Morgunblaðið - 05.03.1996, Side 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
t
Eiginmaður minn,
BETÚEL VALDIMARSSON,
Sogavegi 102,
lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 3. mars.
Sigríður Jónsdóttir.
t
Látin er mágkona mín,
ELfSABET KNUDSEN FORD,
Hemet,
Kaliforníu,
USA.
Fyrir hönd Arthurs Ford og annarra
aðstandenda,
Helga Karlsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og
tengdafaðir,
HJÖRTUR JÓHANNSSON
fyrrverandi
vörubifreiðastjóri,
lést á dvalarheimilinu Hrafnistu 3. mars.
Guðmundina Guðmundsdóttir,
Unnur Hjartardóttir, Jóhann Guðmundsson,
Oddur R. Hjartarson, Soffía Ágústsdóttir,
Sigrún Hjartardóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR ODDSSON,
Hrafnistu,
(áður Nesi við Seltjörn),
sem lést 29. febrúar, verður jarðsung-
inn frá Gaulverjabæjarkirkju á morgun,
miðvikudaginn 6. mars, kl. 14.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir,
sem vilja minnast hins látna, láti Styrkt-
arfélag krabbameinssjúkra barna njóta
þess (sími 588 7555).
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðný Guðmundsdóttir, Víðir Guðmundsson,
Herborg Guðmundsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir, Guðni Sigþórsson,
Finnbjörg Guðmundsdóttir, Benedikt Davíðsson,
Oddný Guðmundsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir, Tómas Walter Marfuson,
Sveinbjörn Guðmundsson, Ólöf Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okk1
ar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARÍU M. ÁSMUNDSDÓTTUR
myndlistarkonu
frá Krossum.
Sérstakar þakkir til alls hjúkrunarfólks á
deild E 63, Heilsuverndarstöðinni.
Guð blessi ykkur.
Áslaug Sigurðardóttir, Jón Eiríksson,
Stefana Karlsdóttir, Ólafur Jón Ólafsson,
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem
sýndu okkur samúð, stuðning og vin-
áttu í þungri sorg við andlát og útför
RAGNHILDAR ARONSDÓTTUR,
Neðstalefti 1,
Reykjavík,
Guð blessi ykkur öll.
Haukur F. Leósson,
Inga Lára Hauksdóttir, Einar Ólafsson,
Hildur Hauksdóttir, Gylfi Sigfússon,
Aron Hauksson, Dagrún Mjöll Ágústsdóttir,
Leó Hauksson, Sif Jónsdóttir,
Haukur Már Hauksson,
barnabörn og
Guðmundur, Páll og Óli Már Aronssynir.
BJÖRN
BJARNARSON
+ Björn Bjarnar-
son fæddist á
Sauðafelli í Dölum
14. maí 1918. Hann
lést í Hjúkrunar-
heimilinu Eir 25.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar Björns
voru Jón Bjarnar-
son, bóndi og síðar
verslunarmaður í
Reykjavík, Bjarnar-
sonar sýslumanns í
Dalasýslu Stefáns-
sonar og Steinunn
Anna Baldvinsdóttir
bónda á Hamraend-
um í Miðdölum Bald-
vinssonar. Systkini Björns voru
Baldvin Bjarnarson, f. 30.8.
1920, d. 1970, og hálfsystir
þeirra Brynhildur Jónsdóttir
Bjarnarson, f. 28.3. 1928.
Björn kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Rítu Elise hár-
greiðslukonu, 5. maí 1946. Björn
og Ríta eignuðust þijú börn: 1)
Ella Birgitta f. 24.7. 1947,
sjúkraþjálfari, gift Helga Torfa-
syni jarðfræðingi og eiga þau
eina dóttur, Sunnu Birnu 2) Sig-
rún, f. 19.5. 1952, hjúkrunar-
fræðingur, gift Magnúsi Böðvari
Eyþórssyni tæknifræðingi og
sonur þeirra er Eyþór, börn
hennar af fyrra hjónabandi Dav-
íð Björn Ólafsson og Sara Mar-
grét Ólafsdóttir 3) Jón Bjarnar-
son, f. 1.7. 1959, heimilislæknir,
kvæntur Guðrúnu Soffíu Karls-
dóttur og eiga þau fimm börn,
Karl Kristján, Magnús, Soffíu,
Björn og Steinar.
