Morgunblaðið - 05.03.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996 27
MENNTUN
10-12 ára nemendur Selásskóla
Ræðumenn framtíðar
SELÁSSKÓLI er eini skólinn á
landinu, þar sem ræðumennska og
fundasköp eru á stundaskrá 10-12
ára nemenda einu sinni í viku. Hef-
ur svo verið undanfarin tíu ár. Sú
sem átti hugmyndina og sér um
kennsluna er Kristín H. Tryggva-
dóttir skólastjóri.
Hún var við nám í Berkeley í
Kaliforníu, en þar lærði hún þær
aðferðir sem hún notar. „Mér fannst
þetta áhugavert því sjálf hafði ég
alltaf átt erfitt með að tjá mig og
koma fram. Ég vann um tíma hjá
BSRB og tók þar upp ræðumennsku
fyrir fullorðna. - Þar nefndu t.d.
margir kennarar að þeir hefðu viljað
fá þessa kennslu mun fyrr. Því
byijaði ég strax og ég hafði mögu-
leika á hér í skólanum," sagði hún.
Hugstormun og flokkun orða
Á fyrsta ári fer kennslan þannig
fram að Kristín nefnir orð, t.d. ungl-
ingur, og nemendur kalla upp þau
orð sem koma í hugann. „Það finnst
þeim óskaplega skemmtilegt. Öll
orðin eru skrifuð upp á töflu og í
sameiningu flokkum við þau niður.
Stundum verða nemendur að skýra
út af hveiju þeim finnst orðin eiga
að vera í sama flokki eða af hveiju
ekki.“
Sem dæmi um flokka tengda
unglingum má nefna útlit, hegðun
og fatnað. Nemendur velja síðan tvo
flokka og skrifa þau orð sem þar
eru. Síðan búa þeir til setningar
utan um orðin, nokkurs konar sam-
felldan texta, koma upp og flytja
sína ræðu. „Venjulega gengur á
ýmsu til að byija með, en þetta
þýðir að hvert einasta barn treystir
sér til að koma upp.
Eftir fyrsta veturinn eru þau
smám saman orðin það lagin að ég
get haft hugstormunina munnlega.
Ef tími er til er „orðið laust“ í lok
tímans og þeir duglegustu til að
rökræða koma upp, spyija hina
Morgunblaðjð/Árni Sæberg
UMRÆÐUEFNI nemenda í 7. HGL var að þessu sinni forseta-
kosningarnar. Ræðumaðurinn heitir Tómas Huldar Jónsson en
fundarsljóri var Linda Rós Birgisdóttir.
hvers vegna skoðun þeirra sé svona
eða hinsegin, af því þeir eru sjálfir
ekki á sama máli,“ sagði Kristín.
Á öðru ári eru skipaðir fundar-
stjórar meðal nemenda. Þegar fímm
mínútur eru eftir af tímanum slíta
nemendur fundi og í sameiningu
velja þeir ásamt Kristínu efni fyrir
næstu viku. Kristín segir að funda-
sköp séu eftir settum reglum og
nemendur læri smám saman að
segja „orðið er laust“ en ekki „mál-
ið er laust“ eins og heyrðist gjarnan
í byijun. Eða „fundi er slitið“ en
ekki „fundurinn er slitinn".
Mikið meira en íslenskutími
Tíminn sem Kristín hefur notað
til ræðumennsku er tekinn af ís-
lensku, en hún segir nemendur fá
mun meira en íslensku út úr tíman-
um. Þeir verði til dæmis alltaf að
færa rök fyrir sínu máli. „Ég legg
einnig áherslu á að í lokin segi þau
sína skoðun á málefninu, þó svo
að þau hafi einungis komið fram
með kaldar staðreyndir."
Kristín segist fínna að nemendur
séu vel inni í mörgum málum og
hafi áhuga á því, enda séu umræðu-
efnin víðtæk, einkum í 12 ára bekk.
