Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SNJÓFLÓÐ OG HÆTTUMAT HNATTSTAÐA landsins og náttúruöfl hafa sett mark sitt á þjóðlífið gegn um tíðina. Eldgos, haf- ís, jarðskjálftar og snjóflóð eru kapítular í íslands sögu. Nálægt 160 íslendingar hafa týnt lífi í snjóflóðum- á þessari öld einni saman. Seinni tíma rannsóknir, þekk- ing og tækni hafa vissulega auðveldað okkur búsetu í landinu. En þrátt fyrir aukna þekkingu á náttúrufari landsins koma náttúröflin okkur enn í dag óþyrmilega í opna skjöldu. A innan við ári hafa á fjórða tug Vestfirðinga látið lífið í snjóflóðum. Og snjóflóðið á Flateyri, sem hugur þjóðarinnar allrar er bundinn við þessa dagana, féll að stærstum hluta utan hiættusvæðis, samkvæmt nýju mati sem beið staðfestingar. Þrátt fyrir viðleitni til að endurmeta hættuna reið höggið á nýjan stað, sem ekki var séður fyrir. Það vekur upp spurningar um forsend- ur og traustleika mata af þessu tagi. Full þörf virðist á að fjalla um þessi mál öll í heild á nýjan leik í ljósi síð- ustu atburða. Vitneskja um fyrri tíðar snjóflóð hér á landi er af skornum skammti. Snjóflóðarannsóknir eiga sér og stutta sögu. Ofan í kaupið verða veðurfar og snjóalög, sem hættunum valda, seint fyrirséð að fullu. Það verð- ur því trauðla á vísan að róa um öruggar viðvaranir í þessum efnum. En allt verður að gera sem í mannlegu valdi stendur til að byggja upp rannsóknar- og varnar- viðbúnað. Þótt náttúruöflin virðist lítt útreiknanleg verðum við með öðrum orðum að leggja allt kapp á fyrirbyggjandi aðgerðir, snjóflóðarannsóknir, viðvarandi hættumöt, varnarvirki þar sem þeim verður við komið og eftirlit með snjóalögum. Rannsóknir, reynsla, fagleg og stað- bundin þekking eru beztir vegvísar að traustari hættu- mötum og, betri varnarbúnaði. Vandinn er hins vegar sá, að þegar í ljós er komið hvað þessi þekking er takmörkuð hlýtur hver og einn íbúi sjávarplássa, sem á annað borð búa við snjóflóða- hættu að spyrja sjálfa sig og fjölskyldur sínar, hvort hægt sé að taka þá áhættu, sem fylgir búsetu, þar sem snjóflóð gætu hugsanlega fallið á byggð. Sú hugsun mun áreiðanlega sækja mjög á fólk á næstu mánuðum og misserum. HLUTUR BJORGUNAR- SVEITARMANNA BJÖRGUNARSVEITARMENN er tóku þátt í leitar- starfinu í Súðavík unnu mikið starf við erfiðar aðstæður. Meira en 600 manns voru kallaðir út vegna snjóflóðanna og 340 björgunarsveitarmenn voru sendir til Flateyrar. Þegar hörmungar sem þessar ríða yfir veltur á öllu að leit geti hafist sem allra fyrst. Snjóflóðið féll klukk- an sjö mínútur yfir fjögur og innan klukkustundar var búið að kalla út hópa leitarmanna. Klukkan sex um morguninn lögðu tugir björgunarsveitarmanna af stað frá Isafirði og klukkan 7.42 lagði varðskipið Ægir úr höfn í Reykjavík með 105 menn, tvo sérþjálfaða leitar- hunda og leitarbúnað um borð. Rúmri klukkustund síð- ar lögðu þyrlur Landhelgisgæslunnar af stað. Öll viðbrögð almannavarnakerfisins eru til fyrirmynd- ar. Það er jafnframt ljóst, að sú reynsla sem menn öðluðust