Morgunblaðið - 12.01.1996, Page 25

Morgunblaðið - 12.01.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 25 t.d. skurðstofum, meðferða- og lækninga-rannsóknaaðstöðu, til- hneiging til að beina langlegusjúkl- ingum í ódýrara húsnæði en á bráðadeildum sjúkrahúsa og þjón- usta við fólk í heimahúsum á von- andi eftir að aukast. Sú aðferð sem tíðkast hefur hér við þróun sjúkrahúsbygginga eru sífelldar viðbætur við eða nýjar innréttingar í óhentugu húsnæði sem hannað var og byggt var fýr- ir hálfri til einni öld. Þetta er n.k. LEGOkubbaaðferð, við bætum sí- fellt nýjum kubbum utan á eða innan í gömlu húsin. Þegar til lengdar lætur hlýtur þessi háttur að vera fremur óhagkvæmur. Bygging nýs bráðaspítala er að sjálfsögðu dýr, en myndi sennilega ekki kosta meira en sem svaraði veltu Hagkaups í eitt ár. Niðurlag Stóru sjúkrahúsin í Reykjavík eru í kreppu, og þau eru í reynd milli steins og sleggju, þar sem fjárveitingavaldið og þingið er sleggjan og fólkið í landinu 'sem þarf á þjónustu þeirra að halda er steinninn. Steinninn verður ekki færður úr stað, en við ætlumst til að sleggjan vandi betur til högg- anna. I tveimur greinum um vanda sjúkrahúsanna hefur verið minnst á aðferðir til að vanda betur til umræðu og ákvarðana í þessum málum og á nokkur atriði sem gætu aukið hagkvæmni og sparað fé án þess að þjónústa skertist, þ.á m. nána samvinnu sjúkrahúsa í Reykjavík við stórar sérfræði- læknastofur, sameiningu Landspít- ala og Borgarspítala og byggingu nýs bráðaspítala. Ljóst er því að ýmsir möguleikar eru í boði til hagræðingar, og umræða um vanda spítalanna á að snúast um þá og aðra af sama meiði, en ekki einkennast af lítt rökstuddum fullyrðingum. Starfs- fólk stóru sjúkrahúsanna vill og þarf gagnrýni, en hún er gagnslaus ef hún er nöldur eitt og niðurrif. Forsenda réttrar þróunar er innsæi og hugmyndaauðgi, sem allir sem að málum sjúkrahúsanna koma þurfa helst að sýna, minnugir þess að stöðnun er líklega það versta sem starfsemi þeirra getur hent. Höfundur er yfirlæknir á Lnnd- spítnianum, og dósent við lækna- deild H.Í. Stóru sjúkrahúsin í Reykja- vík milli steins og sleggju í FYRRI grein um vanda stóru spítalanna í Reykjavík var minnst á aðferðir sem gætu orðið til að vandað yrði betur til umræðu og ákvarðana um kreppu stóru sjúkrahúsanna. Hvaða breytingar, er lúta að starfsemi þeirra og gætu orðið til ha- græðingar án þess að þjónusta skerðist, ætt- um við að hugleiða á næstu misserum? Aukin tengsl sjúkrahúsa við stórar læknastofur Lítil samvinna er milli þjónustu sjúkrahúsa og þjónustu lækna við utanspítalasj úklinga. Tilhneiging er í þá átt að dýr viðvik fari fram á sjúkrahúsum, en léttari verk séu unnin á einkastofum lækna í af- kastahvetjandi launakerfi. Þar er veitt mjög góð fagleg þjónusta, en lítil eða engin áhersla á rannsókn- ir og kennslu sem er homsteinn starfsemi allra góðra háskóla- sjúkrahúsa. Reyndar var það mjög misráðið þegar sú stefna var mörk- uð fyrir hartnær einum og hálfum áratug að þjónusta við utanspítala- sjúklinga skyldi fara sem mest fram á stofum úti í bæ, en síður á göngudeildum sjúkrahúsa. Náin tengsl þjónustu við göngu- sjúklinga og sjúkrahúsþjónustu eru víða homsteinn starfsemi „bestu“ Helgi Hálfdanarson Forseta- framboð SKÖMMU fyrir miðjan nóvember sl. var þess getið í smágrein í Morgunblaðinu, að nokkur hópur manna myndi fara þess á leit við kunnan