Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Samningnr Kvennaskólans við ríkið
Tvímælalaust
lyftistöng
fyrir skólann
Morgunblaðið/Kristinn
AÐALSTEINN Eiríksson skólameistari Kvennaskólans (t.v.) hlýð-
ir á Björn Bjarnason menntamálaráðherra á fundi sem fram fór
í skólanum sl. þriðjudag.
AÐALSTEINN Eiríksson, skóla-
meistari Kvennaskólans í Reykjavík,
segir þjónustusamning þann sem
skólinn gerði við menntamála- og
fjármálaráðherra í febrúar sl. tví-
mælalaust vera lyftistöng fyrir skól-
ann. „Það er þó kannski of snemmt
að fullyrða það á hlutlægum grund-
velli, því reglulegar kannanir eiga
eftir að leiða í ljós hver útkoman
verður. Stór könnun verður gerð á
næstunni og í kjölfarið verður
skýrsla send ráðuneytinu," sagði
hann.
Aðalsteinn kvað framhaldið fara
eftir því hvernig menn meti viðbrögð
ráðuneytisins bæði varðandi fjár-
hagslega og almenna aðstoð.
Kvennaskólinn er meðal fímm fyr-
irtækja og stofnana sem viðeigandi
ráðuneyti hafa gert þjónustusamn-
ing við, en í þeim kemur fram hvern-
ig viðkomandi stofnun selur ráðu-
neyti tiltekna þjónustu fyrir ákveðið
verð. Tilgangurinn er að dreifa valdi,
auka sjálfstæði stofnana og skilja
ábyrgð á rekstri frá pólitískri stefnu-
mótun.
Björn Bjamason menntamálaráð-
herra hélt fund með skólameistara,
kennurum og fulltrúum nemenda
Kvennaskólans sl. þriðjudag þar sem
hann fór yfir samninginn og lýsti
viðhorfum ráðuneytisins til hans,
auk þess sem hann sagði almennt
frá framhaldsskólafrumvarpinu.
„Kom fram í máli Bjöms að ráðu-
neytið vill mjög gjaman halda áfram
að þróa verkefnið. Þegar könnunar-
eða undirbúningsþætti verði lokið
verði hægft að semja til lengri tíma
við skólann. Ýmsir þættir innan
samningins eiga_ þó eftir að skýrast
nánar,“ sagði Ásdís Halla Braga-
dóttir, aðstoðarmaður ráðherra.
Mælanlegur árangxir
Meðal þess sem felst í samningn-
um, að sögn Aðalsteins, er að ná
mælanlegum árangri í skólastarfinu.
Var því í upphafi gert ítarlegt sjálfs-
mat á skólastárfinu sem tiltekið var
í 900 atriðum. Síðastliðið vor var
gerð forkönnun og í framhaldi af
því útbúin skýrsla til að undirbúa
meginkönnunina sem er í vændum.
„Slík könnun verður endurtekin
reglulega á samningstímanum og
mælt hvort þokast aftur á bak eða
áfram. Þarna kennir margra grasa
allt frá einkunnabókhaldi niður í
mslafötur," sagði Aðalsteinn.
Meðal breytinga er að allt launa-
bókhald er nú hjá skólanum. „Smám
saman á ráðuneytið að losna við alla
pappírsvinnu vegna launa og at-
hugasemdir varðandi launamál,"
sagði Aðalsteinn en kvað ennþá
óljóst hvort hann hefði í framtíðinni
frjálsari hendur varðandi launamál
kennara.
„Það gekk fremur illa að ljúka
við þessi atriði í samningnum meðal
annars vegna þess að verkfall kenn-
ara var yfirvofandi á þeim tíma.
Hinar stofnanirnar sem gengust
undir þennan þjónustusamning
fengu það svigrúm að geta raðað í
launaflokka og þrep eftir innri
ákvörðunum.“
Þyngdarstig prófa
í samningnum voru tilgreind
ákveðin atriði sem Aðalsteinn segir
að vitað hafi verið að skólinn þyrfti
að bæta sig í og nefnir hann aðstoð
við seinfæra nemendur og besta hóp
nemenda. „Við vissum einnig fyrir-
fram að bæta þyrfti boðskiptakerfi
innan skólans og að óvissa ríkir um
þyngdarstig prófa hér í skólanum
miðað við aðra skóla. Þetta höfum
við ráðist í samhliða því að gera
úttektina."
