Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 21

Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 21 ERLENT Hong Kong-búum heitið áritunum Hong Kong. Reuter. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, lofaði íbúum Hong Kong í gær að þeir myndu ekki þurfa vegabréfsáritun til að ferðast til Bretlands eftir að Kínvetjar taka þar völd 30. júní 1997. Yfirlýsingu Majors var fagnað í viðskiptaheimi Hong Kong, en heima fyrir komu þegar fram mótmæli úr eigin flokki. Major sagði einnig í ávarpi til kaupsýslumanna í Hong Kong að Bretar myndu ekki líða það að hlut- ast yrði til um réttindaskrá eða lög í Hong Kong, sem verið hefur bresk nýlenda í 150 ár. Bresk stjórnvöld myndu bregðast við minnsta broti á sameiginlegri yfirlýsingu og sátt- mála Breta og Kínveija um yfir- ráðaskiptin. Þingmenn og almennir borgarar í Hong Kong sögðu að Major hefði ekki gert nóg til að fullvissa þá um að þeir héldu réttindum sínum eftir að Kínveijar kæmu til skjalanna. Gæti skaðað Major heima fyrir Ráðherrar í stjórn Majors sögðu að ekki bæri að óttast öldu innflytj- enda í kjölfar ræðu forsætisráðherr- ans, en Teresa Gorman, þingmaður á hægri væng íhaldsflokksins, var- aði Breta við og sagði þeim að „bú- ast við hinu versta". 14 mánuðir eru í kosningar á Bretlandi og Verkamannaflokkur- inn hefur mikla forystu á íhalds- flokk Majors í skoðanakönnunum. Innflytjendamál eru eldfim á Bret- landi og yfirlýsing, sem þessi, gæti skaðað forsætisráðherrann, þótt hennar hafi verið vænst í Hong Kong. Major sagði í ræðunni að ekkjur hermanna, sem féllu í heimsstyij- Hreyfilbil- un olli slysi í Perú Lima. Reuter. FLEST bendir til þess að óvænt og fyrirvaralaus hreyfilbilun hafi valdið því að Boeing 737-200 farþegaþota perúska flugfélagsins Faucett fórst skömmu fyrir lendingu í borginni Arequipa sl. fimmtudagskvöld. Hafi hún verið með þeim hætti, að reynd- ir flugmennirnir fengu ekki við neitt við ráðið. Flugvélin var 28 ára gömul og hafði verið notuð til stuttra ferða því hún hafði að baki 77.000 flug- tök og hafði verið 52.000 klukku- stundir á flugi. í framhaldi af slysinu hafa heyrst háværar kröfur, m.a. frá þingmönn- um, um að endurnýja beri flugflota perúsku áætlunarflugfélaganna sex. Sé hann ævaforn, dæmi eru um að allt að 45 ára flugvélar séu notaðar til áætlunarflugs, illa við haldið og þjakaðar af ofnotkun eins og Faucett-þotan sem fórst fyrir helgi með þeim afleiðingum að 117 farþegar og sex manna áhöfn biðu bana. Talsmaður Faucett hélt því fram, að þotan hefði verið í góðu ásig- komulagi og nýlega verið komin úr viðhaldi þar sem gerðar hefðu verið á henni endurbætur er kostuðu 1,5 milljónir dollara, jafnvirði 99 millj- óna króna. Fulltrúar perúsku flugmála- stjórnarinnar gáfu hins vegar til kynna, að Boeing-verksmiðjurnar hefðu nýlega sent flugfélaginu bréf þar sem fundið var að því, að við- haldi flugflotans væri ekki fram- fylgt með eðlilegum hætti og því væri ábótavant. Þá leiddi athugun bandaríska loft- ferðaeftirlitsins (FAA) til þess í nóv- ember sl., að Perú var sett á svartan lista yfir lönd sem stæðust ekki al- þjóðlega staðla um flugöryggi. öldinni síðari, myndu fá breskt rík- isfang og hét minnihlutahópum í Hong Kong því að þeir mættu flytja til Bretlands ef þrýst yrði á þá. Verðbréfasali einn í Hong Kong sagði að hér væri um innantóm orð að ræða: „Hvað varðar að fylgja eftir brotum á sameiginlegu yfirlýs- ingunni: Hvað ætla Bretar að gera? Senda herskip? Ég held ekki.“ Áttþú viðskiptahugmynd? Stofnun og rekstur smáfyrirtækja Kvöld- og helgarnámskeið um stofnun og rekstur smáfyrirtækja hefst 16. mars. Innritun og nánari upplýsingar í síma 587 7000. lóntæknistofnun 11 GOLF • • • • T OLLUM ORYGGISPROFU VWGOLF ORUGG FJARFESTING VWGOLF FALLEGUR VWGOLF FRABÆR I AKSTRI VW GOLF • • ORUGGUR I ENDURSOLU VWGOLF SPARNEYTINN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.