Morgunblaðið - 16.12.1995, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Annarri umræðu um fj árlagafrum varp lokið
Allar tillögnr stjórnar-
andstöðu felldar
ALLAR breytingartillögur stjómar-
i andstöðunnar við fjárlagafrumvarp-
ið voru felldar í atkvæðagreiðslu
eftir 2. umræðu um frumvarpið á
Alþingi í gær.
Umdeild tillaga Alþýðuflokksins
um veiðileyfagjald kom ekki til at-
kvæða heldur var kölluð aftur til 3.
umræðu um frumvarpið.
En tillaga flokksins um að breyta
ríkisbönkunum í hlutafélög og selja
almenningi hluta þeirra var felld
með 45 atkvæðum stjórnarfiokk-
anna og sjö þingmanna Alþýðu-
bandalagsins en þingmenn Þjóð-
vaka, Kvennalista og tveir þingmenn
Alþýðubandalags sátu hjá, þar á
meðal Margrét Frímannsdóttir, for-
Jólahangi-
kjötið reykt
KJÖTIÐNAÐARMENN hafa í
nógu að snúast þessa dagana
við að gera klárt hráefnið sem
notað verður í kræsingarnar
sem landsmenn munu gæða
sér á um jólin. Hangikjötið er
sem fyrr einn vinsælasti mat-
urinn um jólin og á aðvent-
unni. Hjá Goða hefur verið nóg
að gera undanfarið við reyk-
inguna.
Tjónabætur
til Flateyringa
Búið að
greiða 180
milljónir
FULLTRÚAR Viðlagatrygg-
ingar íslands gengu nú í vik-
unni frá tjónauppgjöri vegna
snjóflóðsins á Flateyri og er
búið að greiða um 180 millj-
ónir króna í uppgjör og veð-
skuldir.
Geir Zoéga framkvæmda-
stjóri Viðlagatryggingar seg-
ir að með þessari fjárhæð sé
lokið við að greiða tjón að
mestu leyti, en það er sam-
kvæmt mati um 200-220
milljónir króna. Enn er nokk-
urt tjón óuppgert og byggist
það aðallega á að tjónþolar
hafa margir dvalist fja™
Flateyri frá því að flóðið féli.
„Það eru engin vafamál
sem orð er á gerandi og við
munum gera upp við þá sem
eru eftir, um leið og næst í
þessa aðila, en þeir eru víða
um land,“ segir Geir.
Mat hefur staðist
Viðlagatrygging íslands
greiddi rúmar 180 milljónir
króna vegna snjóflóðsins í
Súðavík með hreinsunar-
kostnaði. Geir segir að mat
stofnunarinnar á tjóninu í
Flateyri virðist standast vel.
„Við erum mjög óvanir því
að áætlanir okkar standist
ekki og ósáttir þá sjaldan það
gerist,“ segir hann.
maður flokksins. Þingmenn stjórnar-
andstöðunnar greiddu almennt at-
kvæði með þeim breytingartillögum
meirihluta fjárlaganefndar sem
gerðu ráð fyrir auknum fjárframlög-
um en sátu hjá eða greiddu atkvæði
gegm þeim tillögum sem fólu í sér
skerðingu á útgjöldum.
Ekkí alltaf samstiga
Stjórnarandstöðuflokkamir voru
ekki alltaf samstiga við atkvæða-
greiðsluna. Þannig greiddu þing-
menn Alþýðubandalagsins atkvæði,
ásamt þingmönnum stjórnarflokk-
anna, gegn tillögum Alþýðuflokksins
um að draga verulega úr fjárfram-
lögum til stofnana landbúnaðarins
JÓN Steinar Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður sem ritstjórn Morg-
unblaðsins hefur ráðið til þess að
gæta hagsmuna sinna, hefur fyrir
hönd Agnesar Bragadóttur, blaða-
manns Morgunblaðsins, kært til
Hæstaréttar úrskurð sem Héraðs-
dómur Reykjavíkur kvað upp í gær
um að Agnesi sé skylt að koma fyr-
ir dóm sem vitni til að svara spurn-
ingum Rannsóknarlögreglu ríkisins
um hvaða gögn hún hafi haft undir
höndum og hveijir hafi verið heimild-
armenn hennar við ritun greina sem
birtust í Morgunblaðinu í mars 1995.