Hann nefnir einnig að í haust
hafi verið byijað að skrá ástundun
samhliða fjarvistum. Einkum er ver-
ið að leita eftir hættumerkjum,
þannig að séu nemendur mjög lágir
á skyndiprófum er haft samband við
námsráðgjafa, umsjónarkennara eða
foreldra. „Við höfum sett upp sér-
staka aðstoð við heimanám fyrir
„áhættuhópinn", þ.e. þá sem sýna
merki þess að vera í hættu staddir,
en öllum nemendum skólans er
fijálst að nýta sér þessa aðstoð."
Rusl um aír.
Anna og Atli iina samon. rusl.
drasl
Vinímir IcBgj scr sdrun úti.
Vir> gctum ckki lyii.LÁ willinn
Htiim ( i íullur oí ilrasíi
P/— "?y-:
Atli og Una iina ru»l i pok.i.
Amw Cg Mftur Ifr-a «k*:r
kcmi.
Þau kcyríj kcmma
og skila (lÓMinum.
Ijv'að cigutn við
gcm vi<> jx’nin^aitó?
spyr Anna
65
Á VINSTRI síðu er texti fyrir byijendur en á þeirri hægri fyrir lengra komna.
Morgunblaðið/RAX
HÖFUNDAR nýju lestrarbókarinnar f.v. Ragnheið-
ur Gestsdóttir og Ragnheiður Hermannsdóttir.
NÝSTÁRLEG lestrarbók fyrir yngstu nemend-
ur grunnskólans kom út hjá Námsgagnastofn-
un í september sl. Ber hún heitið Það er leik-
ur að læra. Hún er athyglisverð meðal annars
fyrir það að lesmálið er tvenns konar; á einni
sfðu er auðveldur texti fyrir byijendur og á
síðunni á móti þyngri texti ætlaður börnum
sem þegar eru farin að lesa.
Tuttugu ár eru liðin síðan nýtt námsefni í
lestri kom á markað en þær bækur, sem þá
komu út og stuðst hefur verið við, hafa verið
endurskoðaðar. „Hugmyndin var því að bæta
við öðrum valkosti fyrir kennara," sögðu höf-
undarnir Ragnheiður Hermannsdóttir æfinga-
kennari og Ragnheiður Gestsdóttir rithöfund-
ur og myndlistarmaður, sem jafnfcamt mynd-
skreytti efnið.
Þær benda á að kennarar geti nýtt sér
þyngri textann á ýmsa vegu. „Þeir geta til
dæmis lesið hann upphátt fyrir börnin þannig
að efni bókarinnar verði áhugaverðara. Einnig
Nýstárleg
lestrarbók
fyrir byijendur
geta þeir látið bömin leita að tilteknum orð-
um, bókstöfum eða athugað lengd orða,“ sögðu
þær.
Lestrarbókinni fylgja tvær vinnubækur þar
sem unnið er með sömu bókstafi og orð og í
lestrarbókinni. í vinnubókunum er einnig for-
skrift. Nýjustu rannsóknir sýna fram á að rit-
un sé eðhlegur hluti lestrarnáms og því eigi
það að haldast í hendur frá upphafi. „Auk
þess að lesa með börnum og fyrir þau geta
foreldrar hvatt böra sín til að skrifa innkaupa-
lista, stuttar orðsendingar og fleira. Það getur
hjálpað þeim að skilja tengsl ritaðs og talaðs
máls,“ sagði Ragnheiður Gestsdóttir.
Auk vinnubókanna fylgir kennarabók, þar
sem meðal annars er bent á fjölbreytileg
kennsluverkefni fyrir alla bókstafi stafrófsins.
„Gert er ráð fyrir að tengja lestrarkennsluna
öðrum námsgreinum eins og ritun, leikrænni
tjáningu, myndmennt, tónmennt og stærð-
fræði. Þá er rík áhersla lögð á fræðslu um
umhverfið og að börain læri að hlúa að og
bera virðingu fyrir umhverfi sínu,“ sagði
Ragnheiður Hermannsdóttir.
Bækurnar eru rikulega myndskreyttar og
úr því umhverfi sem nútímabörn þekkja.
„Myndiraar eru óaðskiljanlegur hluti af bók-
arheildinni og er þeim ætlað að hvetja börain
til umræðna og frásagnar,“ sögðu Ragnheið-
arnar að lokum.
Mun færri lyfja-
tæknar útskrifast-
en þörf er fyrir
Morguriblaðið/ Sverrir
EGGERT Eggertsson kennslustjóri ásamt nemendum sínum í
lyfjatækni í apóteki Ármúlaskóla.