Þar sé meðal annars rætt um al-
næmi, eiturlyf, landgræðslu, skóg-
rækt, slys og náttúruhamfarir, svo
dæmi séu tekin. „Mér finnst þetta
frábært, því nemendur læra mjög
vel að flytja mál sitt. Ég gef þeim
umsögn fyrir efni, flutning, rökræð-
ur á eftir og hlustun."
í lok skólaársins hafa tólf ára
nemendur tekið þátt í keppni, þar
sem þrír fulltrúar úr hvorum bekk
etja kappi. „Ræður þeirra eru stór-
kostlegar og gefa menntaskóla-
krökkunum ekkert eftir,“ sagði
Kristín. Aðspurð kveðst hún hafa
heyrt að þegar nemendur komi í
unglingadeild í Árbæjarskóla standi
þau sig vel í félagsstarfi, því þau
séu óhrædd við að láta í sér heyra.
Nýjar námsbækur
Á VEGUM Námsgagnastofnunar
hafa nýverið komið út bækur í sam-
félagsgreinum og umferðarfræðslu.
• Landbúnaður á Islandi í saman-
tekt Árna Árna-
sonar með mynd-
um eftir Kolbein
Árnason _ og
Árna Árnason
er m.a. ætlað
unglingum. Heft-
ið er tekið saman
í samstarfi
Námsgagna-
stofnunar og
Upplýsingaþjónustu landhúnað-
arins, sem jafnframt styrkti verk-
efnið. Myndband fylgir. Heftið er
31 bls.
• Aðgát í umferðinni eftir Astu
Egilsdóttur og
Jóhönnu Karls-
dóttur með
myndum eftir
Böðvar Leós er
ætlað 6-7 ára
börnum. Lítill
texti er í bókinni
en myndir gefa
gott tækifæri til
ao ræoa vio Dorn um efni sem snert-
ir þau og umhverfi þeirra. Bókin er
32 bls.
• Þættir í rekstrarhagfræði II
eftir dr. Ágúst Einarsson prófessor
og alþingismann er nýkomin út.
Bókin er ætluð til kennslu á háskóla-
stigi og er framhald fyrri bókar höf-
undar um sama efni. Saman mynda
þær umgjörð um
langflesta þætti í
nútíma rekstrar-
hagfræði. Bókin
er undirbúnings-
útgáfa og fjallar
hún m.a. um
markaðsform,
verðmyndun fyr-
irtækja og sam-
keppni, verð-
stefnu, markaðsmál, skipulag og
stjórnun, ljárþörf, fjármögnun,
kennitölur og fjárfestingar o.fl.
Bókin er 214 bls. að stærð og
gefur Framtíðarsýn hf. Þverholti 9
hana út.
skólar/námskeið
heilsurækt
Norðurijósin,
heilsustúdíó,
Birna Smith,
Laugarásvegi 27,
sími 553 6677
■ Sogæðanudd -
trimmform
öflugt sogæðanuddtæki og sellolite-olíu-
nudd losar líkama þinn við uppsöfnuð
eiturefni, bjúg, aukafitu og örva ónæmis-
kerfið, brennslu og blóðrásina.
Trimmform og mataræðisráðgjöf innifalin.
■ Vöðvabólgumeðferð
með léttu rafmagnsnuddi, acupunktur-
meðferð og heilun opnum við stíflaðar
rásir. Góður árangur við höfuðverk,
mígreni og eftir slys.
myndmennt
HANDMENNTASKOLI ISLANDS
■ Bréfaskólanámskeið
í myndmennt
Á nýársönn, janúar-maí, eru kennd eftir-
farandi námskeið:
Grunnteikning. Líkamsteikning. Lita-
meðferð. Listmálun með myndbandi.
Skrautskrift. Innanhússarkitektúr.
Híbýlafræði. Teikning og föndur fyrir
börn.
