Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
LEIÐTOGAR 15 ríkja Evrópusambandsins og tíu Asíuríkja í lok
fundarins í Bangkok.
Leiðtogafundur Evrópusambandsins
og Asíuríkja tókst framar vonum
Upphaf að nán-
ara samstarfi
Bangkok. Reuter.
LEIÐTOGAR ríkja Evrópusam-
bandsins og tíu Asíuríkja, sem fund-
uðu í Bangkok í Tælandi um sein-
ustu helgi, náðu árangri, sem sagð-
ur er hafa komið þeim sjálfum á
óvart. Leiðtogarnir samþykktu að
koma á auknu og nánara samstarfi
heimshlutanna tveggja á næstu
árum og að auka gagnkvæm við-
skipti og fjárfestingu.
Það, hversu vel leiðtogarnir náðu
saman á fundinum, er meðal ann-
ars sagt vera því að þakka að tek-
izt hafi að sneiða hjá deilum um
viðkvæm mál á borð við mannrétt-
indi, vinnulöggjöf, lýðræði og af-
vopnun og leggja þess í stað áherzlu
á hagvöxt og fjárfestingu. Þá hafa
gömlu nýlenduveldin í Evrópu, sem
drottnuðu áður yfir Suðaustur-
Asíu, nú fallizt á að viðurkenna
Asíuríkin sem jafningja, enda láta
þau síðarnefndu æ meira til sín
taka í efnahags- og alþjóðamálum.
Gagnkvæmir
hagsmunir
Evrópusambandsríkin, sem horfa
upp hægari hagvöxt en áður og 18
milljónir atvinnulausra manna, telja
sig þurfa á nánari tengslum við hið
kraftmikla og vaxandi efnahagslíf
Asíu að halda. Asíuríkin vilja hins
vegar aukinn aðgang að Evrópu-
markaðnum. Mikið er { húfi fyrir
báða heimshluta að með þeim tak-
istgott samstarf.
í lokayfirlýsingu leiðtogafundar-
ins er lýst yfir vilja til að auka fjár-
festingu á báða bóga og'fækka við-
skiptahindrunum, auk þess sem
trausti á Heimsviðskiptastofnuninni
(WTO) er lýst yfir.
Auk almennra yfirlýsinga verður
ráðizt í sértækar aðgerðir, sem
stuðla eiga að nýju samstarfi heims-
hlutanna. Komið verður á fót form-
legum samstarfsvettvangi, Sam-
starfi Asíu og Evrópu um aukinn
hagvöxt. í félagi við einkageirann
verður samin áætlun um hvata til
fjárfestingar í Asíu og Evrópu.
Umræðuvettvangur kaupsýslu-
manna frá báðum heimsálfum verð-
ur settur á stofn og sérstök Stofnun
Asíu og Evrópu verður sett á fót í
Singapore.
A næsta ári verður efnt til fund-
ar utanríkisráðherra ríkjanna 25 og
jafnframt munu ráðherrar efna-
hagsmála koma saman. Næsti leið-
togafundur verður svo haldinn í
Bretlandi 1998 og sá þriðji í Suður-
Kóreu árið 2000.
Rætt er um að fjölga aðildarríkj-
um samstarfsins — en eingöngu
Asíumegin. Þannig er til umræðu
að Indland, Ástralía og Nýja Sjá-
land verði með á næsta leiðtoga-
fundi.
í lokayfirlýsingunni er lýst yfir
stuðningi við vernd mannréttinda,
en jafnframt gefa ríkin loforð um
að blanda sér ekki hvert í annars
innanríkismál. Þannig tókst ESB-
ríkjunum að friða mannréttinda-
samtök, um leið og mannréttinda-
brot Asíuríkjanna eru í raun látin
óáreitt. Þá er því lýst yfir að heims-
hlutarnir tveir, sem lengi tengdust
böndum herra og þjóns, muni héðan
í frá eiga samstarf á jafnréttis-
grundvelli.
Sterkari
„þríhyrningur"
Margir vonast til að með auknu
samstarfí Asíu og Evrópu muni „þrí-
hyrningur" þriggja helztu vaxt-
arsvæða heimsins styrkjast. Eins og
nú háttar til, eru mikil tengsl á milli
Norður-Ameríku og Evrópu og á
milli Amen'ku og Asíu, en tengsl á
milli Evrópu og Asíu hafa verið veik-
ari. „Það er gífurlega mikilvægt að
þríhyrningur Evrópu, Asíu og
Bandaríkjanna verði virkari."
Hið góða andrúmsloft á fund-
inum er talið hafa stuðlað að bætt-
um tvíhliða samskiptum á milli
ýmissa Evrópu- og Asíuríkja. Þann-
ig sáust merki um þíðu í samskipt-
um Bretlands og Kína, Portúgal
gerði Indónesíu tilboð um lausn á
deilum um Austur-Tímor og Japan
og Kína ákváðu að flýta viðræðum
tii að reyna að leysa deilur um lög-
sögumörk í Kínahafi.
