Morgunblaðið - 28.10.1995, Side 36

Morgunblaðið - 28.10.1995, Side 36
36 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ OSKAR G. INDRIÐASON + Óskar G. Indr- iðason fæddist í Asatúni í Hruna- mannahreppi 1. apríl 1910. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 19. október síðastliðinn. For- eldrar hans voru Indriði Grímsson frá Ásakoti í Biskups- tungum, síðar bóndi í Ásatúni, f. 17. maí 1873, d. 19. april 1928, og kona hans Gróa Magnúsdóttir frá Bryðjuholti, Hrunamannahr., f. 21. ágúst 1877, d. 6. júní 1939. Indriði var sonur Grims Guðmundssonar frá Kjaranstöðum, síðar bónda í Ásakoti, Biskupstungum. Móðir Indriða var Helga Guðmunds- dóttir frá Brekku í Biskups- tungum. Gróa var dóttir Magn- úsar Jónssonar frá Efra-Lang- holti, síðar bónda í Bryðjuholti í Hrunamannahr. Móðir Gróu var Guðný Einarsdóttir frá Bryðjuholti. Óskar var fimmti í 11 systkina hópi. Þau voru í aldursröð Guðný, f. 1902, lést þriggja vikna. Magnús, f. 22.9. 1903, d. 1994. Sig- ríður, f. 13.8. 1905, d. 1973. Óskar, sem hér er kvaddur. Guðný, f. 23.12. 1912. Helgi, f. 30.1. 1914, d. 1995. Guð- mundur, f. 15.5. 1915. Laufey, f. 24.2. 1917. Jakob, f. 11.11. 1918, d. 1991. Kristinn, f. 1.5. 1920, d. 1936. Óskar bjó í Ásatúni ásamt Hallgrími sem nú er látinn og Laufeyju, systkinum sínum, og stundaði þar búskap alla sína starfsævi. Hann fluttist ásamt systur sinni að Flúðum, í íbúðir fyrir aldraða, 1989. Óskar var ókvæntur og barnlaus. Útförin fer fram frá Hruna- kirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15.00. Nú vakna þú ísland við vonsælan glaum af vorbylgjum tímans af djúpi. Byrg eyrun ei lengur fyr aldanna straum en afléttu deyfðanna hjúpi. Og drag þér af augum hvert dapurlegt ský sem dylur þér heiminn og fremdarljós ný. (Steingr. Thorst.) Þetta dýrðlega ættjarðarljóð orti skáldið á erlendri grund þegar þjóð- hátíð var í nánd (1874) og það sá úr fjarlægð landið rísa úr hafi með hvítum jöklum og dimmbláum heið- um. En það sá um leið fyrir hugar- augum lengra fram nýja öld rísa með óþekktum fyrirheitum. Og ný aldarsól reis og í framtíðar- sýn kvað Hannes Hafstein í alda- mótaljóðum: íslenskir menn, hvað öldin ber í skildi, enginn fær séð, hve feginn sem hann vildi. Eitt er þó víst, hún geymir Hel og Hildi. Hlífi þér, ættjörð, Guð í sinni mildi. í kjölfar þessara frelsishugsjóna fylgdi boðskapur ungmennafélag- anna sem kveikti neista í btjósti æskunnar í landinu er sá í hillingum framfarir komandi aldar. Þessa er vert að minnast við and- lát og burtför þessa samferðamanns og vinar, Óskars Indriðasonar. Hann fæddist á morgni þessarar aldar þegar slíkar hugsjónir lágu í loftinu, sem raunar mótuðu hann alla tíð og urðu snar þáttur í lífsstefnu hans og viðhorfi. Óskar Indriðason fæddist á bæ þeim í Ytri-Hrepp er Snúss hét en hlaut síðar nafnið Ásatún. En þar hófu búskap árið 1902 foreldrar hans Indriði Grímsson frá Ásakoti í Biskupstungum og kona hans Gróa Magnúsdóttir frá Bryðjuholti í Ytri- Hrepp. Þau eignuðust níu börn og var Oskar þriðji í röðinni. Þetta var gamalt býli, áður fyrr hjáleiga frá Efra-Langholti. Jörðin landlítil og litlir afkomumöguleikar fyrir barn- marga fjölskyldu. Bærinn stendur austan undir lágum ás norðan undir Langholtsfjalli. Útsýni er þar lítið en vinalegt þar heima. Ekki ósenni- legt að álfar byggju þar nærri ef til væru. Þegar undirritaður kom í þessa sveit árið 1942 gat ekki heitið að hann þekkti þar nokkurn mann. En