Björn varð gagn-
fræðingur frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1935. Að-
stoðarmaður Pálma
Einarssonar og As-
geirs L. Jónssonar
við landmælingar í
fjögur sumur
1935-38. Búfræð-
ingur frá Hvanneyri
1937. Vann á bú-
garði í Danmörku
1937-1938. Búfræði-
kandidat frá Búnað-
arháskólanum í
Kaupmannahöfn
1941. Aðstoðarmaður við Præstö
Amts Grundforbedringsudvalg
1941-1944 og ráðunautur í fram-
ræslu í Ringsted í Danmörku
1944-1946. Ráðunautur í jarð-
rækt hjá Búnaðarfélagi Islands
frá 1946 til 1986. Starfaði þar
tvö ár til viðbótar við ýmis verk-
efni. Sat í vélanefnd ríkisins frá
stofnun 1950 til 1966, í verk-
færanefnd ríkisins frá 1954-65,
í matsnefnd eignarnámsbóta frá
setningu laga um þá nefnd 1973.
Annaðist árlegt útboð í skurð-
gröft og plóggræslu. Auk þess
hefur Björn skrifað um landbún-
að í blöðum og tímaritum og
einnig hefur hann haldið erindi
í útvarpi, á bændafundum og
námskeiðum. Útför Björns verð-
ur gerð frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
BJÖRN, tengdafaðir minn, var um
margt eftirminnilegur maður. Eg
kynntist honum fyrst laust eftir ára-
mótin 1973 og þrátt fyrir mitt síða
hár og skegg, sem þá var í tísku, tók
hann mér vel og æ síðan. Hann var
yfirlætislaus og Iaus við tildur og
snobb, fyrirleit fátt meira en fals og
undirferli, var hreinskiptinn og
traustur. Hann var einstaklega ósér-
hlífinn og þá ártugi sem ég þekkti
hann tók sér aldrei sumarfrí, nema
einu sinni er hann heimsótti okkur
konu mína til Englands. Hann var
sívinnandi og bar hag bænda mjög
fyrir bjjósti, enda átti hann þar
marga góða vini. Hann tók því ætíð
illa ef hallað var á landbúnaðinn, var
þá betra að hafa sig hægan. Fram-
sóknarmaður var hann af mikilli trú-
festu.
Björn fæddist að Sauðafelli í Döl-
um og þótti ákaflega vænt um þá
sveit og búmenn þar. Á fullorðinsá-
rum sagði hann að sínar mestu ham-
ingjustundir hafi hann átt er hann
var í sveit hjá afa sínum og ömmu
á Hamraendum í Miðdölum. Björn
fluttist bamungur til Reykjavíkur,
lauk þar skólagöngu í Menntask.ólan-
um, varð búfræðingur frá Hvanneyri
og sigldi síðan til Danmerkur til
framhaldsnáms. Hans sémám var í
jarðrækt og er heim kom réðst hann
sem ráðunautur hjá Búnaðarfélagi
Islands og vann einkum að fram-
ræslu. Ekki aðeins hafði hann heim
með sér frá Danmörku aukna þekk-
ingu í búfræðum heldur og einnig
sína ágætu konu. Raunar hóf Björn
störf sem aðstoðarmaður hjá Búnað-
arfélaginu áður en hann hélt til náms
og ferðaðist þá á hestum vestur á
firði og víðar, ekki var hann samt
áhugasamur um þær fögru skepnur.
Björn mældi fyrir skurðum og síkj-
t
Konan mín,
MAGNEA HJÁLMARSDÓTTIR
kennari,
Suðurgötu 7,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 25. febrúar,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík miðvikudaginn 6. mars
kl. 13.30.
