Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 41 góðfúslegan atbeina starfandi sókn- arprests, sr. Kristins Ágústs Frið- finnssonar, var komið saman til bænastundar í Selfosskirkju af þessu tilefni. Ungmennin nær fylltu kirkj- una og þessi stund mun eflaust seint þeim úr minni líða er þar voru. Steinunn Þóra Magnúsdóttir hafði verið nemandi í Sólvallaskóla frá haustinu 1991 er bekkurinn hennar - þá 6. bekkur - fluttist úr Sandvíkur- skóla, hinum grunnskólanum hér á Selfossi. Þau héldu flest hópinn næstu fjóra vetur en það höfðu þau raunar gert frá upphafi skólagöngu sinnar. Þess vegna mynduðust meðal þeirra sterk vináttutengsl og þar var Steinunn Þóra engin undantekning. Enda var hún afar þægileg í allri umgengni, jákvæð og samvinnufús og því mjög vinsæl í félagahópi. Hún stundaði nám sitt af kostgæfni, var afar samviskusöm og fylgin sér í hveiju því sem hún tók sér fyrir hendur. í Sólvallaskóla hefur myndast sú hefð að nokkrir nemendur úr 10. bekk sjá að verulegu leyti um af- greiðslu í matsal skólans. Það kom eins og af sjálfu sér að Steinunn Þóra fyllti þann hóp við skólabyrjun í haust. í þeim störfum stóð hún sig með sömu prýði og í öðru. Við svo sviplegt fráfall ungmenn- is í blóma aldurs verður manni orðs vant. Minningin er hins vegar sú huggun, sem helst mun sefa sorg þeirra, er sárast eiga um að binda. Og minning Steinunnar Þóru er björt eins og brosið, sem öðru fremur ein- kenndi dagfar hennar. Fyrir hönd Sólvallaskóla sendi ég ástvinum hennar dýpstu samúð- arkveðjur og bið minningu Steinunn- ar Þóru Magnúsdóttur blessunar Guðs. Óli Þ. Guðbjartsson. Á kveðjustund er gott að hugsa til þeirra stunda sem við áttum með Steinunni Þóru Magnúsdóttur, bæði í skólanum og utan hans. En það er líka sárt að þurfa að upplifa það að fá ekki að sjá hana aftur og eiga samvistir við góðan og glaðværan ungling sem með tilhlökkun og eftir- væntingu tekst á við lífið. Nú þegar stóllinn hennar er auður í skólastofunni streyma að minning- amar sem við eigum um hana. Hún var einlægur og ljúfur unglingur sem gott var að tala við og umgangast. Hún tók við þeim verkefnum sem henni vom fengin og leysti þau eftir bestu getu án þess að hafa um það mörg orð. Það var alltaf stutt í bros- ið og glaðværðina og hún var til í að hressa upp á tilveruna með því að bregða á leik með vinum og skóla- félögum eins og heilbrigðum ungl- ingum er lagið. Það sem við eigum nú er minning- in sem glitrar eins og perla og dreg- ur fram í huga okkar dýrmæt augna- blik sem við hvert og eitt eigum um kynni okkar af Steinunni Þóm í leik og starfí. Þessar minningar geta gefið okkur styrk til að halda áfram. Þær eru okkur dýrmætt veganesti inn í framtíðina. Skólinn okkar er fátækari eftir brotthvarf Steinunnar Þóm óg sjálf emm við hnípin en lífið heldur áfram og okkur verður ljóst hversu þýðing- armikill hver einstaklingur er í samfé- laginu og hversu mikils virði það er að vera vinur og eiga vini. Steinunn Þóra var nemandi í 10. bekk SJ í Sólvallaskóla. Við öll í bekknum, umsjónarkennari og bekkjarfélagar, þökkum góðar sam- verustundir með henni og sendum aðstandendum innilegar samúðar- kveðjur. Við erum þess fullviss að eiginleikar Steinunnar færa henni velgengni þar sem hún nú er. Við eigum saman minningu um góða stúlku, vin og skólafélaga sem er sárt saknað. Við geymum hana í hjarta okkar og leyfum henni að blómstra þar. Sigurður Jónsson umsjónarkennari og bekkjarfélagar í 10. bekk SJ. Orð fá ekki lýst þeirri miklu sorg sem við, sem þekktum Steinunni, upplifum nú. Maður spyr sig, af hverju? Af hveiju tekur guð frá okk- ur svo mikið af ungu fólki? Steinunn var ekki orðin 15 ára og átti allt lífið