Fáðu sent kynningarrit* skólans með því
að hringja eða senda okkur línu.
Sími 562 7644, pósthólf 1464,
121 Reykjavik.
http://www.mmedia.is/handment/
ýmislegt
■ Postulfns- og glermálun
Get bætt við mig nokkrum nemendum
frá miðjum mars og fram í maí.
Jónína Magnúsdóttir (Ninný),
mynd- og handmenntakennari,
sími 565 9099.
ú
■ Zen hugleiðsla
Námskeið í Zen hugleiðslu hefst fimmtu-
daginn 7. mars kl. 20.00.
Á námskeiðinu er kennd Zen hugleiðsla
sem gefur þátttakendum í framhaldi af
því kost á að iöka Zen með hópi sem og
í sínu dagleg lífi.
íslenski Zen hópurinn.
Upplýsingar gefa Helga í síma 568 6516
og Óskar í síma 562 1295.
Barnfóstru-
námskeið 1996
1. 6., 7., 11. og 12 mars.
2. 13., 14., 18. og 19. mars.
3. 20., 21., 25. og 26 mars.
4. 10., 11., 15. og 16. apríl.
5. 17., 18., 22. og 23. aprfl.
6. 6., 7., 8. og 9. maí.
7. 29. og 30. maí, 3. og 4. júni.
8. 5., 6., 10. og 11. júní.
Kennsluefni: Umönnun ungbarna og
skyndihjálp.
Upplýsingar/skráning: Sími 568 8188
kl.8-16.
Reykjavíkurdeild RKÍ.
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein páss laus í mars og aprfl.
Hannes Flosason, s. 554 0123.
skjalastjórnun
■ Inngangur að skjalastjórnun
Námskeið, haldið 1. og 2. aprfl (mánud.
og þriðjud.). Gjald kr. 11.000.
Bókin „Skjalastjórnun" innifalin.
Skráning hjá Skipulag og skjöl
í síma 564-4688, fax 564-4689.
tölvur
■ Tölvunámskeið
Starfsmenntun:
- 64 klst tölvunám
- 84 klst. bókhaldstækni
Stutt námskeið:
- PC grunnnámskeið
- Windows 3.1 og Windows 95
- Word grunnur og framhald
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel grunnur og framhald
- Access grunnur
- PowerPoint
- Paradox fyrir Windows
- PageMaker fyrir Windows
- Internet námskeið
- Tölvubókhald
- ‘ Novell námskeið fyrir netstjóra
- Barnanám
- Unglinganám í Windows
- Unglinganám í Visual Basic
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í síma 561 6699.
Bi Tolvuskoli Reykiavíkur
Borgartúni 28, sími 561 6699.
tungumál
nr
■ Enskunám í Englandi.
Lengi langað?
Láttu nú drauminn rætast.
Boðið upp á námsferð í hóp og á eigin
vegum. Mjög góðir skólar víða í Eng-
Iandi. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 565 0056 milli kl. 15-18.
Erla Aradóttir, MA i enskukennslu,
íulitrúi enskuskólanna The Bell og
Anglo World.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 5517356.
■ Leðurvinna
Námskeið í leðurvinnu verða haldin á
næstunni.
1. Smíði reiðtygja.
2. Almenn leðurvinna.
Hvítlist hf.,
Bygggörðum 7, Seltjarnarnesi,
sfmi 561 2141.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, simi
567-1800
Löggild bflasala
Mazda 121 '92, 5 dyra, rauður, 5 g., ek.
40 þ. km. Fallegur bíll. V. 750 þús.
Subaru Legacy 1.8 Station 4x4 '90,
sjálfsk., ek. 105 þ. km., rafm. í rúðum,
grjótagrind o.fl. V. 1.130 þús. Sk. á ód.
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
.W. Golf 1.4 cl station '94, blár, 5 g.,
ek. 32 þ. km., ráfm. í rúðum, dráttarkúla
.fl. V. 1.150 þús.
