Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 9
FRÉTTIR
Forsendur
hættumats í
endurskoðun
EFRI línan sýnir staðfest
hættumat fyrir Flateyri sam-
kvæmt gögnum frá Skipulagi
ríkisins. Neðri línan sýnir til-
lögu að nýju hættumati sem
unnið hefur verið að beiðni
Almannavarna ríkisins sam-
kvæmt forsendum í nýrri
reglugerð frá því í vor. Sam-
kvæmt upplýsingum Almanna-
varna vinnur starfshópur jafn-
framt að því að endurskoða
forsendur hættumats vegna
flóða og þær aðferðir sem not-
aðar eru til að meta þessa
hættu. Ekki er gert ráð fyrir
að hópurinn geti skilað niður-
stöðu fyrr en eftir 1-2 ár og
er gert ráð fyrir að hættumat
alls staðar á landinu verði end-
urskoðað í kjölfarið. í þriðja
lagi sýnir kortið hvernig snjó-
flóðið féll á Flateyri og sést
glöggt að það fer miklu lengra
en staðfest hættumat eða til-
laga að nýju hættumati gera
ráð fyrir.
Snjóflóðið sem féll úr
Skollahvilft á Flateyri um
kl. 4 aðfaranótt 26. október
Staðfest hættumat
Tillaga að nýju
hættumati
FLATEYRI
Samúðarkveðjur
víðsvegarúr
heiminum
FORSETA íslands og ríkisstjórn
hefur í gær og fyrradag borist
Qöldi samúðarkveðja víðs vegar
að úr heiminum vegna atburðanna
á Flateyri.
Kveðja frá sænsku
konungshjónunum
Karl Gústaf, konungur Svíþjóð-
ar, sendi frú Vigdísi Finnbogadótt-
ur, forseta íslands, eftirfarandi
samúðarkveðju í gær:
„Ég og drottningin erum afar
slegin yfir fréttum af hinu hörmu-
lega slysi, sem ríður nú á ný yfir
ísland, aðeins níu mánuðum eftir
snjóflóðið í Súðavík. Við látum í
ljósi samúð okkar með fjölskyldum
hinna látnu og öllum þeim, sem
slösuðust.“
Síðdegis á fimmtudag sendi
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, kveðju
til Davíðs Oddssonar, forsætis-
ráðherra. Þar segist norski for-
sætisráðherrann bera innileg-
ustu samúðarkveðjur norsku
ríkisstjórnarinnar eftir snjó-
flóðið á Flateyri. „Við hugsum
með hlýhug til þeirra sem eiga
um sárt á binda,“ segir Gro
Harlem Brundtland.
Norsku konungshjónin sendu
einnig samúðarkveðjur, sem og
Jóhannes Páll II páfi, forsætisráð-
herrar Danmerkur og Eistlands,
lögmaður Færeyja, ríkisstjórn
Argentínu og framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, svo dæmi
séu nefnd.
EINSTAKT TÆKIFÆRI
LOKAÚTSALA
Samúð o g hlýhugur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
NEMENDUR Kvennaskólans í utan skólann í gær til að votta Björk Árnadóttir skáld las ljóð
Reykjavík söfnuðust saman fyrir íbúum Flateyrar samúð sína. Nína og nemendur kveiktu á kertum.
Forsætisráðherra segir að leitað verði allra leiða
til að tryggja öryggi landsmanna
Spurningar vakna um
mat á snjóflóðahættu
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði eftir ríkisstjórnarfund í gær
að atburðimir á Flateyri vektu upp
spurningar um mat okkar á snjó-
flóðahættu víðar á landinu. Hann
sagði að leitað yrði allra leiða til að
tryggja öryggi landsmanna, en nú
væri mikilvægast að leysa bráðasta
vanda íbúanna á Flateyri.
Ríkisstjórnarfundurinn hófst í
gærmorgun, skömmu eftir að
forsætisráðherra kom til landsins frá
Bandaríkjunum. Fundinn sátu for-
ystumenn stjórnarandstöðunnar, for-
stjóri Landhelgisgæslu, fram-
kvæmdastjóri Almannavama og
ráðuneytisstjórar í forsætis- og fjár-
málaráðuneytinu.
Á fundinum voru lagðar fram til-
lögur sem starfshópur ráðuneyt-
isstjóra, sem settur var á stofn vegna
snjóflóðanna á Flateyri, hefur unnið.
„Á þessum fundi fjölluðum' við
fyrst og fremst um það sem lýtur
að bráðasta vandanum, bráðasta
fjárhagslegum vanda, húsnæðismál
og slíka hluti. Síðan
komum við til með að
huga að framhaldinu í
samstarfi ríkisstjórnar
og stjórnarandstöðu.
Það kom fram á fund-
inum að menn telja að
fram að þessu hafi verið
bragðist rétt við af hálfu
allra aðila, Almanna-
varna, fjölmiðla og allra
annarra sem að málinu
hafa komið.“
Davið sagði óljóst á
þessari stundu hve mikið
ijárhagslegt tjón hefði
orðið í snjóflóðinu á Flat-
eyri, en án efa væri um
að ræða mjög háar fjárhæðir. Ljóst
væri að stjórnvöld yrðu að leggja
fram verulega fjármuni til að koma
Flateyringum til hjálpar. Opnaður
yrði reikningur í Ijármálaráðuneyt-
inu til að mæta kostnaði við hjálpar-
starf og björgunarstörf.
„Við eigum einnig eftir að horfa
til framtíðar annars
staðar. Þetta snjóflóð
vekur upp spumingar
um mat okkar á snjó-
flóðahættu víðar á
landinu. Þetta mun
hafa djúpstæð áhrif á
allt okkar starf og
skipulag í þessum efn-
um.
Það er mikill tilfinn-
ingahiti í bijóstum
manna um land allt.
Þarna hafa gerst at-
burðir sem enginn átti
von á og mörg okkar
töldu öraggt að gætu
ekki gerst. Við rædd-
um á fundinum almennt um framtíð
byggðar í ljósi þessara atburða og
með hvað hætti væri hægt að treysta
öryggi fólksins þannig að það geti
verið öruggt um sinn hag. Við viljum
ekki hlaupa að niðurstöðu um þau
efni. Nú er brýnast að taka ákvarð-
anir um það sem þarf að gera strax.“
Davíð
Oddsson
Chantelle/Passionata-undirföt verða seld með
50-70% afslætti laugardag milli kl. 11-17.30 og
sunudag milli kl. 13-17 á Hótel Islandi, 2. hœð.
Chantell
NÝKOMIÐ FRÁ ÍTALÍU
HÚSGAGNAVERSLUN
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!
Mikið úrval af sófasettum oe rókókóstólum frá
de angeli
Tegund Barbara 3+1+1 tau.
Tegund Raisa 3+1+1 leður og tau.
Ath.: Ný sending af borðstofuhúsgögnum
OPIÐ í DAG TIL KL. 16.00.
SUNNUDAG kl. 14.00-16.00.