Morgunblaðið - 02.03.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 2. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samgöngurábherra, fjármálarábherra, og hlutab-
elgandl undlrrlta samnlnga um Hvalfjarbargöngin;
Tilbúin 1999
ALLUR er varinn góður Halldór minn . . .
Umhverfis jörð-
ina á átta tímum
Bréf frá Alþingi
Þingmenn ræddu utanríkismál vítt og breitt
í vikunni. Guðmundur Sv. Hermannsson
fylgdist með umræðunum.
ISLENSKIR þingmenn eiga aðild
að ýmsum evrópskum og al-
þjóðlegum þingmannasamtök-
um og flytja Alþingi árlega
skýrslur um starfið. Skýrsludagurinn
var á fímmtudag og það má segja
að þingmenn hafi farið um allan heim
á þeim átta klukkutímum sem um-
ræðan stóð, þótt lengst hafi þeir dva!-
ið í Evrópu. Venjulega þykja þessar
skýrsluumræður ekki sérlega spenn-
andi en það er kannski að breytast.
Að minnsta kosti sagði Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra að þetta
væri í fyrsta skipti sem bærilega líf-
legar umræður færu fram um skýrsl-
ur þingmannasamtakanna og það
bæri vott um vaxandi áhuga á alþjóð-
legu samstarfí. Þann áhuga var þó
ekki að sjá í þingsalnum því þar var
fremur fámennt.
Þarna voru ræddar skýrslur um
norrænt samstarf, um Vestnorræna
þingmannaráðið, þing Öryggis- og
samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE),
Norður-Atlantshafsþingið, EFTA-
þingið, Vestur-Evrópusambandsþing-
ið, og Alþjóðaþingmannasambandið.
Almennt töldu þingmenn að í þessum
stofnunum væri unnið gagnlegt starf
en helst komu fram efasemdir um
gildi ÖSE. Halldór Ásgrímsson lýsti
þó þeirri skoðun að ÖSE væri mjög
mikilvæg brú milli Vestur- og Austur-
Evrópuþjóða í því þróunarferli sem
nú ætti sér stað. Hins vegar gætu
mál þróast þannig að ÖSE yrði óþörf,
ef NATO yrði stækkað með eðlilegum
hætti og Evrópuráðið þróaðist áfram.
Það var einmitt væntanleg
stækkun NATO sem varð
tilefni hressilegustu skoð-
anaskiptanna. Össur
Skarphéðinsson, Alþýðuflokki, hvatti
mjög til þess að íslenska ríkisstjómin
beitti sér fyrir því að Eystrasaltslönd-
unum verði veitt aðild að NATO sem
fyrst. En Eystrasaltslöndin hafa, eins
og fleiri nýfijáls ríki, sótt um slíka
aðild, og einnig um aðild að Evrópu-
sambandinu (ESB) og Vestur-Evr-
ópusambandinu (VES), einkum með
öry'ggishagsmuni sína í huga.
Rússar hafa lagst mjög hart gegn
NATO-aðild Eystrasaltslandanna því
þar með væri NATO, og þar með
Bandaríkin, komin nánast í túnfótinn
á Rússlandi. Rússar virðast hins veg-
ar sætta sig betur við mögulega aðild
Eystrasaltslandanna að Evrópusam-
bandinu og Vestur-Evrópusamband-
inu sem þó tengist NATO, þ.e. Evr-
ópuríki sem eiga aðild að NÁTO eiga
einnig aðild að VES í einhveiju formi.
Össur sagði að skyndilega væru
Rússar famir að stjóma því hveijir
kæmu inn í NATO en slíkt neitunar-
vald mætti ekki afhenda þeim. Össur
sagðist sjálfur hafa haldið ræður á
vettvangi VES um aðild landanna og
svo væri um fleiri íslenska þingmenn
en formlegt afl og stefnu ríkisstjóm-
arinnar vantaði.
Fulltrúar stjómarflokkanna töluðu
fyrir þeim sjónarmiðum sem virðast
eiga meirihlutafýlgi innan NATO: að
vinna eigi að stækkun sambandsins
en fara jafnframt varlega og reyna
að byggja upp samstarf við Rússa til
að draga úr tortryggni og hættu á
að nýtt jámtjald rísi.
Aðild að NATO fylgir skuldbinding
um sameiginlegar vamir samkvæmt
sáttmála samtakanna. Geir H. Ha-
arde, þingmaður Sjálfstæðisflokks og
formaður utanríkismálanefndar
þingsins, sagði að þessum skuldbind-
ingum fylgdi ábyrgð sem menn yrðu
að vera tilbúnir að axla.
