Morgunblaðið - 30.12.1995, Side 19

Morgunblaðið - 30.12.1995, Side 19
Strengir þú áramótaheit? „Eg sti-engi heit ekkert frekar um ái-amót en aðra daga.“ Hefur þú einhvern líma strengt áramótaheit? „Já, en það stóð ekki lengi. Ég ætlaði einu sinni að hætta að re.vkja uni áramót og stóð við það í þrjá daga. Seinna liætti ég alveg og þurfti engin áramót til.“ f3 ■ „Nei, ég geri það ekki.“ Hefurþú aldrei strengt heit um áramót? „Jú, en það mistekst því miður alltaf hjá mér. Fyrir ári síðan ætlaði ég að hætta að reykja, eins og svo margir. í raun hætti ég aldrei alveg, minnkaði bara reykingai-nar og reykti þi'jár sígarettur á dag i staðinn fyi'ir heilan pakka. Eina eftir morgunmat og tvær eftir kvöldmat. Ég ætla að reyna að vera dugleg stelpa á nýja árinu en vil ekki lofa neinu.“ „Ég? Æ, maður hefur oft rcynt, en það síðan fallið um sjálft sig þegar liðið er á nýja áríð. Annars er ég ekki búin að ákveða það.“ Hvenær strengdiv þú hcit síðast? „Um siðustu áramót ákvað ég að reyna að vera góð stelpa og það hefur tekist bærilega, held ég.“ BÆTT OG BETRAÐ A TÍMAMÓTUM „Nei, nei, nei, ég sti’engi aldrei ánunóta- heit.“ Hefur þú aldrei sóð ástæðu til þess? „Nei, ég bara nýt lífsins frá degi til dags.“ VIÐ áramót stíga margir á stokk og strengja þess heit, í huganum að minnsta kosti, að fara betur með lungun á nýju ári, lifrina eða meltingarfærin, konuna, manninn, börnin, hundinn og nágrannann, jafnvel tengdainönnnu. Orðtakið þekkist; í fornu máli, samkvæmt bók Jóns G. Friðjónssonar, Mergi máisins, og er einnig talað um að stíga á stein. Þar segir að stokkur merki trúlega frambrún öndvegis og að líkingin sé dregin af því, að er menn kveðji sér hljóðs standi þeir upp og taki sér gjarnan stöðu á einhverri upphækkun. Þótt endanleg skil á efndum séu auðvitað gagnvart sjálfinu eða almættinu fela heitstrengingar í votta viðurvist í sér meiri skuidbindingu. Síðasta könnun Hagvangs á siðum Islendinga um áramót leiddi í ljós að 10% nýta sér þennan valkost. „Áramótaheit, til hvers? Ég er allt of góður við sjálfan mig til þess að vera með einhvers konai- yfirlýsingar.” Finnst þér cngin ástæða til þess að bæta þig?. „Bæta mig! Ég er búinn að vera að bæta mig í 64 ár. Annars hét ég því einhvern timann að vera fjögur ár í lögreglunni en þau eru nú orðin 39.“ „Ég hef aldrei vanið mig á að strengja áramótaheit." Hefur þú enga lesti sem gott værí að venja sigaf? „Jú, fullt af þeim. Samt hefur mér ekki fundist ástæða til að strengja ncin heit.“ Jóhann Alfreð Kristinsson „Nei, ég geri það ekki núna. Ég gerði það reyndar fyiir tveimur árum, ákvað þá að hætta að reykja og ]iað hefur gengið fram að þessu. Ertu þá ekki með neinn synda- lista til að stytta? „Nei, ég hef bara ekkert hugsað um það þvl það hefur verið svo mikið að gera. Annars líður mér alltaf betm’ og betur eftir að hafa hætt að reykja þannig að ég er bara að hugsa um að endurnýja það hcit.“ „Ja, það getur vel verið.“ Hcfur þú ein- hvern tímann gevt það? „Já... einu sinni. Þá lofaði ég, sko, að ég ætlaði ekki að vera reiður við mðmmu, mjög oft.“ Stóðstu \ið það? „Neei.“ Hvað er langt siðan? „Ég var átta ára þá og verð ellefu ára í febrúar." Ætlarþú ckki að lofa neinu núna? „Það getur vel verið að það komi eittlwað. Ég ætla bara að sjá til.“ „Ég strengdi einu sinni það heit að vera góðm- við konuna og stóð við það. Ætli áramótaheitið núna verði ekki það að vera kurteisari og hætta að misbjóða fólki. Að fara ekki yfir strikið."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.