Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR í snakki z Bugles lúðrar Maarud flögur Kim's snakk Þykkva- bæjar skffur Piknik kartöflu- stautar Mettaðar fitusýrur (hörð fita) 92,6% 47,3% 40,8% 39,3% 21,6% Einómettaðar fitusýrur 5,5% 41,5% 45,2% 47,6% 69,3% Fjölómettaðar fitusýrur í> 1,4% 10,0% 12,8% 12,4% 2,2% Annað <^\í /y' 0,5% 1,2% 1,2% 0,7% 6,9% Fituhiutfall af heild 26,8% 38,1% m 26,6% 16,3% laí„32,0% ! ^ ■FBTÍTA _ í kökum Myliu * sandkaka Þýsk marsipan- kaka Mettaðar f itusýrur (hörð fita) 31,6% 36,0% Einómettaðar fitusýrur 42,5% 46,2% Fjölómettaðar fitusýrur 13,5% 6,4% Annað 12,4% 11,4% p|TA Gunnars Bandarískt í majonesi B majones majones Mettaðar fitusýrur (hörð fita) 7,4% 14,6% Einómettaðar fitusýrur 59,7% 28,4% Fjölómettaðar fitusýrur 30,9% 55,3% Annað 2,0% 1,7% í matarolíu Wesson sólblóma- olía Kraft 1 kornolía Kraft jurtaolía Filippo Berio ólífuolfa (extra virgin) Filippo Berio ólífuolía Sojaolía frá Smjör- líki hf. Mettaðar fítusýrur (hörð fita) 9,8% m 12,7% 15,0% 16,2% 26,1% 14,8%e Einómettaðar fitusýrur 13,5% 24,5% 21,6% 72,4% 70,3% 22,8% Fjölómettaðar fitusýrur 75,8% 62,1% 62,6% 10,0% 13,0% 61,8% Annað 0,9% 0,3% 0,8% 1,4% 0,6% 0,6% í smjöri og smjörlíki Mettaöar fitusýrur (hörö fita) Einómettaðar fitusýrur Fjölðmettaðar fitusýrur Annað Smjör Smjörvi Létt & laggott Létta ÉéáS Klípa Sólblóma 65 Sólblóma 40 Blóma- Ljóma soja smjörlíki s Kjarna smjörlíki Jurta smjörlíki 65,9% 49,2% 55,4% 26,0% 59,2% 21,4% 13,7% 20,7% 41,4% 22,7% 35,6% 28,0% 25,9% 25,1% 37,4% 25,9% 39,6% 36,6% 30,3% 43,7% 64,6% 40,1% 1,0% 22,2% 14,6% 34,2% 12,3% 32,9% 46,4% 45,7% 11,8% 6,5% 17,7% 5,1% 2,7% 4,9% 2,4% 2,6% 6,1% 3,3% 3,3% 3,1% 6,2% 6,6% „MÉR KOM mest á óvart hversu mikið er af harðri fitu í snakkij kartöfluflögum og þess háttar. I Bugles-kornlúðrum er fituhlutfall tæplega 27% og þar af eru 92,6% mettaðar fitusýrur, sem eru taldar óheppilegar þar sem þær auka LDL-kólesteról í blóði,“ segir Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir, sem nýlega gerði rannsókn á feit- meti. Bergþóra er 24 ára ogstund- ar nám í lífefnafræði við Háskóla íslands, en rannsóknina vann hún fyrir Sigmund Guðbjamason 0g naut einnig styrks frá Nýsköpun- arsjóði. Sá sem matreiðir veltir jafnan fyrir sér öðrum eiginleikum fitu en næringar- eða matvælafræð- ingur. Hitunareiginleiki fitu eða olíu, ásamt bragði, skiptir hinn fyrrnefnda mestu máli meðan næringar- eða matvælafræðingur er líklegri til að velta fyrir sér hvort fitan er mettuð, einómettuð eða fjölómettuð. Góð og vond fita Fjölómettuð fita er álitin tiltölu- lega holl, einómettuð skaðlaus en mettuð (hörð) slæm. Bergþóra bendir á að það geri sér ekki all- ir grein fyrir því að fita í matar- æði er mikilvæg orkuuppspretta fyrir líkamann, rétt eins og kol- vetni og prótein. Olía er m.a. hert til að fjölga notkunarmöguleikum og auka geymsluþol. Grænmetisolíur eru til dæmis oft hertar til að búa til