Morgunblaðið - 30.12.1995, Síða 48
ttrgmtÞlfifrtfr
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SlMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NKfFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Falast eft-
ir Funa
ísafirði. Morgunblaðið.
ÁHUGAMENN um uppbyggingu
sorpbrennslustöðvarinnar Funa á
ísafirði, sem gjöreyðilagðist í snjó-
flóði í október síðastliðinn, hafa sent
bæjarráði ísafjarðar bréf, þar sem
óskað er eftir viðræðum um hugsan-
leg kaup þeirra fyrrnefndu á rústum
'’^fíöðvarinnar. Bæjarstjórinn á
ísafirði, Kristján Þór Júlíusson, stað-
festir að framangreint erindi hafi
borist og að honum hafi verið falið
að hefja viðræður við áhugamennina.
„Það er hið besta mál ef einhver
hefur áhuga á að kaupa það sem
eftir er af stöðinni og heíja þar
vinnslu á ný. Hins vegar hafa engar
viðræður farið fram enn og því get
ég ekki sagt til um hugsanlegt sölu-
verð né annað. Við vitum hins vegar
hvað stöðin kostar okkur og hversu
mikið tjónið er. Annað er ekki hægt
að segja um málið á þessari stundu,“
sagði Kristján Þór.
Getur staðið undir sér
* „Okkar hugmyndir lúta að því að
koma starfseminni í gagn aftur og
það sem fyrst. Eg gæti ímyndað
mér að það taki um einn og hálfan
til tvo mánuði að koma stöðinni í
gang, en einhver tími til viðbótar
gæti liðið þar til allt væri komið í
samt lag og var fyrir snjóflóðið,"
sagði Jón Veturliðason, fram-
kvæmdastjóri verktakafyrirtækisins
Jóns og Magnúsar hf. á ísafirði, en
hann er í forsvari fyrir áhugamenn-
ina svonefndu, sem allir eru búsettir
á ísafirði.
Jón sagðist ekki telja að fyrirtæki
sem þetta væri mjög arðvænlegt en
taldi samt að það gæti staðið undir
sér. „Við höfum trú á að þetta sé
hægt og því viljum við viðræður við
bæjarfélagið. Við erum að viða að
okkur ýmsum kostnaðartölum varð-
andi uppbyggingu og þegar þær
liggja fyrir eftir áramótin, munum
m við hefja viðræður við bæjaryfir-
völd,“ sagði Jón.
Flugnmferðarstj órar samþykktu samning við ríkið í gærkvöldi
Island tekur við formennsku í EFTA og EES-nefndinni um áramótin
Full fram-
kvæmd EES
ÝMSAR reglur samningsins um Evr-
ópskt efnahagssvæði taka gildi hér
á landi um áramótin. í sumum tilvik-
um er um það að ræða að aðlögunar-
tími að ákvæðum samningsins renn-
ur út, en í öðrum tilfellum bætast
nýjar reglur við samninginn. Þá tek-
ur Island við formennsku í EFTA og
stjórnarnefnd Evrópska efnahags-
svæðisins nú um áramótin.
Um áramót rennur út aðlögunar-
tími sá, sem Islendingar fengu að
ákvæðum EES um frjálsar fjár-
magnshreyfingar og má eftir 1. jan-
úar ekki leggja hömlur á beinar fjár-
festingar og fjárfestingar í fasteign-
um hér á landi. Þar með lýkur lengsta
aðlögunartímabilinu, sem íslending-
ar njóta samkvæmt EES og frá og
með áramótunum gilda því ákvæði
samningsins um fijálst flæði vöru,
þjónustu, íjármagns og fólks að öllu
leyti hér á landi. Eina varanlega
undanþágan í samningnum er frá
fjárfestingum ríkisborgara annarra
EES-ríkja í sjávarútvegsfyrirtækj-
um.
Frestur til að uppfylla
heilbrigðisskilyrði rennur út
Um áramótin rennur sömuleiðis
út frestur sá, sem íslenzk fískvinnslu-
fyrirtæki hafa haft til að uppfylla
skilyrði reglna EES um heilbrigði og
hreinlæti. Enn hafa nokkur smærri
hús ekki uppfyllt reglurnar og má
gera ráð fyrir að þau hætti störfum,
ýmist sjálfkrafa eða með sviptingu
vinnsluleyfis.
Nýjar reglur, sem bætast í EES-
samninginn, hafa tekið gildi nánast
mánaðarlega frá því að samningur-
inn tók gildi fyrir tveimur árum.
Flestar þessar reglur eru tæknilegs
eðlis og vekja líklega takmarkaðan
áhuga almennings. Nokkrar slíkar
munu jafnframt taka gildi nú um
áramótin og má nefna reglur um
hemlabúnað skráningarskyldra kerra
og aftanívagna, sem eru þyngri en
750 kíló.
Um áramótin gengur í gildi aðild
EFTA-ríkjanna að menningarmála-
áætlunum Evrópusambandsins, sem
meðal annars eiga að stuðla að
menningarlegum fjölbreytileika í
Evrópu, vernd séreinkenna og efl-
ingu lítilla málsvæða. Samið var um
það á árinu að víkka út samnings-
svið EES-samningsins þannig að það
næði til menningarmála.
Island tekur nú um áramótin við
formennsku í EFTA-ráðinu, sem það
mun gegna næsta hálfa árið. Jafn-
framt tekur Island við formennsku í
sameiginlegu EES-nefndinni af hálfu
EFTA, en fulltrúar EFTA og fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins skiptast á um að stýra fundum
í nefndinni.
