Morgunblaðið - 05.03.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Morgunblaðið/Kristinn
BRODDI og Ólöf Rún með viðurkenningargripi eftir Ófeig Björns-
son myndiistarmann i tilefni útnefningarinnar i gær.
Bresku blöðin The Sun og Sunday Telegraph
Umfangsmikil um-
fjöllun um Björk
Valin skýr-
mæltustu
fjölmiðla-
mennirnir
HEYRNARHJÁLP hefur valið
Brodda Broddason og Ólöfu
Rún Skúladóttur skýrmæltustu
fjölmiðlamennina. í niðurstöðu
dómnefndar segir að Broddi og
ÓJöf Rún eigi sammerkt að vera
óumdeilanlega skýrmælt. Flutn-
ingur þeirra sé persónulegur
og eðlilegur. Þau „haldi vel utan
um“ frásögnina og komi mein-
ingu orðanna sterkri til skila.
25 fjölmiðlamenn
voru tilnefndir
í dómnefnd sátu Sigrún
Hjálmtýsdóttir söngkona, Gylfi
Baldursson heymar- og tal-
meinafræðingur og Jóhanna S.
Einarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Heyrnarhjálpar. Dóm-
nefndinni bárust skriflegar til-
nefningar um 25 starfandi fjöl-
Sjómanni
dæmdar
bætur
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt Tiyggingamið-
stöðina og Samheija til að greiða
tæplega sextugum sjómanni 2,5
milljónir kr. í bætur með vöxtum frá
23. apríl 1991 til 16. febrúar í ár
og 400 þúsund krónur í málskostnað.
Maðurinn brenndist illa er hann
fékk yfir sig fullan pott af sjóðandi
vatni í miklum sjógangi um borð í
Akureyrinni EA 23. apríl 1991.
Málsatvik eru m.a þau að um-
ræddan dag var Akureyrin EA á
stími frá miðunum vestan við land
og inn Faxaflóa þegar ólag reið yfir
skipið þannig að það tók djúpa
stjórnborðsveltu. Sjómaðurinn var á
leið um eldhús skipsins þegar ólagið
reið yfir og fékk yfir sig vatn úr 25
lítra heitum potti sem þar stóð lok-
laus á eldavélinni. Maðurinn brennd-
ist illa og fékk bráðameðferð um
borð að höfðu samráði við lækna í
landi en var síðan lagður inn á Land-
spítalann daginn eftir.
í vottorði frá spítalanum var hann
talinn hafa haft 25% brunasár af
1. stigs en þó mest af 2. stigs bruna
I andliti, framan á hálsi, á ofan-
verðri bringu, neðanverðum kviði og
fleiri stöðum.
miðlamenn og valdi hún 8 úr
þeim hópi. Þau eru Broddi
Broddason, Edda Andrésdóttir,
Katrín Pálsdóttir, Kristín Þor-
steinsdóttir, Ólöf Rún Skúla-
dóttir, Páll Magnússon, Sigríður
Arnardóttir og Þröstur Emils-
son.
AÐ UNDANFÖRNU hef ég verið
borinn þungum sökum í fjölmiðlum
um háttsemi, sem er refsiverð. Að
sakaráburði þessum hafa staðið
nafngreindir og ónafngreindir aðil-
ar. Sakaráburður þessi er með öllu
ósannur.
Með sakaráburðinum er vegið að
friðhelgi einkalífs míns og æru með
ólögmætum hætti og jafnframt ger-
ast sakaráberar sekir um rangar
sakargiftir.
Þá virðist mega ráða af ummæl-
um í fjölmiðlum að markmiðið með
hinum röngu sakargiftum sé að
þvinga mig til að segja mig frá bisk-
upsembættinu.
Þess vegna hef ég leitað mér
ráðgjafar lögmanna. Hæstaréttar-
lögmennirnir Ragnar Aðalsteinsson
og Tryggvi Gunnarsson hjá AP lög-
mönnum hafa tekið að sér að gæta
hagsmuna minna.
Lögmennirnir hafa bent mér á
að friðhelgi einkalífs míns og æra
njóti verndar samkvæmt 71. gr.
stjórnarskrárinnar, XXV. kafla al-
mennra hegningarlaga og 8. og 10.
gr. Mannréttindasáttmála Evrópu.
