Morgunblaðið - 28.10.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Milljarða-
tugirí
leynisjóð-
um
ROH Tae-woo, fyrrverandi for-
seti Suður-Kóreu, kom fram í
sjónvarpi í gær og bað landa sina
afsökunar á því að hafa sankað
saman fé, rúmlega 42 milljörðum
ísl. kr., í leynilega sjóði í forseta-
tíð sinni. Var féð notað i pólitísku
skyni að mestu leyti en hann
hélt þó sjálfur eftir rúmlega 14
milljörðum kr. þegar hann fór
úr embætti. Getur þetta haft al-
varlegar afleiðingar fyrir núver-
andi forseta, Kim Young-sam, og
almenningur i Suður-Kóreu er
ævareiður þeirri yfirgengilegu
spillingu, sem lýsir sér i þessu
máli. Hér er fólk að hlýða á af-
sökunarræðu Roh Tae-woos.
Chirac, forseti Frakklands, vendir sínu kvæði í kross
Boðar tíma aðhalds
og niðurskurðar
París. Reuter.
JACQUES Chirac, forseti Frakklands, hefur farið fram
á það við þing og þjóð, að lækkun íjáriagahallans verði
gerð að „forgangsmáli allra forgangsmála" og nefnir
ekki lengur kosningaloforðin frá í vor um aukna atvinnu
og meiri jöfnuð milli þegnanna. Á stuttum forsetaferli
sínum hefur Chirac slegið nýtt met í óvinsældum og á
fjármálamarkaðinum eru trúverðugheit hans dregin í efa
en hann svarar því til, að hann hafi ekki verið kosinn til
að vera vinsæll.
Chirac sagði á þingi, að framundan væru tvö erfið
ár aðhaldssemi og niðurskurðar og fékk það góðan hljóm-
grunn hjá þingmönnum stjómarflokkanna en stjómar-
andstaðan sakaði hann um að hafa meiri áhyggjur af
fjármálamarkaðinum en fólkinu í landinu.
-Það kemur í hlut Alain Juppes forsætisráðherra að
laga fjárlagahallann áður en kemur til evrópsku myntein-
ingarinnar 1999 en staða hans sjálfs er þó mjög óviss.
Orðrómur ér um, að Chirac hyggist stokka upp í stjóm-
inni og þegar hann var inntur eftir því hvort Juppe yrði
áfram forsætisráðherra sagði hann aðeins, að tíminn
myndi skera úr um það.
Áhættan minnst fyrir Chirac
Boðskapur Chiracs um að kauphækkanir og skatta-
lækkanir hjá hinni fjölmennu fylkingu opinberra starfs-
manna verði að bíða í tvö ár á vafalaust eftir að mæta
mikilli andstöðu en svo virðist sem þingmenn stjómarinn-
ar séu sammála um nauðsyn þessara aðgerða. Raunar
er áhættan kannski minnst fyrir Chirac sjálfan, sem er
á sinu fyrsta ári af sjö í embætti og getur varla farið
neðar á vinsældalistanum. Samkvæmt skoðanakönnun,
sem birt var á fimmtudag, eru aðeins 14% kjósenda
ánægð með frammistöðu hans.
„Eg veit af eigin reynslu, að landsstjórnin er erfitt
verk en líklega vanmat ég það engu að síður,“ sagði
Chirac í sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld.
Steinar Berg Björnsson,
nýr framkvæmdastjóri
Friðagæsluliðs SÞ í Júgó-
slavíu og Kofi Annan, sem
verður þar sérlegur full-
trúi Boutros Boutros-Gali.
Steinar
Berg til
SÞ í Júgó-
slavíu
Reuter
I N? % > /'.i C:r!wS$-M
Þingmaðurinn Austin Mitchell um fyrstu skref væntanlegrar stjórnar Blairs
BRESKI þingmaðurinn
Austin Mitchell, sem
staddur er hér á landi,
er einnig þekktur íjöl-
miðlamaður og andstæðingur Evr-
ópusambandsins, ESB. Núna er
hann annar stjómenda viðtalsþátt-
arins Target á Sky-sjónvarpsstöð-
inni sem er í eigu fjölmiðlakóngsins
hægrisinnaða, Ruperts Murdochs.
Mitchell er spurður hvort ókeypis
kosningaauglýsing af þessu tagi
vaidi ekki öfund annarra þing-
manna flokksins.
„Það getur vel verið. Ég var
talsmaður flokksins í viðskipta- og
iðnaðarmálum en Neil Kinnock rak
mig, að ég held fyrst og fremst
fyrir að taka við þessu starfi.
Murdoch var á þeim ámm sjálfur
myrkrahöfðinginn holdi klæddur í
augum flokksmanna. Núna er Tony
Blair að reyna að vingast við hann,
mér hefur ekki verið boðið neitt
en ég vil gjaman starfa í næstu
stjóm. Tony Blair er ekki hrifínn
af mér vegna þess sem ég hef sagt
um ESB“, segir Mitchell hlæjandi.
Hann hefur verið þingmaður
fyrir Grimsby frá 1977 þar sem
hann tók við af Anthony Cross-
land, þekktum stjómmálamanni og
ráðherra er kom mjög við sögu í
fískveiðideilunum 1976.
Mitchell segir að hörmulega sé
Áframhald
ofar á baugi
en breytingar
komið fyrir útgerð og
fiskvinnslu í Grimsby,
þar séu nú aðeins um
40 fískiskip alls og
þau keppi um aflann
á hefðbundnum mið-
um sínum við skip
annarra ESB-þjóða.
