Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
>
FRÉTTIR
Snjóflóðafræðingur Veðurstofunnar
SNJÓFLÓÐAFRÆÐINGUR Veð-
urstofunnar efast um að vamar-
virki ofan við byggðina á Flateyri
hefðu dugað til að stöðva snjóflóð-
ið sem féll þar á miðvikudagsnótt.
„Hraðinn á þessu flóði var svo
mikill að þegar það kemur niður
að efstu húsum má áætla að það
hafí verið á um 28 metra hraða á
sekúndu og því hefðu nánast eng-
ar vamir dugað. Til þess að
vamarvirki séu raunhæf á Flat-
eyri, miðað við flóð af þessari
stærð, þyrftu þau að vera fyrir
neðan núverandi byggðarmörk; ef
verja ætti núverandi byggð fyrir
slíku flóði þyrfti risavaxna vamar-
garða,“ sagði Magnús Már Magn-
ússon snjóflóðafræðingur.
Snjóflóðavömum má að sögn
Magnúsar skipta í tvo flokka.
Annars vegar stoðvirki við upptök
snjóflóða og hins vegar vamar-
virki neðar.
Vandamál
fyrirsjáanleg
Magnús sagði að einu varnim-
ar, sem hugsanlega hefðu dugað
á Flateyri við núverandi aðstæður,
væm stoðvirki, grindur eða net,
sem vömuðu því að snjóflóð fari
af stað. Magnús sagði að stoðvirki
væm mikið notuð í Ölpunum og
Davíðtil
Flateyrar
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra fara í dag til Flateyrar til að
skoða aðstæður og ræða við heima-
menn um björgunarstörf og afleið-
ingar snjóflóðsins. í för með_ þeim
verða þingmenn Vestfjarða. Ólafur
Helgi Kjartansson sýslumaður tek-
ur á móti gestunum, en áætlað er
að þeir komu til Flateyrar laust
eftir 12 á hádegi.
Svisslendingar klæði heilu hlíðam-
ar með þeim, en Magnús'hefur
kynnt sér snjóflóðavamir þar í
landi.
Magnús sagði ekki hægt, að
óathuguðu máli, að afskrifa
vamarvirki fyrir aðra þá staði á
landinu þar sem er snjóflóðahætta.
Ákveðin vandamál væm fyrirsjá-
anleg með stoðvirkin, til dæmis
hvort yfírleitt sé hægt að koma
þeim fyrir í upptökunum, og hvort
þau svari kostnaði. Slík stoðvirki
gæti fennt í kaf og þá væm menn
komnir aftur á upphafsreit.
Magnús sagði að þegar talað
væri um vamargarða væri átt við
15-25 metra háa garða, eða
stærð við 12 hæða hús.
„Hér verður að skoða hvert til-
felli fyrir sig, en við verðum þá
einnig að miða við þær forsendur
varðandi vamargarða, að þeir séu
nægilega háir til að þeir taki þau
flóð sem verið er að reyna að verj-
ast.
Það er spuming hvað miða eigi
við og umræðan þarf nú að snú-
ast um hvað sé viðunandi áhætta
hér á íslandi. Það þurfum við að
gera upp við okkur. Við emm aldr-
ei alveg ömgg,“ sagði Magnús.
KeUur og garðar
Um 8 metra háir vamargarðar
em fyrir ofan byggðina í Flateyri
fyrir neðan svonefnt Bæjargil, en
Flateyri og Ólafsvík em einu stað-
imir á landinu þar sem hafa verið
settar upp snjóflóðavamir. Að
sögn Magnúsar vom garðamir
reistir á sínum tíma á þeim for-
sendum að byggð yrðu stoðvirki
að auki uppi í giiinu, en af því
hafí ekki orðið.
Snjóflóðið fór yfír keilur sem
reistar höfðu verið til vamar.
Magnús sagði erfítt að henda reið-
ur á hvaða gagn keilumar gerðu.
Reynslan segði að þær virkuðu
nokkuð vel við að stöðva vot og
hægfara flóð, en hefðu litla þýð-
ingu í hraðari flóðum.
Efastumað
garður hefði
stöðvað flóðið
Morgunblaðið/Þorkell
V esturlands vegur
Fallist á fyrir-
hugaða tvöföldun
Þétt faðmlög
og tárvotar
kinnar
24 FLATEYRINGAR, 9 læknar
og hjúkrunarliðar og 4 björgun-
arsveitarmenn voru farþegar
með varðskipinu Ægi sem kom
frá Flateyri skömmu fyrir há-
degi í gær og lagði að Miðbakka
Reylyavíkurhafnar. Ættingjar
og vinir tóku á móti þeim og
voru endurfundimir hlaðnir til-
finningum, í senn sorg vegna
fráfalls ástvina og gleði yfir að
heimta sína nánustu úr helju
snjóflóðsins. Langferðabíll beið
farþega en þeir kusu margir að
halda burt með skyldmennum
eftir að kyrrlátum en magn-
þmngnum móttökum þeirra
lauk. Menn þurftu engin orð,
þétt faðmlög og tárvotar kinnar
sögðu alla söguna. Hér faðmar
Guðlaug Auðunsdóttir, sem
bjargaðist úr flóðinu ásamt fjöl-
skyldu sinni, ættingja sinn á
hafnarbakkanum.