Friðrik Jónasson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BERTA BJÖRNSDÓTTIR,
Karfavogi 11,
lést í Vífilsstaðaspítala 1. mars.
Rakel Ólafsdóttir, Ásgeir Magnússon,
Edda Ólafsdóttir,
Gunnhildur Ólafsdóttir, Olgeir Bárðarson,
Sjöfn Ólafsdóttir, Jón Brynjólfsson,
Ólöf Ólafsdóttir, Ólafur Benediktsson,
Kjartan Örn Ólafsson, Anna Gísladóttir,
Ólafur Þór Kjartansson, Sigrún Þórarinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
um, einkum á Vesturlandi, Vestflörð-
um og Norðurlandi. Hopum sveið
fátt sárar en sú mikla gagnrýni sem
landbúnaðurinn hefur þurft að sitja
undir á undanförnum áratugum,
þótti þar síst of miklu til kostað,
enda alinn upp á þeim tímum sem
mjólk og smjör var munaðarvara.
Honum fannst það mikil fégræðgi
að þiggja laun fyrir yfirvinnu og
vann því löngum kauplaus við að
ösla mýrar og stika hóla til að ljúka
dagsverki sínu. Þeir hafa varla fítnað
mikið sem voru aðstoðarmenn hjá
honum. Er líða tók á starfsævi Björns
fækkaði verkum í framræslu og er
hann var að mestu hættur störfum
var farið er að ræða um í fullri al-
vöru að fylla ofan í skurðina hans
aftur. Fáir hafa þurft að horfa upp
á erfitt lífsstarf verða þannig að
engu eða litlu haft.
Er ég kynntist Birni var hann far-
inn að láta á sjá vegna mikillar vinnu
og sjúkdóma sem hann barðist löng-
um við, en aldrei kvartaði hann eða
lét vita að sér liði illa. Heilsuleysið
fór þó stundum mjög í skapið á hon-
um og átti hann til að vera ansi
hvassyrtur ef honum mislíkaði. Eitt
helsta áhugamál Björns var að safna
frímerkjum og átti hann gott safn,
og stundum laumaðist hann til að
kaupa eitt og eitt stykki þegar lítið
bar á. Hann var meðstjórnandi í
Félagi íslenskra frímerkjasafnara
1969-75.
Þau átta ár sem við bjuggum á
hæðinni fyrir neðan Björn kvaldi
aldrei nábýlið, hann kom stundum
niður til að fylgjast með, en átti erfið-
ara og erfíðara með að klöngrast
niður stigann. Til að efna loforð við
dóttur mína fór ég eitt sumarkvöld
með plagg til Bjöms og fór fram á
leyfi til að hafa hund. Þessu hafði
hann hafnað nokkrum sinnum áður,
nú velti hann þessu lengi fyrir sér
og skrifaði svo undir þótt honum
væri það þvert um geð. Hvolpurinn
kom og vann hug gamla mannsins
sem kunni vel að meta vináttu og
trygglyndi hundsins.
Eg kveð Björn með þakklæti fyrir
að hafa kynnst svo heilsteyptum
manni og hreinlyndum, hann skilur
eftir sig birtu og yl. Ritu og aðstand-
endum votta ég mína dýpstu samúð
á þessari sorgarstundu.
Helgi Torfason.
Þegar framfarasaga íslensks land-
búnaðar á þessari öld verður rakin
verður þáttur ræktunarmálanna og
BLÓMABÚÐ
! MICHELSEN
j I IÓ1.AGARDI S. 5.57 3460.
: AÐEINS ÞAÐ BESTA
í ÍGLEÐI OGSORG.
I j fHa, hr'
3$ ÁRA
STARFSRJEYNSLA
í UTFARAIL
SKREYTINGUM.
I 'iííy
MICHELSEN
HÓLAGARÐI.
í MHMMMRiMMMMi
Erfídrykkjur
Glæsilegt kaffihlaðborð
og hlýleg salarkynni.
Góð þjónusta.
HOTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38.
Upplýsingar í simum 568 9000 og 588 3550