Morgunblaðið - 16.12.1995, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 13
FRETTIR
ABFLUTTIR
Aðfluttir og brottfluttir
1990-1995 ,
Jan.-nov.
1990 1991 1992 1993 1994 1995
Isl. rikisborgarar
Erl. ríkisborgarar
2.055
1.111
2.281
1.708
1.980
979
1.749
949
1.796
880
1.767
869
Samtals
BROTTFLUTTIR
3.166 3.989 2.959 2.698 2.676 2.636
Isl. rikisborgarar
Erl. rikisborgarar
2.806
1.041
1.995
987
1.775
1.438
2.016
885
2.657
779
3.321
624
Samtals 3.847 2.982 3.213 2.901
BROTTFLUTTIR UMFRAM AÐFLUTTA
3.436 3.945
Isl.
rikisborg:
larar
751 -286
-205
267
861 1.554
Árin 1991 -92 fluttust fleiri ísl. rikisborgarar til landsins en fluttust á brott.
Fólksflutningar milli landa fyrstu
ellefu mánuði ársins
Helmingi fleiri
flytjast héðan
en hingað
ALLS hafði 3.321 íslenskur ríkis-
borgari flutt brott af landinu frá
ársbyrjun til loka nóvember í ár, en
aðfluttir á sama tímabili voru 1.767.
Brottfluttir umfram aðflutta á tíma-
bilinu eru því 1.554, en það eru rúm-
lega helmingi fleiri en á sama tíma-
bili í fyrra.
Þá voru brottfluttir íslenskir rík-
isborgarar alls 2.449 og aðfluttir
1.653, eða 796 brottfluttir umfram
aðflutta. Frá janúar í ár til loka nóv-
ember höfðu 869 erlendir ríkisborg-
arar flutt til landsins en 624 á brott,
og fjöldi aðfiuttra umfram brottflutta
því 245.
Langflestir íslensku ríkisborgar-
anna sem fluttust á brott frá landinu
á umræddu tímabili fluttust til Norð-
urlandanna, eða 2.711. Aðfluttir það-
an voru 1.320, eða brottfluttir um-
fram aðflutta samtals 1.391.
Hvað Danmörk varðar eru brott-
fluttir 1.603 og aðfluttir 542, eða
1.061 brottfluttir umfram aðflutta.
Brottfluttir til Noregs eru 554 og
aðfluttir 285, eða 269 brottfluttir
umfram aðflutta, til Svíþjóðar 503 á
móti 458, eða 45 brottfluttir umfram
aðflutta, til Finnlands eru brottfluttir
19 og aðfluttir sömuleiðis 19, til
Grænlands eru brottfluttir 16 og
aðfluttir 5, eða 11 brottfluttir um-
fram aðflutta, og til Færeyja eru
brottfluttir 16 talsins á móti 11 að-
fluttum, eða 5 brottfluttir umfram
aðflutta.
Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar
umfram aðflutta tii annarra landa
en Norðurlanda eru samtals 163. Þar
af er 101 til annarra Evrópulanda
(36 til Bretlands), 24 til Ameríku,
27 til Afríku, 18 til Asíu, en frá
Eyjaálfu komu 6 og einn aðfluttan
var ekki hægt að staðsetja.
Þorsteinn Pálsson um fjárfestingar
útlendinga í sjávarútvegi
Hugsanlegt að
opna fyrir fjárfest-
ingar í áföngum
ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að ef sú ákvörðun
yrði tekin að leyfa útlendingum að
fj'árfesta í sjávarútvegsfyrirtækjum
á íslandi myndi rökunum gegn aðild
íslands að Evópusambandinu
fækka. Hann sagðist ekki vera tilbú-
inn til að mæla með því á þessari
stundu, að útlendingum yrði leyft
að íjárfesta í ísienskum sjávarút-
vegi, en væri tilbúinn til að skoða
þann möguleika að opna fyrir fjár-
festingar útlendinga smám saman.
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins
Samheija á Akureyri, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hann væri
óhræddur við að leyfa útlendingum
að fjárfesta í sjávarútvegsfyrirtækj-
um á íslandi. Það gæti orðið til
góðs og vadri jafnvel nauðsynlegt
fyrir framtíðarþróun greinarinnar.