Grand Cherokee Limited V-8 '94, ek. 15
km., grænsans., einn með öllu, gullfal-
legur bíll. V. 3.950 þús.
Willys Koranda 2.3 díesíl (langur) '88, 5
|., ek. aðeins 30 þ. km. V. 980 þús.
Toyota Corolla Hatsback XLi '94, grá-
sans., 5 g., ek. 47 þ.km. V. 990 þ.
BMW 518i '88, 4ra dyra, 5 g., ek. 92 þ
km., rafm. í rúðum, sóllúga o.fl. V. 670
þús. (Sk. á D-Cap ’90-’92).
Hyundai Accent GS Sedan '95, ek. aðeins
4 þ. km. V. 960 þús.
Nissan Patrol Turbo diesil langur '92, 5
g., ek. 156 þ. km., rafm. í rúðum, læst
drif, álfelgur o.fl. V. 2.550 þús.
MMC Pajero Turbo Interc. diesel '96,
dráttarkrókur, spoiler o.fl., ek. 12 þ. km
Steingrár. V. 3.090 þ.kr.
Dodge Grand Caravan LE 4x4, 7 manna
'91, 4 captain stólar og bekkur, ABS
bremsur og loftpúði í stýri, rafm. í öllu
samlæsingar, ek. 96 þ. km. V. 1.980 þús.
Nissan Terrano SE V-6 '90, 5 dyra
sjálfsk., ek. 85 þ. km., álfelgur, sóllúga
rafm. í rúðum, hiti í sætum o.fl. Einn eig
andi. V. 1.890 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans
5 g., ek. 120 þ.km., vél yfirfarin (tímareim
o.fl. Nótur fylgja). V. 950 þús. Mjög góð
lánakjör.
Nissan Primera SLX 2000 '95, 5 dyra,
sjálfsk., ek. 16 þ. km., álfelgur, rafm.
rúðum, geislasp., spólvörn o.fl. V. 1.680
þús.
Toyota Corolla Touring GLi 4x4 station
'92, 5 g., ek. 55 þ. km. V. 1.250 þús.
Renault 19 RT 1.8 '94, 5 g., ek. 40 þ. km
V. 1.170 þús.
Fiat Panda 4x4 '91, rauður, 5 g., ek. að
eins 56 þ. km. V. 470 þús.
GMC Tracker 4x4 (Suzuki Sidekick) '90,
hvítur, 5 g., ek. 83 þ. km. V. 980 þús
Útvegum hagstæð
bflalán
Mercedes Benz 230 E '91, sjálfsk., ek.
135 þ. km., sóllúga, ABS o.fl. V. 2,3 millj.
MMC Lancer GLX hlaðbakur '91, sjálfsk
ek. 86 þ. km. Gott eintak. V. 780 þús.
Tilboðsv. 670 þús.
Nissan Patrol diesel turbo Hi Roof (lang
ur) '86, 5 g., ek. 220 þ. km. 36“ dekk,
spil o.fl. Mikið endurnýjaður. V. 1.550 þús,
Cherokee Laredo 4.0L '92, ek. 46
km., grænn, rafm. í rúðum, samlæsingar,
flöskugrænn o.fl. Sem nýr. V. 2.280 þús,
Ath.: Tilboðsverð
á fjölda bifreiða.
V.W. Golf CL 18001 '92, 5 dyra, sjálfsk
ek. 52 þ. km., geislasp. o.fl. V. 960 þús
Toyota Hilux D.cap bensín SR-5 '92,
g., ek. aðeins 45 þ. km. V. .1.550 þús.
V.W. Polo „Fox“ '95, 5 g., ek. 15 þ. km,
V. 870 þús.
M. Benz 280 SEL '82. sjálfsk., ek. 177
þ. km., rafm. i öllu, 2 dekkjagangar. Óvenji
gott eintak. V. 1.250 þús.