Morgunblaðið - 05.03.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 17
VIÐSKIPTI
ATVR íhugar kæru á hendur
umboðsaðila Campari
Skiptar skoðanir
um viðskiptahætti
u læra
á Inter
HÖSKULDUR Jónsson, forstjóri
Afengis- og tóbaksverslunar ríkis-
ins, íhugar nú að kæra heildverslun-
ina Karl K. Karlsson hf. til Sam-
keppnisstofnunar eða Eftirlitsstofn-
unar EFTA (ESA) fyrir misbeitingu
á markaðsráðandi aðstöðu sinni.
Campari er uppurið í verslunum
ÁTVR og segir Höskuldur að það
verði ekki á boðstólum að svo
stöddu. Ingvar J. Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Karls K. Karlssonar
hf., segir þetta mál hins vegar á
misskilningi byggt auk þess sem
ÁTVR hafi aldrei svarað tilboði fyr-
irtækisins.
Að sögn Höskuldar eru einkum
þijár ástæður fyrir því að fyrirtæk-
ið íhugi nú að grípa til þessara
aðgerða. „í fyrsta lagi pöntuðum
við eina tegund af vöru en okkur
er gert að kaupa aðra,“ . „Við pönt-
uðum Campari af 25% styrkleika
en eigum að kaupa tegund sem er
21% að styrkleika. Þá pöntum við
2.400 flöskur en okkur er sett það
skilyrði að taka 3.600 flöskur. í
þriðja lagi ætluðum við síðan að
kaupa vöru sem kostaði 242 krónur
flaskan en okkur er sagt að kaupa
hana á 505 kr. eða 109% hærra
verði en við greiddum áður. Mælir-
inn hjá okkur er því einfaldlega
fullur."
Höskuldur segir að ekki hafi ver-
ið ákveðið enn hvort að þessir við-
skiptahættir verði kærðir eða hvort
fyrirtækið muni leita annað. Karl
K. Karlsson hf. hefur einkaumboð
fyrir Campari hér á landi í dag og
á grundvelli þess hefur framleið-
andinn neitað að afgreiða ÁTVR
um pantanir og vísað þess í stað á
umboðsaðilann hér á landi. Hös-
kuldur bendir þó á að samkvæmt
EES-samningnum sé ekkert til
lengur sem heiti einkaumboðsaðili
og því leiti fyrírtækið nú að öðrum
umboðsaðilum sem séu tilbúnir til
þess að bjóða kjör sem séu nær því
sem ÁTVR sé að óska eftir.
Tilhæfulausar ásakanir
Ingvar J. Karlsson, fram-
kvæmdastjóri Karls K. Karlssonar,
segir þessa umræðu á misskilningi
byggða og í raun sé það hjákátlegt
að ÁTVR sé að setja fram slíka
kæru í ljósi eigin einokunarstöðu.
Hann segist hins vegar fagna því
ef Samkeppnisstofnun taki þetta
mál til umfjöllunar enda fróðlegt
að vita hvort starfsemi ÁTVR sé í
samræmi við samkeppnislög.
„Hvað varðar verðhækkunina þá
stafar hluti hennar af hækkun frá
framleiðanda Campari auk þess
sem við þurfum að taka á okkur
kostnað vegna birgðahalds og því
eðlilegt að innkaupsverð ATVR
hækki eitthvað enda ætti birgða-
kostnaður þeirra að lækka fyrir vik-
ið,“ segir Ingvar. „ÁTVR hefur hins
vegar ekki svarað í neinu tilboði
okkar frá því í desember og engum
kvörtunum hefur verið komið á
framfæri við okkur fyrir utan at-
hugasemd við hvernig virðisauka-
skattur væri settur fram.“
Ingvar segir að tilboðið hafi mið-
ast við 3.600 flöskur en aldrei hafi
viðskipti verið skilyrt við það magn
heldur hafi magnafsláttur einungis
verið miðaður við þessa tölu. Hvað
varðar skiptinguna yfir í 21% styrk-
leika á Campari segir hann að sú
ákvörðun hafi komið að utan og
það sé af og frá að fyrirtækið sé
PAVIGRES
Sterkar og
ódýrar flísar
ALFASORG
KNARRARVOGI 4 • ft 568 6755
Viðskipta- og tölvuskólinn býður kvöld-
námskeið (6 klst) fyrir aðeins kr. 4.500
yi Internet
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar í síma 569 7640
Vertu skrefi á undan
með okkur!
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Ánanaustum 15
101 Reykjavík
Sími 569 7640
Símbréf 552 8583
skoli@nyberji.is
að reyna vísvitandi að hækka verð-
ið með þessum hætti. Það hafi eng-
an hag af slíku enda sé Campari
að keppa hér á landi við fjölmargar
aðrar tegundir. Hann segir að
Campari sé nú uppselt í ríkinu en
ætti hins vegar að fást á vínveit-
ingahúsum að nýju fyrir helgi.
- kjarni málsins!
VM
H
ISLENSKI MARKAÐSDAGURINN 15. MARS
HVAÐ V€ISTU
UM MARKAÐINNP
Námsstefna um markadsrannsóknir í Borgarleikhúsinu,
föstudaginn 15. mars kl. 9.20 -15.00.
Upplýsingar um markaðinn skipta miklu máli við ákvörðun markaðsaðgerða
og mat á árangri þeirra. Á námsstefnu ÍMARK verður fjallað um möguleika
og leiðirtil öflunar upplýsinga og markvissa nýtingu þeirra. Meðal annars
verður leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
Hvaöa upplýsingar eru tiltækar um kauphegðun neytenda?
• Hvernig mælist eftirtekt auglýsinga?
• Hver verður þróunin í rannsóknum næstu árin?
• Hvernig geta fyrirtæki mælt ímynd sína?
• Hvað eru þjónustukannanir?
• Hvernig nota íslensk fyrirtæki markaðsrannsóknir?
Fyrirlesarar:
Skúli Gunnsteinsson, ÍM Gallup
Hallur A. Baldursson, Yddu
Stefán Ólafsson, Félagsvísindastofnun Háskólans
Jón Björnsson, Hagvangi
Hafsteinn Már Einarsson, ÍM Gallup
Ásta G. Harðardóttir, Ráðgarði
Birna Einarsdóttir, íslandsbanka
Emil Grímsson, Toyota
Þátttökugjald
Þátttökugjald fyrir félaga í ÍMARK er 4.900 kr. og 7.900 kr.
fyrir aðra. Innifalið er léttur hádegisverður, kaffiveitingar og
námsstefnugögn. Þátttökugjald má greiða með VISA og EURO.
Skráning
Skráning fer fram á skrifstofu ÍMARK í síma 561 0140
á mánudögum kl. 13 - 15 og á miðvikudögum kl. 10 -12.
Einnig má tilkynna þátttöku með því aö senda fax í sama
númer. Takmarkaður sætafjöldi.
Takið frá íslenska markaðsdaginn frá morgni til kvölds.
Munið verðlaunaafhendinguna fyrir ATHYGLISVERÐUSTU
AUGLÝSINGAR ÁRSINS 1995 í aðalsal Borgarleikhússins
kl. 15.30 og sýninguna í anddyri leikhússins. Hátíð í Borgar-
kjallaranum um kvöldið.
ISLENSKI
MARKAÐSDAGURINN
HVSARK*
ÍSLANDSBANKI
Mflnit smdtt
OPIN KERFI HF
PÓSTUR OG SÍMI