Reykvíking úr stétt mennta- manna, að hann gæfi kost á sér til forsetaframboðs. Á honum voru sögð þau deili, sem mest þótti um vert, og mátti ljóst vera, að þar fór maður þeim kostum búinn, sem flestir munu telja, að prýða skuli forseta lýðveldis- ins. Ekki var hann nafn- greindur fyrr en örfáum dög- um síðar. Var þess þá getið í sama blaði, að þar væri um að ræða Svein Einarsson bók- mennta- og leikhúsfræðing. En margir voru þeir orðnir, sem sáu í hendi sér, að lýsing- in átti við Svein Einarsson, og létu í ljósi óskir um fram- boð hans. Sjálfum var honum ekki kunnugt um fyrirætlun þessa á undan öðrum. Og ekki var hann beðinn svars fyrr en liðin var vika af nýju ári. En þá urðu menn fyrir þeim vonbrigðum, að hann aftók með öllu að verða við þessari málaleitan. Við, sem urðum til þess að hvetja hann, hörm- um þá synjun. Eri ekki tjóar um að fást; þar verður engu þokað. Þó hefur ósk okkar orðið til þess að benda á þá kosti, sem æskilegt hlýtur að telj- ast, að forseti sé búinn, fyrst því embætti skal við haldið enn um skeið. Um það má hins vegar deila, hvort svo skuli, og um það mun áreiðan- lega deilt, þó síðar verði. sjúkrahúsa á Vestur- löndum. Mayo Clinie og Cleveland Clinic í Bandaríkjunum eru líklega þekktustu dæmin í augum ís- lendinga, en lang- flest háskólasjúkra- hús sem rísa undir nafni beggja vegna Atlantshafsins leggja mikla áherslu á göngudeildarþjón- ustu. Bent hefur ver- ið á að aukin fagleg og fjárhagsleg Sigurður tengsl stóru sjúkra- Guðmundsson húsanna hérlendis við stórar einkastof- ur lækna úti í bæ gætu bæði auk- ið skilvirkni þjónustunnar, bætt samskipti, fækkað endurtekning- um rannsókna, tryggt betri sam- fellu meðferðar, o.s. frv. Sameining Landspítala og Borgarspítala Fleiri breytingar _er lúta að sjúkrahúsunum er ástæða til að íhuga. Sameining Borgarspítala og Landakots varð formleg nú um áramótin, þó enn sé nokkuð í land að að hún sé endanlega í höfn. Eigi að síður munu nærfellt 400 millj. króna hafa sparast nú þeg- ar. Þetta virðast vera sterkustu rökin fyrir því að stíga skrefið til fulls, að sameina Landspítala og Borgarspítala. Samkeppni sjúkra- húsa á borð við Landspítala og Borgarspítala í litlu landi, um dýra hátækniþjónustu, um meðferð vandamála sem kalla á samstarf margra þátta og sérgreina heil- brigðisþjónustunnar, o.s.frv., er óhagkvæm. Á þetta hafa margir bent á undanförnum árum, m.a. alþjóðlegt fyrirtæki um rekstr- arráðgjöf til sjúkrahúsa, nýlegt Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins, o.fl. Með samruna spítalanna væri auðveldara að afla nýrra og dýrra tækja, og nýting þeirra yrði hag- kvæmari, fágætar og nýjar sér- greinar læknisfræðinnar nýttust betur, sjúkradeildir nýttust betur Stíga á skrefíð til fulls, segir Sigurður Guðmundsson, og sameina Landspítala og Borgarspítala. vegna stærðar, auknir möguleikar væru á frekari sérhæfingu starfs- fólks, sérstakar bakvaktir fyrir sérhæfða þjónustu nýttust betur, aðstaða til rannsókna og kennslu ykist og batnaði og jafnvel væri unnt að spara kostnað við stjórn- un. Sjúkrahúsin eiga ekki að vera í samkeppni hvort við annað að þessu leyti heldur við sambærileg sjúkrahús í nálægum löndum. Þannig héldum við best uppi gæð- um þjónustu án þess að tilkostnað- ur ykist umfram það sem nú er. Rök sem komið hafa fram í sam- tölum manna á meðal gegn þessu hafa flest verið tilfinningaleg, og