Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Fyrsti björgunarmaðurinn trúði ekki sínum eigin augum Hélt að þetta væri martröð Morgunblaðið/Sverrir GUÐLAUG Pálsdóttir og Einar Guðbjartsson í fjöldahjálparstöðinni í mötuneyti Kambs. Flateyri. Morgunblaðið. > G SKELLTI mér beint í gall- ann og óð snjó upp að mitti til að komast á svæðið. Þeg- ar ég fór fram hjá húsi Eiríks Finns heyrði ég köll og gekk í að ná þeim út,“ segir Einar Guðbjartsson, trillu- sjómaður og fiskverkandi. Kunningi hans, Gunnar Valdimarsson í Hafn- arstræti 43, hringdi til hans strax og snjóflóðið féll, sagði honum frá því hvað gerst hefði og bað hann um að ná sér út. Einar býr skammt frá snjóflóða- svæðinu. Hann skellti sér í gallann sem lá tilbúinn og var kominn á svæðið eftir 3-4 minútur, væntan- lega fyrstur björgunarmanna. Hann mætti Guðjóni Guðmundssyni sem hafði komist út úr sínu húsi og fljót- lega komu fleiri til hjálpar. Hélt að eldri strákurinn væri þarna líka Einar segir að hann hafi þurft að moka frá Eiríki Finni Greipssyni og Guðlaugu Auðunsdóttur konu hans og tína spýtnabrak ofan af þeim. Síðan hafi hann þurft að skríða inn undir mæni hússins. Það hafi háð honum mest að vera að paufast þetta ljóslaus. Hann fór í neyðarskýlið með Eirík Finn og Guðlaugu sem óðu snjóinn upp í klof á nærklæðunum. „Ég fór til baka til að ná strákun- um þeirra upp og náði fljótlega yngri drengnum. Ég hélt að sá eldri væri þama líka og gróf eftir honum, en svo kom í ljós að hann hafði komist af sjálfsdáðum í hús.“ Ekki eyða tímanum i okkur „Við fórum að dyrunum hjá Gunn- ari Valdimarssyni og Mörtu Ingvars- dóttur í Hafnarstræti 43. Húsið stóð uppi, en brak sem lagðist fyrir dyrn- ar, lokaði þau inni. Okkur vantaði áhöld til að vinna á þessu. Þau voru á efri hæðinni og Gunnar kallaði til okkar að vera ekki að eyða tíma í sig og hvatti okkur til að athuga með aðra fyrst.“ Marta Ingvarsdóttir segist hafa vaknað upp við hávaða. Þegar þau litu út hafi þau séð hvað um var að ræða, meðal annars að næsta hús hefði brothað. Marta og Gunnar voru aðeins tvö í húsinu og sváfu á efri hæðinni. „Þetta var auðvitað óskemmtilegt. En enginn snjór kom inn á okkur. Efri endi hússins er hugsanlega eitt- hvað skemmdur og skúrinn þar sem gengið er inn eyðilagðist og festist fyrir dyrum þannig að við komumst ekki með góðu móti út. En það var allt í lagi með okkur, og við hefðum getað komist út með því að bijóta rúðu ef við hefðum þurft nauðsyn- lega að flýta okkur út,“ segir Marta. Heyrðum í honum allan tímann „Svo var haldið áfram,“ segir Einar Guðbjartsson. „Við gátum bara farið þangað sem hús voru uppistandandi, vissum annars ekki hvar við ættum að byija. Ég var við þegar Anton Rúnarsson náðist út. Við vorum nokkrir saman og vorum beggja megin við hann, bæði við höfuðlag og gafl. Það var erfitt að ná drengnum, en við heyrðum í hon- um allan tímann. Að lokum tókst það með stórri vélsög," segir Einar. Guðrún Pálsdóttir, kona Einars, segist hafa gengið í það með Stein- unni, tólf ára dóttur þeirra Einars, að hringja í alla verkfæra menn sem hugsanlega gætu farið til hjálpar á snjóflóðasvæðinu. „Það var raf- magnslaust. Steinunn sagði mér númerin og var alltaf tilbúin með það næsta þegar hveiju samtali lauk. Ég veit að margir fleiri voru að hringja á sama hátt og ég tel að allir sem vettlingi gátu valdið hafí lagt sitt af mörkum," segir Guðrún. Guðrún fór í mötuneyti Kambs um klukkan sjö og leysti þar af tvær konur sem höfðu hitað þar kaffi. „Ég var allan daginn að smyija brauð og hita kaffi. Hér var sett upp læknamóttaka og mötuneyti. Hingað komu allir sem misst höfðu húsnæði sitt og þurftu á aðstoð að halda og bömin og unga konan, sem bjargað var úr flóðinu. Þeim var kalt en þau voru öll mjög dugleg. Við gáfum fólkinu að borða og ég reyndi að tala við það og aðstoða eins og ég gat.