Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR LESBÓK/C/D
246. TBL. 83. ÁRG. LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• Leit lokið á Flateyri • Tuttugn létust í snjóflóðinu • Fólk harmi slegið
• Stjórnvöld og almenningur bjóða aðstoð • Samúðarkveðjur víða að
.. j ... . .. Morgunblaðið/RAX
MINNINGARATHOFN var haldin í gærkvöldi í kirkjunni á Flateyri um þá sem fórust i snjóflóðinu. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson og sr. Kristinn Jens Sigurþórsson
leiddu minningarathöfnina. íbúar á Flateyri og björgunarsveitarmenn fylltu kirkjuna. Kirlgugestir héldu á logandi kertum og áttu saman mjög áhrifamikla stund.
Brosti þegar þeir komu
Sóleyju Eiríksdóttur 11 ára var bjargað
eftir níu stundir í snjóflóðinu
„VINSTRI höndin var orðin ísköld og mátt-
kus þannig að ég gat ekki hreyft hana.
Ég var líka öll skorin, sennilega eftir gler-
brotin úr rúðunni," segir Sóley Eiríksdóttir,
11 ára gömul, sem lá í níu klukkustundir
í snjóflóðinu á Flateyri áður en leitarmenn
björguðu henni. Sóley kom flugleiðis til
Reykjavíkur í gær.
„Ég fann ekki fyrir rispunum og skrám-
unum og brosti bara þegar þeir komu. Þá
var ég viss um að allt væri í lagi.“
Heimili Sóleyjar var á Unnarstíg 2, en
þar voru einnig Svana, 19 ára gömul systir
hennar, og Halldór Ólafsson, 24 ára gam-
all. Þau fórust bæði í snjóflóðinu.
„Eftir að ég vaknaði aftur hugsaði ég
strax um hvort að systir mín væri lifandi
og reyndi að kalla á hana, en fékk ekkert
svar og skildi að enginn heyrði neitt í mér,“
segir Sóley.
Hún sofnaði að nýju, en vaknaði við að
björgunarmaður hóf að bjástra við útvegg
hússins. „Hann gerði smágat á vegginn við
rúmið svo að meiri snjór kom inn, en heyrði
samt ekkert í mér og fór í burtu. Ég varð
því að bíða dálítið lengi í viðbót. Tíminn
leið annars ekki mjög hægt, kannski af því
að ég sofnaði.“
Var fullviss um björgun
allan tímann
Sóley segist hafa orðið ögn órótt þegar
björgunarmaðurinn fór, en verið samt full-
viss um að verða bjargað allan tímann. Eft-
ir tæpa níu klukkustunda bið byijuðu leitar-
menn að grafa sig inn í herbergið við hlið
SÓLEY Eiríksdóttir slapp ótrúlega vel
eftir níu stunda veru í snjóflóðinu.
hennar og hún varð þeirra vör. „Ég róaðist
mikið þegar ég vissi að þeir voru nálægt.
Þeir ætluðu að brjóta vegginn á milli her-
bergjanna, en byijuðu of ofarlega, þannig
að ég varð að lyfta höfðinu upp til að sjá
þá. Þá hrundi snjór ofan á mig,“ segir Sóley.
Misstu ekki vonina
Foreldrar Sóleyjar, Eiríkur Guðmundsson
og Ragna Óladóttir, og Óli Örn, bróðir henn-
ar, fréttu ekki af flóðinu fyrr en tæpum
fjórum tímum eftir að það átti sér stað, en
þau voru stödd í Kópavogi hjá foreldrum
Rögnu. Tíðindin bárust þeim með útvarps-
fréttum skömmu fyrir klukkan átta á
fímmtudagsmorgun. Þau hringdu þá til
Flateyrar og var sagt að beggja dætra
þeirra væri saknað. Þau segjast aldrei hafa
misst vonina. „Við trúðum því alveg fram
á síðustu stundu að þær myndu báðar sleppa
lifandi," segir Óli Örn.
■ Fann jörðina hristast/4