Morgunblaðið - 28.10.1995, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 23
ERLENT
Heitir að virða
stjómarskrána
Reuter
IMELDA Marcos, fyrrverandi for-
setafrú Filippseyja, sór í gær eið-
staf þingmanna og tekur því sæti
í fulltrúadeild þings landsins.
Myndin var tekin við athöfnina.
Hét hún við það tækifæri að hafa
stjórnarskrá landsins í heiðri.
Aðeins er um áratugur frá þvi
Imelda flýði land ásamt Ferdinand
Marcos manni sínum með smán.
Hann hrökklaðist frá völdum eftir
að hafa sljórnað landinu í 20 ár,
þar af í níu ár með herlögum. Frú
Marcos er tákngervingur spilling-
ar sem viðgekkst í stjórnartíð
manns hennar. A hún enn yfir
höfði sér 18 ára fangelsisvist
vegrna dóma sem hún hefiu- hlotið.
Áfrýjaði hún dómnum á sínum
tíma og búist er við því að jafnvel
einhver ár líði þar til niðurstaða
fæst. Verði áfrýjuninni hafnað
missir Imelda Marcos sjálfkrafa
þingsætið, sem hún vann í kosn-
ingum sl. maí.
■ wMramuv - ,„.v, v.m
Reuter
KOSNINGASPJALD í Varsjá með mynd Kwasniewskis. Máluð
hefur verið stjarna Sovétríkjanna gömlu á spjaldið.
Forsetakosningar fram undan í Póllandi
Walesa sópar
að sér fylgi
Reuter. t/ *
Varsjá. Reuter.
KAPPHLAUPIÐ um sigur í pólsku
forsetakosningunum, sem fram eiga.
að fara 5. nóvember næstkomandi,
stendur nú einungis milii tveggja
manna, Lechs Walesa forseta og
Aleksanders Kwasniewskis, fram-
bjóðanda flokks fyrrum komm-
únista.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Walesa vaxið ásmegin að und-
anförnu og það svo mikið að stjórn-
málaskýrendum þykir furðu sæta.
Þannig hefur hann aukið fylgi sitt
um 10 prósentustig frá í september.
Forsetinn sigurviss
Walesa sagði á sunnudag að hann
hefði nú forystu í kapphlaupinu um
forsetastólinn. Aðstoðarmenn for-
setans sögðust aðspurðir ekki kann-
ast við að nýjar kannanir hefðu ver-
ið birtar og gátu því ekki skýrt orð
hans. Forsetinn kvaðst algjörlega
sannfærður um að hann færi með
sigur af hólmi í kosningunum.
Það orð hefur farið af Walesa að
hann sé fádæma kraftmikill stjórn-
málamaður og þykir hann því standa
undir nafni nú. Að sögn stjórnmála-
skýrenda er ástæðan fyrir hraðri
fylgisaukningu hans undanfarnar
vikur sú, að honum hefur tekist að
sannfæra kjósendur um að pólsk
stjórnmál snúist enn um að kalla
yfir sig kommúnisma eða andstæðu
hans og hann sé sé eini raunhæfi
valkosturinn gegn kommúnistum.
„Valið mun standa milli Walesa
og Kwasniewskis," sagði blaðið
Zycie Warzawy um helgina. Sam-
kvæmt könnun sem virt stofnun
hafði unnið fyrir blaðið naut Walesa
fylgis 22% kjósenda, miðað við 17%
vikuna áður. Fylgi Kwasniewskis
hafði staðið í stað frá fyrri viku og
mældist 27%.
Fylgishrun
Nokkur stemning hefur verið í
kringum framboð Hönnu Gronki-
ewicz-Waltz seðlabankastjóra og
helsta frambjóðanda hægrimanna,
sem allt eins hefur verið talin koma
til greina sem forseti. Nú hefur hins
vegar fylgi hennar dvínað, sam-
kvæmt könnun Zycie Warzawy og
mælist aðeins 8%. Hefur það minnk-
að um helming á þremur vikum.
Fylgi annarra frambjóðenda, svo
sem Waldemars Pawlaks og Jaceks
Kurons, mælist mun minna.
lauga