Morgunblaðið - 28.10.1995, Page 16

Morgunblaðið - 28.10.1995, Page 16
16 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Heimilað að fara í Veturinn verður andlega erfiður Flateyri. Morgunblaðið. STEINUNN Jónsdóttir, starfsmaður Pósts og síma, hefur alla tíð búið á Flateyri. Hún sagðist ekkert hafa getað farið út úr húsi allan fimmtu- daginn eftir að snjóflóðið féll. Hún sagðist telja að mikili uggur væri í fólki á Vestfjörðum vegna atburð- anna nú og síðastliðinn vetur, ekki síst vegna þess hve stutt væri liðið af vetrinum. „Nú er allur veturinn eftir. Það var farið að líða talsvert á veturinn þegar hitt var og maður hélt alltaf að þetta væri kannski að verða búið. En nú er allt eftir. Veturinn verður áreiðanlega andlega erfiður fyrir marga. Ég get ekki ímyndað mér að fólk geti sætt sig við að búa þarna ofarlega á eyrinni til að byija með. Að minnsta kosti ekki yfir vetrartímann og á með- an það er að jafna sig. Það fer trúlega eitthvað af yngra fólkinu í burtu, Steinunn Jónsdóttir en sumir koma væntanlega aftur. Það er svo sem alltaf að gerast að fólk fari tímabundið í burtu,“ sagði Steinunn. Hún sagðist ekki reikna með því að fara, að minnsta kosti ekki í bráð, en hún á eina dóttur sem ennþá býr á Flateyri með son sinn. Þá rekur hún bókaverslun á Flat- ejTÍ ásamt fjölskyldu sinni og sagði hún erfiða tilhugsun að hætta í þeim rekstri. Hún sagð- ist ekki trúa öðru en að Flateyri ætti framtíð fyrir sér þrátt fyrir þá atburði sem þar hefðu orðið. „Það er hægt að þétta byggðina héma niðri á eyrinni. Það eru lóðir þar fyrir þá sem vildu vera héma áfram. En það verður trúlega ekki byggt þar sem flóðið féll, að minnsta kosti ekki í bráð. Það tekur sinn tíma fyrir fólk að jafna sig á þessu, bæði andlega og líkamlega og svo fjárhagslega. Það er allt sem hjálpast að,“ sagði Steinunn. Blysför á sunnudags- kvöld FÉLAG framhaldsskólanema gengst fyrir blysför á morgun, sunnudag, vegna hinna válegu atburða á Flat- eyri, til að sýna eftirlifendum og aðstandendum hinna látnu stuðning ogsamúð. í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að nemendur framhalds- (|J skóla á höfuðborgarsvæðinu ætla að ganga f samfylgd niður Laugaveg að Ingólfstorgi. Lagt verður af stað V frá Hlemmi kl. 20. Kl. 21 verður bænastund á Ingólfstorgi og þolend- um hamfaranna vottuð samúð. Kyndlar verða seldir við upphaf göngunnar og rennur ágóði af sölu í sjóð til styrktar íbúum Flateyrar. Morgunblaðið/Halldór T qTitvkiq mirvnQf LOGANDI kerti flutu á Tjörninni í Reykjavík í gærkvöldi. Nemendur Menntaskól- XJCt Lll II LCXi 11111II lö L ans í Reykjavík minntust á þennan hátt þeirra sem fórust í snjóflóðinu á Flateyri. Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður ásútgáfan Glerárgötu 28 - Akureyri Áskriftarsími 462 4966 hús sín Flateyri. Morgunblaðið. ÍBÚUM í húsunum á svæði sem nær upp að Hjailavegi og Ólafstúni var síðdegis í gær heimilað að fara í hús sín í fylgd björgunarsveitar- manna í 30 mínútur. Á fundi Al- mannavarna kl. 16.30 var ákveðið að minnka hættusvæðið á Flateyri og miðast það nú við hús ofan Öldu- götu. Stjórn Almannavarna Flateyrar- hrepps kemur saman til fundar á ný kl. 11 í dag og ákveður þá hvert framhaldið verður, en hátt í 40 íbúð- ir eru enn á hættusvæði. Jón Gunnar Egilsson, snjóflóða- fræðingur frá Veðurstofunni, og Oddur Pálsson, snjóaeftirlitsmaður, könnuðu ástandið í fjöllunum ofan Flateyrar í gær og þeir munu kanna það aftur í bítið í dag. Þeir töldu snjóflóðahættu enn vera til staðar úr Innra-Bæjargili, en hún var þó talin minnkandi miðað við að óbrejdt veður héldist. Eignir