Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 20

Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 20
STUTT Kvittur um heilsuleysi Mandela NELSON Mandela, forseti Suð- ur-Afríku, er á leið í þriggja daga alhliða læknisskoðun og er vonast til, að niðurstaða hennar kveði niður þrálátan orðróm um heilsu- leysi hans. Vegna hans hefur gengi randsins, suður-afríska gjaldmiðilsins, átt nokkuð undir högg að sækja. Fjármálasérfræð- ingar segja, að erlendir fjárfestar óttist, að hugsanlegur eftirmaður Mandela verði ekki jafn varkár í fjármálum ríkisins og hann. Bjartsýnn á olíusölu AMIR Muhammed Rasheed, olíu- málaráðherra íraks, kvaðst í gær bjartsýnn á, að viðræðumar við fulltrúa Sameinuðu þjóðanna um takmarkaða olíusölu bæru góðan árangur. Enn væru þó ýmis mál óútkljáð. Setuverkfall á þingi HELSTI stjómarandstöðuflokk- urinn í Japan efndi til setuverk- falls á þingi í gær til að neyða stjómina til að fresta atkvæða- greiðslu um umdeilt fmmvarp. Samkvæmt því verða skattpen- ingar notaðir til að hjálpa að- þrengdum lánastofnunum. Fólk frá borginni Kobe efndi einnig til mótmæla úti fyrir þinghúsinu og skoraði á stjómina að nota skatt- peninga almennings til að byggja upp borgina í stað þess að gefa þá stjómendum illa rekinna lána- stofnana. í Kobe létust þúsundir manna í miklum jarðskjálfta fyrir ári. Sinn Fein útilokað GERRY Adams, leiðtoga Sinn Fein, var meinuð þátttaka í við- ræðum um frið á Norður-írlandi í Belfast í gær. Verður svo þar til IRA, írski lýðveldisherinn, hef- ur Iýst yfir nýju_ vopnahléi. Sir Patrick Mayhew, írlandsmálaráð- herra bresku stjómarinnar, og Dick Spring, utanríkisráðherra írlands, hófu einnig fund í Bel- fast í gær um fyrirhugaðar kosn- ingar og reglulegar friðarviðræð- ur í júní en vegna komu Springs hættu flokkar mótmælenda við þátttöku í viðræðunum í gær. Sljórn í Tyrklandi TYRKNESKI Föðurlandsflokk- urinn samþykkti í gær sáttmála nýrrar stjómar með Hægri- flokknum. Um er að ræða minni- hlutastjórn og munu leiðtogar flokkanna, Mesut Yilmaz og Tansu Ciller, skiptast á um að gegna forsætisráðherraembætt- inu. Eistar og Lettar deila EISTNESKIR landamæraverðir stöðvuðu í gær veiðar lettnesks fiskiskips og fóru um borð á þeirri forsendu að það ’væri í eistneskri lögsögu, að því er sagði í yfirlýs- ingu frá eistnéska utanríkisráðu- neytinu. Eistar og Lettar hafa undanfarin tvö ár átt í landhelgis- deilu. Lettar segja að skipið hafi hins vegar ekki verið innan hins umdeilda svæðis og hafa krafið Eista skýringa á athæfí þeirra. 20 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT v Islendingar í ísrael Vaxandi ótti meðal almennings , „ÉG var að koma inn úr dyrunum frá Tel Aviv og veit ekki nákvæm- lega hvað gerðist, en ég heyrði sprenginguna greinilega, var stödd í um eins kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem hún sprakk. Þessi tilræði eru farin að segja til sín og verulegs ótta gætir meðal almenn- ings,“ sagði Edda Guðnason, sem býr ásamt fjölskyldu í Jerúsalem, í samtali við Morgunblaðið í gær. Edda sagði, að þegar tilræði ættu sér stað með svo skömmu millibili eins og að undanförnu þá segði það mjög til sín þótt ísraelar væru ýmsu vanir. „Andrúmsloftið er þrungið spennu og andinn slæmur. Það er farið að gæta verulegrar hræðslu meðal almennings og ég get ekki neitað því að talsverðan kvíða hefur sett að okkur. Við erum tij dæmis að skoða það nú að skipta um skóla fyrir dóttur okkar. Nú þarf hún að fara með strætisvagni í gegnum miðbæinn en við ætlum að athuga með að fá hana flutta í skóla sem er hér í útborginni,“ sagði Edda. Það var skjálfti í röddinni er sam- talið fór fram og hún sagðist eiga eftir að hringja mikið, láta vita af sér og sínum og kanna hvort vini og vandamenn hefði nokkuð sakað í tilræðinu í gær. Það væri venjan meðal ísraela í kjölfar sprengjutil- ræða. „Vissulega er fólk farið að óttast að þessi tíðu tilræði geti haft slæm áhrif varðandi friðarþróunina, sem flestir hafa bundið miklar vonir við. Það er ómögulegt að segja hveijar afleiðingamar verða, hvort mikill afturkippur verði, en vissulega er ástandið slæmt þessa stundina. Og það má segja að spenna hafí farið vaxandi í landinu allt frá því Yitz- hak Rabin var myrtur í haust,“ sagði Edda Guðnason. Hryðjuverk og afleiðingar „Fólki er mjög brugðið vegna þessara tilræða og þó svo við séum langt fyrir norðan þessa bæi þá hafa tilræðin