hann hafði unnið með og kynnst nokkuð tveimur bræðranna við hafn- arvinnu í Reykjavík veturinn áður. En þeir fengu svo slægjur um haust- ið á Hvítárholtsengjum og öfluðu heyja handa hestum. Kynni okkar Óskars fóru vaxandi með árunum, þar sem áhugamálin áttu samleið að ýmsu leyti. Auk þess má geta þess hér, að ættir beggja eru raktar til sama bæjar í sveitinni, að Bryðjuholti. Árið 1788 bjó þar Einar Bjarnason og fyrri kona hans Guðrún Kolbeins- dóttir. Þeirra sonur var Sigurður Einarsson bóndi í Gelti í Grímsnesi — langafi undirritaðs. Síðari kona Einars Bjarnasonar hét Sigríður Jónsdóttir frá ísabakka. Þeirra sonur -var Einar Einarsson bóndi í Bryðju- holti — langafi Óskars Indriðasonar. Indriði Grímsson lést 1928 en Gróa kona hans 1940. Þá hafði jörð- in fengið nýtt nafn og heitir síðan Ásatún. Að móður sinni látinni tóku systk- inin þijú við búi, Óskar, Hallgrímur og Laufey. Áður en faðir þeirra lést, hafði hann náð að festa kaup á ein- um þriðja Efra-Langholts sem var sjálfstæð jörð. En þá urðu að sjálf- sögðu skilyrði til búskapar betri og allt önnur. Búskaparsagan verður ekki rakin hér, en allt var byggt upp á jörðinni og allt blómgaðist með snyrtimennsku og myndarskap. Hallgrímur lést 1983 en Óskar og Laufey héldu áfram þar til að þau létu jörðina í hendur bróðursyni sín- um og konu hans en fluttu að Flúð- um, á Dvalarheimili aldraðra. Þegar nú litið er yfir farinn veg og liðna ævi þessa látna samferða- manns, verður mynd hans ekki tæm- andi hjá þeim sem ekki hefur þekkt hann frá því fyrsta. Umhverfið skap- ar manninn er einhversstaðar sagt. Mun það rétt að vissu leyti. En Ósk- ar var ef segja mætti fyrst og fremst bóndi. En fátæktin og alvarleg veik- indi sem um hríð gengu yfir heimil- ið hafa mótað vissan þunga honum í sinni. Auk þess átti hann sjálfur, jafnvel frá unga aldri, við veikindi áð stríða, lá margar spítalalegur; var eitt sinn sendur út til Noregs til aðgerðar. — Ungur sá hann í anda bú sitt vaxa, tún breiðast út og þrif- legan fénað dreifa sér um haga og rekinn til öræfa á vorin. Og honum varð að ósk sinni. Hann hafði yndi af skepnum sínum, sem urðu falleg- ar og vel fóðraðar í höndum hans. En einkum voru það þó hestar. Hann bar mikla elsku til þeirra. Þótt Ósk- ar væri ekki bjartsýnismaður var hann framfarasinnaður og fljótur að tileinka sér nýjungar. Hann var fé- lagslyndur, sat í stjórn ungmennafé- lagsins og um skeið formaður hrossaræktarfélags. Hann fylgdi samvinnustefnunni og leit björtum augum til alþýðuskólanna, þar sem æska landsins gat notið menntunar. En það mun hafa verið honum þung- bært að geta ekki notið þess vegna fátæktar og veikinda heima fyrir. En honum var svo háttað, að þótt hann ekki nyti þess sjálfur, þá vildi hann geta séð æsku landsins vaxa að menning og þroska og studdi hvarvetna ungt fólk til dáða. Hann var handlaginn, reglusemi og snyrti- mennska rík í fari hans, en sérlega nákvæmur í hveiju sem var. En Óskar sá fleira en hina efnis- legu og hagkvæmu hlið hlutanna. Hann hafði glöggt auga fyrir fegurð og dýrð náttúrunnar. „Og hugurinn gat farið því víðara sem heimahag- amir voru þrengri," sem sagt var um eitt góðskáld þjóðarinnar. Og þótt hann ekki nyti annars en barna- fræðslu, var hann, ef svo bar undir, vel ritfær, hafði næma skynjun fyrir biæbrigðum máls bæði í ræðu og riti. Þótt hlédrægur væri, hafði hann mikla tjáningarþörf sem fram kom í ræðumennsku er hann iðkaði því meir sem á leið. Þá