Greinarnar voru söguleg úttekt á
uppgjöri viðskipta Sambands ís-
lenskra^ samvinnufélaga og Lands-
banka Islands.
Lá alltaf fyrir að kært
yrði til Hæstaréttar
„Úrskurðurinn var kærður til
Hæstaréttar þegar eftir uppkvaðn-
ingu hans enda lá alltaf fyrir að
þangað færi málið hver sem niður-
staða Héraðsdóms yrði,“ sagði Jón
Steinar Gunnlaugsson. „Við athug-
un á forsendum úrskurðarins hefur
síðan, að mínu mati, fengist sérstök
staðfesting á réttmæti kærunnar."
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
efnt til opinberrar rannsóknar, að
°g Byggðastofnunar, þingmenn
Þjóðvaka og Kvennalista greiddu
atkvæði með eða sátu hjá.
Og um þá tillögu stjórnarmeiri-
hlutans að lækka framlag til aðstoð-
ar á svæðum Palestínumanna í ísra-
el greiddu þingmenn Alþýðubanda-
lagsins og Lúðvík Bergvinsson Al-
þýðuflokki atkvæði með stjórnar-
þingmönnunum en Jón Baidvin
Hannibalsson og Sighvatur Björg-
vinsson Alþýðuflokki greiddu at-
kvæði gegn. Aðrir stjórnarandstæð-
ingar sátu hjá.
Þingmenn Alþýðuflokksins
greiddu hins vegar atkvæði ásamt
stjómarmeirihlutanum gegn tillögu
Alþýðubandalagsins um að auka
frumkvæði bankaeftirlits Seðla-
banka íslands, á því hvort fyrrgreind
greinaskrif hafi byggst á trúnaðar-
upplýsingum sem starfsmenn
Landsbanka íslands hafi látið í té
og þar með brotið gegn lagaákvæð-
um um þagnarskyldu bankastarfs-
manna og þagnarskyldu opinberra
starfsmanna.
Krafan byggist á ákvæði 1. mgr.
53. greinar laga um meðferð opin-
berra mála þar sem segir að þeir,
sem beri ábyrgð á efni sem birt er
opinberlega, geti ekki skorast undan
vitnaskyldu sé krafist vitnisburðar
vegna brots sem ætla megi að varði
þyngri refsingu en fésektum eða
varðhaldi eða vegna brots gegn
þagnarskyldu í opinberu starfi enda
sé vitnisburðurinn nauðsynlegur og
ríkir hagsmunir í húfi.
í niðurstöðum Júlíusar Georgs-
sonar dómarafulltrúa segir að fram
komi í gögnum málsins að grunur
RLR beinist einkum að því að fyrir-
svarsmaður Landsbankans, banka-
stjóri eða bankaráðsmaður, sé heim-
ildarmaður sá sem afhent hafi trún-
aðargögnin. Ekki leiki vafi á því að
þeir aðilar séu opinberir starfsmenn
í skilningi laga.
Við skoðun rannsóknargagna
verði Ijóst að framhald rannsóknar-
framlag til Námsgagnastofnunar,
enda hafði flokkurinn lagt til að
skerða það framlag verulega.
Þá greiddu þingmenn Kvennalist-
ans og einn þingmaður Þjóðvaka
atkvæði gegn tillögu um 500 þúsund
króna framlag til Landssambands
íslenskra akstursíþróttafélaga.
Nú er gert ráð fyrir að 3. og síð-
asta umræða um fjárlagafrumvarpið
verði á miðvikudag í næstu viku en
það gæti dregist fram á fimmtudag.
Þá koma til umræðu breytingar á
tekjuhlið frumvarpsins auk tillagna
um rekstarútgjöld sjúkrastofnana og
fleiri mála sem kunna að taka breyt-
ingum milli umræðnanna.
innar velti að verulegu leyti á því
hvort Agnes beri vitni um þau atriði
sem krafist er og því sé skilyrði
lagaákvæðisins um nauðsyn upp-
fyllt.
Skilvirkni bankaeftirlits rýrð
Þótt sá aðili sem trúnaður virðist
hafa verið brotinn gagnvart, SÍS,
hafi ekki, að séð verði, gert athuga-
semdir við skrifin eða telji sig hafa
skaðast vegna þeirra verði að líta
til þess að grunur rannsóknara bein-
ist að fámennum hópi, þar sem sek-
ir jafnt sem saklausir liggi undir
grun um ætlað þagnarskyldubrot
sem varðað geti refsingu.
