Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ NATO 7ghAuK\D Ég er hérna með einn ansi efnilegan í stöðuna. Hann er búinn að vera að leika sér í herleikjum síðan hann var bárn . . . Eitt lengsta flug Landhelgisgæslunnar frá upphafi . , •• Flaug inn Onundarfjörð í ókyrrð og byljum EITT lengsta flug Landhelgisgæsl- unnar frá upphafi var farið í tengslum við björgunarstörfin á Flateyri í fyrradag. TF-LÍF var þá um tíu klukkustundir á flugi við afar erfið flugskilyrði. Auk þess var minni þyrl- an, TF-SIF, í stöðugum flutn- ingum milli Reykjavíkur og Grundaríjarðar og Grundar- fjarðar og Rifs. Benóný Ás- grímsson flug- stjóri á TF-LIF lýsir mikilli að- dáun á fórnfýsi björgunarsveitar- manna og þyrluflugmanna varn- arliðsins. Áhöfn TF-LÍFs, fimm manns, var ræst út rétt rúmlega kl. 7 á fimmtudagsmorgun og hófst strax undirbúningur fyrir fólksflutninga. „Það var ekki flugfært vestur fyrst um morguninn. Utlit var fyr- ir að varðskip sem var statt úti fyrir Vesturlandi yrði fyrst til að komast til Flateyrar. Það var því lögð áhersla á það að koma fólki héðan frá Reykjavík í báðum þyrl- unum til Grundarfjarðar í veg fyr- ir varðskipið," sagði Benóný. Opnast fyrir flug Þegar leið á morguninn opnaðist fyrir flug íslandsflugs til Rifs og lentu tvær vélar flugfélagsins þar með um 30 manns. „Við hófum síðan að fetja þann mannskap frá Rifi til Grundar- fjarðar í veg fyrir varðskipið. Þeg- ar því var lokið kom í Ijós að veðr- inu hafði eitthvað slotað. Þá var ákveðið að reyna að fljúga TF-LÍF vestur. Mest áhersla var lögð á að koma leitarhundum til Flateyrar. Við lögðum síðan af stað með þijá hunda sem höfðu komið frá Aust- Leiðbeindu varn- arliðsþyrlunum hvar heppilegast var að fara inn fjörðinn fjörðum og þijá menn með þeim. Veðrið var þokkalegt í sunnanverð- um Breiðafirðinum en þegar fór að nálgast Bjargtanga hvessti mik- ið og stóð vindur af norðnorð- austri í -tíu til tólf vindstigum. Skyggnið var frá hálfum upp í fjóra kílómetra á leiðinni. Þyrlan tók vindinn vel á sig, en við urðum að fljúga mjög lágt, nánast alla leiðina að Barða, nesinu á milli Önundar- ijarðar og Dýraijarðar, því það var talsverð ísing þegar ofar dró. Hita- stigið var um frostmark. Þegar við komum í mynni Önundarfjarðar jókst snjókoman talsvert. Við ætl- uðum fyrst að fljúga inn miðjan fjörðinn eftir ratsjá en það reynd- ist svo mikil ókyrrð fyrir honum miðjum að við hrökkluðumst út í Barðann. Eftir það flugum við sjónflug, þ.e.a.s. eftir landsýn en ekki mælitækjum. Við héldum okk- ur rétt ofan fjöruborðsins í sunnan- verðum fírðinum. Vind lægði þegar við komum inn í fjörðinn en hann varð mjög byljóttur og mun meiri ókyrrð var inni í fírðinum en fyrir utan hann. Þarna skipti sköpum sú aflrrnkla vél sem TF-LÍF er búin. Þannig flugum við inn ljörð- inn þar til við vorum þvert fyrir eyrinni en þá beygðum við til norð- urs og lentum á uppfyllingunni við bryggjuna," sagði Benóný. Flutningar til ísafjarðar Þegar TF-LÍF hóf sig til flugs á ný voru þyrlur varnarliðsins á leiðinni norður með Vestfjörðun- um. „Við gátum leiðbeint þeim hvar væri heppilegast að fara inn fjörðinn. Ég dáist að flugmönnum vamarliðsins því skilyrði til flugs voru mjög erfið. Við höfum það fram yfír þá að við þekkjum land- ið og höfum farið þarna yfír