við björgunaraðgerðirnar í Súðavík gerir að verkum að allt björgunarstarf gengur hratt og greiðlega fyrir sig. Hin nýja þyrla Landhelgisgæslunnar hefur enn einu sinni sannað gildi sitt auk þess sem aðstoð björgunar- hunda reyndist ómetanleg. „Við fengum einn leitarhund frá ísafirði og þegar við fengum þrjá hunda til viðbótar inn á svæðið, með þyrlu Landhelgisgæslunnar um og eftir hádegi, fundust margir á skömmum tíma. Hundarn- ir hafa unnið ótrúlegt starf og leitin hefði ekki gengið jafnhratt og hún gerði án aðstoðar þeirra,“ segir Snorri- Hermannsson, vettvangsstjóri leitarinnar á Flateyri. Vonin rak alla áfram • Það eru svo alltof margir dánir • jargaði að geta hjálpaðtil • Magnþrungnar mótttökur • Eigum ekkert eftir þama Morgunblaðið/Þorkell FJÖLSKYLDAN að Unnarstíg 3 stendur við borðstokkinn er Ægir leggst að bryggju í Reykjavík í gær. Frá vinstri: Grétar Örn Eiríksson, Guðlaug Auðunsdóttir, Smári Snær Eiríksson og Eiríkur Finnur Greipsson. Morgunblaðið/Halldór AUÐUNN Gunnar Eiríksson, elsti sonur Eiríks Finns og Guðlaugar, faðmar yngri bróður sinn, Grétar Örn, að sér á hafnarbakkanum í Reykjavík. Grétar Örn hljóp langa leið í stórhríðinni á nærklæðunum einum fata nóttina sem snjóflóðið féll, til þess að sækja hjálp handa fjölskyldu sinni. Auðunn Gunnar var ekki á Flateyri þegar flóðið féll þar sem hann sækir framhaldsskóla í Reykjavík. Erfíð stund er vinir og ættingjar tóku á móti Flateyringum í Reykjavíkurhöfn HÓPUR íbúa á Flateyri kom til Reykjavíkur klukkan hálfellefu í gærmorgun með varðskipinu Ægi, ásamt björg-unarmönnum og öðru hjálparfólki. Á Miðbakkanum tóku vinir og ættingjar á móti Flateyring- unum. Þetta var flestum erfið stund og tilfinningar voru greinilega blendnar; menn voru glaðir að heimta ástvini sína úr helju, en sorgin vegna þeirra látnu hafði yfirhöndina. Hugg- unarorð fylgdu þéttum faðmlögum og hlýjum handtökum á hafnarbakk- anum. Langferðabíll beið farþega en þeir kusu margir að halda burt með skyld- mennum eftir að kyrrlátum en magn- þrungnum móttökum lauk. Fundur til að þjappa fólkinu saman Flateyringarnir fóru margir til ættingja og vina fyrst um sinn, en aðrir fengu húsnæði á hóteli Rauða krossins. Klukkan fjögur síðdegis efndu Flateyringarnir, að eigin frum- kvæði, til fundar í húsakynnum Rauða krossins við Rauðarárstíg í þeim tilgangi að þjappa sér saman og fá upplýsingar um framhaldið. Sumir, sem misst höfðu allt sitt, komu að vestan í lánsfötum og fyrsta verkefnið var að fá lánuð föt eða kaupa ný. Rauði krossinn útdeildi meðal ann- ars einstaklingsaðstoð á fundinum, sem ætluð er til að fólk geti keypt sér helstu nauðsynjar. Þög-ul samkennd Þögul samkennd ríkti meðal Flat- eyringa er þeir komu til fundarins í húsi Rauða krossins. Þangað komu bæði þeir, sem bjargast höfðu úr flóð- inu vestra, og talsvert margir ætt- ingjar, sem búsettir eru í Reykjavík, ekki síst skólafólk. Hjálparstöð hefur verið opnuð á Rauðarárstíg 18 fyrir Flateyringa og aðstandendur þeirra og verður hún opin