Þeir liafa og vakið athygli mína á
að rangar sakargiftir séu refsiverð-
ar skv. XV. kafla almennra hegn-
ingarlaga. Þá hafa þeir vakið at-
hygli mína á að refsivert sé sam-
kvæmt 225. gr. almennra hegning-
Tilgangur vals á skýrmælt-
asta fjölmiðlamanninum var að
stuðla að því að þeir sem koma
fram í fjölmiðlum tali skýrt og
grinilega svo heymarskertir
hafi frekari möguleika á að
heyra það sem þessir miðlar
hafa upp á á bjóða.
arlaga að neyða mann til athafna
með því að hafa upp rangan sak-
burð um refsiverða eða vansæm-
andi háttsemi. Lögmennirnir segja
að sama eigi við um hlutdeild í slík-
um verknaði og tilraun. Ennfremur
geti það að bera út ummælin verið
refsivert. Að lokum telja lögmenn-
irnir að ákvæði 26. gr. skaðabóta-
laga um bætur fyrir meingerð gegn
friði, æru og persónu annars manns
eigi hér við.
Það er siðferðileg skylda mín við
þessar aðstæður að láta reyna á
það að lögum hvort ekki sé svo um
hnútana búið í hinu íslenska réttar-
ríki, að í fullu gildi sé meginregla
70. gr. stjómarskrárinnar um að
sérhver borgari teljist saklaus þar
til sekt hans hefur verið sönnuð.
Augljóst er að önnur viðbrögð af
minni hálfu væru til þess fallin að
skapa viðsjárvert fordæmi.
Með vísan til ofangreinds hef ég
falið lögmönnum mínum að leita
þeirra réttarfarsleiða, sem eru til
þess fallnar að skilgreina og
ákvarða hver séu réttindi og skyld-
ur þeirra, sem að máli þessu hafa
komið og ekki síst hver sé ábyrgð
þeirra. í næstu viku munu lögmenn-
irnir hefjast handa um nauðsynleg-
ar aðgerðir og verður síðan að bíða
niðurstöðu réttra úrskurðaraðila.
Ólafur Skúlason, biskup.
BRESKU blöðin The Sun, sem
er eitt útbreiddasta dagblað
heims, og Sunday Telegraph
birtu á laugardag og sunnudag
umfangsmikla umfjöllun um
Björk Guðmundsdóttur, en að-
aláhersla er á að rekja æsku
hennar. Bæði blöðin sendu menn
hingað til lands til að afla efnis,
The Sun blaðamann og Jjós-
myndara, en Sunday Telegraph
tónlistarritsljóra blaðsins.
Fyrirsögn á frásögn The Sun,
sem birtist á laugardag, er Upp-
reisnarkona frá Reykjavík, en í
myndatexta á fyrstu síðunni er
meðal annars lagt út af því að
Björk sé ein sérkennilegasta
poppstjarna heims.
Slegin yfir frægðinni
Rætt er við Hildi Rúnu
Hauksdóttur, móður Bjarkar,
og meðal annars haft eftir henni
að Björk hyggist leggja popp-
sönginn á hilluna og snúa sér
að sígildri tónlist. Samkvæmt
The Sun segist Hildur óttast að
frægðin verði Björk um megn.
Hildur rekur tónlistaráhuga
Bjarkar og nefnir að hálfs
þriðja árs hafi hún kunnað utan-
að og gjarnan sungið öll lögin
úr Tónaflóði. Einnig segir hún
frá unglingsárum Bjarkar og
því þegar hún fór að syngja
með hljómsveitum. Með grein-
inni birtast myndir af Björk,
allt frá eins árs aldri og til dags-
ins í dag.
f Sunday Telegraph er einnig
rakin ævi Bjarkar, en meira
lagt upp úr tónlistarferli henn-
ar. Þar er einnig rætt við Hildi,
sem segir þar að Björk hafi
verið slegin yfir því hve fræg
hún væri orðin á íslandi. Hildur
rekur einnig tónlistarferil
Bjarkar og segir frá því að hún
hafi forðast alla fíkniefna-
neyslu, sem er landlæg í popp-
heiminum, vegna þess að það
væri vísasta leiðin til að kæfa
alla listsköpun. Einnig er rætt
við Guðmund Gunnarsson, föð-
ur Bjarkar, sem tekur í sama
streng með frægð hennar heima
fyrir og segist ekki hafa orðið
hissa þegar hann frétti af atvik-
inu í Bangkok þegar Björk
veittist að breskri blaðakonu
sem henni þótti of nærgöngul.
„Ég veit að hún hefur skap,“
er haft eftir Guðmundi í Sunday
Telegraph, „hún vill fá að vera
í friði og sérstaklega vill hún
að Sindri fái að vera í friði.“
í lok greinarinnar er rætt við
Þór Eldon, barnsföður Bjarkar,
sem segist treysta Björk full-
komlega og að hún viti hvað sé
Sindra fyrir bestu. Hann nefnir
atburðinn í Bangkok og segir
að Bjöík hafi sagt sér að blaða-
maður hafi otað hljóðnema að
drengnum.