bar það við, vegna innri hita, að málið hlýddi honum svo að áheyrendur hrifust með, jafnvel svo að eftirminnilegt var. Þá mætti minnast þess að nú er sauðkindinni flest til foráttu fund- ið, þannig að landeyðing blasi við, að Óskar gat hennar eitt sinn í tæki- færisræðu með orðunum. „Þetta drifhvíta náttúrubarn". Óskar skrifaði ekki opinberlega utan eina minningargrein um látinn vin sinn nú á efri árum. En eftir hann liggur nokkuð í handritum sem hann hefur e.t.v. skrifað í kyrrð vornæturinnar að loknu dagsverki. Þar kunna að finnast gullkorn innan um. Óskar kvæntist ekki né átti af- komendur, en hann sá framtíðina í æsku landsins. Hann náði háum aldri þrátt fyrir heilsuleysi allt frá æsku til elliára. En hann var ekki einn, Laufey systir hans stóð jafnan við hlið hans og annaðist hann af frábærri um- hyggju og fórnfýsi þar til yfir lauk og andlát hans bar að á sjúkrahúsi Suðurlands þ. 14. október síðast lið- inn. Óskar er nú farinn burt í ferð þá sem allir eiga fyrir höndum. Ef inni er þröngt tak hnakk þinn og hest og hleyptu burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm, það er best út, að heiman, ef þú berst i vök. (E.B.) Sigurður Sigurmundsson frá Hvítárholti. Þegar við kveðjum góðan og gamlan vin koma margar minning- ar upp í hugann. Hann Óskar í Ásatúni, nágranni okkar í marga áratugi, yfírgaf þetta jarðlíf frá Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, eftir langvarandi vanheilsu en stutta dvöl í sjúkrahúsinu. Óskar Indriðason var fæddur í Ásatúni 10. apríl árið 1910. Hann átti þar heima alla sína ævi, utan síðustu árin er hann bjó á Heima- landi á Flúðum ásamt systur sinni, Laufeyju. Mín fyrstu kynni af Ásatúnsfjöl- skyldunni voru þau að ég, sem ung- ur drengur, var sendur að Ásatúni einhverra erinda sem ég man ekki hver voru, en þegar erindinu var lokið kom Gróa móðir þeirra systk- ina með þykka brauðsneið með kjötáleggi og gaf mér. Þetta atvik hefur lifað í minningu minni og hefur mér æ síðan verið hlýtt til þeirra systkina og móður þeirra, enda oft notið greiðasemi þeirra og vináttu. Árið 1928 þegar Óskar var átta ára gamall missti hann föður sinn og bjuggu þau systkinin með móður sinni til ársins 1940 er hún lést. Það voru harðir tímar og kreppa á fjórða áratugnum og_stór systkina- hópurinn í Asatúni. Óskar bar þess merki æ síðan, að fara vel með alla hluti og eyða ekki um efni fram. Árið 1940 eignuðust þau systkinin Hallgrímur, Oskar og Laufey jörð- ina. Óskar í Ásatúni er af svokallaðri aldamótakynslóð, einn af vormönn- um íslands. Hanri var hugsjóna- maður sem vildi fegra landið, rækta og stækka túnin, bæta bústofninn og auka velsæld hjá komandi kyn- slóðum. Eftir að stórvirkar vinnu- vélar komu til sögunnar voru túnin í Ásatúni margfölduð að stærð, húsakostur allur uppbyggður og frá öllu gengið af einstakri smekkvísi og dugnaði. Óskar var unnandi fegurðarinn- ar. Hann sá fegurðina í náttúrunni, í bláum tindum fjallanna, fannbreið- um jöklanna, bylgjandi faxi á gang- vissum reiðskjóta, grænkandi vor- gróðri túnanna og ekki síst í upp- vaxandi tijágróðri. Skógarreiturinn ofan við bæinn í Ásatúni ber þess glöggt vitni, að þar hefur verið unnið af alúð og natni. Skömmu áður en Óskar hætti búskap vann hann að því að koma upp sumarbústaðabyggð vestan í Langholtsfjalli í landi Ásatúns. Þetta var hans framlag til þess að unga fólkið sem tók við jörðinni hefði af þessu nokkrar tekjur, en framleiðsluréttur hafði