áhrif hér. Það virðist vera efst á baugi hjá yfírvöldum að auka öryggi og eftirlit í þeim tilgangi að sporna við frekari hryðjuverkastarfsemi. Á því hefur fólk meiri áhuga en hugsanlegum áhrifum á friðarþróunina," sagði Guðmundur Harðarson vélvirki í bænum Naharía nyrst í ísrael. Hann hefur starfað að viðhaldi rafveitna í suðurhluta Líbanons undanfarin þijú ár og sagði að á þeim slóðum hefði orðið mun friðvænlegra að undanfömu. Mikill hiti í fólki „Hér höfum við ekki orðið vör við neitt hér, Ashdod er friðsemdar- borg, sjáum bara fréttir af þessum tilræðum í sjónvarpinu," sagði Jón Grettisson í samtali við blaðið í gær. Hann vinnur ásamt tug starfs- manna ístaks að smíði lystisnekkju- hafnar í hafnarbænum Áshdod, sem er skammt frá Tel Aviv og Askelon þar sem öfgasamtök efndu til sprengjutilræða í gær og um fyrri helgi. „Annars er mikill hiti í fólki sem við vinnum með vegna þessara hryðjuverka og víst er að arabar í ísrael eru ekki öfundsverðir af hlut- skipti sínu. Menn vonast bara til að það takist að vinna bug á þessu,“ sagði Jón. Tilræðismenn reyna að hindra friðarsamninga Tugir manna farast í Jerúsalem og Tel Aviv Jerúsalem, Tel Aviv. Reuter. SPRENGJUTILRÆÐI á fjölfarinni verslunargötu í Tel Aviv varð a.m.k. 12 manns að bana í gær og um 100 slösuðust, að sögn lögreglu. 18 manns og tilræðismaður að auki létu lífíð í sjálfmorðstilræði Palest- ínumanns í Jerúsalem á sunnudag. Hamas, hreyfing múslimskra heit- trúarmanna, lýsti yfír ábyrgð á til- ræðinu í Jerúsalem en óljóst var um hið síðara. „[Tilræðismaðurinn] fór yfír göt- una á homi Dizengoff-götu og götu Georgs konungs þar sem fjöldi manna og bíla var á ferð og sprengdi sjálfan sig í loft upp,“ sagði Gabi Last, lögreglustjóri í Tel Aviv. Sprengingin varð í kjarna borg- arinnar, í Dizengoff-verslanamið- stöðinni, en árið 1994 varð sjálfs- morðingi úr röðum Hamas rúmlega tuttugu manns að bana í strætis- vagni á Dizengoff-götu. Rúður í verslunum í grennd við staðinn sundruðust í gær, sviðin bílflök lágu á við og dreif og sums staðar sáust blóðflekkir úr fórnarlömbunum á gangstéttum. „Um 10 manns biðu við hraðbanka til að taka út pen- inga,“ sagði kona sem var vitni að atburðinum. „Það varð sprenging og sjö manns þeyttust upp í loftið." Talsmaður Ichilov-sjúkrahússins sagði að þangað hefði verið komið með þijú slösuð böm. Ronnie Milo, borgarstjóri í Tel Aviv, sagði að tilræðismaðurinn virtist hafa ætlað að fara inn í stórmarkað þar sem fjöldi bama var í hátíðarklæðum í tilefni trúarhátíðar gyðinga, Purim. „Hann virðist hafa séð lögreglu- mann í dyragættinni og ákveðið að sprengja sig á götunni. Við sáum höfuð mannsins í nokkurra metra fjarlægð." Að sögn Milos hafði maðurinn bundið sprengiefnið við líkama sinn. Maður sem talaði arabísku en ekki gaf upp nafn sitt hringdi í ísraelska útvarpið og sagðist tala í nafni Hamas. Tilræðismaðurinn hefði verið Salah Abdel-Rahim Ishaq, 24 ára gamall Palestínumaður frá borginni Ramallah á Vesturbakkan- um, Síðari fregnir hermdu að Ham- as segðist ekki hafa borið ábyrgðina á tilræðinu í gær og beindist þá gmnurinn að íslamska jihad, öðmm öfgasamtökum múslima. Hert eftirlit Öryggisviðbúnaður hefur verið stórefldur í Jerúsalem og víðar í ÍSRAELSKAR stúlkur syrgja fórnarlömb tilræðisins í Jerú- salem á sunnudag. ísrael vegna tilræðanna. Shimon Peres, forsætisráðherra Israels, samþykkti á sunnudag áætlun um hert eftirlit á landamærum ísraels og sjálfsstjórnarsvæða Palestínu- manna. Peres kom í skyndiheim- sókn á tilræðisstaðinn í Tel Aviv í gær. „Peres, þú ert næstur!" hróp- aði reitt fólk að ráðherranum. Talið er að árásir Hamas geti valdið því að Peres og Verkamannaflokkur hans tapi fyrir hægriflokknum Likud í þingkosningum sem fyrir- hugaðar em í lok maí. Skömmu eftir tilræðið hvatti Peres almenn- ing til að missa ekki trú á friðarferl- ið. Markmið Hamas með tilræðun- um er að koma í veg fyrir friðar- samninga ísraela og Palestínu- manna. Ramallah heyrir nú undir stjórn Yassers Arafats á sjálfs- stjómarsvæðum Palestínumanna og var haft eftir talsmanni hans að tilræðin væru stríðsyfirlýsing. „Friðarþróunin er i hættu“, sagði talsmaðurinn, Marwan Kanafani. Reuter BJORGUNARMENN leita í braki strætisvagns sem Hamas- liðar sprengdu í loft upp í Jerúsalem á sunnudag. Hamas hefur staðið fyrir fjórum sprengjutilræðum á rúmri viku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.