smjörlíki. „Trans-ómettaðar fitu- sýrur myndast fyrst og fremst við herðingu fitu. Þær eru því í hertri jurtafitu og hertri fiskfitu sem gjarnan er notuð í smjörlíki og í matvælaiðnaði. Þær eru óvenju- legar að því leyti að þær finnast ekki í náttúrunni nema í mjög takmörkuðum mæli. Rannsóknir hafa sýnt að mikil neysla á trans- fitusýrum getur hækkað styrk LDL-kólesteróls, slæma kólester- ólsins, í blóðinu, eins og mettaðar fitusýrur gera. Einnig hafa nokkrar rannsóknir sýnt fram á að mikil neysla á trans-fitusýrum lækkar styrk góða kólesterólsins, HDL. Niðurstöður úr rannsóknum mínum sýndu að Ljóma-smjörlíki hefur hæst hlutfall trans-fitusýra af þeim afurðum sem rannsakað- ar voru. Það kom raunar ekki á óvart því í Ljóma eru hertar fi- skolíur. Langminnst er af trans- fitusýrum í smjöri, sem ekki kem- ur heldur á óvart því þó að hreint smjör sé ekki unnið úr hertum olíum er vitað að trans-fitusýrur * Rannsókn á feitmeti á Islandi undimar líkari kartöfludufti. Þykkvabæjar-skrúfur komu best út af snakki í rannsókninni, með tilliti til fituhlutfalls, sem var 16%.“ Kökur Tvær kökur voru í rannsókn Bergþóru, Marsipan-kaka frá Kuchen Meister og Sandkaka frá Myllunni. „Mælingar mínar stað- festu að smjörlíki sem notað er í bakaríum er oft úr hertum fisk- olíum. Minna virðist þó vera af þeim í smjörlíki sem notað er við bakstur á íslensku sandkökunni en þýsku marsípankökunni." Majones Bergþóra kannaði fitusýr- ur í Gunnars- | majonesi, sem framleitt er af Gunnarsmay- onnaise sf. og Hellmann’s Real, sem framleitt er í Bandaríkjunum. „Mettaðar fitu- sýrur eru helmingi fleiri í bandarísku af- urðinni, en einnig er tals- vert meira af íjölómettuðum fitusýrum í henni. í Gunnars-majo- Hörð fita leynist víða í matvælum rannsókn á feitmeti sem algengt er á Hlutfall fitu í matvælum segir ekki alla söguna um hollustu, því miklu skiptir hvers eðlis fítan er. Brynja Tomer vissi lítið sem ekkert um mun á góðu og vondu kólesteróli og enn minna um slæmar og góðar fítusýrur fyrr en eftir samtal sitt við Bergþóru Hlíðkvist Skúladóttur, sem nýlega gerði athyglisverða íslenskum heimilum. verða til með náttúru- legum hætti í maga nautgripa.“ Bergþóra áréttar að mikla neyslu þarf til að trans-fitu- sýrur hafí þessi nei- kvæðu áhrif, en eigi að síður sé full ástæða til að vera meðvitaður um magn þessara fitu- sýra í matvælum. Matarolía Bergþóra fitusýru- greindi sex tegundir af matarolíu, Wesson-sól- blómaolíu, Kraft-korn- oliu, Kraft-jurtaolíu, Filippo Berio-ex tra vergin-ólífuolíu, Fílippo Berio- ólífuolíu og Soja-olíu frá Smjörlíki hf. „Hæst hlutfall af fjölómettuð- um fitusýrum var í sólblómaol- íunni frá Wesson. Samsetning á fítusýrum var aftur á móti mjög lík í jurtaolíu frá Kraft og ís- lensku sojaolíunni og er sú sam- setning mjög góð miðað við það sem talið er æskilegt í neyslu manna. Það kom mér á óvart að hæst hlutfall af mettuðum fitusýrum er í ólífuolíunum. Það er því greinilega eitthvað annað en samsetning á fitu- sýrum sem gerir þær jafn eftirsóttar og raun ber vitni.