Morgunblaðið - 16.12.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Góð útkoma í útflutningsiðnaði fyrstu tíu mánuði ársins
Útflutningsverðmæti
eykst um fimmtung
VERÐMÆTI útflutnings iðnaðar-
vara jókst um 3,3 milljarða króna
fyrstu tíu mánuði ársins eða sem
svarar til um 20% aukningar frá
sama tíma í fyrra. Hefur hlutdeild
iðnaðarvara í vöruútflutningi hækk-
að úr 17,5% í 21% frá árinu 1993.
Þetta kom fram í erindi Þorsteins
M. Jónssonar, hagfræðings Sam-
taka iðnaðarins á morgunverðar-
fundi samtakanna í vikunni. Þor-
steinn greindi frá því að verðhækk-
anir á erlendum mörkuðum hefðu
skilað um 12,9 prósentustigum af
verðmætisaukningunni í ár en
magnaukningin 6,2 prósentustig-
um. Þegar litið væri til útflutnings
á afurðum stóriðju ykist verðmætið
um 16,3% en verðmæti annarra iðn-
aðarvara væri hins vegar 26,4%
meira. í því sambandi vekti athygli
að verðmætisaukningin í stóriðju
skýrðist nær eingöngu af hækkuðu
verði, enda afkastagetan alla jafna
fullnýtt, en verðmætisaukningin í
flokknum aðrar iðnaðarvörur væri
aðallega tilkomin vegna aukins
magns.
Sókn hafin í samkeppnisiðnaði
„Þessu til viðbótar benda nýjar
upplýsingar um markaðshlutdeild
samkeppnisiðnaðar til að þar sé
einnig hafin sókn. Samkvæmt nýj-
um niðurstöðum fyrir fyrstu þrjá
ársfjórðunga þessa árs í saman-
burði við sama tímabil árið á und-
an, þá er innlend framleiðsla að
sækja í sig veðrið í öllum þeim
greinum sem markaðshlutdeildar-
könnunin nær til. Þótt ekki liggi
fyrir tölulegar upplýsingar um þró-
unina í öðrum samkeppnisiðnaði er
ekki óvarlegt að álykta, með hlið-
sjón af þessum niðurstöðum og
þeim þáttum sem aðallega liggja
að baki, að þar sé einnig sókn til
aukinnar markaðshlutdeildar.
Hvort tveggja, aukinn útflutn-
ingur og meiri markaðshlutdeild,
er afrakstur þeirra hagstæðu
rekstrarskilyrða sem hér hafa verið
að myndast á síðustu árum. Aukn-
ingin að undanförnu kemur fram í
flestum greinum útflutningsiðnað-
ar, þótt í mismiklum mæli sé,“ sagði
Þorsteinn.
Félag íslenskra stórkaupmanna
Væntír góðs af sam-
starfi við Búr ehf.
STEFÁN Guðjónsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna, segir að stórkaupmönnum
lítist vel á áform kaupfélaganna,
Nóatúnsverslananna og Olíufélags-
ins um stofnun innkaupafyrirtækis-
ins, Búrs ehf.
„Við höfum góða reynslu af sam-
starfi við Baug og væntum þess að
eiga gott samstarf við þessi fyrir-
tæki,“ sagði hann. „Stofnun nýrrar
birgðastöðvar gæti haft í för með sér
einföldun og hagræðingu í vörudreif-
ingunni og því ber auðvitað að fagna.“
Stefán svaraði því neitandi þegar
hann var spurður um hvort ekki
væri hætta á að sameiginleg innkaup
matvöruverslana gætu kippt rekstr-
argrundvellinum undan einhverjum
heildverslunum. „Okkar félagsmenn
eru nokkurskonar umboðsheildversl-
anir og nánast framlenging af sölu-
deildum erlendu framleiðendanna.
Innflutningsfyrirtækin hafa verið að
eflast á undanförnum árum og á
þessu ári hefur verið opnað fyrir
dreifingu á vörutegundum sem áður
voru undir opinberri forsjá. Matvöru-
innflytjendur eiga viðskipti- við mun
fleiri aðila en hefðbundnar matvöru-
verslanir m.a. sjúkrahús, elliheimiii,
mötuneyti og veitingahús. Á síðasta
ári var velta í veitingarekstri í
Bandaríkjunum meiri en hjá mat-
vöruverslunum og svipuð þróun hefur
verið að eiga sér stað í Evrópu."
Vextir húsbréfa aftur á uppleið
VAXTALÆKKUN á verðtryggðum
skuldabréfum sem varð í haust hefur
gengið að nokkru til baka að undan-
förnu. Þannig var kaupávöxtunar-
krafa húsbréfa almennt 5,78% í gær
hjá verðbréfafyrirtækjunum en fór
lægst í 5,57% í nóvember.
Davíð Björnsson, forstöðumaður
hjá Landsbréfum, segir tvennt hafa
valdið hækkunum _ ávöxtunarkröf-
unnar undanfarið. „í fyrsta lagi varð
verðhjöðnun núna í desember, þó hún
hafí að vísu verið afskaplega lítil.
Það þýðir auðvitað að verðtryggð
bréf lækka örlítið í verði milli mán-
aða. Menn hafa því ekki verið að
flýta sér á verðtryggða markaðnum,
auk þess kjörin á óverðtryggða
markaðnum hafa verið mjög góð.
