Morgunblaðið - 16.12.1995, Side 53

Morgunblaðið - 16.12.1995, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1995 53 SJÓIMMENIMTAVETTVANGUR MÁLVERK eftir Þorvald Skúlason í Menntaskólanum á Akureyri. vík fram um gott vatn og naut ég þess að synda í þeim og hér hafði sú síðasttalda vinninginn. Á báðum stöðum voru gufuböðin góð, einkum á Þelamörk enda úr viði, sem gerir gufuna og jafnframt hitann mýkri. Viðurinn andar, en það gerir plast- ið ekki og kastar því frá sér hitan- um, sem verður fyrir vikið óþægi- lega stingandi er hann stigmagn- ast. í skólanum er myndskreyting eftir mig frá 1973, en hér tel ég mig hafa gert afleit mistök er ég lét telja mig á að setja liti í lágmynd- ina, sem að sjálfsögðu á að vera í einum hlýjum og möttum litatón og helst gráum. Þá fyrst mun hún birtast skoðandanum í sinni réttu og heillegu mynd. Eins og hún er í dag virkar hún á mig, og vafalítið fleiri, eins og hún hafi verið klædd í jólapappír og svona lítið rými þol- ir ekki jafn efnismikla og sterka liti. Gamli bærinn í Laufási var að sjálfsögðu á óskalistanum og þar var tilefni til að doka lengi og hugsa til liðinnar tíðar. Menningin felst ekki í yfirbyggingu né umbúðum haldi það einhveijir og því síður ögurstundinni, sem það tekur að fá ruslfæði heim í stofu. Hér þarf að búa enn betur að gamla tímanum og gesturinn þarf að geta haft eitt- hvað markvert milli handanna til minningar um heimsókninna. Út- lendum mun finnast staðurinn stór- fróðlegur, en hið upprunalega er öðru fremur inni í myndinni á tím- um sýndarmennsku og yfirborðs. Hér talar fortíðin til gestsins, lágum en áhrifamiklum rómi. Hrísey telst perla Eyjaljarðar og fínnist einhveijum Akureyri fram- andleg er heimsókn í eyjuna líkust því að koma í aðra heimsálfu. Hið litla samfélagi virkar afar lokað og frumstætt, ásamt því sem kirkjan á staðnum er eitt skýrasta og kostu- legasta dæmi um einangrað mat á skreytikenndri fegurð, sem ég minnist að hafi orðið á vegi mínum. Frá eyjunni blasir við tignarleg feg- urð til allra átta, einkum frá odda hennar þar sem vitinn er staðsett- ur. Sér til Ufsastrandar og Hvannadala á vinstri hönd en Látrastrandar og Gjögurs til hægri. Hríseyjarfeijan, lítil og skemmti- leg, minnir á fyrri tíma og maður skoðaði af áhuga ljósmyndirnar neðan þilja, sem mættu vera fleiri, þær segja nokkra sögu og eins og jarðtengja mann aðstæðunum. Ferðin sat djúpt í skrokknum, er stefnan var óvænt tekin á Múlann og göngin í gegnum hann. Þótti mér, gömlum vegavinnumanninum, sem man þá tíð er menn notuðu hestvagna, haka og skóflur, þetta hrikaleg framkvæmd og svimaði við að hugsa til baka. Skyndilega birt- ist svo Ólafsfjörður, reisulegt þorp og ríkmannlegt með glæsilegum og þriflegum sædrekum við hafnar- bakkann. Eitthvað til að verða stolt- ur af, en mikið var maður undrandi af að líta byggðina sem er einna þéttust þar sem hlíðarnar eru bratt- astar, en stijálast svo innar þar sem landrýmið er meira og slakkinn meiri. Á bakaleiðinni var komið við í Dalvík og þar er einnig búsældar- legt og færir heim sannin um yfir- burði hugvits og vakandi skilning- arvita. Með því síðasta sem við Helgi Vilberg, skólastjóri myndlistarskól- ans á Akureyri, tókum okkur fýrir hendur var til margra ára fyrirhuguð dagsferð að Ásbyrgi, með viðkomu á öllum helstu stöðum á leiðinni, svo sem Goðafossi, Mývatni, Náma- skarði, Grímsstöðum, Dettifossi, og svo Húsavík á bakaleiðinni. Og þó ég hafí ekki gert neitt annað fyrir norðan en að fara þessa einu ferð var það eitthvað