“ Smjör og smjörlíki Smjör og smjörlík- istegundir sem Berg- þóra rannsakaði voru: Sólblóma 65, Sólblóma 40, Létta, Smjörvi, Blómasoja, Ljóma, Klípa, Smjör, Kjarna, Létt oglagg- ott, og Jurta.. „Samsetning á þessum afurðum er mjög fjölbreytt. Langmest er af fjölómettuðum fitusýrum í Sól- blóma 40 og mest er af mettuðum fítusýrum í smjöri, tæplega 66%, sem kemur ekki á óvart. Meira er af mettuðum fitusýrum í Smjörva, Klípu og Létt & laggott en í smjörlíki sem notað er í bakst- ur, Kjarna, Jurta og Ljóma. Þó ber að hafa í huga að viðbitsteg- Bergþóra Hlíðkvist Skúladóttir undirnar eru yfírleitt fítuskertar en ekki smjörlíkið. Hagstæðasta samsetning á smjörlíki sem viðbiti væri að hafa sem minnst af fitu og hlutfallslega lítið magn af mett- aðri fitu.“ Bergþóra segist hafa orðið ánægð að sjá að samræmi var milli innihaldslýsinga og niður- staðna hennar. „Það sýnir að vel er staðið að merkingum hjá þess- um framleiðendum og að ástæðu- laust er að rengja það sem stend- ur á umbúðum.“ Kartöfluflögur Bergþóra kannaði samsetningu á fítusýrum í Bug/es-snakki, Maruud-kartöfluflögum með salt- og piparbragði, Kim’s, Þykkva- bæjar-skrúfum með papriku og Pj'kn/k-kartöflustrimlum. „Samsetningin var mjög ólík, en ef höfð eru í huga slæm áhrif af mettuðum fitusýrum á hjarta- og æðakerfi er Ijóst að sneiða ætti hjá Bugles. I þessum korn- lúðrum eru nær 93% af fitunni mettaðar fítusýrur. Þetta er þó ekki feitasta snakkið, því fituhlut- fall í Maarud-flögum var hæst, 38%. Það kom mér raunar ekki á óvart, því þegar ég malaði flögurn- ar fyrir mælingu, urðu þær að olíukenndum graut, en hinar teg- nesi er aftur á móti mest af ein- ómettuðum fitusýrum, sem hvorki eru taldar hollar né óhollar. Þessar niðurstöður sýna greinilega að þessir tveir framleiðendur nota mismunandi hráefni." Bergþóra segir það hafa í alla staði verið mjög lærdómsríkt að gera þessa rannsókn. „Það er ómetanleg reynsla að gera rann- sókn frá upphafí til enda og ólíkt því sem við gerum dags daglega í skólanum. Eg var með aðstöðu á Raunvísindastofnun Háskóla Is- lands, þar sem starfsfólk var mjög hjálplegt og leiðbeindi mér eftir þörfum. Mér fannst gaman að vinna fyrir Sigmund Guðbjamason og vona að ég komi til með að vinna meira fyrir hann í framtíð- inni.“ Hún telur mikilvægt að gera frekari rannsóknir á fituefnasam- setningu í matvælum okkar, bæði innlendum og innfluttum. „Neyt- endur verða að geta gert sér grein fyrir því að margar fæðutegundir eru mjög fituríkar, t.d. kartöflu- flögur og annað nasl. Jafnframt er mikilvægt að þeir viti hvort of mikið eða lítið er af mettuðum eða ómettuðum fitusýr- um í fæðunni og hvort þessar fitu- sýrur eru í æskilegum hlutföllum." \ ) ) ) ) i > i ! > l \ i l í I L I I I I I ! I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.