Spænskar útgerðir
notfæri sér svonefnt
kvótahopp til að
kaupa upp útgerðar-
leyfí í Bretlandi og
þær séu mjög óvinsæl-
ar í Grimsby. „Bresk
stjómvöld geta ekkert við þessu
gert, Evrópudómstóllinn hefur úr-
skurðað að Spánverjar séu í fullum
rétti“, segir þingmaðurinn.
Hann segir hags-
muni Breta í efna-
hagsmálum ólíka
hagsmunum flestra
annarra aðildarríkja.
Þeir hafi t.d. þurft
að punga út stórfé
vegna landbúnaðar-
stefnu ESB sem
byggist á fáránlegu
og ofvöxnu styrkja-
og niðurgreiðslu-
kerfí.
„Það er ekkert já-
kvætt í ESB-sam-
starfínu sem við gætum ekki öðl-
ast með samvinnu þótt við stæðum
fyrir utan sjálf sambandið. Við
fórum inn til að hafa áhrif og það
Austin
Mitcheli.
hefur ekki tekist. ESB er í aðal-
atriðum frönsk-þýsk valdablokk“.
„Getur gengið á vatninu"
Tony Blair hefur sveigt flokk
sinn mjög inn á miðju og uppskor-
ið harða gagnrýni nokkurra gam-
alla vinstrisinna. Mitchell segir að
hvað sem því líði sjái allir að Bla-
ir muni leiða flokkinn til valda í
næstú kosningum „enda getur
hann bókstaflega gengið á vatrrinu
núna“. Blair hyggist halda völd-
unum lengi til að marka ótvíræð
spor.
Mitchell er spurður um muninn
á stefnu stóru flokkanna tveggja.
Hann segir að fólk sé með réttu
óánægt með efnahagsástandið og
atvinnuleysið, vandamál sem
íhaldsmenn eigi engin svör við,
þeir séu hugmyndasnauðir. Blair
hafi hins vegar höfðað mjög til
miðjumanna, honum muni því
reynast örðugt að sættast við hefð-
bundin vinstriöfl í Verkamanna-
flokknum og gera samtímis öðrum
til hæfís.
„Það er rétt að það verða ekki
nein skyndileg og róttæk umskipti
þegar Verkamannaflokkurinn nær
völdum, fólk mun fremur taka
eftir áframhaldi en mun. En breyt-
ingar verða, þær geta orðið miklar
en munu taka nokkurn tíma.“
STEINAR Berg Björnsson er
kominn til Zagreb í Króatíu, þar
sem hann hefur tekið við sem
framkvæmdastjóri stjórnunar-
sviðs UNPROFOR, Friðargæsl-
uliðs Sameinuðu þjóðanna í fyrr-
verandi Júgóslavíu.
Þar eru í gangi ýmiskonar
breytingar. Kofi Annan, aðstoð-
arframkvæmdastjóri SÞ, sem
undanfarin 3 ár hefur verið yfir-
maður allrar friðargæslu sam-
takanna, verður nú um sinn að
minnsta kosti sérlegur sendi-
maður Boutros Boutros-Gali í
landinu. Samtímis hefur Steinar
Berg verið sendur þangað sem
framkvæmdastjóri stjórnunar-
sviðs (Director of Administrati-
on). En í fyrrum Júgóslavíu er
nú um 30 þúsund manna friðar-
gæslulið frá fjölmörgum þjóðum
með umfangsmikinn rekstur,
reksturskostnaður skv. áætlun
fyrir seinni hluta ársins 1995 er
nálægt 52 milljarðar íslenskra
króna.
Steinar sagði í stuttu símtali
við Morgunblaðið að.hann væri
nýkominn á staðinn og að kanna
og átta sig á hlutunum, sem
væru mikið í lausu lofti: „Það
sem gerir reksturinn flókinn er
óvissan um hvemig framhaldið
verður. Við höfum á þessari
stundu ekki hugmynd um hve
lengi friðargæslan verður hér í
þessu formi.“
„Þátttaka friðargæsluliðs SÞ
fer eftir ákvarðanatöku um
framhaldið, um hvar áherslan í
friðargæslunni kemur til með að
liggja. Það er allt galopið á þess-
ari stundu, hvort Bandaríkja-
menn koma inn í hana og/ eða
NATO. Á meðan er viðfangsefni
okkar að reka UNPROFOR hér,
í því liggja miklir fjármunir.“
„Maður vonast auðvitað til
þess að samningar náist á hinum
pólitíska vettvangi. Ef samning-
ur gengur í gegn, þá verður
hægt að draga saman hér. Til-
gangurinn með friðargæslunni
er að árangur náist og hægt sé
að pakka saman og fara og það
vonar maður auðvitað."
Langur vinnudagnr
Steinar hefur aðsetur í höfð-
uðstöðvunum í Zagreb. Hann
sagði að lífið þar snerist um
langan vinnudag, sérstaklega
meðan hann er að byija á nýjum
stað. Síðasta verkefni Steinars
var framkvæmdastjórn hjá
friðargæsluliðinu í Sómalíu og
brottflutningi þess, en áður var
hann framkvæmdastjóri
Friðargæsluliðs SÞ í Líbanon, í
Gólanhæðum og við friðargæslu
á landamærum írans og íraks
þar til Flóastríðið braust
út.„Maður tekur við næsta
verkefni sem manni er fengið
og reynir að skila því þokkalega.
Þetta er mjög áhugavert og
gaman að fá að taka þátt í því“,
sagði hann að lokum.