dregist sam- an síðustu árin. Óskar sá þennan draum sinn rætast því nú eru sum- arhúsin orðin hátt á annan tug og heitu vatni er dælt til þeirra úr borholu sem er neðan við íbúðarhús- ið í Ásatúni. Á fyrstu áratugum aldarinnar sveif andi ungmennafélaganna yfir vötnunum. Óskar var einn af þeim mönnum sem varð gagntekinn af hugsjón þessarar hreyfingar. Hann vann af alhug og ósérplægni fyrir Ungmennafélag Hrunamanna í ára- tugi og var ætíð reiðubúinn að leggja fram sitt Iiðsinni við þau málefni er til heilla og framfara horfðu. Má þar nefna leiklist og skógrækt, en hann átti dijúgan þátt í að rækta upp skógarreitinn á Álfaskeiði. Á fundum var Óskar maður sátta og samvinnu og hvatti þá ungu til dáða. Þá fylgdist hann vel með unga fólkinu í sambandi við íþróttir eftir að hann fór að eldast. Eitt sinn er Ungmennafélag Hruna- manna hafði orðið sigursælt á Skarphéðinsmóti hitti Óskar unga stúlku daginn eftir mótið, en henni hafði gengið vel í keppninni og stuðlað að sigri í félaginu. Óskar tók í hönd stúlkunnar og þakkaði henni fyrir frammistöðuna. Þetta hlýja handtak og þakkarávarp er ennþá greypt sem perla í minning- arsjóð þessarar stúlku mörgum ára- tugum síðar. Sumir skilja eftir sig gróður í hveiju spori og þannig vildi Öskar vera. Á undanförnum árum höfum við Óskar stöku sinnum rætt saman og þá hefur hann stundum minnst á það hvað tæki við eftir þetta jarð- líf. Á tímabili gætti nokkurs ótta hjá honum með framhaldið. „Ég ' hef ekki verið nægilega góður mað- ur og ég veit ekki hvað verður gert við mig,“ sagði hann. Daginn sem réttað var í Hruna- rétt, um miðjan september síðastlið- inn, heimsótti ég Óskar í sjúkrahús- ið. Hann var þá lamaður að nokkru en andlega heilsan í góðu lagi. Rætt var um fjallaferðir og réttir en þar hafði Óskar verið þátttak- andi lengst af sinni ævi. „Ég vona að ég geti farið á bak honum Hær- ingi mínurn þegar ég kem yfir um,“ sagði Óskar, en sá hestur var honum mjög hjartfólginn. Þá kom örlítill glampi í augu hans og bros- vipra í munnvikin og hann sagði: „Éf ég fæ að hitta hann Jesú þegar ég er korriinn yfir ætla ég að bjóða honum á bak honum Hæringi, svo hann þurfi ekki að ríða þessum asna.“ Þannig var kímnin ofarlega hjá Óskari þótt líkaminn væri illa kominn. „Nú er égtilbúinn að fara,“ sagði hann að lokum. „Ég er búinn að sjá hann Halla bróður, þau ætla mörg að taka á móti mér.“ Ég kvaddi Óskar með þéttu hand- taki og óskaði honum góðrar ferð- ar. „Má ég vinka til þín?“ sagði hann um leið og ég gekk út úr sjúkrastofunni. Við hjónin sendum ykkur systkinum og ástvinum Óskars inni- legar samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll. Skúli, Miðfelli. Mig langar með örfáum orðum að kveðja föðurbróður minn, Óskar Indriðason frá Ásatúni. Þegar ég hugsa um Óskar frænda kemur margt í hugann. í sveitinni hjá þeim systkinum, Laufeyju, Halla og hon- um, var ég oft tíma og tíma og tengdist ég þá Óskari. Ég hugsa að flestum sem minnast Oskars hafi fundist hann frekar stíflyndur og strangur, en ég man hann ekki þann- ig gagnvart mér, hann reyndist mér blíður og ljúfur. Sumarið sem ég varð tíu ára var ég í Ásatúni hjá systkinunum. Óskar minnti mig oft á þennan tíma nú seinni ár, hvernig ég gat endalaust hlaupið og alltaf í stígvélunum sem voru alltof stór, svo hló hann innilega. Óskar var ekki allra. Hann gat oft deilt og átt hörð skoðanaskipti, því rétt skyldi vera rétt. Hann bar hag fólksins síns mjög fyrir bijósti