framundan. Hún var búin að ákveða að fara til Ástralíu eftir grunnskóla og dveljast þar hjá pabba sínum um tíma, svo ætlaði hún að koma aftur heim og setjast á skóla- bekk. Kynni okkar Steinunnar hófust við fæðingu hennar, en ég er sex mánuðum eldri. Hún bjó í húsi núm- er 17 en ég á númer 16. Við urðum strax bestu vinkonur. Við lékum okkur saman á hveijum degi, ásamt Gumma Þór, bróður mínum, Magný, sem bjó á númer 15, Boggu á núm- er 11 og fleiri krökkum. Það var margt sem við gerðum saman og allar þessar minningar sem áður voru bara eitthvað sem gerðist í gamla daga eru nú með því dýrmæt- asta sem ég á. Okkur Steinunni fannst alltaf jafn gaman að riija upp liðna tíð og gerðum við það all- oft. Mér eru minnisstæð mörg atvik, eins og t.d. um ein jólin þegar við lékum okkur við báðar kisurnar hennar inni í stofu hjá henni, það endaði með ósköpum því að kisurnar flugu „óvart" á jólatréð og það valt um koll! Við Steinunn höfðum gam- an af því að klæða okkur eins eða a.m.k. líkt. Við áttum báðar gular smekkbuxur sem voru alveg eins og oft þegar við vorum að leika okkur saman fórum við í þær til þess að vera eins. Einnig man ég eftir því að við höfðum einstaklega gaman af því að „skíra“ dúkkurnar okkar. Þá buðum við nokkrum vinkonum að vera við „skírnina". Önnur okkar var presturinn og hin hélt á „barn- inu“ undir „skírn“, á eftir var svo boðið upp á nammi. Við Steinunn og Gummi Þór, bróðir minn, sem lék sér oft með okkur, vorum svo æst í að leika okkur saman að við vorum hlaupin hvert til annars um leið og við vöknuðum og oftar en einu sinni án þess að klæða okkur fyrst. Sérstaklega er mér minnisstætt eitt atvik þegar Maggi, pabbi Stein- unnar, var með bátinn sinn heima í innkeyrslunni. Við Gummi Þór hlup- um út um leið og við vöknuðum, á náttfötunum, og saman lékum við okkur öll þijú ásamt Boggu, Magný og fleirum í bátaleik. Þegar foreldrar hennar skildu vor- um við 6 ára. Hún bjó þá ásamt mömmu sinni og Gumma bróður sín- um áfram í Miðenginu í tvö ár, en svo fluttu þau í blokkina á Fossheið- inni þegar við vorum 8 ára. Þá hitt- umst við ekki eins oft og áður fyrir utan skólann. Okkur fannst þá svo langt á milli. En við héldum áfram að vera góðar vinkonur og vorum oft saman. Þegar við vorum 11 ára vorum við Steinunn og Ester Hafdís bestu vinkonur og alltaf saman. Það var á þeim árunum sem við byrjuðum að hlusta á tónlist, við vorum miklir aðdáendur Queen og hlustuðum allt- af á þá hljómsveit þegar við vorum saman. Þegar við fórum upp í gaggó vor- um við vinkonurnar orðnar fimm, tvær höfðu bæst í hópinn, þær Ragn- heiður og Ester Ýr. Þannig vorum við alltaf 5 saman þangað til í vor, þá vorum við allar aðeins farnar að vera með öðrum stelpum. En alltaf þegar við vorum að fara eitthvað, á böll eða annað, þá fórum við allar fimm saman. í fyrrasumar (94) fór- um við fjórar úr hópnum ásamt tveim öðrum í Galtalæk um verslun- armannahelgina. Það var rosalega gaman að fara svona allar saman og eigum við margar skemmtilegar minningar úr þeirri ferð. Steinunn var ein af þeim manneskjum sem aldrei geta verið kyrrar, hún vildi alltaf vera að gera eitthvað, spila, horfa á videó, fara eitthvað út, eða bara spjalla Steinunn var ekki mikil einveru- manneskja, það var alltaf einhver hjá henni og hún átti nóg af vinkon- um til að hafa hjá sér. Sumarið í sumar var mjög annasamt hjá henni. Hún vann í unglingavinnunni hálft sumarið, og fór svo til Hollands með mömmu sinni í júlí-ágúst. I Hol- landi skemmti hún sér vel og upp- lifði margt nýtt og skemmtilegt, á þessum þrem vikum sem hún var þar. Hún eignaðist marga nýja vini sem hún hafði svo gaman af að segja okkur frá og sýna myndir af þegar