Morgunblaðið - 16.12.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 35
FJÖLMIÐLAR
Morgunblaðið/Páll Stefánsson
Sprangað
um vefinn
MARGAR útvarpsstöðvai' eru með
heimasíður á veraldarvefnum. Þar
er einnig að finna stöðvar sem
stunda útvarpssendingar um vef-
inn. Til að taka við þeim þarf tölv-
an að vera útbúin til að flytja hljóð.
Ríkisútvarpið er að setja upp
heimasíðu (http://www.ruv.is) og
verða þar birtar dagskrár Útvarps
og Sjónvarps og fleira.
Af útlendum stöðvum má nefna
heimasíðu BBC í Bretlandi
(http://www.bbc.co.uk) sem
geymir ijölbreyttar upplýsingar.
Þýska stöðin Deutsche Welle er
einnig með ítarlega heimasíðu
(http://www-dw.gmd.de/) sem
hægt er að nálgast á ensku og
þýsku. Þar eru einnig tengi í ýmsar
áttir. Sænska ríkisútvarpið er með
myndarlega heimasíðu
(http://www.sr.se). Sérstök síða er
kölluð Sýndarnorður (Virtual
North) og þar er að finna upplýs-
ingar um útsendingar Svía á stutt-
bylgju, um gervihnetti og alnetið
(http://www.sr.se/rs).
Vestanhafs er um auðugan garð
að gresja á þessu sviði. Almanna-
útvarpið PBS er með heimasíðuna
(http://www.pbs.org), ABC er með
(http://www.abcradio.com) og staf-
ræna útvarpið USA Digital Radio
er með heimasíðuna
(http://www.usadr.com/).
Hvalur á flugi
í Iceland Review
ÞAÐ ER ekki á hverjum degi
að það tekst að festa stökk-
vandi hnúfubak á filmu en það
gerði nú Páll Stéfánsson, ljós-
myndari Iceland Review, síð-
sumars í hvalaskoðunarferð á
Skjálfanda, í báti frá Húsavík.
Fróður maður taldi að hvalur-
inn gæti verið allt að 30 tonn
að þyngd og þá upp undir 17
m langur.
í samvinnu við Hótel Húsa-
vík var prentuð veggmynd og
send samanbrotin með 4. tölu-
blaði Iceland Review á þessu
ári til lesenda um allan heim.
Viðbrögðin hafa ekki látið á
sér standa, segir í frétt frá Ice-
land Review, og fólk sé himin-
lifandi yfir þessari einstöku
mynd.
Páli Stefánssyni segist svo
frá í samtali: „Eg áttaði mig
varla á þessu fyrr en allt var
yfirstaðið. Hnúfubakurinn
þeyttist upp úr hafinu, það var
eins og hann svifi með miklum
hávaða og skvampi, og hvarf
samstundis í djúpið. Þetta var
nánast sekúndubrot, en ég
smellti af þegar hvalinn bar
hæst.“
„ Við vorum að elta þennan
hval, ég var búinn að ná bak-
ugganum og sporðinum nokkr-
um sinnum þegar hann kom
upp til að anda, en við vissum
auðvitað aldrei hvar hann
kæmi upp næst. Og enginn
átti von á að hann færi á flug.
Þetta var slembilukka, ég
trúði því varla eftir á að hval-
urinn væri á filmunni," bætti
Páll við.
Hótel Húsavík og Flugleiðir
fengu umframprentun af vegg-
myndinni, sem notuð verður til
kynningar víða í útlöndum.
Pappirs- kostnaður
rýrir hag DailyMail
London. Reuter.
BREZKA blaðaútgáfan Daily Mail
& General Trust plc hefur skýrt
frá því að hagnaður fyrir skatta
hafi rýrnað um 27%, þar sem verð
á dagblaðapappír hafi hækkað.
Hagnaður fyrir skatta á tólf
mánuðum til 1. október 1995 rýrn-
aði í 66.8 milljónir punda úr 92.1
milljón punda á næstu tólf mánuð-
um á undan.
Kostnaður vegna kaupa á dag-
blaðapappír jókst um tæplega 20
milljónir punda.
Fyrirtækið er vongott um að
takast megi að auka hagnað á ný.
Aukin útbreiðsla
Deildinni Associated News-
papers var hrósað fyrir aukna út-
breiðslu Daily Mail og systurblaðs-
ins Mail on Sunday.
Auglýsingatekjur þeirra jukust
um 10% og hafa aldrei verið meiri.
Hagnaður minnkaði þó vegna auk-
ins kostnaðar og aukinna útgjalda
á ritstjórnum blaðanna.
Verð Daily Mail var hækkað í
35 pens úr 32 pensum eintakið í
júlilok til að vega á móti auknum
kostnaði og fyrirtækið segir að
hækkunin hafi ekki dregið úr út-
breiðslu.
Daglega voru seldar 1.8 milljón-
ir eintaka af Mail að meðaltali,
um 600.000 fleiri eintök en ai
Daily Express, aðalkeppinautin-
um.
Methagnaður varð af útgáfu
landshlutablaða Northcliffe-útgáf-
unnar vegna dijúgra auglýsinga-
tekna, en hagnaður viðskiptaút-
gáfunnar Euromoney minnkaði
um tæpan fjórðung í 18,2 milljón-
ir punda.
J&b er merkilegt hvað sum lög eru lífsseig.
M_ög eins og Only You, Sunny side of the street,
Amor, Quando quando, Keep On Running, More og öll hin.
Þau þurfa ekki einu sinni að vekja upp minningar því að þau
búa yfir sjálfstæðum töfrum.
Á þessari geislaplötu, sem gleðigjafinn André Bachmann
sendir frá sér, eru mörg þessara laga auk nokkurra sem
sjaldnar hafa heyrst.
Platan er líka eins og André; Ijúf, þægileg og kemur beint
frá hjartanu.
Þetta er geislaplata til þin.
JAPISS