milli kl. 10 og kl. 18 í dag og á morgun. í fyrradag er talið að um fjögur hundruð manns hafi komið á skrifstofur Rauða krossins að leita upplýsinga um afdrif ættingja og vina á Flateyri. „Það var mikil sorg í húsinu — það var nánast hægt að þreifa á Huggunarorð fylgdu faðmlögum og handtökum henni,“ sagði einn starfsmaður Rauða krossins. Eiríkur Finnur Greipsson, sem bjargaðist ásamt konu sinni, Guð- laugu Auðunsdóttur, og tveimur son- um, Grétari Erni og Smára Snæ, úr gjörónýtu húsi þeirra á Unnarstíg 3 á Flateyri, kom með Ægi til Reykja- víkur í gær. „Þetta var bara tára- flóð,“ segir Eiríkur, aðspurður hvern- ig tíminn frá slysinu hafi liðið. „Það eru svo alltof margir dánir, vinir, ættingjar og kunningjar. Þótt fjölskylda mín hafi öll sloppið nánast ómeidd eru svo margir, sem eiga um sárt að binda. Húsið okkar fór að vísu í spón en það eru allt hlutir, sem má bæta og við höfum engar áhyggj- ur af því. Það eru þeir, sem hafa misst ástvini sína, sem maður hefur mestar áhyggj- ur af.“ Vil snúa aftur Hann segir það ekki slæma tilhugsun að snúa aftur til Flateyrar, þrátt fyr- ir hamfarirnar. „Ég er borinn og barn- fæddur Flateyringur. Ég á auðvitað eftir að fara yfir þetta allt saman með fjöl- skyldu minni og ræð ekki einn, en ég vona að okkur takist að snúa aftur.“ Eiríkur segir ljóst að hættumatið, sem menn hafi stuðst við í þorpum víða á Vestfjörðum, veiti ekki nægi- lega_ vörn. „Ég hef verið í almannavarna- nefnd árum saman og rekið fólk út úr húsum á hættusvæðinu. Nú kemur hins vegar til dæmis í ljós að einn íbúinn, sem var beðinn um að yfir- gefa heimili sitt, lenti í húsi sem flóð fór á og lést. Það er miklu erfiðara fyrir mann að sætta sig við slíkt en annað, sem maður sá ekki fyrir. Maður ber auðvitað ofboðslega ábyrgð í því og ég vona að Guð styrki okkur til að komast yfir það.“ Eiríkur segist vona að þeirri end- urskoðun, sem snjóflóðaöryggismál á Vestfjörðum hafa verið í, verði hald- ið áfram af krafti. „Svona atburður EINAR Ingi Kristinsson og Guðrún Björg Lúðvíksdóttir. gerir enn meiri kröfu um að slíku verði hraðað," segir hann. Rúmið uppi í þaki „Húsið okkar er gjörónýtt. Við hjónin vorum grafin upp eftir að son- ur okkar hafði hlaupið lengst niður á eyri að ná í hjálp,“ segir Guðlaug Auðunsdóttir, eiginkona Eiríks, sem kom til Reykjavíkur með Ægi ásamt manni sínum og sonum þeirra tveim- ur. Þriðji sonurinn tók á móti þeim á hafnarbakkanum, en hann er við nám í Reykjavík. „Ég áttaði mig ekki á því hvað hefði gerst fyrr en maðurinn minn var búinn að grafa frá andlitinu á mér. Snjórinn var blautur og þungur og ég var alveg að kafna,“ segir Guðlaug. „Við lágum þarna föst í snjónum, hann ofan á mér. Ég held að við höfum verið í rúminu, en það var komið alveg upp í þak. Svefnherbergisálman var hins vegar komin frá húsinu. Svo kom hjálpin og við vor- um einhvern veginn grafin út og dregin í snjónum niður á heilsugæslustöðina." Dauðir hlutir skipta ekki máli Guðlaug, Eiríkur og synir þeirra tveir voru flutt