SKIPULAGSSTJÓRI ríkisins hef-
ur fallist á fyrirhugaða tvöföldun
Vesturlandsvegar um Mosfellsbæ
og frárein af Vesturlandsvegi inn
á verslunar- og þjónustusvæði
norðaustan Lágafells, sunnan
Hafravatnsvegar, með nokkrum
skijyrðum.
íbúar við Tröllagil 1 og 2 mót-
mæltu legu vegarins meðal annars
vegna nálægðar við hús þeirra,
aukins hávaða og skerts útsýnis
vegna hljóðmanar. Skipulagsstjóri
krefst þess að hæð hljóðmanar við
þessi hús verið ákveðin í samráði
við eigendur íbúðarhúsanna.
Skipulagsstjóri gerir einnig að
skilyrði að frárein sú af Vestur-
landsvegi sem liggja á inn á fyrir-
hugað verslunar- og þjónustusvæði
norðaustan Lágafells, sunnan
Hafravatnsvegar, verði lögð þegar
uppbygging samkvæmt deiliskipu-
lagi er hafin og bæjaryfírvöld Mos-
fellsbæjar telja nauðsynlegt að hún
komi vegna starfsemi á svæðinu.
Hægt að kæra úrskurð
skipulagsstj óra
Ef mælingar sýna að hávaða-
mengun við íbúðabyggð fari yfír
viðmiðunarmörk skal gripið til ráð-
stafana í samræmi við ákvæði
mengunarvarnareglugerðar.
Úrskurðurinn var gefinn út 23.
október síðastliðinn. Kæra má úr-
skurð skipulagsstjóra ríkisins til
umhverfisráðherra innan fjögurra
vikna frá því að hann er birtur eða
kynntur viðkomandi aðila.
Landssöfnun vegna náttúruhamfaranna á Flateyri hefst í dag
Frakkar
Samhugnr í
verki á ný
ÞJÁNING og sorg íbúa á Flateyri
og gífurlegt eignatjón kalla á skjót
viðbrögð annarra Islendinga þeim til
hjálpar og stuðnings. Þess vegna
hafa allir fjölmiðlar landsins, ásamt
Pósti og síma og í samvinnu við
Rauða kross íslands og Hjálparstofn-
un kirkjunnar, ákveðið að efna til
landssöfnunar. Landssöfnunin „Sam-
hugur í verki“ hefst í dag, laugardag-
inn 28. október, kl. 12 á hádegi og
síðan verður tekið á móti framlögum
í símamiðstöð söfnunarinnar til
þriðjudagskvölds 31. október.
Landssöfnunin verður með því
sniði, að fólk getur annars vegar
hringt í símanúmer landssöfnunar-
innar og tilgreint fjárhæð sem sett
er á greiðslukort eða heimsendan
gíróseðil. Hins vegar 'er hægt að
leggja beint inn á bankareikning
söfnunarinnar hjá öllum bönkum,
sparisjóðum og pósthúsum.
Símanúmer landssöfnunarinnar
er 800-50-50.
Bankareikningur landssöfnunar-
innar er 1183-26-800, hjá Sparisjóði
Önundarfjarðar á Flateyri.
Tekið verður á móti framlögum í
símamiðstöð söfnunarinnar frá kl.
12-22 í dag, laugardaginn 28. októ-
ber, sunnudaginn 29. október frá
kl. 9-22, mánudaginn 30. október
kl. 9-22 og þriðjudaginn 31. október
ki. 9-22.
Tekið verður á móti framlögum á
bankareikning landssöfnunarinnar
frá og með mánudeginum 30. októ-
ber.
Þeir sem standa að landssöfnun
vegna náttúruhamfara á Flateyri
hvetja alla íslendinga til að sýna
samhug í verki og láta sitt af hendi
rakna svo milda megi áhrif hinna
válegu atburða-á líf og afkomu fjöl-
skyldna og einstaklinga á Flateyri.
Morgunblaðið/Þorkell
UNNIÐ var hörðum höndum að því að setja upp tölvur í gær,
svo að unnt yrði að taka við innhringingum gefenda I lands-
söfnunina til styrktar Flateyringum.
sprensna
þriðju
sprengjuna
París, I.ondon. Reuter.
FRANSKA varnarmálaráðuneytið
greindi frá því í gærkvöldi að þriðja
kjarnorkusprengjan hefði verið
sprengd í Muroroa í Kyrrahafí.
Jafngilti sprengjan, sem sprakk
klukkan tíu í gærkvöldi, 60 kíló-
tonnum af hefðbundnum sprengi-
efnum.
Kjarnorkutilraunum Frakka í
Kyrrahafi hefur verið mótmælt um
allan heim, en talsmaður breska
forsætisráðuneytisins sagði eftir
sprenginguna í gær, að þetta væri
í einu og öllu franskt mál.
„Viðbrögð okkar eru þau sömu
og þau hafa ávallt verið gagnvart
þessum tilraunum, nefnilega að
þetta sé einungis mál frönsku ríkis-
stjórnarinnar,“ sagði hann. \
Frakkar hafa lýst því yfír að
þeir hyggist framkvæma sex kjarn-
orkutilraunir í Kyrrahafí en jafn-
framt heitið því að hætta þeim í
eitt skipti fyrir öll að því búnu.
i
i
i
í
í
*