Einnig verði að líta til hlutverks
bankaeftirlits Seðlabankans. „Myndi
það rýra mjög skilvirkni eftirlitsins
ef þeir sem eftirlitinu sæta gætu
með því sem sýnist vera yfirborðs-
legar skýringar og svör komið sér
undan rannsókn,“ segir í úrskurðin-
um og jafnframt að að framansögðu
virtu séu nægjanlega ríkir hagsmun-
ir í húfi í skilningi laganna til að
unnt sé að taka kröfu RLR til greina
og gera Agnesi Bragadóttur skylt
að bera vitni í málinu.
■ Skylt að bera vitni/I2
■ Réttur blaðamanna/42
Alþingi
afgreiðir ný lög
Trygginga-
gjald
hækkað
um 0,5%
ALÞINGI samþykkti nokkur ný lög
á fundi í gærkvöldi, þar á meðal
breytingu á lögum um trygginga-
gjald á laun, sem felur í sér 0,5%
hækkun á gjaldinu.
Samkvæmt lögunum verður
gjaldið eftir breytinguna samsett
úr tveimur gjöldum, almennu
tryggingagjaldi og atvinnutrygg-
ingagjaldi. A atvinnutrygginga-
gjaldið, sem verður 1,5% af gjald-
stofni, að fjármagna atvinnuleysis-
tryggingasjóð en tekjur af almenna
gjaldinu renna til Vinnueftirlitsins
og Tryggingastofnunar eins og
áður.
Almenna gjaldið verður í tveim-
ur gjaldstofnum, 2,05% í sérstök-
um gjaldstofni og 5,35% í almenn-
um. I sérstaka gjaldstofninum eru
fyrirtæki í sjávarútvegi, landbún-
aði, hugbúnaðariðnaði, ferðaþjón-
ustu og samkeppnisgreinum en
aðrar atvinnugreinar eru í almenna
flokknum.
Stjómarandstaðan var andvíg
málinu og sagði það m.a. endur-
spegla þá stefnu stjómvalda að
fjármagna ákvörðun um skattfrelsi
lífeyrissjóðsiðgjalda launafólks
með hækkun tryggingagjalds. En
sú hækkun er talin skila ríkissjóði
um milljarði í tekjur. Þá er Alþýðu-
flokkurinn andvígur þeirri mis-
munun sem gjaldið felur í sér milli
einstakra atvinnugreina og segir
engu líkara en atvinnuvegunum sé
skipt í tvo flokka, eingöngu eftir
áhrifavaldi sérhagsmunahópa í
röðum stjómarflokkanna.
Heimilt að fella niður
holræsagjald
Nokkur fleiri lög voru samþykkt
samhljóða á Alþingi í gær. Af þeim
má nefna breytingar á lögum um
aukatekjur ríkissjóðs, lög um ör-
yggi vöru og opinbera markaðs-
gæslu og breytingar á vatnalögum
sem fela í sér að sveitarstjórnum
verður heimilt að fella niður hol-
ræsagjald hjá tekjulitlum elli- eða
örorkulífeyrisþegum en það laga-
framvarp flutti félagsmálaráð-
herra að beiðni Reykjavíkurborgar.
Jafnt hjá
Hannesi og
Jóhanni
JAFNTEFLI varð í skák þeirra
Jóhanns Hjartarsonar og
Hannesar Hlífars Stefánssonar
í einvígi þeirra í gær um ís-
landsmeistaratitilinn. Tefldar
eru fjórar umferðir og er tveim
nú lokið og er Hannes með Vh
vinning og Jóhann 'h Þriðja
skákin verður tefld á morgun
og.þefst hún kl. 17.
Önnur umferð á Guðmundar
Arasonar mótinu var tefld í
Iþróttahúsinu við Strandgötu í
Hafnarfirði í gær, en alls verða
tefldar 9 umferðir. Að lokinni
annarri umferð era í 1.-5. sæti
þeir Þröstur Þórhallsson, Al-
bert Bleese, Li Riemersma,
Ivar Bern og John Arni Nilsson
með 2 vinninga. Þriðja umferð
verður tefld í dag og hefst hún
kl. 17.
__________________________________Morgunblaðið/Kristinn
Héraðsdómur úrskurðar að blaðamanni sé skylt að bera vitni
Úrsknrðurinn kærður
til Hæstaréttar