður
um að ræða flatan staðgreiðsluskatt,
sem bankar og sparisjóðir munu sjá
um að innheimta. Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra segir að nefnd um
upptöku skattsins geri ráð fyrir að
skatturinn verði 10% af nafnvöxtum.
Ekki er gert ráð fyrir tekjum af hon-
um í íjárlagafrumvarpinu, en fyár-
málaráðherra telur skattinn geta
skilað 400-700 milljóna krónatekjum
á ári.
Til að vega upp á móti frystingu
barnabóta og skerðingu mæðra- og
feðralauna og draga úr jaðaráhrifum
tekjuskatts verður tekjutenging
barnabótaauka minnkuð og á slíkt
að geta aukið ráðstöfunartekjur flöl-
skyldu með 3-4 börn og 200.000
króna mánaðartekjur um 10.000
krónur.
■ Jafnvægi og stöðugleiki/6
■ Fjárlagafrumvarp 1996/B1-4
Allir í strætó
Morgunblaðið/RAX
Festist
íbaði
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík fór
um klukkan 20 í gærkvöldi með
sjúkrabíl og dælubíl að húsi í Graf-
arvogi. Þar hafði eins og hálfs árs
gamall drengur verið í baði, tekið
tappann úr baðinu og stungið
fingri ofan í ristina, með þeim
afleiðingum að hann festist.
Slökkviliðsmenn brugðu á það
ráð að skrúfa ristina úr baðkerinu
og flylja drenginn með hana á
fingri niður á Borgarspítala. Þar
tók starfsfólk sjúkrahússins við
drengnum og sagaði ristina í sund-
ur.
Drengnum mun ekki hafa orðið
meint af þessu óhappi, en niðurfall-
ið var fast á fíngri hans í um
klukkutíma. Samkvæmt upplýsing-
um frá slökkviliðinu rekur slökkvi-
liðsmenn ekki minni til þess að
sambærilegt atvik hafi gerst áður.
Leit að unglingsstúlku í Vestmannaeyjum enn árangurslaus
Leitað með neðansjáv-
armyndavél í höfninni
Morgunblaðið/Kristinn
Háttvís hjón
HÁTTVÍSIVERÐLAUN Knatt-
spyrnusambands Islands og
VISA-Island voru afhent I gær,
en þetta er fimmta árið sem
KSI gengst fyrir viðurkenn-
ingu af þessu tagi. Hjónin Har-
aldur Ingólfsson og Jónína Víg-
iundsdóttir frá Akranesi voru
valin prúðustu leikmenn
1. deildar karla og kvenna og
voru að sjálfsögðu mætt við
afhendinguna ásamt dótturinni
Unni Yr sem er 13 mánaða
gömul.
■ Eyjamenn prúðir/B4
LEITAÐ var með neðansjávar-
myndavél í höfninni í Vestmannaeyj-
um síðdegis í gær og gærkvöldi að
Steinunni Þóru Magnúsdóttur, 14
ára gamalii stúlku frá Selfossi, sem
ekkert hefur spurst tihsíðan aðfara-
nótt sunnudags.
Hátt í sextfu manna lið lögreglu
og hjálparsveitarmanna hafa leitað
hennar frá aðfaranótt mánudags.
Þar af eru þrír kafarar frá Vest-
mannaeyjum og tveir frá varnarlið-
inu, auk þess sem kafarar frá Suður-
nesjum munu taka þátt í leitinni í
dag, hafi hún engan árangur borið.
Georg Lárusson, sýslumaður í
Vestmannaeyjum, segir að leit verði
haldið áfram meðan einhver von sé
til staðar.
Sýslumannsembættið í Vest-
mannaeyjum óskaði á mánudags-
morgun eftir aðstoð Rannsóknarlög-
reglu ríkisins vegna hvarfs Stein-
unnar og alvarlegs nauðgunarmáls
sem kom upp á sama tíma, en að
sögn Georgs bendir ekkert til að
tengsl séu á milli þessara mála.
„Það bendir ekkert til neins sak-
næms atferlis í augnablikinu. Við
réðum hreinlega ekki við þessar
aðstæður á einum og sama deginum
þannig að það er ekkert sem hefur
komið fram í þessu máli sem kallar
á RLR, heldur eingöngu álag og að
fá aðstoð sérfræðinga," segir Georg.
Afskiptum RLR lokið
Hvarf Steinunnar hefur frá upp-'
hafi verið á verksviði rannsóknar-
deildar lögreglunnar í Vestmanna-
eyjum. Þegar haft var samband við
RLR lá fyrir vitnisburður leigubíl-
stjóra þess efnis að hann hefði ekið
Steinunni að húsi því sem hún dvaldi
í og skilið hana þar eftir, en síðar
kom í ljós að um vinkonu hennar var
að ræða. Um svipað leyti fannst
hálsklútur sá sem Steinunn hafði
borið þannig að leitin beindist að
höfninni og lauk afskiptum RLR af
málinu í gær.
Tveir ungir menn, sem voru að
aka um bæinn, sáu Steinunni seinast-
ir á götuhorni skammt frá höfninni
um klukkan tvjj, aðfaranótt sunnu-
dags. Þeir sneru bifreið sinni við um
100 metrum ofar en þeir mættu
henni, en þegar þeir komu til baka
var hún horfin.