„Þar er ég fyrst og fremst að tala
um afstöðu Bandaríkjaþings og ég
er ekki viss um að hún muni stað-
festa útvíkkun NATO til Eystrasalts-
ins meðan það liggur fyrir að Banda-
ríkjamenn verða fyrst og fremst að
taka á sínar herðar að veita Eystra-
saltsþjóðunum tryggingar, jafnvel
loforð um að beita kjamorkuvopnum
til að veija þær. Og spurningin er
hvort slík trygging væri trúverðug.
Væru Bandaríkjamenn tilbúnir til að
beita slíkum vopnum ef á þyrfti að
halda?“ spurði Geir.
Þingmenn Alþýðubandalagsins
blönduðu sér ekki beint í NATO-
umræðuna og hefðu það sjálfsagt
einhverntíman þótt tíðindi. Það vekur
raunar athygli að þrátt fyrir þær
miklu breytingar sem hafa orðið á
síðustu árum á eðli NATO og afstöðu
íslenskra stjómmálaflokka til sam-
takanna, eru fulltrúar Alþingis á
fundum Norður-Atlantshafsráðsins
aðeins tilnefndir úr þeim flokkum
sem stóðu að samþykkt aðildar Is-
lands að NATO á sinum tima: Al-
þýðuflokki, Framsóknarflokki og
Sjálfstæðisflokki.
Eftir þessar löngu umræður
um Evrópumál var ekki
óviðeigandi að ljúka
dagsverkinu á fimmtu-
dag með lokaumræðu um gamal-
kunnugt þingmál, flutninga á skip-
gengum vatnaleiðum vegna aðildar
Islands að EES.
Þetta frumvarp var fyrst lagt fram
árið 1992 og þá náði það einnig yfir
flutninga á jámbrautum. Þingmenn
gerðu á þeim tíma stólpagrín að
frumvarpinu en nú fór það i gegnum
þingið nánast umræðulaust.
Einar K. Guðfínnsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, benti þó á að það
gætu.falist verulegir hagsmunir í því
fyrir íslensk skipafélög að mega fara
um fljót í Evrópu, en svo háttaði til
að á Islandi að ekki væru miklir
möguleikar á að erlend skipafélög
sæktust eftir því að sigla upp hinar
íslensku ársprænur. Þannig mætti
segja að nú væri loksins fundið það
litla sannleikskorn sem fólst í stóru
orðunum á sínum tíma, að með EES-
samningnum hefði fengist allt fyrir
ekkert!
Ráðgjöf um fjármál heimilanna
Unglingar
o g aldraðir í
greiðsluvanda
Elín Sigrún Jónsdóttir
GJALDÞROT ein-
staklinga á síðasta
ári voru hátt í eitt
þúsund og í 99% tilfella
um eignalaus bú að ræða.
En hvernig má hjálpa fólki
til að finna leiðir sem koma
í veg fyrir gjaldþrot?
Ráðgjafarstofa um fjár-
mál heimilinna var opnuð
23. febrúar síðastliðinn, en
16 aðilar standa að henni:
félagsmálaráðuneyti, Hús-
næðisstofnun, _ Reykja-
víkurborg, ASÍ, BSRB,
Þjóðkirkjan, Neytenda-
samtökin, bankar og líf-
eynssjóðir.
Ástæðan er brýn þörf
fyrir aðgerðir til að leið-
beina þeim sem verst eru
settir í fjármálum og að-
stoða við að leita lausna.
Ráðgjöfin er veitt endur-
gjaldslaust.
Markmið Ráðgjafarstofunnar er
meðal annars að aðstoða fólk með
fræðslu og ráðgjöf við að koma í
veg fyrir frekari skuldasöfnun.
Einnig að hvetja til ráðdeildar og
fyrirbyggjandi aðgerða í flármál-
um.
Elín Sigrún Jónsdóttir veitir
Ráðgjafarstofunni um íjármál
heimilinna forstöðu.
- Hvernig hefur ykkur verið
tekið?
„Geysilega vel, fólk segist vera
ánægt með að geta leitað til okk-
ar. Liðna viku höfðum við afgreitt
bráðatilfelli vegna greiðsluvanda
og átt ótalin símaviðtöl.
í næstu viku eru bókuð um 100
viðtöl sem merkir um 170 einstakl-
inga því í flestum tilfellum er um
pör að ræða. Við leggjum mikla
áherslu á að hjón og sambúðarfólk
komi saman til okkar og taki sam-
eiginlega á vandanum.“
- Finnst þér einhveijir hópar
vera áberandi meðal viðskiptavina
ykkar við fyrstu sýn?