Samíð um 10,3% liækk-
un og hagræðingu
Aramótin
undirbúin
MIKILL meirihluti félagsmanna í
Félagi íslenskra flugumferðarstjóra
samþykkti seint í gærkvöldi kjara-
samning þann sem gerður var á milli
félagsins og ríkisins laust fyrir
klukkan 20. Á sjötta tug félags-
manna sótti fundinn en um níutíu
manns eru í félaginu. Karl Alvars-
son, sem á sæti í samninganefnd
flugumferðarstjóra, segir að félags-
menn séu almennt sáttir við samn-
^pnginn og telji hann fela í sér umbæt-
ur til lengri tíma litið. Hann kveðst
vita um tvo félagsmenn sem hætta
störfum og fer annar þeirra til starfa
erlendis.
Sátt náðist um innanhússtillögu
Þóris Einarssonar ríkissáttasemjara
sem hann lagði fram í drögum í fyrri-
nótt á óformlegum fundi deiluaðila.
„Ég er mjög sáttur við niðurstöðuna,
held að báðir aðilar verði sáttir við
hana og held að þjóðfélagið verði
sátt við hana,“ segir Þórir.
Samkvæmt samningnum nemur
Uaunahækkun til flugumferðarstjóra
10,3% út samningstímann, eða til
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR samþykktu samninginn á félagsfundi.
loka næsta árs, að teknu tilliti til
hagræðingar sem á ekki að verða
síðar en 1. október nk. Gunnar
Björnsson, varaformaður samninga-
nefndar ríkisins, segir ákvæði um
hagræðingu vera ástæðu þess að rík-
ið hafi talið sig geta samþykkt þessa
hækkun. 7,5% hækkun verður strax
en afgangur næst þegar hagræðing
fæst í rekstri. „Ég er ánægður með
að samningar náðust áður en deilan
fór í hnút,“ segir Gunnar.
Hagræðingin hefst á breyttu
vaktafyrirkomulagi og vinnutilhögun
miðast við að flutt verði í nýju flug-
stjómarmiðstöðina úr gamla flug-
turninum á árinu 1996, auk þess sem
gerðar verða breytingar á vaktafyrir-
komulagi í flugturninum á Keflavík-
urflugvelli. Ennfremur felur samn-
ingurinn í sér að flugmálastjóm lýsi
því yfir að stefnt verði að því að
minnka yfirvinnu og haft verði að
leiðarljósi að aukavinna sé að jafnaði
eigi meiri en 30 tímar á mánuði hjá
hveijum og einum flugumferðar-
stjóra.
Réttarstöðunefnd skipuð
Einnig er stefnt að því að sam-
gönguráðhérra í samráði við utanrík-
isráðherra ákveði að skipa nefnd til
að meta réttarstöðu flugumferð-
arstjóra, ekki síst í ljósi þess að þeir
hafa ekki verkfallsrétt, og verður
nefndin skipuð þremur fulltrúum frá
ráðuneytum samgöngu-, utanríkis-,
og fjármála, þremur frá Félagi ís-
lenskra flugumferðarstjóra en odda-
maður verður einhver sem fyrmefnd-
ir aðilar koma sér saman um.
Karl kveðst binda talsverðar vonir
við starf nefndarinnar í þeim tilgangi
að bæta réttarstöðu flugumferðar-
stjóra til framtíðar.
■ Held að þjóðfélagið/4
Morgunblaðið/RAX
Þegar árið 1995 verður kvatt
mun væntanlega loga glatt í
brennum út um borg og bý.
Litli snáðinn Bjarki Pétursson
vildi leggja sitt af mörkum til
að gera brennuna við Ægisíðu
í Reykjavík sem veglegasta.
Gilsfjarð-
arvegnr
boðinn út
LAGNING vegar yfir Gilsfjörð hef-
ur verið boðin út hjá Vegagerðinni.
Áætlað er að framkvæmdir geti
hafist á næsta ári og verði að fullu
lokið 15. ágúst 1999. Gert er ráð
fyrir þeim möguleika að ljúka fram-
kvæmdum ári fyrr og er tilboðs
óskað í báða möguleika. Umferð
verður hleypt á veginn fyrir 1. des-
ember 1998 eða ári fyrr ef fram-
kvæmdum verður flýtt.
Vegurinn fer utarlega yfir Gils-
fjörð, það er að segja um Kaldrana
í Dalasýslu og í Króksíjarðarnes í
Reykhólahreppi. Vegurinn, með
aðkomuvegum í Saurbæjar- og
Reykhólahreppum, er alls 10,2 km
að lengd. Hann verður lagður að
mestu leyti á fyllingu og brúin að-
eins 65 metra löng.
Jón og Anna
vinsælust
JÓN OG Anna eru vinsælustu
nafngiftir ársins samkvæmt
heimildum frá Hagstofu ís-
lands. Bæði nöfnin hafa löng-
um notið vinsælda. Fyrsti ís-
lenski Jóninn var Jón Ög-
mundsson biskup en Anna var
móðir Maríu meyjar að talið er.
Ósk er vinsælasta seinna
nafn á stúlkum á árinu en Þór
á drengjum. Bæði nöfnin hafa
notið vinsælda lengi sem seinni
nöfn enda falla þau vel inn í
tískustrauma dagsins í dag en
algengt er að börn séu skírð
tveimur stuttum nöfnum. Ekki
er neitt eitt nýtt „tískunafn"
áberandi.
■ Jón Þór og Anna/24