Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 16

Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Hádegisverðarfundur ÍMARK VIÐSKIPTI MARKAÐSSMÁL OG INTERNETIÐ ÞRÓUN UNDANFARNA MÁNUÐI Sífellt fjölgar þeim fyrirtækjum sem nýta sér möguleika Internetsins til kynningar og upplýsjngaleitar í haröri markaðsbaráttu. Á síöasta ári hélt ÍMARK fund þar sem fjallað var um þessi mál og var hann mjög vel sóttur. Okkur þykir nú tímabært aö skoöa málin aftur þar sem þróunin hefur oröiö mjög ör á þessum tíma. Frummælendur: Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri Margmiðlunar hf. Gestur Gestsson, markaösstjóri Margmiölunar hf. Fundarstjóri: Árni Geir Pálsson, Mættinum og dýrðinni. Fundurinn veröur á veitingastaönum Carpe Diem, fimmtudaginn 7. mars kl. 12:00 -13:30. Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir ÍMARK-félaga en 2.500 kr. fyrir aöra (hádegisverður og kaffi er innifalið). Muniö félagsskírteinin. Styrktaraöilar ÍMARK 1995 -1996 eru: QPIN KERFI HF twm FÓSTUR OG SlMI Manzt smdtt ÍSLAN DSBAN Kl Isarolðarprcmsmiðla hl. VILT ÞÚ LÁTA INNHEIMTUAÐGERÐIRNAR GANGA HRATT FYRIR SIG ? Innheimtur s/f leggja áherslu á faglega, hraða og góða þjónustu. Ef þú leitar lögfræöilegra innheimtuaðgeröa áttu rétt á að fá: HRAÐA ÞJÓNUSTU Hraðar innheimtuaðgerðir geta gert útslagið um hvort skuldin innheimtist og það að ná peningunum sem fyrst inn í veltuna getur verið áhrifavaldur á arðsemi fyrirtækis þins. GREIÐAN AÐGANG AÐ UPPLÝSINGUM Þú verður að geta fengið upplýsingar um gang og stöðu mála á fyrirhafnarlausan hátt þegar þér hentar. GÓÐAR SKILAGREINAR Forsenda þess að þú getir haft nákvæmt eftirlit með útistandandi kröfum og uppgjöri þeirra eru góðar skilagreinar. REGLULEGT UPPGJÖR Þú átt rétt á að fá peningana þína tafarlaust eftir að greiðsla hefur farið fram. Ef þú eöa fyrirtæki þitt þarf á lögfræöilegum innheimtuaó- geröum aö halda skaltu gera kröfur. Haföu samband viö Einar Gaut Steingrimsson hdl. á skrifstofu okkar og fáöu nánari upplýsingar um þjónustuna. INNHEIMTUR SF Eiðistorgi 13, 170 Seltjarnarnesi, sími 561 0077, fax 562 3484. JUtrpmlílWíÍlr - kjarni málsins! Samskip kaupa 80% hlutafiár í Landflutningum hf. Mynda nytt og öflugt þjónustunet um allt land SAMSKIP hf. hafa gengið frá samningum um kaup á 72% hlutafj- ár í' Landflutningum hf. fyrir 80 milljónir króna. Þá er samningum nær lokið um kaup á 8% hlut til viðbótar og öðrum hluthöfum verð- ur boðið að selja sína hluti á hlið- stæðum kjörum. Ákveðið hefur ver- ið að sameina starfsemi félaganna tveggja innanlands undir nafninu Landflutningar - Samskip og mynda þannig nýtt og öflugt þjón- ustunet um allt land. Landflutning- ar eru 30 ára gamalt fyrirtæki. Starfsmenn eru þijátíu talsins og var veltan á sl. ári um 72 milljónir. Að sögn Baldurs Guðnasonar, framkvæmdastjóra flutningasviðs Samskipa, skilar sameining innan- landsflutninga Samskipa og Land- flutninga í senn hagræðingu og aukinni þjónustu. Heildsali I Reykjavík, sem selur vörur til margra staða á