lagfærðar Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu- maður, sagði í samtali við Morgun- blaðið að það sem nú tæki við á Flateyri væri að lagfæra eignir og tryggja að ekki verði frekari skemmdir á þeim. Hann sagði að björgunarsveitarmenn og yfirstjóm aðgerða á staðnum hafi staðið sig með mikilli prýði. „Það er undravert hversu vel gekk að koma björgunarsveitar- mönnum, læknum og öðru hjálpar- liði á svæðið og það sýnir sig í þetta skiptið að TF-LÍF, hin nýja þyrla Landhelgisgæslunnar, hefur haft töluvert mikið að segja. Auðvitað komu varnarliðsþyrlur líka, en hins vegar valdi TF-LÍF leiðina fyrir þær. Það er því greinilegt að þetta er mjög mikilvægt tæki. Sama er að segja um varðskipin sem komu með björgunarlið á staðinn. Það var þó lán í óláni að það var hægt að koma stórum hópi með skömmum fyrirvara á svæðið,“ sagði Ólafur Helgi. Allt gert sem mögrilegt var Flateyri. Morgunblaðid. „FÓLK er harmi slegið, eins og gef- ur að skilja, og við erum það öll. Allir hafa misst nána ættingja eða vini og félaga," segir Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður á Flat- eyri en hann kom í gær til heima- byggðar sinnar. Einar Oddur var í Reykjavík og segist hafa frétt af slysinu þegar félagi hans, Hinrik Kristjánsson í Kambi hf., hafi hringt til hans um klukkan hálf fimm nóttina örlaga- ríku. Hann fór strax ásamt Einari Kristni Guðfinnssyni alþingismanni í stjórnstöð Almannavarna ríkisins og var þar allan daginn. Ekki var búið að finna Rebekku Rut þegar blaðamaður hitti Einar Odd á Flateyri í gær. Hann sagði að öll áherslan væri lögð á að finna hana og lítið hægt að segja um framtíðina fyrr en búið væri að því. „Síðan verða menn að hugleiða aðstæður sínar, ekki er staður eða stund til þess að ræða það nú,“ segir Einar Oddur. Ekki þýðir að storka örlögunum Hann segir þó ljóst að enginn muni byggja á því svæði sem snjó- Einar Oddur Kristjánsson flóðið féll yfir. Ekki þýddi að storka nátt- úruöflunum. Viður- kennir Eihar Oddur að farið sé að þrengjast um byggingarland á Flateyri eftir þessa skelfilegu reynslu en hann bendir þó á að nóg land sé í Önundarfirði. Einar Oddur var ekki búinn að fara í hús sitt á Sólbakka, rétt innan við snjóflóðið, sagðist hann ekki vera búinn að fá til þess leyfi. Vildi hann fara sem fyrst kon ryn A til a m rvb Q 111 snjó því loftþrýstingur snjóflóðsins hefði brotið glugga á húsinu. „Snjóflóðið hefur farið á báða vegu út fyrir þekkt snjóflóðamörk. Talið var að innri mörkin væru 70-80 metrum frá Sólbakka en greinilegt er að það hefur farið yfir garðinn °g yfir gamlan grunn á húsi ömmu minnar. Það hefur tekið jeppann minn sem stóð á plani og fært niður í sjó. Ég var í stjórnstöð Almannavarna ríkisins í gær og er ákaflega þakklát- ur að hafa getað fylgst með hvað allt gekk stórkostlega vel. Ég get ekki annað séð en að allt hafi verið gert sém mögulegt var,“ segir Einar Oddur Kristjánsson. Lætur eftir sig dóttur ek/ci aj olctóberbólcunum loaySakta.l'M,- HALLDÓR Ólafsson, sem fórst í snjóflóðinu á Flateyri, var ekki 20 ára, eins og fram kom Morgunblað- inu í gær, heldur 24 ára. Þá var ranghermt að Halldór væri barn- laus. Hann lætur eftir sig litla dótt- ur, Hrafnhildi Ósk, fimm ára. Beðizt er velvirðingar á rang- herminu, sem stafaði af því að Morgunblaðið hafði rangar upplýs- ingar í höndum. Þá urðu mistök við tæknivinnslu þess valdandi að nöfn hjónanna Gunnlaugs P. Kristjánssonar og Geirþrúðar Friðriksdóttur féllu út úr upptalningu um þá látnu í Flat- eyrarslysinu á bls. 2 í gær. Hjónin bjuggu í Tjamargötu 3. Þau láta eftir sig sex uppkomnar dætur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.