niður í mötuneyti Kambs, þar sem Flateyringum var safnað saman. „Við vorum þar alveg á fullu að taka á móti fólk- inu, sem var með lífsmarki, og koma í það lífi. Það bjarg- aði mér að geta hjálpað til og þurfa ekki að sitja og hugsa um það, sem hafði gerst." Guðlaug segist uggandi við að snúa aftur vestur til Flateyrar. „Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Við eigum náttúrlega ekkert eft- ir þarna. En ég er ekki farin að hugsa svona langt. Eg er ánægðust yfir því að börnin mín fundust á lífi. Það er fyrir öllu, dauðir hlutir skipta mig ekki eins miklu máli.“ Sálarlífið þoldi ekki meira „Þetta var hræðilega erfitt og mað- ur örmagnaðist auðvitað og gafst upp að lokum, en það var samt vonin og einhver varaforði sem rak alla áfram eins lengi og raun ber vitni. Sálarlífið hjá mér þoldi hins vegar ekki meira,“ segir Einar Ingi Kristinsson sem var einn þeirra sem kom með Ægi til Reykjavíkur í gærmorgun. Þegar flóðið féll var Einar sofandi ásamt unnustu sinni, Guðrúnu Björgu Lúðvíksdóttur, í verbúðum sem standa nærri höfninni. Hann var vakinn rétt fyrir klukkan sex aðfara- nótt fimmtudags til að taka þátt í björgunarstörfum og var á meðal fimmtán fyrstu sem hófu leit. „Ég dreif mig í fötin og fór út að moka, en þá var veðrið svo slæmt að við réðum ekki við neitt. Guðrún fór hins vegar og sinnti aðhlynningu í matsal Kambs, en þangað voru þeir fluttir sem björguðust úr flóð- inu,“ segir Einar Ingi. Hann segir að aðstæður hafi verið erfiðar fyrst í stað, en fregnir sem bárust skömmu eftir flóðið þess efnis að fólk hefði fundist á lífi og aftur um hádegi á fimmtudag, hafi stappað stálinu í leitarmenn. Einar og Guðrún Björg voru bæði aðkomumenn á Flateyri og segja sáralitlar ef nokkrar líkur á að þau snúi aftur til starfa þangað eftir undangengna atburði. Flateyri verði ekki söm að nýju og sálarástand þeirra og annarra sem deili þessari reynslu beri öll merki harmleiksins. Uppbygging óráð „Kvöldið eftir flóðið og um nóttina í Ægi voru allir mjög þungir í skapi eins og gefur að skilja, sérstaklega innfæddir Flateyringar sem misstu mikið í flóðinu eða voru nákomnir þeim sem eiga um sárt að binda. Fólk talaði um að uppbygging væri óráð og sá litla framtíð í byggðarlag- inu. En strax í dag [gærmorgun] var léttara yfir fólki og það greindi greinilega vonarglætu þrátt fyrir allt,“ segir Einar Ingi. Sveitarstjórar á nokkrum snjóflóðasvæðum segja nauðsynlegt að endurskoða forsendur hættumats Óhjákvæmilegt að endurhugsa allt ÞAÐ ER alveg ljóst að þeg- ar fræðin bregðast svona hrikalega, þá setur menn hljóða," segir Þorvaldur Jóhannsson, bæjarstjóri Seyðis- fjarðar. „Það stendur fyrir dyrum endurskoðun á hættumati fyrir Seyðisfjörð sem á að ganga frá í nóvember og desember. Ég geri ráð fyrir að menn verði að setjast niður og hugsa þetta dæmi allt upp á nýtt,“ segir hann. Vinnu við nýtt hættumat var forgangsraðað. Hún hófst á Vest- fjörðum og beinist nú að sveitarfé- lögum á Norðurlandi og Austfjörð- um. „Spurningin er sú