Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 35
Aðgát skal höfð í nærveru sálar
UNDANFARNA daga hafa
umræður um meint kynferðisbrot
biskups á hendur skjólstæðingum
sínum einokað alla umræðu í fjöl-
miðlum, á vinnustöðum og alls
staðar þar sem fólk yfirleitt kemur
saman. í þessari grein yerður
málið skoðað frá öðru sjónarhorni
en það hefur hingað til verið gert,
og reynt að varpa ljósi á þá mörgu
annmarka sem þessi umfjöllun
hefur haft fyrir þá sem málið
snertir beint.
Viðbrögð
Stígamóta
Allir sem hafa kynnt sér málið
vita að nú eru komnar fram þijár
konur (þegar þetta er skrifað) sem
funda hjá Stígamótum og sleikja
sárin eftir biskup.
Þegar þessar konur leita til
Stígamóta myndi maður ætla að
það fagfólk sem þar starfar myndi
hugsa um hagsmuni þeirra fyrst
og fremst. Ekki er hægt að sjá í
fljótu bragði að það hafi þjónað
hagsmunum meintra fórnarlamba
að fara með málið í fjölmiðla, þar
sem að útséð var í byrjun að mál-
in voru löngu fyrnd, engar sannan-
ir fyrir hendi og mannorð manns
í húfi.
Ábyrgð og dómur
Stígamóta
Siðferðiskennd Gúðrúnar Jóns-
dóttur og annarra Stígamóta-
kvenna virðist á afar vafasömu
plani og ber hegðun þeirra öll þess
merki. Firrnst Guðrúnu það ekki
grafalvarlegt mál að bera á mann
þær sakir sem að hún hefur nú
gert sem forsvarsmanneskja þess-
ara meintu fórnarlamba, án þess
að hafa neitt til þess
að bakka þær upp
annað en orð þeirra,
vitandi það að biskup
getur ekki með
nokkru móti borið
hönd fyrir höfuð sér
og afsannað þessar
ásakanir, frekar en að
hún virðist geta sann-
að þær? Guðrún hefur
með þessu gert árang-
ursríka tilraun til þess
að nauðga mannorði
biskups í bak og fyrir
án þess að blikna. Það
er óhætt að segja að
hún hafi talað mann-
orð biskups í hel. Það er ekki til
það þvottaefni sem getur hreinsað
mannorð biskups fullkomlega og
verður aldrei. Það mun alltaf loða
við hann að hafa verið borinn þess-
um sökum, bæði lífs og liðinn og
ekkert sem hann getur gert til
þess að breyta því. Guðrún Jóns-
dóttir, sem forsvarsmaður þessara
kvenna og Stígamóta, dæmdi
mannorð biskups (meðvitað -
ómeðvitað) í óendanlega langa vist
í dýflissu efans og það án nokk-
urra haldbærra sannana, þegar
hér er komið við sögu.
Sekt og
sakleysi
Ég vil taka það fram að ég veit
ekkert um það hvort biskupinn er
sekur um það sem á hann hefur
verið borið, frekar en aðrir. Meðan
ekki er hægt að sýna mér fram á
það með nokkuð óyggjandi hætti
að hann sé sekur, þá er hann sak-
laus að mínu viti og heldur ærunni
og starfinu hvað mig varðar.
Snæbjörn Ólafsson
Ef meint fórn-
arlömb biskups ná að
sanna það með ein-
hverjum hætti að hann
hafi gerst sekur um
það sem á hann er
borið, eiga þau óskipta
samúð mína og þá
fyrst væri hægt að
víkja honum úr emb-
ætti undir eins og
helst að reyna koma
yfir hann lögum. Að
þessari jarðvist lokinni
bíður biskúps vænt-
anlega, eins og okkar
allra, hinn æðsti dóm-
stóll í mannanna mál-
um (máttugri en Stígamót) og
þann dóm flýr víst enginn, að því
sagt er, en sá dómur er og verður
væntanlega endanlegur og réttlát-
ur.
Framtíðin
Allir hljóta að vera sammála um
að koma þurfi í veg fyrir að svona
lagað gerist aftur. Ef fólki fínnst
á sér brotið á að kæra þann sem
braut af sér sem allra fyrst eða
strax til þess að tryggja að við-
komandi haldi ekki áfram að mis-
bjóða nýjum fórnarlömbum. Þetta
á að vera hægt nú eftir tilkomu
Stígamóta og almennt þeirrar
meðvitundar sem átt hefur sér stað
hjá þjóðinni á undanförnum árum
varðandi þessi mál.