hún kom heim. Við höfðum alltaf verið saman í bekk, en nú í vetur var bekkjunum skipt upp og við vorum ekki lengur saman. Steinunn vann í mötuneytinu í skólanum, stundum var hún að vinna í frímínútunum og stundum í hádeginu svo að ég hitti hana sjald- an í skólanum. Tíminn sem hún fékk í þessu lífi var alltof stuttur, við —áttum eftir að gera svo margt sam- an, tala saman um svo margt, en guð vildi fá hana til sín, af hveiju vitum við ekki því getum við aðeins velt fyrir okkur. Við sem fengum tækifæri til þess að kynnast Steinunni, munum hana ávallt sem góða, glaða og hamingju- sama manneskju í hjarta okkar. Betri og skemmtilegri vinkonu var varla hægt að finna. Elsku Steinunn mín, ég þakka þér af öllu mínu hjarta og sál fyrir að fá að kynnast þér og taka þátt í lífi þínu. í dag kveðj- um við iíkama þinn en þú lifir áfram í hjörtum okkar. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, ég sakna þín rosalega mikið, og vona að við hitt- umst síðar. Elsku Sonja mín, Maggi og Gummi. Megi góður guð styrkja ykkur og leiðbeina í gegnum þessa miklu sorg. Sandra. Okkur langar í fáeinum orðum að minnast vinkonu okkar og skóla- systur, Steinunnar Þóru Magnús- dóttur, sem lést af slysförum. Þegar við heyrðum að hún Stein- unn okkar væri týnd þá varð allt svo óraunverulegt, við gerðum okk- ur ekki grein fyrir því hvað hafði gerst. Því lengur sem tíminn leið því raunverulegra varð það, en þó ekki. Við trúðum því að við ættum eftir að sjá hana koma brosandi á móti okkur á skólagöngunum. Eftir hvarf hennar myndaðist stórt skarð sem aldrei verður fyllt upp í. Hún verður alltaf í huga okkar og gleym- ist aldrei því minningarnar um allt það yndislega sem við gerðum sam- an lifa og munu lifa. Við biðjutn góðan guð að láta þig vita hversu mikils virði þú varst okkur og verð- ur áfram. Við munum eiga margar góðar minningar að ylja okkur við um ókomna tíð. Þeir sem guðirnir elska deyja ungir. Sonja, Magnús og Guðmundur, við vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð. Megi ykkur veitast nægur styrk- ur til að sigrast á sorginni. Blessuð sé minning elskulegrar vinkonu. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ester Hafdís og Ester Ýr. Okkar heittelskaða vinkona er látin. Steinunn var hress, lífsglöð og hláturmild ung stúlka. Hún átti mikla framtíð fyrir sér en því mið- ur fékk hún ekki að uppfylla allar sínar framtíðaráætlanir sem hún var búin að ákveða. Orð fá því ekki lýst hve mikið við söknum hennar. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga’ og rauna fri, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (H. Pétursson.) Kveðja. Nína Björg, Magný Rós og Helga Skúladóttir. • Fleiri minningargreinar um Steinunni Þóru Magnúsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. JAKOB ÞORVARÐARSON + Jakob Þorvarð- arson fæddist á Dalshöfða í Fljóts- hverfi, V.-Skaft. 15. desember 1913. Hann lést á Sjúkra- húsi Suðurlands 19. október síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Pálína Stef- ánsdóttir og Þor- varður Kristófers- son. Jakob var næst elstur sex systkina sem eru: Stefán, f. 15.6. 1911, d. í apríl 1991, Rann- veig, f. 13.2.1916, Páll, f. 16.5. 1918, Ragnhildur, f. 13.2. 1923, og Kristófer, f. 11.7. 