“ „Þetta var hreint út sagt hrikalegt ástand og ekki hægt að lýsa því með orðum. Það komu ákaflega erf- ið tímabil og biðin var erfið, eftir því hvernig stóð á. En gleðin var líka mikil þegar það fréttist að verið væri að koma með einhvem á lífi,“ segir Guðrún. Misstu ættingja og vini Einar og Guðlaug misstu nákomna ættingja og vini. Haraldur Eggerts- son var systursonur Einars en öll fjöl- skyldan, hjónin og þijú böm þeirra, fómst í snjóflóðinu og einnig Sólrún Ása frænka hans. Guðrún segir að auk þess hafi þau misst marga nána vini. „Ég trúði því ekki að þetta væri að gerast í raunvemleikanum, hélt fyrst að þetta væri martröð," segir Einar Guðbjartsson. Erfitt að hugsa til þess að eiga ekki eftir sjá fólkið aftur Flateyri. Morgunbladið. G fer suður í næstu viku. Það var löngu ákveðið, en eins og staðan er í dag veit ég ekki hvenær ég kem heim aftur. Hugurinn breytist kannski eftir nokkra daga,“ segir Soffía Ingimars- dóttir, Goðatúni 4. Soffía segist hafa vaknað um klukkan þijú snjóflóðanóttina við að það kviknaði á neyðarljósi sem fer í gang þegar rafmagnið fer af. Mað- ur hennar, Kristján Einarsson, yfir- maður Orkubús Vestfjarða á Flat- eyri, var að vinna vegna rafmagns- bilana og hefur þetta neyðarljós til að lýsa sér þegar hann fer í útköll vegna rafmagnsleysis. Soffía segist hafa farið að lesa og ekki orðið vör við snjóflóðið þó hún byggi ofarlega í bænum. „Upp úr klukkan fjögur hringdi vinkona mín og sagði mér fréttirnar og skömmu seinna hringdi maðurinn minn og sagði: „Viltu gjöra svo vel að klæða þig og strákinn og koma Hugsað með hryll- ingitil vetrarins ykkur út úr húsinu." Við Fannar Þór, sem er ellefu ára gamall, fómm niður í rafstöð og tókum tíkina Nótt með. Þar vomm við öll í nótt.“ Gaf mér mikinn kraft Morguninn eftir snjóflóðið fór Soffía að vinna í mötuneytinu hjá Kambi og var þar allan daginn. „Það var mikið að gera og ég fór ekki að átta mig fyrr en ég fór að sofa í gærkvöldi. Þá fór ég að hugsa til fólksins. Besta vinafólk mitt missti dóttur sína, Svönu, en önnur dóttir þeirra, Sóley, bjargaðist. Foreldrar hennar vom staddir í Reykjavík og ég var mikið hjá henni þar til hún fór og gaf það mér mikinn kraft. Ég þekkti allt fólkið sem lést og það er erfítt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta það oftar. Maður finnur að tilfinningarnar krauma undir hjá fólki, þó þær hafi ekki brotist út. Mér finnst dýrlegt að sjá hvað fólk vann vel og hjálpað- ist að sem einn maður eins og alltaf gerist á svona stundum." Hús Soffíu og Kristjáns er ofar- lega á Eyrinni og hefur ekki verið talið á hættusvæði þó þau hafi þurft rýma það í janúar sl. „Nú er allur veturinn framundan. Maður spyr sig að því hvemig veturinn verði þegar þetta byijar svona. Það fólk sem ég hef rætt við hugsar til vetrarins með hryllingi," segir Soffía. Morgunblaðið/Sverrir SOFFÍ A Ingimarsdóttir með nýja „heimilið“ sitt, Orkubúshúsið, í baksýn, Morgunblaðið/Sverrir. KRISTJÁN Jóhannesson sveitarstjóri flýtti sér heim úr sum- arleyfi þegar fréttist af snjóflóðinu. Hann þurfti að byrja á því að huga að skemmdum á sínu eigin húsi sem hingað til hefur verið talið langt utan hættusvæðis. Kristján Jóhannesson sveitarstjóri Þetta er hjartað úr by ffffðinni Flateyri. Morgunblaðið. AÐ hefði engum manni dottið í hug að slíkt gæti gerst á þessum stað,“ sagði Kristján Jó- hannesson, sveitarstjóri á Flateyri, þegar hann kom heim í gær. Hann var með fjölskyldu sinni í fríi á Flórída þegar snjóflóðið féll á Flat- eyri. og hraðaði sér heim þegar hann frétti af því. „Já, þetta er dapurlegur endir á sumarfríinu," segir Kristján. Hann segist hafa verið í símasam- bandi við félaga sína á Flateyri á meðan hann beið eftir flugi heim og hefði því vitað um afleiðingar flóðsins. „Þetta er algerlega ólýs- anlegt ástand,“ segir hann þegar hann var búinn að Iíta út yfir flóða- svæðið. „Þetta er hjartað úr bvggðinni. Ég sé að búið er að tengja gulan lögregluborða í húsið mitt sem er rétt fyrir neðan snjó- flóðasvæðið en það hefur aldrei hvarflað að mér að húsið væri nálægt hættusvæði." Á meðan blaðamaður var að ræða við sveit- arstjórann kom kona hans og sagði að rúður hefðu brotnað á húsinu og einhver snjór hefði komist inn. Siyóflóðavarnir hefðu komið að litlu gagni Kristján var ekki búinn að hitta félaga sína í sveitarstjórninni og almannavarnarnefnd og vildi lítið ræða um framhaldið. Sagði þó ljóst að þær snjóflóðavarnir sem fyrir- hugaðar eru í hlíðinni hefðu komið að litlu gagni. Þyrfti mun stærri vamir ef þær ættu að vera til ein- hvers gagns. „Ég veit ekki um andlega líðan fólksins. Það hlýtur að eiga erf- itt,“ segir hann. Varðandi raddir sem heyrst hafa frá fólki um að það treysti sér ekki til að búa leng- ur á Flateyri segir Kristján að fólk væri ekki í andlegu jafnvægi fyrst eftir svona hræðilegt slys. Nógur tími væri til að skoða mál- in þegar björgunarstarfi og fyrstu verkum væri lokið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.