Samt hljótum við alltaf að verða
að ganga úr skugga um sekt við-
komandi áður en við dæmum hann
eða drögum mannorð hans í skít-
inn. Til er sjúkt fólk sem ber upp
á aðra sakir sem eiga ekki við
nein rök að styðjast. Hvaða kennd-
Stígamót, segir
Snæbjörn Ólafsson,
hafa genfflð út yfir 511
velsæmismörk.
ir liggja þar að baki, er ómögulegt
segja til um, en þetta gerist samt
og því verður ekki neitað. Það allra
versta við slík mál er að mannorð
manna verður ekki hreinsað svo
auðveldlega og ásakanirnar halda
áfram að loða við viðkomandi þrátt
fyrir að sakleysi viðkomandi hafi
verið sannað.
Mannorð manna verður ekki
verðlagt frekar en svo margt ann-
að sem göfugt er og verður enn
síður auðveldlega endurheimt. Því
ber að fara með það sem slíkt.
Niðurstaða
Starf þeirra sem koma að málum
sem þessum er afar erfitt og ekki
allra að eiga við þau, en það þarf
að skoða þessi mál yfirvegað, í
réttu samhengi og fordómalaust. í
þessu tiltekna máli hafa Stígamót
gengið út yfir öll velsæmismörk
sem fulltrúi meintra fórnarlamba
biskups og ég fæ ekki betur séð
en að þau hafi einungis afrekað
að gera illt verra, hvað varðar alla
þá aðila sem málið snertir beint;
meint fórnarlömb og meintan sak-
borning. Á meðan þau hafa ekki
annað í höndunum en ósannaðar
fullyrðingar meintra fórnarlamba,
ættu Stígamót að sjá sóma sinn í
því að biðja biskup opinberlega
afsökunar á frumhlaupi sínu,
minna er ekki hægt að gera úr því
sem komið er.
Að lokum vona ég að þjóðin beri
gæfu til þess fyrr en síðar að að-
skilja ríki og kirkju.
Höfundur er hjbtiðnnðarmaður.
ÞJOFAVARNARKERFI
fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir
Sprengidögum
kynnum vió öfíugu
Sound B/aster 32 og
AWE 32 hljóökortin frá
creAtive
ásamt tónlistarhugbúnaói
frá flanbufq ogMIDI
hljómboróum frá [HRoland'
Hvort sem þú ert leikjafrík,
tónlistarmaður, forritarí
skrifstofumaóur eóa bara
hvaó sem er, þá er þetta
rétta tækífærió fyrirþig
ti/ þess aó eignast þaó
sem þig hefurafítaf
/angaö ti/ aó
eignast.
Frábær
tilboó á...
margmiðlunar-
pökkum...
og hfjóókortum.
Sound Hjá okkur færöu eitt mesta úrva/ iandsins af
|blaster| Sound Biaster hijóókortum og margmióiunarbúnaðí
Víó höfum sett upp fullkomiö MlDÍ-stúdió
í verslun okkar og er okkur þaó sönn ánægja
aó leióa vióskiptavíni okkar ínn í undraheim
tölvutónlistarinnar. Komió og„djammiö"meó!
creAtive: kj
CREATIVE LABS
iLSoirji blastcr ii-nmrs blastcr tcEnSi blastcr
TOLVUDEILD
PQR HF
Ármúla 11 - Sfmi 568-1500
blAstcr
A MJOG HAGSTÆÐU VERÐI
Við kerfin má tengja fleiri skynjara, símhringingabúnað, reykskynjara og fleira.
KERFIN ERU ÞRÁÐLAUS
og því mjög ódýr og auðveld í uppsetningu. Veitum tæknilega ráðgjöf.
Einar
Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 P 562 2901 og 562 2900
Aðalfundur IMýherja hf. verður haldinn í
Sunnusal (Átthagasal) Hótel Sögu miðviku-
daginn 27. mars 1996 og hefst kl. 16:00.
Dagskrá
± Vénjuleg aðalfundarstörf
* Önnur mál, löglega upp borin
Dagskrá, ársreikningur og skýrsla endurskoðenda munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur
vikum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð,
verða að veita slíkt skriflega.
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 569 7700
Allíaf skrefi ú undan