Morgunblaðið - 12.01.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Guð er
orðinn latur
Frá Vali Óskarssyni:
ÉG gladdist innilega á degi heilags
Þorláks þegar virtur prestur skrif-
aði um það í Morgunblaðið að Guð
hreinlega nennti ekki að koma í
allar kirkjur og mátti greinilega sjá
að þó hlyti Guð helst af öllu að
forðast Langholtskirkju. Nú dettur
mér ekki í hug að efast um að
þetta sé rétt, enda var umræddur
greinarhöfundur lengi prestur
Langholtssafnaðar svo hver ætti
að vita það betur en hann hvort
Guð sneiðir hjá þessari kirkju eða
ekki. Ástæðan fyrir gleði minni var
sú að ég hef allt frá barnsaldri átt
óskaplega erfitt með að skilja þá
kenningu að Guð sé alls staðar á
sama tíma. Loksins er staðfest skrif-
lega af merkum guðsmanni að Guð
er þá mannlegur eftir allt saman
og hlýtur auðvitað að þreytast ógur-
lega um jólin þegar sífellt er verið
að messa um allan heim og hann
þarf að þjóta úr einni kirkjunni í
aðra. Mikið hlýtur hann því að gleðj-
ast yfir óeiningu í ákveðnum söfn-
uðum svo hann hafi afsökun fyrir
því að koma þar ekki við.
En getur ekki hugsast
að leti Guðs stafi af öðrum
ástæðum? Vegna biturrar
reynslu tel ég allt eins lík-
legt að hann sé orðinn
hundleiður á orgelleik alla
vega fann maður ekki
mikið fyrir nálægð hans
í Hallgrímskirkju á að-
fangadagskvöld og þarf
engan að undra. Þarna
syngja tveir frábærir kór-
ar ár eftir ár og allt frá
því nýja orgelið kom hefur
organistinn ærst af fögn-
uði þegar kemur að fjórða versi
sálmsins í Betlehem er barn oss
fætt. Og það sem eftir lifir messunn-
ar er orgelið þanið eins og þar sé
um líf eða dauða að tefla. Á annað
hundrað kórfélagar sjást hreyfa
munninn en ekki heyrist orð nema
ef til vill á örfáum fremstu bekkjun-
um.
Oft hef ég á jólum rifjað upp
söguna af sálminum Heims um ból
en hann var fluttur í fyrsta sinn við
gítarundirleik vegna þess að mýs
höfðu nagað gat á belginn í orgel-
inu. Orgel Hallgrímskirkju er vænt-
anlega knúið rafmagni svo ekki
dugir að heita á mýsnar. Hins vegar
væri gott ef þeir sem eru í beinu
sambandi upp vildu nefna það hvort
ekki mætti senda svona eina eldingu
í rafmagnslínuna næst þegar organ-
istinn ærist.
VALUR ÓSKARSSON,
Leiðhömrum 15, Reykjavík.
Sárt leiknir
reiðhjólanotendur
Frá Flosa Kristjánssyni:
í JÚNÍ á síðasta ári skrifaði ég
til blaðsins út af reiðhjóli sem
stolið hafði verið frá syni mínum
tveimur til þremur tímum eftir
að hann tók við því í búðinni. Sem
betur fer bætti tryggingafélagið
skaðann að verulegu leyti en at-
burðurinn var allt að einu mjög
hvimleiður.
I októberbyrjun hvarf reiðhjól
frá öðrum syni mínum, að þessu
sinni var sundurklipptur lásinn
skilinn eftir á girðingunni þar sem
hjólinu hafði verið læst við. Eftir-
grennslan hjá óskilamunadeild
lögreglunnar nokkrum dögum
seinna varð til þess að hjólið var
endurheimt.
I nóvemberlok var því sama
hjóli stolið frá sama stað og að
þessu sinni var fímmtán millimetra
stálvír í lásnum klipptur sundur í
einum rykk. Hjólið stóð upp við
hús í þrjátíu metra fjarlægð frá
götunni. Hvarfíð var tilkynnt til
lögreglunnar.