hvort atburð- urinn á Flateyri verði ekki til þess að menn verði að taka upp allt önnur vinnubrögð við þetta. Það er deginum ljósara að miðað við þá atburði sem þama áttu sér stað er eitt- hvað jað í þeim útreikning- um sem við byggjum á. Snjóflóðasagan er stutt hér hjá okkur miðað við önnur lönd. Mér sýnist að þetta muni verða til þess að hættusvæðin verði frekar stækkuð heldur en hitt,“ sagði hann. Að sögn Þorvaldar er nú unnið að ráðningu snjó- flóðaeftirlitsmanna í ein- stökum sveitarfélögum og að eflingu forvarnarstarfs. „Ég þori hins vegar ekkert að segja um hvernig nýtt hættumat fyrir Seyðisíjörð mun líta út. En það er alveg ljóst að svæðið hlýtur að stækka,“ sagði hann. Atburðirnir veikja trú fólks á hættumati Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri í Neskaupstað, sagði að nú væri að hefjast vinna við endurskoðun á snjóflóðahættumati fyrir Neskaupstað. Hann sagði að skoða þyrfti öll þessi mál í ljósi atburðanna á Flateyri en menn hafi þó alltaf gert sér grein fyrir því að snjó- flóð gætu fallið út fyrir þau svæði sem afmörkuð hefðu verið sem hættusvæði. Aðspurður hvort hann teldi að íbúar myndu ekki lengur treysta snjóflóðahættumati í ljósi reynsl- unnar frá Súðavík og Flateyri sagði Guðmundur erfitt að svara því. Auðvitað myndi þetta veikja trúna á hættumatið, ef menn teldu að hættumörkin væru endanleg og örugg. „En þannig eiga menn ekki að líta á hættumat. Þetta eru ein- göngu hættulegri svæði en önnur,“ sagði hann. Eigum stutta og gloppótta snjóflóðasögu Vinna stendur yfír eða er að hefjast við gerð snjóflóðahættumats fyr- ir fjölmörg byggðarlög. Sveitarstjórar sem rætt var við telja nauðsynlegt að endurskoða frá grunni forsendur hættu- mats og taka upp breytt vinnubrögð,, í ljósi at- burðanna á Flateyri. Þorvaldur Jóhannsson Björn Valdimarsson _ Gísli Ólafsson Þrjú mannskæð snjóflóð hafa fallið út fyrir hættumörk á síðustu átján mánuðum Nýtt hættumat fyrir Neskaup- stað á að liggja fyrir í desember eða strax í kjölfar vinnu við endur- skoðað hættumat á --------------- Siglufirði. „Það er alveg ljóst að menn skoða öll þessi mál aftur í nýju ljósi,“ sagði Guðmundur. Unnið er að nýju hættumati fyr- ir Siglufjörð þessa dagana, að sögn Björns Valdimarssonar bæjar- stjóra. „Það er einsýnt að menn verða að hugsa allar forsendur fyrir gerð hættumats upp á nýtt. Það liggur fyrir að á átján mánuð- um hafa faílið þijú stór snjóflóð, sem hafa leitt til mannskaða, og þau hafa öll gengið lengra fram en gert var ráð fyrir í hættumati. Flóðin hafa þó öll komið úr þekkt- um farvegum,“ sagði Björn og vitnaði þar til snjóflóðanna sem féllu á sumarhúsabyggðina í Tungudal, í Súðavík og á Flateyri. Björn sagði einsýnt að þessi mál yrðu tekin til heildarendurskoðun- ----------------- ar og allt benti til ---- Ljóst að þess að hættusvæðin stækka þarf sem skilgreind yrðu hættusvæðin _________________ mn sæi hms vegar fyrir endann á hvaða afleiðingar það hefði fyrir viðkom- andi byggðir. „Þarna verður að hafa öryggið