„Upplýsingum um greiðslu-
vandann verður safnað saman í
tölur samhliða starfi okkar hér,
en segja má að áberandi sé að
ungt fólk með geysilegar skuldir
leiti núna til okkar og eldra fólk.
Þetta er fólk um tvítugt annars
vegar og á áttræðisaldri hins veg-
ar. Það finnst mér sláandi eftir
fyrstu vikuna."
- Hvaða úrræði komið þið auga
á handa íjölskyldum í greiðslu-
vanda?
„Þau eru fleiri en fólk gerir sér
oft grein fyrir. En í fyrsta lagi er
ákaflega mikilvægt að fólk komi
vel undirbúið í viðtöl til okkar og
að við fáum réttar og greinargóðar
upplýsingar til að byggja tillögur
okkar á.
Það þarf að fylla út íjögurra
síðna eyðublað sem haft er með-
ferðis í fyrsta viðtal sem
getur tekið eina klukku-
stund.
Þjónusta okkar felst
í því að hjálpa fólki til
að öðlast heildarsýn yfír
fjármálin; skuldir og tekjur. Það
er ekki nóg að einblína á húsnæðis-
skuldirnar, heldur þarf líka að taka
matarútgjöld með í reikninginn,
og spyija sig: „Hvar er hægt að
skera niður?"
Við greinum hér vandann og
komum með tillögur til lausnar
sem fólk fer með til sinna lánar-
drottna, og þá ríður á að Ráðgjaf-
arstofan njóti trausts fyrir fagleg
vinnubrögð."
-Geta allir leitað til ykkar?
„Já, en við bendum fólki á að
leita til sinna viðskiptastofnana
► Elín Sigrún Jónsdóttir hdl.
er fædd í Sandgerði árið 1960.
Hún varð stúdent frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti árið 1979,
og skrifaði embættisritgerð við
lagadeild Háskóla íslands 1986
um nauðasamninga. Hún hefur
starfað hjá Lífeyrissjóði ríkis-
starfsmanna, Eignamiðlun, veríð
lögmaður hjá Lögmönnum
Höfðabakka, BYKÓ og deildar-
sljóri í Félagsmálaráðuneytinu
síðustu tvö árin.
fyrst. Þar stendur fagleg ráðgjöf
til boða, og í raun vísa ráðgjafar
viðskiptabanka, Húsnæðisstofn-
unar ríkisins og aðrir sem standa
að Ráðgjafarstofunni þeim málum
til okkar sem talin eru erfiðust
viðfangs. Aðgangur að ráðgjöfinni
er annars öllum opinn sem að öllu
jöfnu hafa ekki nein önnur úræði.
Einnig spyijum við fólk hvort
það hafi kynnt sér leiðir sem
standa því til boða. Til dæmis hef-
ur húsnæðismálastjórn heimild til
að veita skuldbreytingalán til allt
að 15 ára og að fresta greiðslum
í allt að þijú ár. Einnig að hægt
er að óska eftir að fresta greiðslum
áður en til vanskila kemur ef sýnt
þykir að í óefni stefni verði ekkert
að gert.
Einnig má nefna að ríkisstjórnin
hefur samþykkt þijú ný frumvörp
sem eiga eftir að koma sér vel
fyrir viðskiptavini okkar; Frum-
varp um réttaraðstoð til einstak-
linga sem ætla í nauðasamninga,
frumvarp til laga til breytingaa á
lögum um innheimtur sveitarfé-
laga, meðal annars á meðlögum,
og frumvarp til breytinga á lögum
um tekju og eignaskatt, sem fela
í sér heimild innhélmtumanna til
að samþykkja naúðasamninga.
Með öðrum orðum bendum við
fólki á úrræðin sem eru til staðar
og á ráðgjöf sem eðlilegt
er að sækja fyrst. Við
tökum svo erfiðustu
málin."
- Hvað merkir að
Ráðgjafarstofan er til-
raunaverkefni?
„Hún er tilraunaverkefni sem
mun standa í tvö ár og byggist á
góðu samstarfi þeirra sem að henni
standa. Að þessum árum liðnum
verður framhaldið skoðað.
Á Ráðgjafarstofunni í Lækjar-
götu 4 eru sex starfsmenn, þar af
4 fjármálaráðgjafar, og við vonum
að starfið beri árangur meðal ann-
ars vegna þess að fleiri úrræði til
að leysa greiðsluvanda heimilanna
eru í boði en áður var. Grunn-
markmið er samt alltaf að fólk
greiði skuldir sínar.“
Hvernfg á að
ná endum
saman?