Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 21
Útsölukjötið rifið
út úr verslunum
ið og í liós kom að kjötið var enn
Kjúklinga-
bitar á
McDonald’s
SALA á McNuggets kjúklingabit-
um hófst nýlega á McDonald’s-
stöðunum tveimur í Reyjavík, í
Austurstræti og við Suðurlands-
braut. Um er að ræða beinlausa
kjúklingabita og kosta 6 bitar 295
krónur. „Við fengum leyfí til að
flytja inn 6 tonn af kjúklingakjöti
frá Svíþjóð og fáum vonandi að
flytja meira inn þegar á þarf að
halda,“ segir Pétur Þ. Pétursson,
rekstrarstjóri Lystar hf., sem er
leyfíshafí McDonald’s á íslandi.
Hann segir að reynt hafí verið að
framleiða kjúklingabitana hér, en
það hafí ekki reynst mögulegt, þar
sem markaðurinn er lítill og til
framleiðslu þarf sérhæfðan og
dýran búnað.
„Við seldum 1.100-1.200
skammta af kjúklingabitum fyrstu
helgina sem þeir voru á boðstólum
og erum að vonum afar ánægðir
með viðtökurnar. Innan skamms
byrjum við að selja kjúklinga-
borga, sem er þekktur erlendis
undir heitinu McChicken Sandwich
og er bringukjöt, þakið mylsnu,
sem framreitt er í brauði.“
Ofn fyrir
flatbökur
NÝKOMINN er í Pfaff flatbökuofn
frá Ariete fyrir heimatilbúnar,
frosnar eða tilbúnar flatbökur.
Hitinn í miðjum ofninum verður
280°C, en uppi og niðri nær hann
320°C.
í miðju ofnsins er eldfastur
steinn og verða flatbökurnar þá
eins og eldbakaðar. í fréttatil-
kynningu segir að ofninn sé 10-12
mínútur að hitna, síðan taki 15
mínútur að elda heimatilbúna flat-
böku, en 5-6 mínútur að elda til-
búna eða frosna. Ofninn er ein-
angraður þannig að yfirborð hans
verður ekki heitara en 60°C. Spaði
og hnífur fylgja ofninum, sem er
á 9.980 kr. kynningarverði.
-----»♦------
Buxur gegn
appelsínuhúð
FYRIRTÆKIÐ I&D hefur hafið
innflutning á buxum, sem sagð-
ar eru vinna á svokallaðri app-
elsínuhúð. í fréttatilkynningu
frá innflytj-
anda segir að
buxurnar veiti
nudd, sem örvi
vessakerfi og
auki blóð-
streymi. „Efn-
ið í buxunum
er í þrennu
lagi, bómull,
indverskt
gúmmí og
pólíester,“
segir m.a. í til-
kynningunni.
Þar kemur einnig fram að bux-
urnar séu fáanlegar í líkams-
ræktarstöðinni World Class og
nokkrum lyfjaverslunum.
LAMBAKJÖT, sem selja átti í
Bónusverslunum í gær var mestan
hluta dagsins í vöruflutningabíl,
sem var veðurtepptur á Holta-
vörðuheiði og kom kjötið ekki í
búðir fyrr en um kl. 18 í gær.
Um er að ræða hálfa ársgamla
lambakjötsskrokka, sem seldir eru
niðursagaðir í um 8 kg. pokum. í
samtölum við kaupmenn kom
glögglega fram að þeim þætti
verðstríðið komið út í öfgar, enda
væru verslanir famar að greiða
með kjöti sem ríkissjóður væri
þegar búinn að greiða verulega
niður.
Að sögn Guðmundar Marteins-
sonar hjá Bónus urðu margir við-
skiptavinir fyrir vonbrigðum er
þeir komu í verslanirnar í gær til
að kaupa lambakjöt á 244 kr. kíló-
á Holtavörðuheiði. „Okkur þykir
þetta mjög leitt, en við þessu var
ekkert að gera. Alls voru þetta
um 10 tonn af kjöti, en þau fímm
tonn sem við áttum á fimmtudag
seldust strax upp.
Þá var kílóverð 279 krónur en
var síðan lækkað í 244 krónur."
Guðmundur sagðist engu vilja spá
um verðbreytingar, þær færu eftir
framvindu á markaðnum á næstu
dögum. Hann kvaðst ekki vita
hversu mikið Bónus greiddi með
hveiju kílói. „Það er þó ljóst að
við emm komnir út fýrir mörk sem
teljast eðlileg."
Ódýr auglýsing
Davíð Ólafsson, verslunarstjóri
í Kaupgarði í Mjódd sagði að út-
sölukjötið hefði verið rifíð út úr
versluninni. „Við áttum eitt tonn
af lambaskrokkum á fímmtudag
og seldum það á skömmum tíma.“
Davíð segir að í gær hafi hann
fengið minna af kjöti en hann
hefði viljað, um 200 kíló og hefðu
þau selst upp á um 20 mínútum.
„Við seldum kílóið á 269 krónur.
og greiddum 18 krónur með hveiju
kílói. Eftirspurn er mjög mikil og
við hefðum auðveldlega getað selt
yfír tvö tonn, enda vom margir
viðskiptavinir leiðir yfír því að
kjötið væri búið í bili. Ég á von á
meira kjöti og geri ráð fyrir að
verð haldist óbreytt."
Davíð segir að heildarsala í
versluninni hafí aukist talsvert
samhliða sölu á ódýra lambakjöt-
inu og umfjöllun um hana. „Þetta
er í raun ekki annað en ódýr aug-
lýsing og þess vegna tökum við
þátt í verðstríðinu."
Þetta er besti og vinsœlasti útigallinn okkar.
Hann er fáanlegur þrílitur (3 gerðir)
og einlitur; rauöur og dökkblar.
Hár prjónaður kragi.
Vítt og gott snið.
IVjóiiað
stroff
a
ci'niuin.
Vasi með rennilás.
Illýtt fóður sem
liægt er að lineppa
úr, gaiiinn nýtist
því allt árið.
Endurskinsmerki.
Teygja.
Miði til að skrifa nafn
barnsins og símanúmer.
Sterkur
rennilás.
í mitti er teygja
sem hægt er að
þrengja að vild.
Sérstakt millifóður
sem kcmur í vcg
fyrir að barnið blotni.
Verð-firá kr. 7.900,-
KRINGLENNI 8-12- SIMI 568 1822