Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
54. TBL. 84. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Aznar sigraði
Vongóð-
ur um
sterka
stjórn
Madrid. Reuter.
JOSÉ Maria Aznar, leiðtogi
spænska Þjóðarflokksins, sagðist í
gær sannfærður um að sér tækist
að mynda trausta ríkisstjórn þrátt
fyrir að flokkur hans hefði ekki
fengið hreinan meirihluta í þing-
kosningum á sunnudag.
Þjóðarflokkurinn fékk 38,85%
atkvæða og 156 menn kjörna.
Hann skortir 20 þingsæti til að
geta myndað meirihlutastjórn og
yrði því að treysta á stuðning að
minnsta kosti tveggja smáflokka.
Líklegast er talið að Aznar reyni
fyrst að semja við flokk Katalóna,
CiU. Hann hefur þegar stuðning
fjögurra miðjuþingmanna frá Kan-
aríeyjum.
Þreifingar hafnar
Aznar sagði á blaðamannafundi
í gær að þreifingar um stjórnar-
myndun væru þegar hafnar á bak
við tjöldin og að hann myndi ræða
við fulltrúa allra flokka, einnig
sósíalista. Hann kvaðst vilja mynda
hefðbundna ríkisstjórn en sagði að
einnig kæmi til greina að semja
um lausbeislaðra bandalag um
stuðning á þingi. Viðræðurnar
gætu tekið allt að tvo mánuði eftir
að Aznar fær umboð til stjórnar-
myndunar.
Sósíalistaflokkur Felipe Gonz-
alez fékk 37,48% atkvæða og 141
þingmann, Sameinaða vinstri-
bandalagið 10,58% og 21 þing-
mann og CiU 4,61% atkvæða og
sextán þingmenn.
■ Erfið staða/29
Stjórn Kína
Eldflauga-
tilraunir
við Tævan
Peking. Reuter.
STJORNIN í Kína tilkynnti í
gærkvöldi að eldflaugum yrði
skotið í sjóinn nálægt Tævan
í tilraunaskyni 8.-15. mars.
Talið er að þetta sé liður í
heræfingum sem fyrirhugað-
ar eru til að ögra Tævönum
fyrir forsetakosningar þeirra
síðar í mánuðinum.
í tilkynningu stjórnarinnar
er skýrt frá því hvar eldflaug-
arnar eiga að lenda í sjónum.
„í öryggisskyni biður kín-
verska stjórnin hlutaðeigandi
yfirvöld í viðkomandi ríkjum
og svæðum um að tilkynna
skipum og flugvélum að ekki
megi fara á þetta svæði á
þessum tíma.“
Stjórn Israels á neyðarfundi vegna mannskæðra sprengjutilræða
Reuter
ALVARLEGA særður maður fluttur í sjúkrabíl eftir sprengjutilræði á fjölfarinni verslunargötu í Tel Aviv í gær. Að minnsta kosti
13 manns biðu bana í tilræðinu og 105 særðust. Daginn áður hafði sprengjutilræði í Jerúsalem orðið 19 manns að bana. Palestínskir
hryðjuverkamenn hafa drepið hátt í 60 manns í fjórum tilræðum í ísrael á níu dögum.
Hótar að senda herinn
á sj álfstj órnarsvæðin
Jerúsalem, Tel Aviv, Damaskus. Reuter, The Daily Telegraph.
Yfirstjórn baráttunnar gegn hermd-
arverkum fær „frjálsar hendur“
Reuter
ÆSTIR ísraelar mótmæla við byggingu ísraelska varnarmálaráðu-
neytisins í Tel Aviv . Þeir kröfðust þess að Shimon Peres forsæt-
isráðherra segði af sér og sökuðu hann um föðurlandssvik.
STJÓRN ísraels ákvað eftir mann-
skæð sprengjutilræði í Tel Aviv og
Jerúsalem í gær og á sunnudag að
áskilja sér rétt til að senda ísraelska
hermenn að nýju á sjálfstjórnar-
svæði Palestínumanna til að að leita
að hryðjuverkamönnum úr röðum
múslima. „Við förum í hvern krók
og kima þar sem þessi hryðjuverka-
starfsemi hefur skotið rótum,“ sagði
Shimon Peres forsætisráðherra.
Einnig var ákveðið að stofna sér-
staka yfirstjórn baráttunnar gegn
hryðjuverkum og verður yfirmaður
leyniþjónustunnar þar í forsæti. ,,[Yf-
irstjórnin] mun hafa fijálsar hend-
ur,“ sagði einn af ráðherrum lands-
ins.