í fyrirrúmi og hugsa allt upp á nýtt,“ sagði hann. „Við eigum stutta snjóflóðasögu og það vekur spurningar um hvort hægt er að treysta þeim forsendum sem stuðst er við úr sögunni. Það þarf kannski að hugsa alveg upp á nýtt þær forsendur sem að baki búa,“ sagði hann. „Einar Sveinbjörnsson veður- fræðingur benti á á ársfundi Sam- bands fískvinnslustöðva að frá því snemma á öldinni og fram yfir 1960 hefðu íslendingar farið í gegnum einstakt hlýindaskeið. Þetta er það tímabil, sem við höfum skráð snjóflóðasögu okkar. Við eig- um ekki eldri skráningar. Hér á Siglufirði nær sagan tæplega aftar en til 1919 og er gloppótt. Fræðimenn munu og þurfa áreiðanlega að velta fyrir sér hvernig snjóasöfnun á Islandi í vonskuveðri á sér stað, þar sem snjór hleðst upp í 12 vindstigum. Þarf ekki að fara að gefa því meiri gaum að snjórinn er ef til vill far- inn að hlaðast meira upp en menn þekktu áður fyrr?“ sagði Bjöm. Síðastliðin þijú ár hefur verið fylgt óstaðfestu hættumati fyrir Siglufjörð. Ástæðumar eru þær að komið hafa fram nýjar heimildir sem taka þarf til- lit til, að sögn Bjöms, og hins vegar var ákveðið að bíða með staðfestingu hættumats fyrir Siglufjörð þar til ný reglugerð lægi fyrir. í ársbyijun óskuðum við eftir því að matið yrði staðfest en þá varð niður- staðan sú að vinna þess í stað nýtt hættumat fyrir bæinn og við bíðum nú eft- ir því,“ sagði Björn. Stöðug endurskoðun Gísli Ólafsson bæjarstjóri í Vesturbyggð segir að snjó- flóðahættumat þurfi í sí- felíu að vera í endurskoðun. „Forvarnir og nógu öflugt eftirlit eru besta ráðið en auðvitað verðum við Pat- reksfirðingar að taka öll þessi mál til endurskoðmiar í ljósi síðustu atburða. Ég ætla hins vegar ekkert að fullyrða um það hver niður- staðan verður." Guðmundur Gísli seUir að reynslan Bjarnason hafi kennt Patreksfirðingum að ákveðin svæði séu snjó- flóðahættusvæði. Allt mat fari hins vegar. eftir aðstæðum. „Ef snjóar mikið og komin er snjóflóðahætta hljóta önnur svæði einnig að vera skilgreind sem hættusvæði. í fyrra var til dæmis tekin um það ákvörð- un, oftar en einu sinni, að rýma hús langt út fyrir skilgreind hættu- svæði hér á Patreksfírði. Bæjaryfír- völd munu að líkindum bregðast við með svipuðum hætti ef slík staða kemur upp aftur.“ Núverandi hættumat fyrir Pat- reksfjörð er orðið nokkurra ára gamalt. Var það grundvallað á upplýsingum um stór flóð sem féllu árin 1906 og 1921 en hættu- svæðið stækkaði töluvert í kjölfar þeirra. Að sögn Gísla hefur byggð ------------- vaxið á þessu svæði í seinni tíð en fyrir liggja tillögur um aðgerðir til að veija svæðið sérstak- lega. Það er eitt- hvað að út- reikningunum Þá vildi Gísli taka fram að íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum búi ekki við eins erfiðar aðstæður og til að mynda Súðvíkingar og Flat- eyringar. „Hér snjóar ekki eins mikið og snjóalög eru þar af leið- andi ekki eins þykk. Það er hins vegar alltaf nauðsynlegt að vera á varðbergi."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.