áður. Þeir eru staðsettir hér á landi í e.t.v. tvö ár og eru kannski að fljúgá inn þennan ijörð í fyrsta- skipti," sagði Benóný. Benóný sagði að það hefði verið alveg á mörkunum að hægt hefði verið að fljúga til Flateyrar en þó hefði engin áhætta verið tekin. Áhöfn TF-LÍFs hélt aftur til Rifs og sótti þangað tólf manns, lækna, hjúkrunarfræðinga, björg- unarfólk og búnað. Þá var klukkan orðin 14.30. Seinna flugið inn til Flateyrar gekk vel fyrir sig og hafði veðrið dálítið gengið niður. Þar var beðið í eina klukkustund eða þar til boð komu um að þyrlan flytti þijú fórnarlömb snjóflóðsins ásamt læknum og hjúkrunarfólki til Isafjarðar. „Við fórum frá Flateyri til ísa- ijarðar þegar klukkan var rúmlega 17 og vorum komnir til ísafjarðar um kl. 17.30. Þar tókum við elds- neyti og skömmu síðar bárust fyrirmæli um að við kæmum til Reykjavíkur og þar lentum við kl. 20.“ Þá hafði TF-LÍF verið á flugi í tæpar tíu klukkustundir en útkallið sjálft varað þrettán klukkustundir. „Það er mikil spenna sem fylgir svo löngu flugi, sem tekur verulega á alla sem í þessu standa. Ég dá- ist alltaf jafnmikið að björgunar- og hjúkrunarfólki sem tekur þátt í þessu starfi. Það er tilbúið til að hlaupa af stað hvenær sem kall berst um borð í þyrlur eða skip í mjög slæmu veðri. Það spyr einsk- is en leggur ótrautt af stað. Ég dáist alltaf jafnmikið að því,“ sagði Benóný. Leitað í snjóflóði Fyrri reynsla nýttíst vel SNORRI Hermannsson var vettvangsstjóri leit- arinnar á Flateyri en hann kom í fyrsta hópnum, sem kom til Flateyrar frá ísafirði. í hópnum voru 187 leitarmenn ásamt leitar- hundum, en þegar mest var tóku liðlega 300 manns þátt í leitinni. - Þú varst vettvangs- stjórí við leitina í Súðavík, hvernig nýtist sú reynsia sem þar fékkst? „Sú reynsla sem við öðluð- umst við björgunina í Súða- vík nýttist mjög vel. Vægt til orða tekið. Sérstaklega á það við um þá björgunar- menn, sem tóku þátt í þeirri leit, þeir vissu nákvæmlega hvaða stjómunaraðgerðum var verið að vinna eftir. Til- högunin var sú sama og gekk alveg upp.“ - Hvaða iærdóm má draga af þessum slysum? „Við höfum öðlast ákveðna reynslu, sem seinna verður miðlað áfram til fleiri aðila. Til dæmis til Snorri Hermannsson ►Snorri Hermannsson er fædd- ur 2.4.1934. Hann er húsasmiður að mennt og kennir við Fram- haldsskóla Vestfjarða. Snorri er kvæntur Auði Hagalín Hrafns- dóttur og eiga þau fímm böm. þeirra sem taka að sér vettvangs- stjórnun á vegum almannavarna. Þarna höfum við ákveðið form í höndunum þótt aldrei sé hægt að nýta það alveg út í hörgul en það er ákveðinn grunnur sem hægt er að vinna eftir sama hvar er. Hann nýtist vel. Það kemur alltaf upp ákveðið ferli sem unnið er eftir en svo eru alltaf ýmis hliðar- mál sem verður að taka á. Ég hef ekki haft tíma til að fara yfir ferlið enn þá og kanna hvað hefði mátt fara betur. Ég gerði það eftir flóðið í Súðavík og þar voru atriði sem maður sá að. hefði átt að vinna með öðrum hætti. Af því lærði maður og það var ekki endurtekið hér.