Eðlilegt að opna fyrir óbeina
fjárfestingu
„Ég er þeirrar skoðunar að gild-
andi lög séu allt of þröng og það
væri nauðsynlegt að opna fyrir
óbeina fjárfestingu," sagði Þor-
steinn Pálsson. „Ríkisstjórnin er
búin að leggja fram frumvarp um
breytingu í þá veru. Menn hafa hins
vegar haft efasemdir um að það
ætti að opna þetta meir á þessu
stigi. Hræðsla manna hefur fyrst
og fremst verið bundin við að með
því gætum við opnað útlendingum
aðgang að auðlindinni bakdyrameg-
in. Ég held þess vegna að það sé
eðlilegt að við stígum það skref sem
ríkisstjórnin er að leggja til núna.
Við verðum síðan að sjá hver reynsl-
an verður. Vel má vera að það sé
hægt að þróa þessi mál áfram og
opna þetta smám saman meira síð-
ar.
Ég vil ekki útiloka neitt fyrir
framtíðina í þessum efnum. Ég vek
athygli á að þetta er það atriði sem
menn hafa helst horft á sem ásteyt-
ingarstein varðandi aðild okkar að
Evrópusambandinu. Ef að það yrði
um það almenn samstaða að opna
fyrir þessar fjárfestingar myndi líka
fækka rökunum gegn aðiid íslands
að Evrópusambandinu."
Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt lækkun
fasteignaskatts hjá elli- og örorkulífeyrisþegum
fyrir árið 1996 skv. eftirfarandi viðmiðunartölum
Tekjur einstaklings (Var 1995) Tekjur hjóna (Var1995) Lækkun fasteigna- skatts um:
alltað 640.000 kr. (625.000) ailt að 900.000 kr. (875.000) 100%
640-710.000 kr. (688.000) 900-985.000 kr. (961.000) 80%
710-800.000 kr. (780.000) 985-1.120.000 kr. (1.094.000) 50%
hærri tekjur gefa engan afslátt
Fasteignagjöld lögð á tvö hús Ferðafélagsins
Spurning hvort þau eru
sæluhús eða gistiskálar
ÁGREININGUR er milli Ferðafé-
lags íslands og Rangárvalla-
hrepps um hvort félaginu beri að
greiða fasteignagjöld af húsum
sínum við Álftavatn og Hrafnt-
innusker. Samkvæmt lögum um
tekjustofna sveitarfélaga eru
sæluhús undanþegin fasteigna-
skatti, en hreppsnefnd og yfir-
fasteignamatsnefnd telja að ekki
sé um að ræða sæluhús heldur
gistiskála og ná undanþágur lag-
anna ekki til þeirra.
„Þar stendur hnífurinn í
kúnni,“ segir Jónas Haraldsson
lögfræðingur sem fer með málið
fyrir Ferðafélag Islands. „I þau
tæplega 70 ár sem Ferðafélagið
hefur verið starfrækt, hefur alltaf
verið talað um húsnæði félagsins
sem sæluiiús, bæði í ræðu og riti.
í fjölmörgum gögnum öðrum, þar
sem húseignir félagsins á hálend-
inu eru til umfjöllunar, er talað
um sæluhús. I íslenskum orðabók-
um er sæluhús skilgreint sem hús
í óbyggðum, sem hægt er að sofa
í. Einnig skilgreina Landmæling-
ar íslands þessi hús sem sæluhús,
eins og fram kemur á öllum kort-
um þeirra.“
Þar er seld gistiþjónusta
Guðmundur Ingi Gunnlaugs-
Ferðafélag Is-
lands lætur reyna
á málið fyrir
dómstólum
son, sveitarstjóri Rangárvallar-
hrepps, staðfesti að Ferðafélagið
hefði neitað að greiða fasteigna-
gjöld fyrir 1994 og óskað eftir
áliti yfirfasteignanefndar.