Sjálfsmorðsárásir öfgamanna í
Hamas-hreyfingunni kostuðu 19
manns lífið á sunnudag og 13 í gær
auk þess sem fjöldi manna slasaðist.
Dagblöð Palestínumanna fordæmdu
tilræðin í gær og sökuðu öfgamenn-
ina um að tortíma sjálfstæðisdraum-
um þjóðarinnar, til þess nytu þeir
hjálpar erlendra afla. Pólitískir leið-
togar Hamas hvöttu skæruliðaarm
hreyfingarinnar til að hætta tilræð-
unum.
„Stríðsyfirlýsing"
Forseti sjálfsstjórnarsvæða Pal-
estínumanna, Yasser Arafat, hét því
í gær að vinna með ísraelskum
stjórnvöldum í baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum og uppræta
starfsemi þeirra. Talsmaður Arafats
hafði eftir honum að sprengjutilræð-
in jafngiltu „stríðsyfirlýsingu". Á
sunnudag bannaði Arafat starfsemi
vopnaðra sveita heittrúarmanna á
svæðunum. Ráðamenn Israela höfðu
krafist þess að Arafat léti afvopna
sveitirnar. Hann yrði að sýna fulla
hörku ella gæti_ svo farið að brott-
flutningi herja Israels frá Hebron í
lok mars yrði frestað.
Leiðtogar víða um heim for-
dæmdu framferði hryðjuverkamann-
anna. Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði það kaldhæðnislegt að öfga-
menn úr röðum Palestínumanna og
Gyðinga ættu sér það sameiginlega
takmark að stöðva friðarumleitan-
irnar.
Málgagn sýrlenskra stjórnvalda,
al-Baath, sagði í gær að Israelar
myndu aldrei geta búið við öryggi
nema þeir gerðu réttlátan og raun-
verulegan frið við arabíska granna
sína. Sýrlendingar neita að skil-
greina aðgerðir palestínsku öfga-
samtakanna Hamas og íslamska Ji-
had sem hryðjuverk, segja að um
frelsisstríð sé að raeða og sama ger-
ir klerkastjórnin í íran.
Heittrúarmenn á þingi Jórdaníu
tóku í sama streng í gær en tals-
menn ríkisstjórnarinnar í Amraan
og Hussein konungur fordæmdu til-
ræðin, sögðu þau geta stefnt friðar-
umleitunum í Miðausturlöndum í
hættu. ísraelar ákváðu í gær að
kalla heim sendinefnd sína í friðar-
viðræðum við Sýrlendinga sem fram
hafa farið í Bandaríkjunum.
„Peres, þú ert næstur“
Um 700 reiðir ísraelar grýttu bif-
reiðar og kveiktu elda við byggingu
varnarmálaráðuneytisins í Tel Aviv
meðan stjórnin var þar á neyðar-
fundi. Fólkið krafðist blóðhefnda og
afsagnar Shimons Peres. „Peres, þú
ert næstur,“ hrópaði múgurinn og
sakaði forsætisráðherrann um föð-
urlandssvik.
Benjamin Netanyahu, leiðtogi
Likud-flokksins, hvatti ísraela til að
sýna stillingu og standa saman í
baráttunni gegn hryðjuverkamönn-
um.
Palestínumenn í Austur-Jerúsal-
em flýttu sér í gær að safna matar-
birgðum til að geta haldið sig heima
við næstu daga þar sem þeir ótt.ast
hefndaraðgerðir. ísraelar höfðu
reynt að ráðast á Palestínumenn í
Jerúsalem eftir sprengjutilræðið þar
á sunnudag.
Ami Ayalon, yfirmaður ísraelsku
leyniþjónustunnar Shin Bet, sagði
að þúsundir ungra Palestínumanna
væru tilbúnar til sjálfsmorðsárása í
nafni íslams. Aðeins í einum flótta-
mannabúðum, Fawwar, nálægt
Hebron á Vesturbakkanum, væru
30-40 ungir Palestínumenn reiðu-
búnir að fórna lífi sínu. Hann sagði
að flestir þeirra hefðu verið hand-
teknir í árás ísraelska hersins á búð-
irnar i gær. Fregnir herma að her-
menn hafi handtekið 1.000 unga
Palestínumenn þar og safnað þeim
saman í skóla en síðan sleppt flestum
þeirra.
■ Tugir manna farast/20
■ Friðarvonum drekkt/28