Hálfum mánuði síðar hvarf svo
reiðhjól sem ég á sjálfur og hef
notað mjög mikið að undanförnu.
Hvarfíð var tilkynnt til lögreglunn-
ar.
Tvisvar sinnum hefur verið
spurst fyrir um þessi reiðhjól hjá
óskilamunadeild lögreglunnar í
Reykjavík, en án árangurs.
Því er það að ég bið Morgun-
blaðið að koma á framfæri bón til
árvökulla borgarbúa að þeir
skyggnist um eftir tveimur Wheel-
er fjallahjólum, öðru svörtu af
gerðinni 2830 með ljósum dekkj-
um og demparagaffli að framan
en hinu öllu stærra, fjólubláu af
gerðinni 4400 Pro-Line Oversize.
Stóra hjólið var með svörtum ein-
földum bögglabera; bæði voru
hjólin með léttar plastaurhlífar.
Hér er um að ræða farartæki
sem voru í stanslausri notkun fram
á vetur og er báðum eigendum
missirinn afskaplega sár. Verði
einhveijir varir við hjólin vildi ég
heyra í þeim sama.
FLOSI KRISTJÁNSSON,
Sörlaskjóli 54, Reykjavík.
WtÆkÆÞAUGL YSINGAR
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi 15, Vest-
mannaeyjum, miðvikudaginn 17. janúar 1996 á eftirfarandi eign:
Friðarhöfn/lóð og húseignir Skipaviðgerða hf., þingl. eig. Skipavið-
gerðir hf., gerðarbeiðendur Atvinnuþróunarsjóður Suðurlands,
Byggðastofnun, Iðnlánasjóður, Iðnþróunarsjóður, Islandsbanki hf.
og Lífeyrissjóður Vestmannaeyinga.
Sýslumaðurirm í Vestmannaeyjum,
i 1. janúar 1996.
Brynhildur Georgsdóttir, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hafnarbraut 25,
Hólmavfk, sem hér segir á eftirtöldum eignum:
1. Tunga, Hólmavíkurhreppi, þinglýst eign Signýjar Hauksdóttur,
eftir kröfu Ingvars Helgasonar hf., miðvikudaginn 24. janúar 1996,
ki. 14.00.
2. Þórustaðir, Broddaneshreppi, þinglýst eign Ólu Friðmeyjar Kjart-
ansdóttur, eftir kröfu Stofnlánadeildar landbúnaðarins, miðviku-
daginn 24. janúar 1996, kl. 14.00.
Sýsiumaðurinn á Hólmavík,
10. janúar 1996.
Lausafjáruppboð
Eftirtaldir lausafjármunir verða boðnir upp á Lögreglustöðinni,
Faxastíg 42, Vestmannaeyjum, föstudaginn 19. janúar næstkom-
andi, kl. 16.00, hafi beiðnir ekki áður verið felldar niður eða upp-
boði frestað:
Bifreið: JU-060.
Sjónvarpstæki: Nordmende, Sanyo, Inno-hit, Sharp og Thompson.
Eftirtaldir lausafármunir verða boðnir upp yiö húsnæði Netagerðar
Njáls við Norðurhöfn, föstudaginn 19. janúar nk., kl. 15.00 hafi
beiðni ekki áður verið felld niður eða uppboði frestað:
Síldarnót: 226 faðma löng og 75 faðma djúp.
Krafist er greiðslu á staðnum.
Sýslumaðurinn i Vestmannaeyjum,
11. janúar 1996.
Brynhildur Georgsdóttir, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hafnarstræti 1,
3. hæð, þriðjudaginn 16. janúar 1996 kl. 14.00, á eftirfarandi eign-
um:
Hjallavegur 17, Suðureyri, þingl. eig. Benedikt J. Sverrisson, Mar-
grét Þórarinsdóttir og fslandsbanki hf. 0556, gerðarbeiðendur Bygg-
ingarsjóður ríkisins, húsbréfadeild, Siglufjarðarkaupstaður og Is-
landsbanki hf. lögfræðideild.