til að minnast ævina á enda. Allt lagðist á eitt, veðrið, skyggnið og stemmningin. Komust við strax í gott skap, þegar við sáum hvað gert hafði verið á bökkum Goðafoss, en þar er komið skilti frá Eimskip með upplýsingum og fróð- leik um fossinn. Síðan rak hveija náttúruperluna á fætur annarri með frábæru útsýni suður til Vatnajökuls og kennileitinu og toppinum- á Ódáðahrauni, sjálfri tignarlegri Herðubreið, sem fylgdi okkur eins og lífvörður lengi vel. Undarlega magnað flall. Undrin við Námaskarð leiða hugann að kraftinum úti í himin- geiminum og hvernig hann kraum- ar á öðrum himintunglum. Vita menn að sólin, sem sinna verka ekki sakna lætur, okkur þykir svo fögur og er svo dijúgur gleðigjafi Norðurálfubúum, er eitt kraum- andi gígavíti, og gossúlurnar ná hálfa miljón kílómetra frá henni út í geiminn? Það er mikil ástæða, að undrast yfir þeim öflum, sem öllum þessum krafti stýra og halda í skefjum á hinn undursamlegasta hátt. Við eigum fleiri dæmi um þau feikna- öfl, sem ráða lífinu, en fátt ef nokk- uð er þó jafn magnað og mis- kunnarlaust og sjálfur Dettifoss, „ægilegur og undrafríður“, og trú- lega verður enginn samur sem hann hefur litið og upplifað hin feiknþrúngnu jötunöfl sem að verki eru. „Þar sem aldrei á gijóti gráu/gullin mót sólu hlæja blóm/ og ginnhvítar öldur gljúfrin háu/ grimmefldum nísta heljarklóm“ þetta eru með sönnustu og mögnuð- ustu ljóðlínum, er Fjallaskáldið orti til íslenzkrar náttúru, um leið og þjóðin gleymir þeim og Dettifoss hættir að vera til, verður saga landsins öll, því hann er í bland við landvættina, og að þeim skal með varúð farið. Mikil viðbrigði voru svo að kom til Ásbyrgis, mynnast við kyrrðina, lygnuna, gróðurinn og kristallstært bergvatnið. Maður var í hálfgerðu roti eftir alla þessa miklu sjónrænu viðburði dagsins, er komið var að Breiðar- víkuvita og rennt niður Tjörnes. Lengst á Skjálfanda blasti Flatey við, en eins og fjarst í eilífðar útsæ sá í Grímsey. Það bíður seinni tíma að segja frá safninu í Húsavík, sem var að loka er okkur bar að garði, og við sáum rétt í sjónhendingu, en annað sem helst vakti athygli ásamt blíð- legri fegurð sveitanna var hve skepnurnar á bithögunum voru ein- staklega fallegar, hreinlegar og vSl á sig komnar. Þá voru skólarnir svo miklir um sig og vel úr garði gerð- ir, að engu er saman að jafna... Vitundarvígsla manns og sólar Du-lfrseöi fyrir þá. sem leita. Bókin fæst í Bókahúsinu, Skeifunni 8 Erlenciajr bækur um heimspeki og skylcl efni. Námskeið og leshringar. Á.h'u.gamenn nm þrónnarheimspehi Ðox 4124. 124 Rvk., Fax 587 9777 Sími 557 9763 W&f' Island í kortum, máli og myndum Margmiðlunarútgáfa á geisladiski, CD-ROM Náma fróðleiks fyrir heimili og skóla, sniðin að tæknikröfum upplýsingaþjóðfélagsins. Á diskinum eru um 200 ferðakort, nær 1000 Ijósmyndir og myndbandaglefsur frá völdum stöðum. Einfalt leitarforrit gerir kleift að fletta upp á öllum orðum textans. Forritið keyrir í WINDOWS 3.1, 3.11 eða WINDOWS 95 eftir Höskuld Þráinsson Tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna 1995 Sjálfsögð handbók á hverju heimili. Ómetanlegt hjálpartæki fyrir skólafólk á öllum skólastigum Nauðsynlegt stuöningsrit fyrir kennara. Bókin hefur að geyma: ' / Stuttar skilgreiningar á liðlega 420 hugtökum og heitum í íslenskri málfræði. Yfirlit yfir íslenska málfræði i víðasta skilningi þess orðs. /ök NÁMSGAGNASTOFNUN -SKÓLAVÖRUBÚÐ Laugavegi 166 • 105 Reykjavík • Sími 552 8088 • Pox 562 4137

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.