Morgunblaðið - 12.01.1996, Page 13

Morgunblaðið - 12.01.1996, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 13 Vetrar- sport ’96 FÉLAG vélsleðamanna í Eyjafirði stendur um helgina fyrir vélsleða- og útilífssýningunni Vetrarsport ’96 í Iþróttaskemmunni á Akureyri. Vetrarsportsýningarnar eru ár- legur viðburður og þar gefur að líta allt það nýjasta á vélsleðamarkaðn- um og margs konar aukabúnað tengdan vélsleðum. Einnig mikið úrval fatnaðar og annars búnaðar til að stunda fjallamennsku og úti- vist, sérstaklega að vetrarlagi. Nýr þáttur er sýning á myndum Ragnars Th. Sigurðssonar. Þá munu hann og Ari Trausti Guðmundsson árita og selja bók sína Jökulheimar, sem út kom fyrir jólin. Sýningin er opin frá kl. 10 til 18 og 13 til 18 á sunnudaginn. Á laug- ardagskvöldið verður árshátíð Fé- lags vélsleðamanna í Eyjafirði haldin í Sjallanum. -----» ♦ ♦----- Heimir á tvenn- um tónleikum KARLAKÓRINN Heimir í Skaga- firði heldur tvenna tónleika á sunnu- dag, 14. janúar. Þeir fyrri verða í félagsheimilinu Ýdölum í Suður- þingeyjarsýslu og hefjast kl. 16 og þeir síðari í félagsheimilinu Frey- vangi í Eyjafjarðarsveit og hefjast kl. 20.30. Kórinn er með skemmtilega og fjölbreytta söngskrá, m.a. ný lög sem kórinn hefur verið að æfa að undanförnu. Söngstjóri er Stefán R. Gíslason, undirleikarar Thomas Higgerson og Jón St. Gíslason. Einsöngvarar með kórnum eru Einar Halldórsson, Pét: ur Pétursson og Sigfús Pétursson. í tvísöng og þrísöng syngja Björn Sveinsson, Gísli Pétursson, Kolbeinn Konráðsson og Þorleifur Konráðsson auks Péturs og Sigfúsar Péturssona. Söngmenn eru um 60. -----»--»-♦---- Gauragangur aftur á þriðjudag FYRSTA sýning á „Gauragangi" eftir Ólaf Hauk Símonarson að loknu áramótaleyfi félaga í Leikfélagi Húsavíkur verður þriðjudaginn 16. janúar kl. 20.30. „Gauragangur" var frumsýndur 4. nóvember sl. og sýndar voru 20 sýningar fyrir áramót. Rúmlega 2000 manns hafa séð sýninguna og hefur hún hlotið frábærar viðtökur áhorfenda. Tvær breytingar verða gerðar á hlutaverkaskipan, Vaigerður Jóns- dóttir tekur við hlutverki Gunnfríð- ar, systur Orms, af Kolbrúnu Þor- kelsdóttur og Hjálmar Ingimarsson leikur Knút, kærasta Gunnfríðar, í forföllum Björgvins Björgvinssonar. Rétt er að benda á að um takmark- aðan sýningaríjölda verður að ræða. Leikstjóri „Gauragangs" er Sigrún Valbergsdóttir. Boðið er m.a. upp á: Ljósastiltingu Afgasmælingu Hleðslumælingu Athugun hjólbarða Mældur frostlögur Mat á viðgerð Hemlaprófun Sýnd vinna í réttingabekk Sýnd hjólastilling Sýnd sprautun í klefa Sýnd bilanagreining í sérhæfðum tækjum Sérverkstæði kynna pjónustu sína, svo sem vélaviðgerðir FÚSK ER... EKKI TIL FYRIRMYND AR! Sjáið fagmenn að verki. Öryggi, pekking, þjónusta. Bílgreinasambandið, sími 568 1550. Hvad geta verkstæðin gert fyrir þig? Kynntu þér hvað þitt verkstæði býður upp á Opið hús hjá verkstæðum Bílgreinasambandsins Verði veikomin, opið hús i dag á eftirtöldum verkstædum: BG Bílakringlan hf„ Grófinni 7-8, Keflavik. Bifreiðar og landb.vélar hf„ Suðurlandsbr. 14, Reykjavik. Bifrv. Árna Gfslasonar hf. Tangarhöfða 8-12, Reykjavik. Bifrv. Friðriks Ólafssonar hf. Smidjuvegi 14, Kópavogi. Bifrv. Sigurdar Valdimarssonar Óseyri 5a, Akureyri. Bilamáiun Halldórs Þ. Nikulássonar Funahöfða 3, Rvik. Bílaréttingar og sprautun Sævars Skeifunni 17, Rvík. Bílaspítalinn Kaplahrauni 1, Hafnarfirði. Bilaverkst. Dalvfkur, Dalvik. Bilaverkst. Sigurbjörns Árnasonar Flugumýri 2, Mosfbæ. Bílapjónusta Péturs ehf. Vallholti 17, SelfossL Bílfoss hf. Gagnheiði 31, Selfossi. Biliðn hf. Iðavöllum 8, Keflavik. Billöfur hf. Nýbýlavegi 2, Kópavogi. Bilson sf. Ármúla 15, Reykjavlk. Bflver sf. Smiðjuvegi 60, Kópavogi. Heitt Bflvogur hf. Auðbrekku 17, Kópavogi. BK bílaverkstæði Garðsbraut 48, Húsavik. Borðinn hf. Smiðjuvegi 24, Kópavogi. Bræðurnir Ormsson - BOSCH verkst. Lágmúla 9, Rvík. Hekla hf. Laugavegi 170-174, Reykjavik. Höldur sf. Draupnisgötu 1, Akureyri. Kaupfélag Rangæinga Rauðalæk. Lúkasverkstæðið Siðumúla 3-5, Reykjavík. P. Samúelsson hf. Nybýlavegi 4-8, Kópavogi. Pardus hf. Hofsósi. Ræsir hf. Skúlagötu 59, Reykjavík. Stilling hf. Skeifunni 11, Reykjavik. Stimpill hf. Auðbrekku 30, Kópavogi. Vélabær hf. Bæ, Andakil, Borgarfirði. Þ. Jónsson Vélaland hf. Skeifunni 17, Reykjavfk. Þórshamar hf. Tryggvabraut 3-5, AkureyrL á könnunni - ýmsar uppákomur! PÓSTUR OG SÍMI ...að Big Mac hamborgari kostar í Danmörku 304 kr. Fyrir það verð fæst símtal í 1 klst. og 20 mín. á dagtaxta innanbæjar í Danmörku. ...að Big Mac hamborgari kostar á íslandi 395 kr. Fyrir það verð fæst símtal í 7 klst. og 51 mín. á dagtaxta innanbæjar á íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.