Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 13 FRÉTTIR • Samræming samgangna og flutninga • Sveitarfélög styðji hreppinn • Leita að tímabundnu húsnæði á Flateyri og í Reykj avík • Yfirlit yfir tjón á fasteignum Greiðsla kostnaðanns tryggð RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær að ábyrgj- ast greiðslu kostnaðar vegna björgunarstarfs á Flateyri að svo miklu leyti sem hann er ekki borinn af öðrum. Opnaður verður sérstakur reikningsliður í fjármálaráðuneytinu vegna þessa. Gert er ráð fyrir að ríkisvaldið greiði fyrir sömu kostn- aðarþætti og gert var vegna snjóflóðsins í Súðvík, þ.e. til björgunarsveita vegna tjóna á búnaði og rekstrar á meðan á björgunarstarfinu stendur, vegna útfararkostnaðar, vegna þjónustu við sjúka og slasaða o.fl. Fyrir fundinn voru lagðar tillögur sem starfshópur ráðu- neytisstjóra hefur mótað. Tillögurnar miða að því að bregð- ast við bráðasta vanda sem orsakast hefur vegna snjóflóðs- ins á Flateyri. Starfshópurinn telur mikilvægt að samræma allt sem að samgöngum og flutningum til og frá Flateyri lýtur, hvort heldur er á lofti, láði eða legi. Samgönguráðuneytinu hefur verið falið að sjá til þess að samgöngum verði haldið uppi með snjómokstri vega og flugvalla. Til að byija með verður lögð áhersla á að tryggja samgöngur til ísafjarðar og Þing- eyrar og síðan um Djúp. Starfshópurinn hefur rætt við fulltrúa í sveitarstjórn Flat- eyrarhrepps. Félagsmálaráðuneytið mun annast samskiptin við sveitarstjórnina um þau málefni sem hún ber ábyrgð á, þ.e. húsnæðismál, tryggingamál og þjónustu opinberra fyrirtækja og stofnana. Aðstoð við Flateyrarhrepp Starfshópurinn hefur rætt við fulltrúa Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um hugsanlega aðstoð þeirra við Flateyrarhrepp og er þess vænst að sveitarfélögin styðji hreppinn með sambærilegum hætti og gert var í Súðavík, þ.e. með fjárhagsaðstoð og tæknilegri fyrirgreiðslu. Félagsmálaráðuneytið hefur hafist handa við að kanna hvaða húsnæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila á Flateyri og í nágrenni mætti nýta tímabundið í þágu þeirra sem eru húsnæðislausir. Upplýsingar um það liggja fyrir. Rauði kross íslands mun útvega húsnæði fyrir þá sem koma til með að dvelja á Reykjavíkursvæðinu. Starfshópurinn mælir með því að fjárhagsaðstoð við einstaklinga, sem nú eru allslausir, verði með sambærileg- um hætti og gert var í Súðavík. Fé hefur nú þegar verið ráðstafað úr neyðarsjóði RKÍ í þessum tilgangi, 20 milljón- um króna. Starfshópurinn telur óvíst hvað þörf er fyrir mikið fjármagn vegna einstaklinga í neyð. Viðskiptaráðuneytið hefur fundað með fulltrúum Sam- bands íslenskra tryggingafélaga og Viðlagatryggingu um tryggingabætur og kostnað sem af snjóflóðinu hlýst. Á næstunni verður unnið heildstætt yfirlit um allar fasteign- ir sem eyðilögðust eða skemmdust í snjóflóðinu. Endurmeta forsendur fyrir hættumati í lok greinargerðar starfshópsins segir: „Ljóst er að. snjó- flóðið á Flateyri vekur spurningar um forsendur og áreiðan- leika hættumata. Ákveða þarf hvernig standa megi að gerð slíkra mata í framtíðinni ög hvort endurskoða eigi frá grunni skipulag og núverandi starfsaðferðir eða hvort styrkja eigi núverandi starf enn frekar en gert hefur verið. Afstaða stjórnvalda til þessa vérður að vera skýr og ljóst er að brýna nauðsyn ber til að hætta af snjóflóðum verði metin með sem raunhæfustum hætti.