Það er hægt er að fá ríkisvíxla til
þriggja mánaða með yfir 7% ávöxtun
og bankavíxla til mjög skamms tíma
með góðum vöxtum.“
í öðru lagi er oft á tíðum þung
lífeyrisgreiðsla hjá lífeyrissjóðunum
í desember. Þeir hafa verið lítið á
ferðinni fyrri hluta mánaðarins sem
er ekkert nýnæmi. Hins vegar er
alveg eins von á því að lífeyrissjóðirn-
ir komi inn á markaðinn síðari hluta
mánaðarins.
Við teljum því að úr þessu taki
eftirspum verðtryggðra bréfa við sér.
Ávöxtunarkrafan hefur hækkað og
við teljum að verðtryggðu bréfin séu
því orðin mjög góður kostur. Miðað
við ástandið á markaðnum sé krafan
nú við eða nálægt hámarki. Við eigum
því von á góðri eftirspum síðari hluta
mánaðarins. Ef það gengur eftir má
alveg eins búast við að eitthvað af
þessari hækkun gangi til baka.“
Stórkaupmenn gagnrýna seinagang við
afgreiðslu á nýjum álagningarreglum ÁTVR
Samkeppnisstaða
heildsala óljós
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna
hefur ítrekað óskir sínar um að heild-
sölum verði kynnt hvernig álagningu
hjá ÁTVR verði háttað, eftir að ný
lög um heildverslun með áfengi tóku
gildi þann 1. desember s.l. Baldvin
Hafsteinsson, Iögmaður félagsins,
segir það vera nauðsynlegt fyrir
heildsala að fá frekari upplýsingar
um þessi mál svo þeir standi jafnfæt-
is aðfangadeild ATVR í samkeppn-
inni. Hann bendir á að eðlilegast
hefði verið að þessar reglur hefðu
legið fyrir strax við gildistöku lag-
anna.
Samkvæmt _ nýju lögunum mun
smásöludeild ÁTVR skipta við að-
fangadeild sína eða heildsala, eftir
því hvor kosturinn reynist hag-
kvæmari. Baldvin segir nauðsynlegt
að álagningarreglurnar verði skýrar
til þess að koma í veg fyrir tor-
tryggni á markaðnum. Aðfangadeild
ÁTVR sé í mjög góðri aðstöðu til
þess að undirbjóða einstaka heild-
sala eftir að tilboð þeirra hafa bor-
ist, kjósi þeir að gera svo og því
verði reglurnar að vera mjög skýrar
frá byrjun. Þannig sé t.d. kostnaðar-
hlutdeild aðfangadeildarinnar vegna
birgðahalds ekki nægjanlega vel t
skilgreind auk þess sem arðsemis- |
krafa af rekstri hennar sé óljós. Það ,
geti því reynst mjög erfitt fyrir heild- •
sala að keppa við hana ef hún verði
rekin á núlli.
Ætti að skýrast í næstu viku
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, segir að ekki hafi enn verið
gengið frá þessum nýju álagningar-
reglum af fjármálaráðuneytinu og
því hafi ekki verið hægt að kynna |
þær fyrir heildsölum enn sem komið
er. Hann segir hins vegar að unnið v
sé í málinu og það ætti að liggja I
fyrir í næstu viku hvernig álagning-
unni verður háttað. Ný verðskrá
ÁTVR verði hins vegar ekki birt
fyrr en um áramót.
Formaður Kaupmanna-
samtakanna segir af sér
VIÐAR Magnússon hefur sagt af sér
sem formaður Kaupmannasamtak-
anna og Benedikt Kristjánsson, vara-
formaður samtakanna hefur tekið
við sem formaður. Margrét Pálsdótt-
ir, eigandi verslunarinnar Liverpool,
hefur verið skipuð varaformaður.
Viðar, sem kjörinn var formaður
samtakanna síðastliðið sumar, til-
kynnti um afsögn sína á fram-
kvæmdastjómarfundi Kaupmanna-
samtakanna s.l. fímmtudag og í kjöl-
farið voru fyrrnefndar breytingar á
stjóm samtakanna ákveðnar. Um
ástæður afsagnar sinnar segir Viðar
að hann hefði einfaldlega ekki haft
tíma til þess að sinna þessum störfum
samhliða rekstri verslunar sinnar og
því hafi hann kosið að snúa sér alfar-
ið að rekstrinum. Sú ákvörðun hafi
verið tekin í fullri sátt við hlutaðeig-
andi aðila. i
Símon Sigurpálsson, sem setið
hefur í varastjórn Kaupmannasam-
takanna mun taka það sæti sem nú
hefur losnað í stjórninni.
* íslensk myndlist •
• Nýtt úrval af plaggötum
í mörgum stærðum,
einnig í country-stíl
• Karton, sýrufrítt,
nýir litir.
• Úrval ramma úr tré og
áli auk rammaiista.
Opið:
16. des. frá kl. 10-22,
17. des. frá kl. 12-18.
• NYTT GLER •
Glært * Matt
0Nú getur þú séð þína mynd í réttum lit
Getum annast innrömmum fyrir jól.
«C*Þ>U
RAMMA
Sérverslun með innrömmunarvörur
MIÐSTOÐIN Sigtúni 10 (Sóltún), sími 511-1616.