landsbyggðinni, getur nú t.d. gengið frá öllum flutningum sínum á sjó og landi hjá Landflutningum í stað þess að semja við tugi einstaklinga og fyr- irtækja um flutninginn. „Við höfum kynnt okkur mjög vel landflutningamarkaðinn og greint það hversu mikið magn er flutt frá hverjum landsfjórðungi til og frá Reykjavíkursvæðinu, fjölda ferða og fjölda flutningsaðila. Stór hluti af flutningabílunum eru illa nýttir í ferðum til Reykjavíkur þar sem þeir eru fylltir vegna flutninga út á land. Við höfum hins vegar mikla flutninga frá landsbyggðinni til Reykjavíkur á útflutningsvöru sem fer í millilandaskipin. Þannig sáum við að hægt væri að auka nýtingu í flutningum í báðar áttir með samstarfi við þessa aðila. Bætt nýting fjárfestinga er lykill að hagræðingu. Fram til þessa hefur innanlandskerfið verið byggt upp þannig að hver maður á sinn bíl sem stendur kyrr meðan eig- andinn sefur. Það þarf bæði að tryggja það að flutningsrýmið sé vel nýtt og að bílarnir séu í stöð- ugri notkun.“ Reka flutningamiðstöðvar í samvinnu við heimamenn Kaup Samskipa á Landflutning- um er liður í viðameiri uppbygg- ingu félagsins_ á flutningakerfinu innanlands. „Á síðasta ári hófst uppbygging á flutningamiðstöðv- um á landsbyggðinni í samvinnu við heimamenn á hveijum stað,“ sagði Baldur. „Við byijuðum á því taka upp samvinnu við Stefni og Oskar Jónsson í flutningamiðstöð Norðurlands á Akureyri. Síðar stofnuðum við flutningamiðstöð Suðurlands í samvinnu við Kaupfé- lag Árnesinga og Sigurð Ástráðs- son. Á Austurlandi tókum við upp samstarf við flutningaþjónustu Kaupfélags Héraðsbúa og Unnar Eyjólfsson og viðræður standa yfir við aðra aðila. Á sama hátt erum við að und- irbúa uppbyggingu á Vestfjörðun og munum jafnframt endurskipu- leggja flutningana á Vesturlandi og á Reykjanesi. Við erum með öflugasta flutningakerfi landsins. Það verður dagleg dreifing á öll helstu þéttbýlissvæði landsins. Síð- an ætlum við að þróa hana og bæta þjónustu á höfuðborgarsvæð- inu.“ Við uppbyggingu á innanlands- kerfinu hafa Samskipamenn horft til nokkurra atriði í ytra umhverfi. „Samgöngur hafa verið að batna, kröfur um vörumeðferð hafa stór- aukist, vökulög ákveða hvíldartíma bílstjóra og olíugjaldið verður fellt inn I þungaskattinn. Samfara þessu hafa kröfur um þjónustu aukist. Menn sætta sig ekki lengur við að þurfa semja við marga bíl- stjóra um flutninga út á land og vilja skipta við einn aðila um alla sína flutninga. Einnig eru vaxandi kröfur um heildarlausn þ.á m. heimsendingu og dreifingu svo og daglegar ferðir. Síðan hafa físk- flutningar verið að aukast vegna sérhæfingar í fiskvinnslu. Sjávar- útvegsfyrirtæki taka til sín þann afla sem þau setja í vinnslu en senda annað á uppboðsmarkað," segir Baldur. Samskip hafa ennfremur í undirbúningi að tengja flutninga- kerfi sitt innanlands betur við fragtflug með það að markmiði að bjóða þjónustu á sviði hraðflutn- inga. Baldur segir að Samskip eigi í viðræðum um samstarf við nokkra aðila en ekki væri hægt að upplýsa um þau mál að