“ Morgunblaðið/Siguijón J. Sigurðsson ÞORLÁKUR Kjartansson, stöðvarstjóri Funa, skoðar hér skemmdir þær sem urðu á stjórnkerfi stöðvarinnar. Bæjarstjórn ísafjarðar á aukafundi vegna sorpbrennslustöðvar Funa Vilja ræsa sorpbrennsluna á Skarfaskeri á ný ísafirði. Tjónið á byggingu og búnaði er talið nema tugum milljóna króna BÆJARSTJÓRN ísafjarðar boðaði til'aukafundar síðdegis í gær, þar sem aðeins tvö mál yoru á dagskrá; sorpbrennslumál á ísafirði og snjó- flóðið á Flateyri. Við upphaf fundarins minntist forseti bæjarstjórnar, Kolbrún Hall- dórsdóttir, hinna hörmulegu at- burða er áttu sér stað á Flateyri og bað forseti viðstadda að votta hinum látnu, aðstandendum þeirra og Flateyringum, virðingu sína með því að rísa úr sætum. Til fundarins var mættur Þorlák- ur Kjartansson, stöðvarstjóri sorp- brennslustöðvarinnar Funa, sem eyðilagðist mikið í snjóflóði á þriðju- dag. Þorlákur sagði stöðina mikið skemmda og taldi tjónið nema tug- um milljóna króna sem og að marg- ir mánuðir myndu líða þar til hægt yrði að hefja brennslu að nýju í stöðinni. Ljóst er að allt stjórn- og raf- kerfi stöðvarinnar er ónýtt auk þess sem húsið sjálft er mikið skemmt. Talið er að brennsluofninn sjálfur sé í lagi en ekki er vitað hvort full- kominn reykhreinsibúnaður stöðv- arinnar sé skemmdur, en hann einn kostaði um 32 milljónir króna. Þorsteinn Jóhannesson, formaður bæjarráðs, sagði það persónulega skoðun sína, að ekki kæmi til greina að hefja vinnu við stöðina fyrr en öryggismál væru komin í sem best lag og voru fundarmenn sammála orðum formannsins og nokkrir fund- armanna voru á því að byggja ætti stöðina upp á öðrum stað. Fram kom á fundinum að stöðin var brunatryggð, og höfðu menn því ekki áhyggjur af tryggingamál- um stöðvarinnar. Húsið sjálft er metið á 90 milljónir króna og vél- búnaður á 160 milljónir. Eigin áhætta ísafjarðarkaupstaðar er 10%. Sorpbrennslan á Skarfaskeri aftur í gang? Á fundinum var samþykkt sam- hljóða svohljóðandi tillaga forseta bæjarstjórnar: „Bæjarstjórn ísafjarðar sam- þykkir að fara þess á leit við um- hverfisráðuneytið og Hollustuvernd ríkisins, að þau veiti ísafjarðar- kaupstað bráðabirgðaleyfi fyrir rékstri sorpbrennslustöðvarinnar á Skarfaskeri við Hnífsdal í stað sorp- brennslunnar Funa.“ Bæjarstjórn ísafjarðar sam- þykkti einnig að fela tæknideild kaupstaðarins, að láta fara fram nauðsynlegar endurbætur á stöð- inni á Skarfaskeri, til að rekstur geti hafist sem fyrst, fáist til þess rekstrarleyfi. Fram kom á fundinum að menn vildu fara sér hægt í uppbyggingar- málum stöðvarinnar og voru margir fundarmenn á því að fundin yrði ný staðsetning. Guðrún Stefáns- dóttir, bæjarfulltrúi Kvennalistans, bað fundarmenn að skoða vel alla möguleika áður en ráðist yrði í uppbyggingu stöðvarinnar og benti á að fjölmargar nýjar leiðir hefðu komið fram varðandi eyðingu sorps frá því þessi nýja stöð var tekin í gagnið. Jón Baldursson yfirlæknir Verst að komast ekkifyrr áFlateyri „ÞAÐ VAR kannski leiðinleg- ast að geta ekki verið kominn fyrr. Það hefði maður auðvitað gjarnan viljað, en þetta gekk hins vegar held ég eins og hægt var að hugsa sér miðað við það hvernig aðstæðurnar voru,“ sagði Jón Baldursson, yfirlæknir á slysadeild Borgar- spítalans í samtali við Morgunblað- ið, en hann kom með varðskipinu Ægi til Reykjavíkur frá Flateyri í gærmorgun. Jón sagði að hann hefði farið með flugvél Flugmála- stjórnar til Rifs um hádegið á fimmtudag og þaðan hefði ver- ið flogið með stærri þyrlu Land- helgisgæslunnar til Flateyrar. „Þegar- við komum var ekki mikið fyrir okkur að gera í raun og veru. Það var búið að finna flesta, ekki nema fjórir ófundnir. Þrennt fannst fljót- lega og það var ekkert sem við gátum gert fyrir þau,“ sagði Jón. Hann sagði að allt hefði ver- ið gert sem hægt hefði verið til að koma hjálp á staðinn, skip sent af stað og flugleiðin notuð um leið og hún opnaðist, en það hefði verið tvísýnt með það hvort hægt yrði að fljúga eða ekki. ‘ Þetta væri ágætt dæmi um að það ætti að opna fleiri leiðir en eina í björgunar- störfum. Hjúkrað í matsalnum Jón sagði að aðstaða til hjúkrunar hefði verið sett upp í matsalnum f frystihúsinu á sama stað og þeir læknar sem fyrir voru hefðu starfað. Þá hefðu læknir og hjúkrunar- fræðingur verið tiltækir nær vettvangi til þess að geta skoð- að strax þá sem hefðu fundist. Aðspurður sagði Jón að þeir sem hefðu fundist lifandi í flóð- inu væru ekki mikið slasaðir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.