„Með úrskurði hennar er mál-
inu lokið af okkar hálfu. Nefndin
úrskurðaði að leggja mætti
fasteignagjöld á umrædd hús,
enda væru þetta fullkomlega út-
búin gistihús. í þeim er seld gisti-
þjónusta og okkur finnst að
Ferðafélag Islands eigi að sitja
við sama borð og aðrir atvinnu-
rekendur og ferðaþjónustuaðilar
varðandi álagningu skatta og
gjalda. Ég er fremur þolinmóður
við innheimtu fasteignagjalda, en
þeir sem ekki hafa greitt þau um
áramót geta vænst hertra að-
gerða.“
í úrskurði yfirfasteignanefndar
kemur fram það álit að skýra
beri hugtakið sæluhús svo að þar
sé átt við hús eða skýli, sem hafi
því meginhlutverki að gegna að
þeir sem eiga ferð um landið og
þá einkum þeir sem lenda í hrakn-
ingum, geti leitað þar skjóls, þ.e.
að vera neyðarathvarf líkt og
skipbrotsmannaskýli eru við
ströndina.
Látum reyna á þetta
fyrir dómstólum
Jónas Haraldsson, lögfræðing-
ur og félagi í Ferðafélagi íslands,
segir að félagið muni ekki greiða
fasteignagjöld af umræddum hús-
um.
„Við ætlum að láta reyna á
þetta fyrir dómsstólum. Hér er
ekki deilt um háar fjárhæðir, en
þetta er grundvallaratriði sem
þarf að fá leyst úr. Margir eiga
hlut að máli, ekki aðeins Ferðafé-
lag íslands og því finnst okkur
Ferðafélagsmönnum nauðsynlegt
að fá niðurstöðu dómstóla í mál-
inu. Ég vil taka fram að þetta
mál gengur allt fyrir sig í fullri
sátt, sagði Jónas.“
Guðmundur Ingi Gunnlaugs-
son, sveitarstjóri Rangárvallar-
hrepps, ítrekaði einnig að sam-
starf við Ferðafélg væri gott.
„Okkur greinir bara á um skil-
greiningu hugtaks."
Borgarráð
Lækkun
fasteigna-
skatts elli-
og örorku-
lífeyrisþega
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu Framtalsnefndar Reykjavíkur
að viðmiðunartölum vegna lækkunar
á fasteignaskatti elli- og örorkulíf-
eyrisþega árið 1996.
I tillögu Framtaisnefndar kemur
fram að tölumar byggjast á upplýs-
ingum frá Tryggingastofnun ríkisins
en árið 1995 hækkuðu bótagreiðslur
til elli- og örorkulífeyrisþega um allt
að 3% miðað við árið 1994.
Hringsjá tek-
in í notkun
HÚS Starfsþjálfunar fatlaðra og
Tölvumiðstöðvar fatlaðra, Hátúni 10
d hefur hiotið heitið Hringsjá.
Við opnunina færði Steinn Guð
mundsson, fyrir hönd Oddfellow-stú-
kunnar Skúla fógeta, Starfsþjálfun-
inni tvær tölvur.Kristján Ingvarsson,
gaf bókhaldsforritið Vaskhuga og
Bókaútgáfa Máls og menningar gaf
50 bókatitla í bókasafn hússins.
Öryrkjabandalag íslands veitti
fyrr á árinu 1,5 milljón króna til
hússins og við opnunina bættust 400
þúsund krónur við frá Hússjóði Ör-
yrkjabandalags íslands.
Mikið úrvol
of vönduðum
sporiskóm
PETER
KAISER
Teg. nr. 61485.
Litur: Svart rúskinn.
Stærö: 371/2.
Verö: 8.490.
Teg. nr. 44445.
Litir: Svart rúskinn.
Stærðir: 38-41.
Verö: 8.490.
SALAMANDER®
Teg. nr. 41941.
Litur: Brúnn.
Stæröir: 371/2^11.
Verö: 7.490.
ara
Teg. nr. 40226.
Litur: Svart/grátt.
Stæröir: 371/2-411/2.
Verö: 6.490,-
Teg. nr. 15463.
Litur: Brúnn - Nubuk.
Stæröir: 401/2-461/2.
Verð: 9.990,-
C
BOOTS
Kuldaskór
Teg.: nr. 11837.
Litir: Svart - Nubuk.
Stæröir: 40 1/2-44.
Verö: 11.590,-
Opið í dag kl. 10-22.
Gísíi
Ferdmandssonnf
SKÓVERSLUN
Lœkjorgöru 6q -101 Peyt'jQvík
sími 551 4711.