Morgunblaðið - 28.10.1995, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Atta konur
frá Flateyri
voru veður-
tepptar
ÁTTA konur frá Flateyri voru veður-
tepptar í Reykjavík þegar snjóflóðið
féll á þorpið. Konurnar voru í hópi
46 kvenna frá Vestfjörðum sem fóru
í fjögurra daga orlofsferð til
Glasgow. Hópurinn kom til landsins
sl. laugardag og ætlaði að fara til
síns heima á sunnudag, en ekki var
hægt að fljúga til Vestfjarða vegna
veðurs og því varð hóprinn að gista
í Reykjavík.
Konumar komu með flugi til Vest-
fjarða í gær. í hópi kvennanna frá
Flateyri eru konur sem misstu eigin-
menn sína og böm í snjóflóðinu þeg-
ar flóðið féll á heimili þeirra.
Eigínkonan veðurteppt í Holti
Eiginkona Kristins'Jónssonar, sem
fórst í snjóflóðinu, Sigfríður Ás-
bjömsdóttir, dvaldist í barnaskól-
anum í Holti ásamt syni sínum,, Vil-
mundi Torfa, þegar snjóflóðið féll.
Heimili þeirra, Olafstún 9, er á
hættusvæði samkvæmt staðfestu
snjóflóðahættumati. Þeim var gert
að yfirgefa húsið og varð niðurstaðan
að Sigríður yrði eftir í bamaskól-
anum í Holti, þar sem hún starfar.
Hjá Kristni gisti um þessar mund-
ir Róbert Hallbjömsson sem búsettur
er á Suðureyri. Þeir Róbert og Krist-
inn fengu gistingu í húsi við Eirar-
veg á þriðjudagskvöldið.
Kvöldið eftir fór Kristinn til kunn-
ingja síns, Sigurðar Þorsteinssonar,
sem bjó á Hjallavegi 8 en Róbert
varð eftir á Eyrarvegi. Snjóflóðið
hreif með sér húsið á Hjallavegi 8
og fómst Kristinn og Sigurður báð-
ir, auk Þorsteins, sonar Sigurðar.
Húsið í Ólafstúni 9 er hins vegar
óskemmt.
Elsti sonur Sigfríðar og Kristins,
Jón Gunnar, hefur verið við nám í
Reykjavík í vetur. Hann fékk að fara
um borð í Ægi, sem lét úr höfn í
Reykjavík stuttu eftir að flóðið féll,
en hann hugðist taka þátt í leit að
þeim sem saknað var. Hann fékk
fréttir af afdrifum föður síns þegar
skipið var komið langleiðina til Flat-
eyrar.
------» ♦---------
Fjöldi fólks
frá Flateyri
kom í hjálp-
arstöðina
Á ÞRIÐJA tug Flateyringa, sem
hafa misst eigur sínar og/eða ást-
vini, komu f fjöldahjálparstöð Rauða
kross íslands í gærmorgun. Þar
áttu þeir stutta samveru- og bæna-
stund. Fjöldahjálparstöðin að Rauð-
arárstíg 19 verður opin kl. 10-18
laugardag og sunnudag fyrir þá
sem eiga um sárt að binda vegna
snjóflóðsins á Flateyri 26. október,
vini þeirra og aðstandendur.
Fimm sjálfboðaliðar Rauða
krossins eru jafnframt starfandi í
fjöldahjálparstöð á Flateyri þar sem
veitt verður aðstoð og upplýsingar
með sama hætti og i Reykjavík. í
stöðinni verður leitast við að greiða
götu þeirra sem þurfa á aðstoð að
halda, auk þess sem fólk getur hist
til að ræða málin og veita hvert
öðru stuðning. Rauði kross íslands
sér fólki fyrir nauðsynlegu fé og
fatnaði og útvegar húsnæði eftir
þörfum. Félagsmálaráðuneytið hef-
ur þegar boðið fram nægilegt hús-
næði að svo stöddu, en auk þess
hefur mikill fjöldi einstaklinga og
félaga boðið fram húsnæði og aðra
aðstoð.
Rauði kross Islands veitir allar
upplýsingar í síma 562 6722. Þeir
sem koma í fjöldahjálparstöðina
eiga kost á stuðningi fólks sem
sérstaklega er þjálfað í áfallahjálp.
FRÉTTIR
BJÖRGUNARMENN lögðu hart að sér og unnu hratt og hvíldarlaust vlð handmoksturinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Ögnarkraftar eyði-
leggingar að verki
var hafður í því að halda til haga
heillegum hlutum og „minningum"
og koma í öruggt skjól.
Fylgdarmaður okkar um svæðið,
Þórir Steinarsson, benti á húsgrunn
og sagði að þetta væri gamla heimil-
ið sitt. Hann býr sjálfur í Reykjavík
en dóttir hans og faðir hafa búið í
húsinu en svo vildi til að þau voru
ekki heima þegar ósköpin dundu yfír.