svo stöddu. íslandsflug bætir við sig nýrri og stærri vél Ætlað að sinna frakt- fíutningum til Englands ÍSLANDSFLUG hf. hefur tekið á leigu nýja flugvél af gerðinni ATR 42. Vél þessi verður fyrst og fremst notuð til fraktflutninga milli ís- lands og Englands en einnig verð- ur hún notuð til farþegaflutninga, þá sér í lagi milli íslands og Græn- lands, að sögn Gunnars Þorvalds- sonar, framkvæmdastjóra íslands- flugs. Gunnar segir að fraktflutning- arnir hafi farið mjög vaxandi að undanförnu, eftir að hafa farið nokkuð hægt af stað. „Félagið hóf þetta flug árið 1994 og flýgur nú fimm sinnum í viku að næturlagi. Sú vél sem notuð hefur verið til fraktflutninganna var strax síðast- liðið haust verið orði.n of lítil og því var ákveðið að ráðast í þessa FLUGLEIÐIR hafa sett á fót tvær nýjar deildir á Keflavíkurflugvelli, hlaðdeild og ræstideild. Þessar deildir eru stofnaðar í framhaldi af samkomulagi sem Flugleiðir og Flugafgreiðslan hf. gerðu um að hætta samstarfi því sem staðið hefur frá árinu 1989, að því er segir í frétt frá Flugleiðum. Nýju deildirnar munu taka til starfa þann 1. maí næstkomandi og verður verksvið starfsmanna þeirra að hafa umsjón með hleðslu flugvéla og þrifum bæði um borð í vélum og í húsnæði félagsins á Keflavíkurflugvelli. viðbót, en fyrir á félagið 3 Dornier- vélar og eina Metro, sem fram til þessa hefur verið notuð í Englands- flugið," segir Gunnar. „Þessi vél var því fyrst og fremst hugsuð til þess að leysa fraktflugið hjá okkur en einnig kemur þar inn í að hún Um 120 ný störf hjá félaginu Samtals verða ráðnir um 120-150 manns til starfa við þess- ar deildir og verða störfin auglýst laus til umsóknar strax í þéssari viku. Deildarstjóri hinna nýju deilda hefur verið ráðinn Hrafn Þorgeirsson, sem undanfarin ár hefur verið stöðvarstjóri Flugleiða á Kastrupflugvelli í Kaupmanna- höfn. Við stöðu hans í Kaupmanna- höfn tekur Kolbeinn Jóhannesson, aðstoðarflugstöðvarstjóri í Kefla- vík. getur nýst í Grændlandsfluginu okkar og stærri leiguflugsverkefn- um. Þannig verður hún í fraktflugi á nóttinni og farþegaflugi á dag- inn.“ Gunnar segir að flutningarnir séu fyrst og fremst hraðflutningar með DHL auk þess sem fiskútflytj- endur hafi í vaxandi mæli nýtt sér þennan möguleika. Þá hafi það einnig færst í vöxt að innflytjendur sérpanti vörur inn með þessum hætti til þess að spara sér lager- hald. ATR 42 tekur um 4 tonn af frakt eða 46 farþega en fram til þessa hafa vélar Islandsflugs aðeins get- að tekið 19 farþega. Flughraði vélarinnar er um 490 km/klst. sem er öllu meira en flughraði Dornier- vélanna. Þá segir Gunnar að vélin sé nokkuð langfleyg og ráði til að mynda mjög auðveldlega við flug til Spánar. Að auki þurfi hún mjög stuttar flugbrautir sem sé ekki síð- ur mikilvægt hér á landi. Gunnar segir að fyrstu áhafnirnar hafi haldið utan á sunnudag til þjálfun- ar í Bandaríkjunum og vélin verði tekin í notkun þann 1. maí. Flugleiðir taka yfir hleðslu og þrif véla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.