1926, d. í janúar 1993. Jakob ólst upp á Dalshöfa til 16 ára aldurs en þá fór hann í vinnumennsku á Teygingalæk í sömu sveit og var þar að mestu þangað til hann kvæntist Hver minning er dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af aihug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Við systkinin viljum í fáum orð- um minnast afa okkar sem andað- ist að kveldi 19. október sl. Það eru ekki nema tveir mánuð- ir síðan við systkinin sátum saman til að skrifa smágrein um Eyju ömmu okkar sem andaðist 20. ágúst sl. Á þeirri stundu óraði okkur ekki fyrir að svo stutt yrði á milli ykkar. Á stundu sem þessari er margs að minnast; þegar við fórum með ykkur ömmu í sveitinni, beijamó, í hesthúsið og þegar þú lékst við okkur í garðinum á Austurvegin- um. Þegar við komum yfir Ölfusarár- brúna með rútunni var alltaf skim- að eftir bílnum hans afa, hann brást aldrei og ekki heldur pokinn í hanskahólfinu né ísinni í frysti- kistunni. Það voru ófáar ferðirnar með ykkur ömmu í sveitina á ykkar æskustöðvar, þar sem við áttum 8. janúar 1944, Þór- eyju Magnúsdóttur frá Orrustustöðum, f. 13.1.1918, en hún lést 20. ágúst sl. Þau hófu búskap á Hunkubökkum á Síðu, en 1951 flutt- ust þau að Lofts- stöðum í Flóa og síðan árið 1959 á Selfoss þar sem heimili þeirra hefur verið síðan, fyrst á Austiirvegi 30, en sl. fjögur ár á Grænumörk 1. Þau eignuðust þrjú börn: Esther, f. 21.3. 1944, maki Karl Zóphanníasson. Pála, f. 25.4. 1948, maki Valdimar Þórðarson, og Magnús, f. 5.8. 1954, maki Ingunn Guðmunds- dóttir. Jakob verður jarðsunginn frá Selfosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. ógleymanlegar stundir saman. í hesthúsinu þar sem tveir litlar pjakkar linntu ekki látum fyrr en þeir fengu að fara á bak Mósa og láta þig teyma undir sér. Minningamar frá Austurvegin- um eru okkur ofarlega í huga, þar sem settar voru niður kartöflur á vorin, bletturinn sleginn á sumrin, rabbarbarinn sultaður og óþreyju- full bið eftir nýjum kartöflum á haustin. Eftir þvi sem árin liðu urðu sam- verustundir okkar færri, en ávallt var okkur tekið með miklum kær- leik og ástúð og eigum við þér mikið að þakka. Við kveðjum þig nú, elsku afi, og þökkum þér öll góðu árin sem við áttum með þér, í þeirri trú að þú hafir hitt Eyju ömmu og þið hafið það gott þar sem þið emð núna. Elsku mamma, Esther og Maggi, megi algóður Guð styrkja ykkur á þessari erfiðu stundu. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Skúli, Kristinn, fris Mjöll. HARALDUR KRÖYER + Haraldur Kröy- er fæddist í Svínárnesi í Grýtu- bakkahreppi í Suð- ur-Þingeyjarsýslu 9. júní 1921. Hann lést í Reykjavík 17. október síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Kópavogskirkju 26. október. HARALDUR Kröyer hóf gifturíkan feril í utanríkisþjónustu ís- lands á árdögum hins unga lýðveldis árið 1945, þá nýkominn frá námi í Bandaríkjun- um í ensku og alþjóðasamskiptum. Óhætt er að fullyrða að utanríkis- þjónustunni var mikill fengur að fá að njóta starfskrafata hans og hann varð í senn gifturíkur og glæsilegur fulltrúi íslands um margra áratuga skeið, lengstum erlendis, þar til hann lét af störfum vegna aldurs árið 1991. Haraldur var á skólaámm sínum framúrskarandi námsmaður og komu hinar góðu gáfur hans sér vel í hinum fjölmörgu ábyrgðar- störfum sem honum vora falin í gegnum tíðina. Þeir sem með honum störfuðu nutu þess vel og tileinkuðu sér hina framúrskar- andi kosti hans. Mér er það iríinnis- stætt er ég kynntist Haraldi Kröyer og hef reyndar oft til þess hugsað að í honum sameinaðist flest af þvi er einn mann gæti prýtt. Hið hlýlega hæ- verska viðmót Haralds er mér ógleymanlegt og sú stilling er hann bar með sér er hann sagði mér frá alvarlegum sjúkdómi sínum var einstök. Hverjum þeim er kynntist Har- aldi Kröyer varð ljóst að þar fór mikill mannkostamaður og góður drengur. Starfsfólk utanríkisþjónustunn- ar minnist látins starfsfélaga og vinar og vottar eftirlifandi konu hans, Auði Rútsdóttur, bömum Haralds og öðmm ástvinum hans dýpstu samúð við fráfall hans. Helgi Ágústsson, ráðuneytissljóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.