Morgunblaðið - 16.12.1995, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 16. ÐESEMBER 1995
VIKII
m
, MORGUNBLAÐIÐ
Marblettir sem ekki hverfa
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Æðar
rofna
Spurning: Hvernig stendur á því
að þriggja ára marblettir hverfa
ekki? Hvað er til ráða?
Svar: Marblettir myndast við það
að æðar rofna og blóð lekur út í
vefi undir húðinni. I slíkum tilfell-
um er blóðið dökkrautt eða nánast
blátt og þess vegna eru blettirnir
bláleitir í fyrstu. Eftir nokkra
klukkutíma byrja rauðu blóðkom-
in að springa, blóðrauðinn lekur út
úr þeim og hluti hans breytist í
galllitarefni. Við þetta breytist
litur marbletta úr bláu yfir í grænt
og síðar gult. Pessi efni berast
síðan smám saman út í blóðið, blet-
turinn dofnar og hverfur að lokum.
Hversu hratt marblettur dofnar og
hverfur fer eftir staðsetningu og
eftir því hve mikið hefur blætt í
vefinn. Flestir marblettir hverfa á
1-2 vikum en í sumum tilfellum
getur það tekið nokkrar vikur.
Stundum berast galllitarefnin út í
sjálfa húðina og þá getur tekið enn
lengri tíma fyrir blettinn að hverfa
alveg. Ef marblettir hverfa ekki á
nokkrum mánuðum þá er eitthvað
annað á seyði en hér hefur verið
lýst og rétt að sýna húðsjúkdó-
malækni blettina til að fá úr því
skorið hvað um er að ræða.
Spurning: Ég hef verið með
lungnabólgu á annan mánuð.
Þegar ég veiktist var ég íyrst
hlustaður, síðan tekin mynd og í
framhaldi af því fékk ég lyf sem
virðast ekki virka og ég hef haft
hita bæði kvölds og morgna. Er
eðlilegt að lungnabólga vari svona
lengi og ef þetta er vírus, hvað
getur þá tekið langan tíma að
vinna bug á veikinni?
Svar: Venjuleg lungnabólga geng-
ur yfir á 1-2 vikum en margir,
einkum þeir eldri, geta verið marg-
ar vikur eða jafnvel mánuði að ná
sér að fullu. Þetta lýsir sér oftast
með þreytu og slappleika en miklu
Lungna-
bólga
sjaldnar með hitavellu og nætur-
svita. Til eru ýmsar sjaldgæfari
tegundir lungnabólgu og sumar
þeirx-a geta verið langvinnar.
Hemannaveiki er lungnabólga
sem stafar af lítilli bakteríu sem
stundum tekur langan tíma að
vinna á með lyfjum. Svipað má
segja um aðra tegund lungnabólgu
sem orsakast af berfrymingum
(mycoplasma) en þeim er stundum
lýst sem millistigi milli baktería og
veira. Lungnabólgur sem orsakast
af veirum koma einnig fyrir og má
þar nefna inflúensu og páfa-
gaukasótt (öðru nafni fýlasótt;
smitast frá fuglum). Að lokum má
ekki gleyma berklum sem eru alls
ekki úr sögunni. Best er að tala við
lækninn sem sá um greininguna og
útvegaði lyfin og fá að vita hvað
hann fann og hvort hann telur
ástæðu til frekari rannsókna eða
endurskoðunar á meðferð.
Spurning: Ég hef lesið um það í
bandarískum blöðum að þar í landi
sé komið á markað nýtt lyf, MELA-
TONIN, sem hægir á öldrun.
Hvers konar lyf er þetta og af
hverju er það ekki selt hér á landi?
Svar: Melatónín er eins konar
hormón sem myndast í heilanum
og tekur þátt í að stjórna þeim
sveiflum sem verða í starfsemi
líkamans yfir sólarhringinn. Svo
virðist sem nota megi þetta efni til
að hjálpa fólki sem hefur ferðast
langar vegalengdir í austur eða
vestur til að jafna sig fljótar á tíma-
mismuninum. Einnig getur efnið
líklega hjálpað við sumum tegund- •
um af svefnleysi og svefntrufl-
unum. Vegna áhrifa melatóníns á
svefn og vöku fengu einhverjir þá
hugmynd að nota mætti efnið til að
hægja á klukku líkamans og hægja
þannig á öldrun. Þetta á ekki við
nein rök að styðjast og engar
rannsóknir hafa verið gerðar sem
Eins konar
hormónar
sýna slíka verkun melatóníns.
Melatónín hefur verið í tísku und-
anfarin misseri sem töfraefni sem
lækni hitt og þetta og hægi á öldr-
un. Enn sem komið er er þetta allt
á tilraunastigi og hugsanlegt nota-
gildi melatóníns á huldu. Melatónín
er, eftir því sem ég best veit, ein-
ungis á mai-kaði erlendis sem
náttúrumeðal en ekki sem lyf. Ef
það er ekki á markaði hér á landi
er það sennilega vegna þess að
enginn hefur sóst eftir að flytja það
inn. Fyrir um tveimur mánuðum
var töluverð umfjöllun um þetta
efni á síðum Morgunblaðsins.
•Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt lækninn um það sem þeim ligg-
ur á hjarta og er tekið á móti
spurningum á virkum dögum á milli
klukkan 10 og 12 í síma 569 1100.
Jólatilboð
Dýna - Queen stærð
frá kr. 47.800 stgr.
Rekkjan hf.
PIZZA & TOAST
LITLI SÆLKERAOFNINN FRÁ
Lítill og nettur borðofn
sem getur alla skapaða hluti.
Steikir og grillar, ristar brauð og
bakar kökur. Og nú getur þú
eldað pizzu á hinn eina og sanna
ítalska máta.
Ofninum fylgir sérhönnuð
leirplata (pizzasteinn), sem jafnar
hita.og dregur í sig raka. Þú eldar,
án fitu, pizzu, kjöt, fisk o.fl.
PIZZA & TOAST
kostar aðeins
kr. 10.250,- stgr.
TILVALIN JÓLAGJÖF
TIL SÆLKERA
6 gerðir (íf'ltTTfHTI^) borðofna
á verði frá 9.300,-
/ponix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420