“ - Voru það einhver ákveðin vandamál? „Vandamálið var að við fengum óreynda sjálfboðaliða í Súðavík auk þess sem þeir voru of ungir. Það verður að setja aldurstak- mark, annað er ekki hægt og það var gert hér. Það er engin spurn- ing að leitin tekur á menn. Þetta er erfiðara en margur heldur, bæði andlega og líkamlega. Þó menn télji að þeir séu sterkir þá hefur þessi vinna veruleg áhrif." - Er einhver munur á þessum tveimur snjóflóðum í Súðavík og á Flateyri? „Veður var ólíkt. Það voru yfir 11 vindstig í Súðavík en veðurhæð var ekki neitt svipuð því á Flat- eyri. Svo má vera án þess að ég hafi fengið það stað- fest, að snjóalög hafí verið frábrugðin. Þá held ég að flóðið á Flat- eyri sé stærra og ann- ars eðlis. Það virðist Þjálfunin er stanslaus allt árið þá. Það hefur oft verið svo hér að stuttu eftir flóð kemur annað. Það eru fjölmörg dæmi um það. Við leitina í Súðavík voru 30 tæki en hér á Flateyri voru 60 tæki og það er mikill munur þar á. Ég gat því verið með 60 manns við leit í einu. Um leið og hundur merkti svæði komu björgunar- menn og fóru að grafa og þegar hann merkti á öðrum stað var annar hópur sendur inn. Þessir sendar skipta sköpum við leit í snjóflóði en þetta eru'dýr tæki sem björgunarsveitarmenn eru að fjár- festa í fyrir sig persónulega. Sveit- ir eiga þetta.“ - Hundarnir skipta greinilega miklu máli við leit? „Ég hef sagt það oftar en einu sinni að það eru þeir sem stjóma þessu í raun fyrir okkur. Ef við ættum að leita stangarleit. þá yrði það mjög erfitt. Þetta er ekki ein- göngu snjóflóð heldur rústabjörg- un. Húsin eru brotin og brak er í flóðinu og þá eru menn að stinga stöngum í veggi sem einhver gæti legið undir. Hundar skipta því sköpum við að finna fólk fljótt." - Þarf þá ekki að fjölga hund- um á sjóflóðsvæðum? „Það er dýrt að reka þessa hunda. Þeir þurf mikið fæði og eigendur þurfa að hafa mikinn áhuga á þessu auk þess sem þjálf- unin þarf að vera stanslaus allt árið. Sami maðurinn getur ekki --------- verið með marga hunda. Þeir hafa reynt að vera með tvo því þegar hundur eldist verður annar að vera tilbúinn til að taka við vera eins og stál og mun þéttara." - Hvernig fer leit fram í snjó- flóði? „Fyrst og fremst eru það hund- arnir, sem mæðir á. Þeir eru látn- ir hlaupa um flóðið en þeir skynja lykt sem jafnvel berst á ská frá þeim sem grafínn er. Þrátt fyrir það finna þeir lyktina og fara að krafsa. Þá koma björgunarmenn að með skóflur og fara að grafa. Þegar lokið er við um eins metra djúpa holu er hundurinn látinn fara þar niður til að ákveða í hvaða stefnu á að grafa. Þetta er síðan endurtekið þar til sá fínnst sem grafínn er. Enginn björgunarmaður fer út á hættusvæðið án þess að bera senditæki innan klæða. Þetta eru nauðsynleg tæki fyrir björgunar- menn. Lendi þeir sjálfir í snjóflóði þá er auðvelt fyrir okkur að fínna en þjálfunin getur tekið þijú ár. Hundarnir fara á sérstök nám- skeið til að reyna getu sína og þar eru þeir prófaðir af erlendum dómurum. Sumir standa sig en aðrir falla og verða að koma að ári. Þeir eru flokkaði í A-, B- og C- flokk. í A-flokki eru hundar sem við getum notað í snjóflóði. Það er stundum reynt. að nota hunda í B-flokki en það er þá í neyð.“ - Hefur þú myndað þér skoðun á hvað er helst til varnar snjóflóð- um? „Nei, ég get ekki ímyndað mér hvað væri helst til varnar í tilvik- um sem þessum. Maður stendur alveg agndofa. Það hefði ekki nokkur maður getað gert sér þetta í hugarlund. Það er ekki hægt. Þetta er svo langt fyrir utan allan raunveruleika."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.