Erfitt er að átta sig á þeim ógn-
arkröftum eyðileggingarinnar sem
hér hafa verið að verki. En stutt
vettvangsskoðun vekur einnig þá
hugsun hvað mjótt er á milli lífs og
dauða. Hér tókst að bjarga fólki úr
snjónum og svo standa stráheil hús
skammt frá húsum sem jöfnuðust
við jörðu.
Óttast komandi vetur
Vendipunktur varð í starfínu á
Flateyri þegar Rebekka Rut fannst.
Búið var að finna alla sem lentu í
snjóflóðinu. Björgunarmenn sem
komið höfðu víðsvegar "af landinu
fóru að tygja sig til heimferðar. Eft-
ir er mikið starf við hreinsun og við
að forða eignum frá frekara tjóni.
Forráðamenn sveitarfélagsins segja
að það sé ekki tímabært að ræða
framtíðina í byggðarlaginu svo fljótt
eftir þetta mikla og óvænta áfall.
Fólk sem rætt var við á götu var
mjög slegið og óttaðist komandi vet-
ur. Hvemig verður veturinn þegar
hann byijar svona? Sumir höfðu á
orði að þeir treystu sér varla til að
búa lengur á staðnum. Aðrir vildu
hinkra við og sjá hveiju fram yndi.
Það er áreiðanlega rétt hjá sveitar-
stjóranum að fólk er ekki í andlegu
jafnvægi eftir slysið og rétt sé að
gefa fólki tíma til að átta sig.
Áhrifamikil
minningarathöfn
í gærkvöldi fór fram minningarat-
höfn í kirkjunni á Flateyri. Þangað
mættu aðstandendur fólks sem hafði
farist, almennir þorpsbúar og björg-
unarmenn. Allir héldu á kertum. Var
þetta mjög sorgleg en jafnframt
áhrifarík stund. Nauðsynlegur þáttur
í því uppbyggingarstarfí sem fram-
undan er hjá Flateyringum, ekki síst
tilfinningalega.
Leit að fólki í snjóflóðinu á Flateyri lauk um
miðjan dag í gær þegar litla stúlkan fannst
látin. Helgi Bjamason og Hallur Þor-
steinsson fóru um snjóflóðasvæðið þegar
leit stóð enn yfír í gær og lýsa aðkomunni.
LITLA stúlkan, Rebekka Rut Har-
aldsdóttir, sem lengst var Ieitað eftir
snjóflóðið á Flateyri fannst um miðj-
an dag í gær. Hún var látin. Varð
þá ljóst að 20 Flateyringar höfðu
látið lífíð í þessu mannskæða snjó-
flóði sem féll á hjarta þessa litla
þorps.
Þegar blaðamenn fóru um leitar-
svæðið í gær stóð enn yfír leit að
Rebekku. Björgunarmenn voru búnir
að moka upp allan snjó í og við hús-
ið sem hún og fjölskylda hennar bjó
í og stórt svæði neðan við það, enda
höfðu brak og munir af heimili þeirra
fundist tugi eða hundruð metra neð-
an við grunn hússins.
Gríðarleg eyðilegging
Á annað hundrað björgunarsveit-
armenn voru að störfum á snjóflóða-
svæðinu og með hunda til aðstoðar.
Áberandi var hvað þeir lögðu hart
að sér við leitina. Snjóflóðið er mjög
þétt í sér og á aðra mannhæð á
þykkt. Þegar fylgst var með björgun-
armönnum var áberandi hvað þeir
unnu hratt við handmoksturinn og
hvíldarlaust. Grafa og moksturstæki
tóku við snjónum sem þeir ruddu frá
sér og fluttu í burtu.
Eyðileggingin er gríðarleg. Fjöldi
húsa er með öllu horfínn í snjóinn
og önnur meira eða minna skemmd.
Sum húsin höfðu farið tugi eða hund-
ruð metra með flóðinu. Stór jeppi
stóð uppi á húsþaki við aðra götu,
tugum eða hundruðum metra frá
heimili eigandans.
Mjótt á milli lífs og dauða
Mikið af braki kom úr húsunum
við moksturinn og innbúshlutir
sömuleiðis. Það stakk blaðamenn að
sjá myndabækur bamanna, leikföng
og fatnað. Einnig voru húsgögn og
aðrir hlutir af heimilunum á víð og
dreif um svæðið. Sérstakur maður
.. . Morgunblaðið/Sverrir
ORÞREYTTIR björgunarmenn hvfla sig milli vakta á Flateyri í gær. Á annað hundrað manns voru
að störfum á snjóflóðasvæðinu og áberandi var hve þeir lögðu hart að sér.