Hjallavegur 27, Suðureyri, þingl. eig. Sigurður Þórisson og Ingvar
Bragason, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Skeiði 5, ísafirði, þingl. eig. Ernir Oddur hf., gerðarbeiðendur Bæjar-
sjóður ísafjarðar og Iðnlánasjóður.
Smárateigur 6, ísafirði, þingl. eig. Trausti M. Ágústsson, gerðarbeiö-
andi Plastprent hf.
Stórholt 31, 0101, (safirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðar,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Þórustaðir, Mosvallahreppi, V-ís., þingl. eig. Jarðasjóður ríkisins og
Jón Fr. Jónsson, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Sýsiumaðurinn á Isafirði,
11. janúar 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Hnjúkabyggð 33,
Blönduósi, þriðjudaginn 16. janúar 1996 kl. 11.00 á neðangreindum
eignum:
Ennisbraut 1, Blönduósi, þingl. eign Hjörleifs Júlíussonar, gerðarbeið-
an'di sýslumaðurinn á Blönduósi.
Hlíðarbraut 17, Blönduósi, þingl. eign Jakobs J. Jónssonar og Katrín-
ar Líndal, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki fslands.
Hrossafell 2, hesthús, Skagaströnd, þingl. eign Magnúsar Hjaltason-
ar, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Höfðabraut 11, Hvammstanga, þingl. eign Péturs Daníelssonar,
gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Kaldakinn 1, Torfalækjarhreppi, þingl. eign Finns Björnssonar, gerð-
arbeiðandi Lífeyrissjóður Norðurlands.
Laxholt, Torfalækjarhreppi, þingl. eign Jóns (sbergs, gerðarbeiðend-
ur Búnaðarbanki fslands og Byggðastofnun.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1, Sel-
fossi, þriðjudaginn 16. janúar 1996 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Arnarheiði 31, Hveragerði, þingl. eig. Sigurgeir Arnarson, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður ríkisins.
Álfafell 1, Hvergerði, þingl. eig. Sveinn Gíslason og Magnea Á. Árna-
dóttir, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki fslands, Stofnlánadeild land-
búnaðarins og sýslumaðurinn á Selfossi.
Engjavegur 47, Selfossi, þingl. eig. Árni Brynjólfsson og Ingibjörg
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur KPMG Endurskoðun hf., S.G. Ein-
ingahús hf. og Samvinnulífeyrissjóðurinn.
Fífutjörn 4, Selfossi, þingl. eig. Axel Davíðsson, gerðarbeiðandi Bygg-
ingarsjóður ríkisins.
Garðarsnes 3, í landi Vatnsholts, Grímsnesi, þingl. eig. þrotabú
Lögm. Grensásvegi 16 hf., gerðarbeiðandi skiptastjóri þrotabúsins.
Hulduhóll 2, Eyrarbakka, þingl. eig. Eyrarbakkahreppur, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður rfkisins.
Kambahraun 29, Hveragerði, þingl. eig. Ólöf Birna Waltersdóttir,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóöur ríkisins.
Smáratún 9, kj., Selfossi, þingl. eig. Inga D. Guðmundsdóttir, gerðar-
beiðandi Skuldaskil hf.
Strandgata 11, Stokkseyri, þingl. eig. Halldór K. Ásgeirsson, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins. ‘
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Höröuvöllum 1, Sel-
fossi, miðvikudaginn 17. janúar 1996 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Básar (spilda úr landi Bjarnastaða), Grímsnesi, þingl. eig. Ólafur Hj.
Einarsson og Gunnar Sigurðsson, gerðarbeiðandi Stofnlánadeild
landbúnaðarins.
