Morgunblaðið - 28.10.1995, Page 48
48 LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
| FUÓTUE ! SETTU 'a KÁS riAAM.i
iNOertz þiAriuRinN/yeie>iAAAe>-
111(? iisju"aapc^ ai/?/srA
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
Hæ, strákur... viltu Þetta er auðvelt... við „Til eignar“? Þú Við skulum bara segja að
koma í kúluspil? Svona spilum bara til gamans ... átt við að þú hafir ég sé ekki nýkominn upp í
nú, ég skal kenna þér ... Nei, við spilum upp á „til spilað áður? póstvagninn ...
eignar“
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Er sjónvarpið okkar
að leggja sig niður?
Frá Sigríði Ingadóttur:
GETUR það verið að sjónvarpið
okkar allra landsmanna vinni nú
leynt og ljóst að því að útrýma
sjálfu sér? Ég spyr mig þessarar
spurningar daglega nú orðið er ég
kem úr vinnu, kveiki af gömlum
vana á tækinu og sest fyrir framan
það með tebollan minn í leit að
fréttum, fréttaskýringum og fróð-
leik af mönnum og málefnum. Ég
vonast jafnvel eftir einhveiju til
að brosa að í lok dagsins. Adam
gamli Smith hélt því fram að hin
ósýnilega hönd markaðarins
tryggði mönnum hámarksgæði
fyrir lágmarksverð á markaði hinn-
ar fijálsu samkeppni. Þetta hafa
stjómendur sjónvarpsins bersýni-
lega ekki skilið, nema þeir séu vís-
vitandi að leggja sjálfa sig niður
af tillitssemi við Stöð tvö og hina
nýju rás einstaklingsframtaksins
sem nú er í bígerð.
Hvernig eru ákvarðanir teknar
um það hvernig fé okkar skuli
varið við gerð innlendra frétta,
fréttaskýringa og efnis sem varðar
mannlíf í þessu landi? Hver ákveð-
ur hvaða efni er boðlegt og hvenær
er skynsamlegt að senda það „í
loftið"? Hvernig hefur ríkissjón-
varpið efni á því að bjóða okkur,
dyggum áhorfendum sínum, upp á
síbilju og samhangandi flatneskju
þess sem kallast Dagsljós í nærri
einn og hálfan klukkutíma á degi
hveijum og það á besta útsending-
artíma? Til að kóróna leiðindin sem
grípa mann heima í stofu ber
umgjörð Dagsljóssins og fréttanna
allt annað ofurliði. Hvers vegna
má ekki spara umbúðimar og gefa
nýja sjónvarpsfólkinu, í Dagsljósi
og á fréttastofunni, tíma til að
læra á miðilinn áður en því er att
fram í aðalfrétta- og fréttaskýr-
ingatíma sjónvarpsins?
Hvar er
Sigrún Stefánsdóttir?
Hvar er einn hæfasti fréttamað-
ur þjóðarinnar og ríkisútvarpsins,
Sigrún Stefánsdóttir? Hún hefur
ekki séSt á skjánum síðan henni
var haTnað við ráðningu í frétta-
mannsstarf íyrir nokkm. Hún hef-
ur samt gegnt því starfi með hluta-
starfí við Háskóla íslands um ára-
bil. Sigrún kemst ævinlega að
kjarna hvers máls með vönduðum
og áhugaverðum fréttaflutnigi á
góðu íslensku máli. Henni tekst
að taka á flóknum viðfangsefnum
og veita áhorfanda nægar upplýs-
ingar og bregða upp víðu sjónar-
horni. Spumingar hennar eru bein-
skeyttar og snúast um alaðatriði
hvers mál. Virðing hennar fyrir
viðmælendum fer ekki á milli mála
né heldur það að hún hefur unnið
heimavinnuna sína áður en hún fer
á vettvang. Þetta gerir fréttaflut.n-
ing hennar sérstæðan og áhuga-
verðan. Getur það verið að sjón-
varpið hafí átt þess kost að fast-
ráða þennan starfsmann en látið
það tækifæri fram hjá sér fara?
Sé það rétt, sem fleygt er, að Sig-
rún sé hætt á fréttastofunni þá er
það slys fyrir sjónvarpið, fíölmiðla-
deild Háskóla Islands og alla lands-
menn.
Ég vil losna við
leiktjöld Dagsljóss
Ég finn hina ósýnilegu hönd
markaðarins grípa þéttingsfast um
kverkar mínar í hvert sinn sem ég
sest við viðtækið nú orðið og reyni
að halda mér vakandi. Hin ósýni-
lega rödd þess sama markaðar
hvíslar að mér; „Láttu undan sér-
visku þinni, fáðu þér myndlykil og
bráðum kemur Moggasjónvarpið.“
Ég berst á móti þessu en velti fyr-
ir mér hvort þessi lágkúra sé
sprottin af hugsjónum nýfijáls-
hyggjunnar og hvort markmiðið
sé að eyðileggja ríkissjónvarpið svo
við verðum öll að fá okkur mynd-
lykla. Ég óska þess að fá aftur
reisn og upplýsingar á fréttatíma
um erlend og innlend málefni og
losna við leiktjöld Dagsljóss. Ég
óska þess að sjá aftur eðalfrétta-
manninn Sigrúnu Stefánsdóttur á
skjánum með fréttir af því sem
okkur varðar á þessu landi. Yfir-
völd ríkisútvarpsins hljóta að hafa
verið í löngu fríi fjarri manna-
byggðum meðan þessar breytingar
gengu yfír. Ég trúi því ekki að
óreyndu að sr. Heimir Steinsson
sé handbendill nýfijálshyggjunnar
úr röðum stuttbuxnaliðs Sjálfstæð-
isflokksins og vinni markvisst að
því að leggja sjónvarpið okkar nið-
ur.
SIGRÍÐURINGADÓTTIR,
Bollagötu 5, Reykjavík.
Harma-
ljóð
Harmur í okkar hjörtum er,
íslenska þjóðin sorgir ber.
Snjóflóð féll við Önundarfjörð,
hættuleg er vestfirsk jörð.
Um marga kinn nú fellur tár,
flóðið skilur eftir sár.
í snjónum er fólkið kannski látið.
Víða um lönd er grátið.
Við getum ekkert gert,
þar sem áður var Iandið bert,
snjórinn hefur fallið
og bælir nú margt kallið.
Veðurguðimir óblíðir eru,
illsku sinni að Flateyri sneru.
Margir hafa misst allt sitt,
um þetta ^allar Ijóðið mitt.
Anna Pála Sverris-
dóttir, 12 ára.
Allt efni sem birtist i Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.