Endurmenntun-
arstofnun HÍ
Námí
útflutn-
ings- og
markaðs-
fræðum
EINS árs nám í markaðs- og út-
flutningsfræðum verður tekið upp
í janúar á vegum Endurmenntun-
arstofnunar Háskóla íslands. Er
námið ætlað fólki á vinnumarkaði
sem lokið hefur stúdentsprófi eða
sambærilegri menntun, hefur
starfað í tvö ár á vinnumarkaði
við söiu- og markaðsmál eða hygg-
ur á starf á þessum vettvangi og
skilur ensku þokkalega.
Námið tekur 240 klst. og er
reiknað með að kennt verði í 30-40
vikur, þ.e. í 4-8 tíma á viku. Kennt
verður síðari hluta dags og á-laug-
ardögum yfir vetrartímann en gert
ráð fyrir um það bil tveggja mán-
aða fríi yfir hásumarið.
Að sögn Ingjalds Hannibalsson-
ar, sem m.a. hefur staðið að undir-
búningi námsins, er búist við að
nemendafjöldi verði tkringum 25.
Hann kveðst reikna með að að-
sóknin verði næg, því útflutnings-
og markaðsfræði skipti ísléndinga
æ meira máli vegna aukinna
tengsla við útlönd. „Ég hygg að
flestir geri sér grein fyrir að bætt
lífskjör á íslandi muni að miklu
leyti byggja á auknum erlendum
viðskiptum," sagði hann.
Gísli Arason mun kenna rekstr-
arhagfræði og íjármálafræði,
Bima Einarsdóttir markaðsfræði,
Jón Björnsson sölutækni og
-stjómun, Þorgeir Pálsson mark-
aðsrannsóknir, Ágúst Einarsson
flutningafræði og Ingjaldur Hanni-
balsson utanríkisverslun.
Að auki er gert ráð fyrir að
nemendur velji 70 tíma nám í við-
skiptaensku, -þýsku eða -frönsku.
Að námi loknu verður boðið upp á
kynnisferð til Evrópulands, þar
sem þátttakendur munu kynnast
fyrirtækjum og stofnunum sem
standa framariega á sviði mark-
aðsmála.
MUN FÆRRI lyfjatæknar útskrifast
ár hvert en þörf er fyrir eða einungis
í kringum sex. Ef vel ætti að vera
þyrfti að útskrifa 12-16 manns ár-
lega, að sögn Eggerts Eggertssonar,
kennslustjóra á lyfjatæknibraut Ár-
Qjúlaskóla. Geta þeir lyfjatæknar
sem útskrifast yfirleitt valið úr fyrir-
tækjum öfugt við það sem almennt
gerist þegar fólk kemur úr námi.
Búist er við að með nýjum lögum
um lyfjadreifingu aukist enn eftir-
spum eftir lyfjatæknum. Eggert
kvað þó vanta í lögin að skylda þá
sem afgreiða lyf til almennings að
hafa fagmenntað fólk í vinnu. Að-
spurður hvort lyfjatæknar væru bet-
ur launaðir í apótekum en ófaglært
fólk kvaðst Eggert hafa kannað
málið og fengið þau svör á markaðn-
um að svo væri. Hann benti á að
lyfjatæknar vinna einnig í lyfjaheild-
sölum, á spítölum og fleiri opinberum
stofnunum. „Þeir eru einnig eftirsótt-
ir í öllum heildsölum sem selja hjúkr-
unarvörur," sagði hann.
Bóklegt nám tekur fjögur ár og
verklegt nám eitt ár. „Tvö fyrstu
árin er hægt að taka í flestum fram-
haldsskólum en námið er skilgreint.
Lögð er áhersla á ensku, dönsku,
íslensku og stærðfræði, líffræði, Iíf-
færa- og lífeðlisfræði, efnafræði og
heilbrigðisfræði,“ sagði Eggert.
Lyfjatækninámi lýkur ekki með
stúdentsprófí, þrátt fyrir að nemend-
ur hafi lokið 140 einingum og þurfa
nemendur því að taka nokkur fög til
viðbótar ef þeir hafa hug á því. „Þeir
sem það gera eru mjög vel settir ef
þeir hyggja á lyfjafræðinám."
Lyfjatækniskóli íslands var lagður
niður 1992 og síðan hefur námið
farið fram undir stjóm Ármúlaskóla,
fyrst í kennsluhúsnæði Lyfjatækni-
skólans við Suðurlandsbraut en í
sumar flutti starfsemin alfarið í Ár-
múlaskólann.