Jörðin Hæðarendi, Grímsnesi, þingl. eig. Guðmundur Sigurfinnsson
og Birgir Sigurfinnsson, gerðarbeiðendur Grímsneshreppur, Höfn-
Þríhyrningur hf., Olíuverslun fslands hf., Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins og sýslumaðurinn á Selfossi.
Jörðin Kjóastaðir 2, Bisk., þingl. eig. Hótel Gullfoss ehf., gerðarbeið-
endur Snorri Hjaltason og Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Lóð úr landi Bjarnastaða, Ölfusi, þingl. eig. Gunnar Þór Hjaltason,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Lífeyrissjóður verka-
lýðsfélaga á Suðurlandi.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
11. janúar 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embœttisins, Aðalgötu 7, Stykkis-
hólmi, þriðjudaginn 16. janúar 1996 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Borgarbraut 8 og 8a, Stykkishólmi, þingl. eig. Þór hf., hótelrekstur
og Eigendafél. félagsheimilis, gerðarbeiðendur Byggðastofnun,
Ferðamálasjóður og innheimtumaður ríkissjóðs.
Hlíðarvegur 13, Grundarfirði, þingl. eig. Ingibjörg Sigurðardóttir og
Valgeir Þ. Magnússon, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og
Rafveita Borgarness.
Laufásvegur 3, Stykkishólmi, þingl. eig. Skúlína Kristinsdóttir, Krist-
inn Þ. Bjarnason, Auður B. Sigurðardóttir og Jóhann I. Hinriksson,
gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og innheimtumaður ríkis-
sjóðs.
Siglunes SII-22, þingl. eig. Lárus Guðrnundsson, gerðarbeiðandi
Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
Silfurgata 22, Stykkishólmi, þingl. eig. Bjarghildur Pálsdóttir og Jó-
hannes Ólafur Jónsson, geröarbeiðandi Lífeyrissjóður Suðurnesja.
Sýslumaðurinn ( Stykkishólmi,
11. janúar 1996.
Litla-HIÍÖ, Þorkelshólshreppi, þingl. eignJóhanns Hermanns Sigurðs-
sonar, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Ljótshólar, 1/4 hluti, Svínavatnshreppi, þingl. eign Halldóru Jón-
mundsdóttur, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
-----;-----—----------------------------<--------------------------
Neðri-Þverá, Þverárhreppi, þingl. eign Jarðasjóðs ríkisins, gerðar-
beiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Reykir, Ytri-Torfustaðahreppi, þingl. eign Vilborgar Valdimarsdóttur,
gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Blönduósi.
Snæringsstaðir, Svínavatnshrepþi, þingl. eign Benedikts Steingríms-
sonar, Alberts Guðmannssonar og Auðar Þorbjarnardóttur, gerðar-
beiðandi Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Sunnubraut 2, Blönduósi, þingl. eign Stefáns Berndsen, gerðarbeið-
andi Blönduósbær.
Urðarbraut 3, Blönduósi, þingl. eign Jóhannesar Þórðarsonar (rétt-
hafi samkv. kaupsamningi Flosi Jónsson), gerðarbeiðandi Lífeyris-
sjóður Norðurlands.
Blönduósi, 10. janúar 1996.
Sýslumaðurínn á Blönduósi.
SMÁAUGL ÝSÍNGAR
I.O.O.F. 12 = 17701128’Á =
Á.S.
I.O.O.F. 1 =1771128'/2 = Á.S.
Frá Guðspeki-
„ félaginu
Ingólfsstræti 22
Áskriftarsími
Ganglera er
896-2070
f kvöld kl. 21 flytur Halldór Har-
aldsson erindi um Skrjabín, ævi
hans og verk, í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá kl.
15 tiM 7 með fræðslu og umræð-
um kl. 15.30 i umsjón Herdisar
Þorvaldsdóttur.
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðing með leiðbeiningum
opin almenningi.
Á fimtudögum kl. 16-18 er bóka-
þjónusta félagsins oþin með
mikið úrval andlegra bók-
mennta.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.