Norrænu ríkin sögð
forðast erfið mál
EINN helzti sérfræðingur Nórður-
landa í Evrópufræðum, Nikolaj Pet-
ersen, prófessor við Árósaháskóla,
gagnrýnir stefnu norrænu Evrópu-
sambandsríkjanna í skýrslu, sem
hann hefur samið fyrir Norðurlanda-
ráð. Petersen segir norrænu ríkin
forðast hin erfiðu deilumál innan
Evrópusambandsins vegna ótta við
almenningsálitið heima fyrir.
Petersen segir í samtali við Politik-
en að norrænu aðildam'kin hafí ein-
beitt sér að málaflokkum á borð við
umhverfismál, atvinnumál og lýð-
ræði, en gert minna úr mikilvægum
viðfangsefnum á boi'ð við öryggismál
og tengsl stórra og lítilla ríkja innan
stofnana Evróusambandsins.
Ole Stavad, formaður Evrópu-
nefndar Norðurlandaráðs, vísar
gagnrýni Petersens á bug og segir
umhverfis- og atvinnumál á meðal
mikilvægustu málanna á vettvangi
ESB.
ERLEIMT
Forkosningar í átta ríkjum í dag og í New York á fimmtudag
Dole vonast eftir
afgerandi forystu
Fullyrt að Buchanan hafi verið höfundur „leynilegra
aðgerða“ gegn demókrötum í tíð Nixons
Atlanta, Washington. Reuter, The Daiiy Telegraph.
Reuter
ALAN Keyes, einn þeirra, sem bjóða sig fram í forkosningum
repúblikana, var liandtekinn við sjónvarpsstöð í Atlanta á sunnu-
dag. Vildi hann fá að taka þátt í umræðum annarra frambjóð-
enda og flokksbræðra sinna en sá, sem kostaði umræðurnar,
hafði neitað honum um þátttöku. Var Keyes fljótlega sleppt en
hann hefur fengið sáralítið fylgi í forkosningunum.
BOB Dole vann sannfærandl sigur
í forkosningum repúblikana í Suð-
ur-Karólínu á laugardag og vonast
til, að kosningar í átta ríkjum í dag
og í New York á fimmtudag skilji
með afgerandi hætti á milli hans
og annarra frambjóðenda. Dole
hefur gefið í skyn, að hann muni
bjóða Colin Powell hershöfðingja
að bjóða sig fram með sér sem
varaforsetaefni.
Yfirburðir Dole í Suður-Karólínu
komu á óvart en hann fékk 45%
atkvæða, Pat Buchanan 30%, Steve
Forbes 13% og Lamar Alexander
10%. Aðrir fengu miklu minna.
Virðist sem kosningavél Repúblik-
anaflokksins, sem styður Dole, hafi
loksins komist í gang. Samkvæmt
útgöngukönnunum fengu þeir Dole
og Buchanan svipað fylgi meðal
kristinna hægrimanna en Dole sóp-
aði til sín atkvæðum hófsamra kjós-
enda.
Dole var spurður um helgina
hvort hann hygðist bjóða Colin
Powell að gerast varaforsetaefni
sitt og kvað hann það hugsanlegt.
Buchanan brást hins vegar við með
því að lýsa yfir, að færi Powell, sem
er svartur og frjálslyndur í skoðun-
um, fram með Dole gæti það leitt
til klofnings í flokknum.
Missti af tækifærinu
Fréttaskýrendur segja, að Buch-
anan hafi farið illa með það tæki-
færi, sem hann fékk með sigri sín-
um í New Hampshire. í stað þess
að milda málflutning sinn og reyna
að höfða til breiðara kjósendahóps
hafi hann tvíeflst í öfgunum. I
Suður-Karólínu hafi hann til dæm-
is lofað gamla Suðurríkjafánann,
sem margir telja táknrænan fyrir
þrælahaldið á sínum tíma. Frétta-
skýrendur segja hins vegar líka,
að kjósendur séu lítt spenntir fyrir
Dole þótt þeir telji hann skásta
kostinn.
„Slagurinn stendur enn á milli
fjögurra frambjóðenda en gangi
okkur vel á morgun á verður að-
eins einn eftir, ég,“ sagði Dole á
fundi í Baltimore í gær.
Óvissan mest í Georgiu
í dag verður kosið í fimm ríkjum
á Nýja Englandi og auk þess í
Georgiu, Colorado og Maryland.
Verður þar tekist á um 226 kjör-
menn, mestan fjölda á einum degi
til þessa, og þykir líklegt, að Dole
muni vegna vel. Mest er óvissan í
Georgiu en þar hafa þeir Buchanan
og Alexander rekið harðan áróður.