og var ávallt í ábyrgð fyrir allt sem tengdist Ásatúni. Það háði honum hvað hann var heilsutæpur en aftr- aði honum aldrei. Óskar var mikill hugsjónamaður og skrifaði greinar og ræður um sitt helsta áhugamál, hestamennsku og hrossarækt. í fyrrasumar buðu þau Laufey og Óskar mér og fjölskyldu minni til sín að Flúðum, þar sem þau hafa búið síðastliðin ár í íbúð í sambýli eldri borgara. Ég geymi þessa stund ljúft í huga mér, þau systkinin tóku frábærlega á móti okkur með dýrind- is kræsingum og skemmtun. Við Óskar áttum gott tal saman og sýndi hann mér minningar sínar, smekk- lega uppraðaðar og vel geymdar. Minningin um þig, kæri frændi, lifir. Þín frænka, - Ilelga Jakbosdóttir, Keflavík. Fallinn er nú frá kær vinur og mikill sveitarhöfðingi. Já, hann Ósk- ar í Ásatúni var afar mikill og sterk- ur persónuleiki og vakti athygli hvar sem hann kom, með sitt gráa al- skegg, svo virðulegur á að sjá, og alltaf var hlustað af athygli á það sem Óskar hafði að segja. Gat hann oft á góðri stund verið mjög skáld- legur og rómantískur og trúað gæti ég að nú væri hann búinn að hitta Hæring sinn og sestur á bak honum og kominn á þeysireið fram hlíðina grænu, eins og hann lýsti svo skáld- lega fyrir okkur, er við sátum sam- an í sumarbústað í Ásatúnslandi sl. vor og ræddum lífið eftir dauðann. Ég var 15 ára þegar ég kom fyrst í Ásatún með unnusta mínum, Lúð- vík Guðmundssyni, sem hafði verið hjá þeim systkinum Halla, Óskari og Laufeyju öll sumur og flesta vetur allt frá sex ára aldri til átján ára aldurs, svo að þama átti hann sitt annað bernskuheimili. Þarna hófust mín kynni af þessu elskulega fólki og hafa þau vinabönd aldrei rofnað, seinna meir þegar fjölskyld- an stækkaði var alltaf nóg pláss og hjartarúm hjá þeim og oft var dval- ið í Ásatúni með allan hópinn og var oft þröng á þingi því fjölmörg eru börnin sem dvalið hafa hjá þeim systkinum um lengri eða skemmri tíma og notið þeirra umhyggju og leiðsagnar en sjálf eignuðust þau engin böm. Já, margs er að minnast og margs er að sakna og minningarnar leita á hugann. Fallega og ljúfsára mynd á ég í huga mér af litlum ljóshærð- um dreng með burstaklippt hár og bros í augum, sem bar nafn ykkar bræðra, Hallgrímur Óskar, og var hjá ykkur á hverju sumri frá barns- aldri til 14 ára aldurs og færi ég ykkur systkinum hjartans þakkir fyrir allt sem þið gerðuð fyrir dreng- inn okkar. Ég veit að nú hafa þeir nafnar hist aftur í annarri, fallegri sveit. Tveir bræður af þessum systkina- hópi voru búsettir hér í Keflavík en em nú látnir, þeir Magnús og Jak- ob, og var mikil og góð vinátta við þá og þeirra fjölskyldur okkur mik- ils virði. Stórt skarð hefur nú verið höggv- ið í þennan systkinahóp á síðastliðnu einu og hálfa ári, þar sem að þrír bræður hafa fallið frá með nokkurra mánaða millibili. Eftirlifandi systr- um, bróður og öðrum ættingjum og vinum sendum við hjónin ásamt börnum okkar innilegar vinar- og samúðarkveðjur. Óskar var mikill hestamaður en gat lítið notið þess á efri árum vegna heilsubrests, en mér finnst fara vel á því að kveðja hann að sinni með þessu Ijóði, sem hann hafði miklar mætur á. Þú komst í hlaðið á hvítum hesti þú komst með vor í augum þér ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í bijósti mér. (Davíð Stefánsson.) Hafðu þökk fyrir allt og allt, gamli vinur, og megir þú hvíla heill á ný, í faðmi ljóssins. Guð blessi þig. Bjarney Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.