vissulega mun samruni af þessu tagi reynast erfíður. Rétt er þó að minnast þess að mönnum tókst að sameina flugfélögin á sínum tíma, þrátt fyrir mikið umrót og ég held að flestir séu nú sammála um að sú ákvörðun hafi verið skynsam- leg. Bankar og tryggingafélög hér- lendis hafa verið sameinuð án veru- legra blóðsúthellinga, einfaldlega vegna þess að það var hagkvæmt. Hver er munurinn á því og samein- ingu stóru spítalanna, minnug þess að þeir eiga að keppa við spítala erlendis en ekki innbyrðis? Bygging nýs bráðaspítala Ef tekst að sameina sjúkrahús- in, sem væntanlega verður í nokkr- um áföngum, er e.t.v ástæða til að huga að byggingu nýs spítala í staðinn fyrir núverandi húsnæði Landspítala og Borgarspítala. Verulegar breytingar verða á inn- viðum sjúkrahúsa á næstu árum. Þörf fyrir legurými á eftir að minnka, legutími styttist, þörf verður meiri á sérútbúnu húsnæði, 333 666 si. Repeat gallabuxur Áður 3.290 2.590 riiallabuxur 4.490 3.490 ■ Teinóttar buxur Áður 5.890 IMú 3.990 Ullarbuxur ÁðUr 5.490 IMú 3.390. STÍriAD? Fáðu þér þá brúsa af Fermitex og málið er leyst. Fermitex losar stíflur í frárennslispípum, salernum og vöskum. Skaðlaust fyrir gler, postulín, plast og flestar tegundir málma. Fljótvirkt og sótt- hreinsandi. Fæst i flestum byggingarvöruverslunum og bensinstöðvum ESSO. 1 VATNSVIRKINN HF. f^Ármúla 2l,sími 533 2020 Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 567-1800 Löggild bílasala Opið laugard. kl. 10-17 Sunnud. kl. 13-18. Plymouth Grand Voyager LE 3.3L 4x4 '92, sjálfsk., ek. 57 þ. km., 7 manna, ABS og rafm. í öllu. Einn m/öllu. V. 2,4 millj. Honda Civic DXi Sedan '94, vínrauður, 5 g., ek. 32 þ. km. V. 1.190 þús. Nyr bfll. Hyundai Pony GSI '94, sjálfsk., ek. 1. þ.km. 2 dekkjagangar. V. 890 þús. Ford Explorer XLT '91, rauður, sjálsk., ek. 98 þ. km., óvenju gott eintak. V. 2.350 þús. Plymouth Voyager V-6 SE '90, blásans., 7 manna, sjálfsk., ek. 80 þ.km. Toppein- tak. V. 1.450 þús. Mazda 626 2.0 GLX '91, steingrár, 5 g., ek. 68 þ. km., toppeintak. V. 1.120 þús. Suzuki Sidekick JCX Sport '96, sjálfsk., 5 dyra, ek. 2. þ. km., sem nýr. V. 2.650 þús. Nissan Sunny SKX 4x4 '91, rauöur, 5 g., ek. aöeins 35 þ. km., rafm. í rúðum, spoil- er o.fl. V. 1.030 þús. Nissan Sunny SLX 1.6 Hatsback '93, 5 g., ek. 50 þ. km. V. 920 þús. MMC Lancer GLXi 1.8 4x4 station '93, hvítur, 5 g., ek. 35 þ. km. V. 1.400 þús. Toyota Carina E 2.0L ’93, sjálfsk., ek. 50 þ. km. V. 1.490 þús. Toyota Corolla GL Hatsback '90, 5 dyra, 5 g., ek. 132 þ. km. (langkeyrsla). MikiÖ endurnýjaður (tímareim o.fl.). Fallegur bfll. V. 590 þús. Hyundai Pony LS '94, rauður, 5 g., ek. 30 þ. km. Tilboðsv. 690 þús. Dodge Aries LE '87, 2ja dyra, brúnn, sjálfsk., ek. 95 þ. km. Gott eintak. V. 490 þús. Tiiboðsv. 290 þús. Izuzu Crew Cap 4x4 m/húsi '91, 5 g., ek. 103 þ. km. (4ra dyra og 5 manna). V. 1.190 þús. Citroen BX 19 4x4 station '91, rauöur, 5 g., ek. 75 þ. km. Gott eintak. V. 1.090 þús. MMC L-300 4x4 Minibus '88, 5 g., ek. 120 þ. km., véi yfirfarin (tímareim o.fl.). V. 1.050 þús. Mjög góð lánakjör. Subaru Legacy 1.8 GL 4x4 station '90, grásans., sjálfsk., ek. 98 þ. km., dráttar- kúla, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.090 þús. Nissan Sunny SLX Sedan '95, sjálfsk., ek. 13 þ. km. V. 1.290 þús. V.W Polo GL 5 dyra '96, 5 g., ek. 2 þ. km. V. 1.150 þús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.