Fái Alexander slæma útreið þar
þykir víst, að hann sé úr leik í for-
kosningabaráttunni.
Þrátt fyrir úrslitin í Suður-Karól-
ínu var Buchanan hinn borubratt-
asti á sunnudag og sagði þá, að
ynni hann í einu ríki af átta í dag
væri forkosningabaráttan galopin
á ný. Forbes setur aftur á móti
allt sitt traust á forkosningarnar í
New York á fimmtudag.
Buchanan borinn sökum
Dagblaðið The Washington Post
sagði í gær, að Pat Buchanan hefði
á sínum tíma hvatt Richard Nixon
og stjórn hans til að beita sér fyrir
„leynilegum aðgerðum“ gegn
demókrötum. Gerðist þetta nokkru
fyrir Watergate-hneykslið, sem
leiddi til afsagnar Nixons, eða 10.
apríl, 1972.
Á minnisblaði, sem aldrei var
afhent þingnefndinni, sem kannaði
Watergate-hneykslið, leggja Buch-
anan og aðstoðarmenn hans til, að
repúblikanar ráðist „leynilega“
gegn ákveðnum demókrötum en
láti líta svo út, að aðrir demókratar
hafi átt hlut að máli; að boðuðum
fundum demókrata verði hleypt
upp; að skipulögð verði mótmæli
og gróusögum verði komið af stað
um demókrata.
The Washington Post sagði, að
minnisblaðið væri stílað á John
Mitchell, dómsmálaráðherra Nix-
ons, og H.R. Haldeman, starfs-
mannastjóra Hvíta hússins. Er
blaðið nú geymt í bandaríska þjóð-
skjalasafninu.
í vitnaleiðslum fyrir þingnefnd
1973 neitaði Buchanan allri vitn-
eskju um „leynilegar aðgerðir" en
hann vann meðal annars að því
fyrir Nixon að afla „upplýsinga um
andstæðingana".
*
Afgerandi sigur kosningabandalags hægri flokka í Astralíu
Howard heitir umbótum og
nánum tengslum við Asíu
Sydney. Reuter.
JOHN Howard, leiðtogi
kosningabandalags Fijáls-
lynda flokksins og Þjóðar-
flokksins, kvaðst í gær hafa
ótvírætt umboð kjósenda til
að framfylgja stefnu sinni
eftir sigur hægri flokkanna
í kosningunum í Ástralíu.
Hann hét gagngerum um-
bótum í efnahags- og at-
vinnumálum á fyrsta blaða-
mannafundi sínum eftir stórsigur-
inn á laugardag og sagði að áhersla
yrði lögð á tengslin við Asíu, sem
yrðu snar þáttur í framtíð Ástralíu.
Með sigri hægri flokkanna var
endi bundinn á 13 ára valdasetu
Verkamannaflokksins undir forystu
Pauls Keatings og á verð- og hluta-
bréfamörkuðum virtust fyrirheit um
herta vaxtastefnu og að gefa mark-
aðsöflunum lausan tauminn gefa
John
Howard
viðskiptum byr undir báða
vængi.
Howard sagði í gær að
það væri mikil stígandi og
gnótt tækifæra í samskipt-
um Ástrala við nágranna
sína.
Stéttarfélög í vegi
fyrir Howard?
„Eg hyggst nýta skrið-
þungann af starfi, sem forsætisráð-
herrar beggja vegna miðju hófu
fyrir löngu," sagði Howard og bætti
við að sín fyrsta opinbera heimsókn
yrði til grannríkis. '
Það kom í ljós þegar í gær að
Howard mun ekki eiga auðvelt verk
fyrir höndum. Bill Kelty, fram-
kvæmdastjóri heildarsamtaka ástr-
alskra stéttarfélaga (ACTU), til-
kynnti afsögn sína úr stjórn Seðla-
banka Ástralíu og sagði í yfirlýs-
ingu að sú staða samræmdist ekki
lengur ábyrgð sinni í forystu verka-
lýðsmála.
Stjórnmálaskýrendur sögðu að
afsögn Keltys staðfesti að stéttarfé-
lög myndu ekki aðeins berjast gegn
umbótum Howards heldur einnig
reyna að knýja fram launahækkan-
ir eftir 13 ára samkomulag í launa-
málum við Keating og Verka-
mannaflokkinn.
Howard sagði að Ástralar hefðu
alfarið hafnað hroka og einangrun
stjórnar Keatings. Enn var verið
að telja atkvæði í gær, en allt bend-
ir til þess að kosningabandalag
Howards fái 50 sæta meirihluta í
neðri deild ástralska þingsins þar
sem eru 148 sæti. Howard kvaðst
ætla að skipa ráðherra síðar í vik-
unni og vera tilbúinn að taka við
embætti á föstudag.