When it's minus 20 there's not
q lot to do ex<ept stay indoors
drink q qreat deal...and sinq
Yfirlýsing frá Ólafi
Skúlasyni biskupi Islands
Biskup hefur falið lögmönn-
um að undirbúa málsókn
Ein þriggja kvenna ræður sér lögfræðing
HERRA Ólafur Skúlason, biskup
íslands, hefur falið tveimur hæsta-
réttarlögmönnum, Ragnari Aðal-
steinssyni og Tryggva Gunnars-
syni, að undirbúa málsókn vegna
þeirra ásakana sem á hann hafa
verið bornar. Sigrún Pálína Ing-
varsdóttir, sem sakað hefur biskup
um nauðgunartilraún, hefur einnig
ráðið sér lögfræðing til að gæta
hagsmuna sinna ef til málaferla
kemur.
Biskup sendi frá sér yfirlýsingu
sl. laugardag eftir að DV birti við-
tal við þtjár konur sem saka hann
um kynferðislega áreitni. í yfirlýs-
ingunni segir biskup að með sakar-
áburði nafngreindra og ónafn-
greidra aðila sé vegið að friðhelgi
einkalífs síns og æru með ólögmæt-
um hætti. Af ummælum í fjölmiðl-
um megi ráða að markmiðið með
hinum röngu sakargiftum sé að
þvinga sig til að segja sig frá bisk-
upsembættinu. Mál þetta verði ekki
leyst í fjölmiðlum. Það verði að fara
réttar leiðir og niðurstaðan að
ákvarðast að lögum.
Nokkrar leiðir
koma til greina
Ragnar Aðalsteinsson hæstarétt-
arlögmaður sagði að það myndi
koma í Ijós innan tíðar hvaða leið
biskup færi við að veijast þeim sök-
um sem á hann hafa verið bornar.
Verið væri að kanna alla þætti
málsins og að hveijum málarekstur
kæmi til með að snúast.
Ragnar sagði að nokkrar leiðir
væru til skoðunar. Við undirbúning
málsins kæmu til greina laga-
ákvæði um friðhelgi einkalífs,
ákvæði almennra hegingarlaga um
rangar sakargiftir og ákvæði hegn-
ingarlaga um að neyða mann til
athafna með því að hafa uppi rang-
an sakburð um refsiverða eða van-
sæmandi háttsemi. Einnig kæmi til
greina að höfða meiðyrðamál og
að fara með málið fyrir siðanefnd
Blaðamannafélags íslands.
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, sem
opinberlega hefur ásakað biskup
um tilraun til nauðgunar, vildi ekki
tjá sig um ákvörðun biskups þegar
Morgunblaðið hafði samband við
hana í gær. Hún sagðist ætla að
ráða sér lögfræðing til að gæta
hagsmuna sinna ef biskup færi með
þetta mál fyrir dóm.
Tölvunefnd ræðir við Stígamót
Tölvunefnd átti í gær fund með
forsvarsmönnum Stígamóta, en
nefndin óskaði í síðustu viku skýr-
inga á því hvers vegna Guðrún
Jónsdóttir, talsmaður Stígamóta,
hefði greint opinberlega frá því að
til meðferðar væru hjá Stígamótum
konur sem hefðu orðið fyrir meintri
kynferðislegri áreitni af hálfu bisk-
ups íslands. Guðrún hefur auk þess
ritað nefndinni bréf um starfsreglur
Stígamóta varðandi nafnleynd. Sig-
rún Jóhannesdóttir, ritari tölvu-
nefndar, vildi ekki tjá sig um bréfið
efnislega, en sagði að það yrði tek-
ið fyrir á formlegum fundi tölvu-
nefndar nk. mánudag.
Stjórn Prestafélagsins
Um 20 prest-
ar vilja ræða
ástandið
STJÓRN Prestafélags íslands (PÍ)
kom saman í gær til reglulegs fund-
ar. Fyrir fundinum lágu meðal ann-
ars beiðnir frá samtals um 20 prest-
um, þar með talið stjórnum tveggja
deilda PÍ, Prestafélags Hólastiftis
og Prestafélags Austurlands, um að
félagið skapaði vettvang til um-
ræðna um ástandið í kirkjunni.
Stjórnin samþykkti að fulltrúa-
ráðsfundur, sem boðaður hefur verið
14. og 15. apríl næstkomandi, verði
opinn öllum félagsmönnum. í félag-
inu eru yfir 200 prestar. Þar verður
því vettvangur til umræðna um
ástandið innan kirkjunnar og þau
mál sem hafa verið ofarlega á baugi.
Boðað var til fundar fulltrúaráðsins
í Skálholti, en fundurinn verður að
öllum líkindum fluttur til Reykjavík-
ur af hagkvæmnisástæðum.